Tíminn - 10.08.1972, Síða 6
'6
TÍMINN
Fimmtudagur 10. ágúst 1972
Hóladagur á sunnudaginn
Næstkomandi sunnudag, 13.
ágúst, verður hinn árlegi Hóla-
dagur haldinn hátiðlegur að
Hólum íHjaltadal, á vegum Hóla-
félagsins. ^
Hátiðin hefst með guðsþjónustu
kl. 14 i Hóladómkirkju. Blásara-
sveit flytur „Intróitus” i upphafi
guðsþjónustunnar undir stjórn
R<jar Kvam. Sira Sigurður
Paieson, vigslubiskup flytur
pretnkun. Sira Pétur Sigurgeirs-
son, vigslubiskup og sira Gunnar
Gislason i Glaumbæ þjóna fyrir
altari, en kirkjukór Sauðárkróks
annast söng undir stjórn Frank
Herleifssen, organleikara.
Eftir guðsþjónustuna verður
nokkurt hlé og gefst mönnum þá,
tækifæri til að skoða Hólastaö.
Einnig verða veitingar á boð-
stólnum á sumarhótelinu á
Hólum.
Að loknu hléi hefst samkoma i
kirkjunni. Dagskrá samkomunn-
ar verður á þessa leið: Formaður
Hólafélagsins sira Arni Sigurðs-
son tlytur ávarp. Gisli Jónsson,
menntaskólakennari á Akureyri,
flytur erindi um: „Hinn forna
Hólaskóla og Jón ögmundarson,
biskup.” Félagar úr nýstofnaðri
kirkjutónlistarsveit á Akureyri.
Friðsæl verzlunar-
mannahelgi á
Króksf jarðarnesi
ÖEó—- Króksfjarðarnesi.
Siðla á löstudag fór fólk að
streyma á Króksfjarðarnes og
reisti það tjöldin sin i nágrenni
félagsheim ilisins Vogalands.
Dansleikir voru i félagsheimilinu
á föstudags- og laugardagskvöld.
Fólkið kom mjög vel Iram, og
kom ekki til neinna óhappa, svo
vitað sé.
Veður var hið fegursta alla
dagana, en i gær tóku gestir upp
tjöld sin og héldu heim.
Kaupfélagið hafði opna af-
greiðslu fyrir íerðafólk alla dag-
ana, sem var þakksamlega þegin
og mikið notað. Danshljómsveitin
Ásar léku bæði kvöldin i Voga-
landi. Forráðamenn á Króks-
fjarðarnesi þakka gestum fyrir
komuna og ánægjulega fram-
komu.
Hálfnað
erverk
þá hafið er
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
leika kirkjulegt tónverk undir
stjórn Róar Kvam, en frú Gígja
Kjartansdóttir annast undirleik á
orgel. Að lokum flytur sira Pétur
Sigurgeirsson vigslubiskup
hugleiöingu og bæn.
Prestar eru beðnir að koma
hempuklæddir til guðsþjónustu.
t sambandi við Hóladaginn
verður aðalfundur Hólafélagsins
haldinn að Hólum og hefst
fundurinn kl. 10.30 f.h.
A staðnum verða til sölu Hóla-
merki.
Hólafélagið væntir þess, að
Norðlendingar og ferðamenn.sem
vafalaust verða margir á Norður-
landi, um þessa heigi, fjölmenni
heim að Hólum á sunnudaginn.
(Frá Hólafélaginu).
Þrem kindum bjargað úr
svelti af syllu í Þórsmörk
<>V-Reykjavik
llópur ferðafólks frá Ferðafé-
lagi islands, sem var að koma úr
Pórsmörk um helgina, fékk á
sunnudaginn um kl. 17 fregnir af
þvi, að i Tindafjallagili, rétt fyrir
austan Tröllakirkju, væru þrjár
kindur i sjálfhcldu i bjargi.
Ferðalangarnir hlupu þegar til
og náðu saman köðlum og var
siðan sigið niður. Kindurnar, tvær
ær og eitt lamb, voru þá á syllu,
sem i mesta lagi var tvö fet á
breidd, og var mjög af þeim dreg-
ið. Það var Guðmundur Magnús-
son, kennari úr Reykjavik, sem
seig niður, en þeir Jón Böðvars-
son menntaskólakennari og Gisli
Pétursson, húsvörður Ff, voru
með handvað.
Gekk tiltöluiega vel að koma
böndum á kindurnar og voru þær
siðan leiddar að lækjarsprænu,
þar sem þær fengu sér að drekka
og eitthvað að bita. Annað lamb
var þarna skammt frá og slóst
það i hópinn með hinum þremur
um leið og þeim hafði verið
sleppt.
Eins og áður segir, þá voru
kindurnar þrjár orðnar mjög að-
framkomnar af hungri og sagði
einn ferðalangurinn blaðamanni
Timans, að þær hefðu verið orðn-
ar grindhoraðar. Greinilega hefði
lambið þó sogið, þvi það var hvað
hressast, en á syllunni hafði verið
rifin upp bæði mold og sandur.
Sagðist heimildarmaður okkar
álita, að kindurnar þrjár hefðu
veriðá syllunni i að minnsta kosti
10 daga.
Allar voru kindurnar með sama
marki — að sögn styft og lögg aft-
an bæði. Það mark finnst þó ekki i
þeirri markaskrá Rangæinga,
sem við höfum handbæra, enda
má vera, að hér skakki þvi, að
hófbiti hafi verið talinn lögg.
Þá væru kindurnar frá Yzta-
skála undir Eyjafjöllum.
Þórsmörk á raunar að vera
friöuð, en fé kemst margt, þótt
torfært sýnist og kveinkar sé
jafnvel ekki við að synda yfir
Krossá, ef grænkan hinum megin
freistar.
llpp á sylluna, sem þessar
kindur himdu á, eru 10-15 metrar
og einir 25 eða 30 frá brún. Lamb-
ið, sem var lyrir neðan, hinum
megin i gilinu, hefur orðiö eftir er
hinar kindurnar fóru upp og (jvi
stóð það fyrir neðan, fylgdist meö
og jarmaði.
Heimildarmaður blaðsins
sagðist nokkuð viss um, að allt að
300 fjár væru nú i Þórsmörk —
flest sérdeilis vænt fé.
Töluvert var um ferðafólk i
Þórsmörk um helgina, enda var
þar mjög gott'veður.
Stjórn Sölustofnunar
Lagmetisiðnaðarins
Iðnaðarráðherra, Magnús
Kjartansson, hefur skipað stjórn
Sölustofnunar lagmetisiðnaðar-
ins til þriggja ára, skv. 4. gr. laga
nr. 48/1972, um Sölustofnun lag-
metisiðnaðarins.
I stjórnina voru skipuð:
Formaður: Guðrún Hallgrims-
dóttir, matvælaverkfræðingur.
VaTraformaður: Jóhann Guð-
mundsson, efnaverkfræðingur.
Jón Árnason, alþingismaður,
Akranesi. Varamaður: Kristján
Jónsson, forstjóri Akureyri.
Tryggvi Jónsson, forstjóri.
Varamaður: Böðvar Sveinbjarn-
arson, forstjóri, Isafirði.
Samkvæmt tilnefningu aðalfund-
ar fulltrúaráðs atvinnurekenda,
sem aðild eiga að stofnuninni.
Ólafur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri, Neskaupstað.
Varamaður: Pétur Pétursson, al-
þingismaður. Samkvæmt tilnefn-
ingu viðskiptaráðuneytisins.
Hörður Vilhjálmsson, viðskipta-
fræðingur. Varamaður: Heimir
Hannesson, lögfræðingur. Sam-
kvæmt tilnefningu fjármálaráðu-
neytisins.
Skipaðir hafa verið til þriggja
ára til að endurskoða reikninga
stofnunarinnar: Þórarinn Jóns-
son, löggiltur endurskoðandi,
samkvæmt tilnefningu aðalfund-
ar fulltrúaráðs og Guðmundur
Magnússon, deildarstjóri, sam-
kvæmt tilnefningu fjármálaráðu-
neytisins.
Framkvæmdastjóri er dr. Örn
Erlendsson, hagfræðingur.
(Fréttatilkynning frá
Iðnaðarráðuneytinu
9. ágúst, 1972)
Gangið sómasam
lega um sveitina
okkar!
Mývetningar hafa orðið til þess,
fyrstir allra forráðamanna
sveita að láta úrvarpa áskorun
um góða umgengni i sveitinni.
Þetta helgast af sjálfsögðu af þvi,
að þangað streymir hvert sumar
meiri fjöldi ferðamanna en i
nokkra aðra sveit landsins.
Aragrúi ferðamanna tjaldar þar,
og þó að þorri fólks gangi sóma-
samlega um, eru ávallt sóðar og
jarðvöðlar innan um.
— Það eru þó nokkur ár siðan
sveitarstj’órnin lét setja rusla-
tunnur við veginn, þar sem
einkum er tjaldað, og að þvi
hefur orðið veruleg bót, sagði
• •
Okuníðing-
ar á barmi
Vítis
ökuniðingarnir láta viða eftir
sig spor. Við allra sjónum blasir,
hið næsta fjöliórnum vegum,
hvernig ruddar við stýri hafa
þanið sig i bilum sinum upp á
Kögunarhól i ölfusi og Meyjar-
sæti við Hofmannaflöt, og
Bolabás undir Ármannsfelli,sem
bókstaflega var undirorpinn eyði-
leggingu af völdum tillitslausra
bílstjóra, hefur orðið að girða,
svo að þessi manntegund fengi
ekki komið sér þar við.
Þótt þessir staðir séu hér
nefndir, af þvi að þeir eru ofar-
lega i huga þeirra, sem eiga
heima hér á suðvesturhorni
landsins, hafa ótal margir aðrir
sérkennilegir staðir viðs vegar
um landið verið svipað leiknir.
öræfin verða lika fyrir barðinu á
þessum fautum, sem einskis
svifast, þegar þeir geta beitt öku-
tækjum á landiö. Til dæmis hefur
verið böðlazt upp á barma Vitis
við öskju, þar sem djúp hjólför i
leirnum æpa sektardóminn á móti
þeim, er þangað koma.
fréttaritari Timans, Jón
Illugason.
Við Grjótagja, þar sem jafnvel
hefur komið fyrir, áð fólk hafi
hægt sér, hefur verið sett upp
salerni, þótt vafasamt sé, að það
komi i veg fyrir slikt, er tæpast
getur starfað af öðrum hvotum en
illkvittni og óþverraskap.
Heyblásar-
inn senn
tekinn í
notkun
SB—Reykjavik
Heyblásarinn, sem við sögðum
frá i fyrra mánuöi að ætlaði að
skáka votvibrunum á Skálpa-
stöðum i Lundarreykjadal, hefur
enn ekki verið tekinn i notkun.
Ástæðan er ekki sú, að þurrkur
hafi komið strax, heldur hefur
enn ekki reynzt unnt að fá hæfi-
lega stærð af vél i blásarann. Vél
sú, sem i honum var, er 3ja fasa
og hæggeng og dugar hún ekki.
Undanfarið hefur verið leitað að
annarri, og stendur nú til að
reyna eina. sem ætlað er að dugi,
en þá lætur rafvirkinn, sem á að
tengja hana, á sér standa. Sagði
Þorsteinn á Skálpastöðum i gær,
aö rafvirkinn heföi lofað að koma
fyrir helgina, en ekki bólaði á
honum enn. Mönnum fyndist
heldur ekki ástæða til að reka
hart á eftir, meðan þurrkurinn
væri svona prýðilegur.
Rætt um stofnun fólk-
vangaá þremurstöðum
A náttúruverndarþingi i april
sl. var kosið nýtt Náttúruvernd-
arráð. Með hinum nýju lögum um
náttúruvernd er ráðinu fengið
mjög aukið valdsvið, þ.á.m. um-
sjá þjóðgarða annarra en Þing-
valla, en um þá gilda sérstök lög.
Ráðið hefur siðan haidið 13
fundi og tekið fyrir fjölda mála.
Dagana 2. til 4. ágúst ferðaðist
ráðið um Austur-Skaftafellssýslu
og hélt þar fundi. Meginverkefnið
að þessu sinni var að fjalla um
málefni þjóðgarðsins i Skaftafelli
i öræfum og kynna sér viðhorf
heimamanna til þeirra breyttu
aðstæðna, sem stofnun hans mun
skapa I héraðinu á komandi ár-
um.
Ennfremur fjallaði ráðið um
ýmis mái, sem nú eru á döfinni og
snerta náttúruvernd á einn eða
annan hátt. Má. þar nefna fyrir-
hugaða stofnun fólkvanga á
Reykjanesskaga, i Neskaupstað
og á Hólmanesi milli Eskifjarðar
og Reyðarfjarðar. Þá var og fjall-
að um friðun Hvannalinda, Eld-
borgar i Hnappadal, Helgafells i
Vestmannaeyjum, Ingólfshöfða,
Skútustaðagiga og votlendis i
neðanverðum Svarfaðardal, en
þessi friðunarmál ásamt fleiri
eru á ýmsum stigum undirbún-
ings.
Loks var rætt um almenna um-
gengni og fræðslu, og samvinnu
Náttúruverndarráðs við helztu
framkvæmdastofnanir i landinu,
en ráðið leggur mikla áherzlu á
samráð við þá aðila.
Aðloknum fundum ráðsins
brugðu nokkrir ráðsmenn sér út á
Lón til að skoða Dimu, sem er
klettaborg á Jökulsáraurum, en
eigendur Stafafells og Þórisdals
hafa nýlega gefið hana og verður
hún friðuð sem náttúruvætti.
Framarabúðin
heitir reyndar
Straumnes
ÓV—Reykjavik
Þegar minnzt var á nýju verzl-
unina i Breiðholti III i föstudags-
blaðinu, varð fréttamanni blaðs-
ins það á að kalla hana „Fram-
nes’”, en ekki „Straumnes” eins
og rétt er. Ástæðan fyrir þessu er
vafalaust sú, að Jón kaupmaður
Sigurðsson i Straumnesi er mikill
Framari, og þegar fréttamenn
heimsóttu verzlunina á fimmtu-
daginn, var mikið talað um
Fram. Við biðjum Jón i Straum-
nesi margfaldlega afsökunar á
þessum mistökum og itrekum, að
verzlunin nýja í Breiðholti III
heitir Straumnes.