Tíminn - 05.10.1972, Page 9
Kimmtudagur 5. október 1972
TÍMINN
9
ða
andaða”
i af fágætum hagleik
Eftir þann tima er maður orðinn
þreyttur, og þá verður verkið ekki
heldur eins gott.
— Áttu þér ekki fleiri hugðar-
efni, sem þú vinnur að i tóm-
stundum?
— Ég hef mjög gaman af þvi að
taka myndir og geri talsvert að
þvi, þegar tóm gefst frá öðrum
störfum.
— Attu kannski safn fallegra
landslagsmynda frá Islandi og
Danmörku?
— Nei, ég á ekki mikið af þvi.
— Vel á minnzt: Finnst þér ís-
land fallegt land?
— Já, tsland er ákaflega fagurt
land. En einkum finnst mér þó
loftslagið hér yndislegt. Þetta
lllBBIIIlllllllillHl
Kaj Jensen við vinnuborð sitt, þar sem hann sker út i hvaltönn af dxmafáu listfengi. — Timamynd (JE.
Aðrar myndir á siðunni eru af smíöisgripum Jensens, og hefur hann sjálfur tekið þær.
hreina og tæra loft, sem aldrei
verður of heitt eða of kalt.
— Veröur nokkurn tima of heitt
i Danmörku?
— Já, komið getur það fyrir.
Ég skrapp þangað i sumarfriinu
minu i sumar, og þá var mér sagt,
að þar hefði nýlega gengið yfir
hitabylgja með þrjátiu stiga hita.
Eg var ákaflega feginn að hafa
ekki lent i þessari hitabylgju þvi
það er ekki þægilegt að vera úti i
svo miklum hita, einkum ef lika
er logn.
— En finnast þér ekki leiðin-
legir umhleypingarnir hér —
þessi eilifi stormur og rigning?
— Það er nóg af þvi i Dan-
mörku lika. Þar er oft stormur,
og ekki vantar rigninguna.
— Er nú samt ekki stöðugra
veðurfar i Kaupmannahöfn en til
dæmis i Reykjavik?
— Ég tel, að það sé mjög svip-
að, hvað stöðugleika snertir. En
það sem mér finnst bezt við veð-
ráttuna á íslandi, er að hér losnar
maður bæði við mesta hitann og
mesta kuldann.
— Hvaðvarst þú gamall, þegar
þú fluttist hingað?
— Ég stóð á þritugu. Fæddist
árið 1929 og kom hingað 1959.
— Og þú kannt vel við þig hér?
— Já, annars væri ég farinn til
Danmerkur fyrir löngu.
Má ég spyrja, hvernig stóð á
þvi, að þú fluttist hingað?
— Já, það er ekki neitt leyndar-
mál, þótt að visu teljist það til
einkamála. Svo var mál með
vexti, að ég kynntist minni is-
lenzku konu, þegar hún var við
nám i Kaupmannahöfn. En hún
vildi helzt eiga heima á Islandi,
svo við gerðum með okkur samn-
ing til fimm ára. Það er að segja,
að við skyldum byrja á þvi að búa
hér á tslnadi, en flytjast þá til
Danmerkur, ef mér likaði ekki
vistin hér. En þegar svo þessi
fimm ár voru liðin, var ég farinn
að una mér svo vel hérna, að ég
kaus ekki að breyta um bústað.
— En hvað um listiðn þina?
Hefurðu ekki hug á þvi að færa
þar út kviarnar?
— Mig langar til þess aö kynn-
ast þessu betur. Hingað til hef ég
unnið þetta alveg á eigin spýtur
og litið haft við að styðjast nema
sjálfs mins hyggju. Ég vil þvi alls
ekki kalla mig neinn sérfræðing á
þessu sviði, heldur aðeins áhuga-
mann. En það væri ákaflega
gaman að ferðast til útlanda og
sjá vinnubrögð þeirra, sem hafa
langa reynslu i þessu. Ég nefni
sem dæmi, ef maður gæti skropp-
ið til Kina. Þeir hafa nokkur
þúsund ára reynslu i svona
hlutum. Það gæti orðið notadrjúgt
að kynnast vinnubrögöum þeirra.
— Hefur þú ekki kynnt þér is-
lenzkan myndskurð?
— Eins og ég sagöi áðan, voru
fyrstu kynni min af þessu þau, aö
ég sá á islenzku heimili mynd-
skurð eftir Rikarð Jónsson.
Seinna sá ég meira eftir hann, og
mér hefur alltaf fundizt hand-
bragð hans framúrskarandi fag-
urt. Það er bók þarna uppi i hill
unni, sem ég kalla Bibliuna mina.
Hún hefur að geyma ljósmyndir
af listaverkum Rikarðs. Ég ópna
hana oft. Fjölbreytni hans i
verkavali og listfeng vinnubrögð
er hvort tveggja frábært.
— Hefur þú aldrei fengizt við
grjótið?
— Nei, ég er ekki myndhöggv-
arú A steininn hef ég aldrei ráðizt.
Aftur á móti hef ég dálitið átt við
leirinn. Það er gaman að móta i
leir, en ég get nú samt ekki mikiö
talað um afrek min á þvi sviði.
Maður á ekki að láta neitt frá sér
fara, sem maður er ekki fyllilega
ánægður með.
- Þér þykir betra að smiða fáa
gripi og góða, en marga miður
vandaða?
— Já, einmitt. Ég hef aldrei
haft neinn áhuga á fjöldafram-
leiðslu. Vissulega væri hægt að
breyta til um vinnubrögð. Vanda
sig minna, en leggja alla áherzlu
á afköstin. Gera úr þessu hreina
kaupmennsku. En þetta hef ég
aldrei viljað. Ég vil heldur, aö
verk mitt sé vandað, þótt það
verði að einhverju leyti á kostnað
afkastanna.
— Hefur þú ekki unnið hjá
neinum aðila hér á landi, sem
framleiðir listmuni?
— Jú, ég vann um tima hjá
Gliti, og naut þar leiðsagnar
Ragnars Kjartanssonar.
— Hvers myndir þú óska þér,
ef þú mættir bera fram einhverja
ósk, sjálfum þér til handa, nú og
hér?
— Ég myndi óska þess, að ég
mætti halda áfram að stunda
myndskurð og að ég gæti unnið aö
þvi áhugamáli minu i meira og
betra húsnæði en ég nú hef yfir að
ráöa.