Tíminn - 05.10.1972, Qupperneq 12

Tíminn - 05.10.1972, Qupperneq 12
12 TÍMINN Fimmtudagur 5. októbcr 1972. Vance hafði sent honum ný fyrirmæli, sem hann framfylgdi af mikilli nákvæmni. Meðal annars dældi hann i mig tvöföldum skammti og gerði margar varúðarráðstafanir til þess aö það ylli mér sem allra minnst- um óþægindum. ,,Ég held, að það sé ráðlegast, að ég komi ekki á morgun”, sagði ég um leiö og ég kvaddi. ,,Ég kemst ekki út á sjálfan jóladaginn, án þess að þvi sé veitt athygli. Auk þess borðar þú miðdegisverðinn hjá okkur”. bað var ljós i kirkjunni við torgið, og ég vissi, að nú var verið að skreyta hana fyrir aftansönginn. Bak við naktar greinar álmtrjánna og hlynviðarins sá ég rautt og gult og blátt ljós leggja út um litglerið i kirkjugluggunum, sem mér voru svo minnisstæðir frá bernskuárunum. t einum þeirra var mynd af Jesú að blessa börnin. Sá gluggi hafði verið gefinn kirkjunni til minningar um ömmu mina. Annar hafði verið gef- inn til minningar um afa minn. t honum var mynd af Jesú, er hann mettaði mannfjöldann. Hinn þriðja höfðu Emma frænka og Wallace gefið eftir dauða föður mins tii minningar um hann og aöra Blairs- borgarbúa, sem létu lifiö i Frakklandi á þeim árum. Allt i einu datt mér i hug að binda Tátu við eitt tréð og skyggnast inn i tóma kirkjuna. Djákninn var að ljúka við að skreyta kórinn, og höfuga angan af furu og greni lagði á móti mér innan úr hlýrri kirkjunni, er ég kom inn i fordyr- ið. Dumbrauðar jólastjörnur voru eins og eldtungur i bjarmanum frá kertaljósunum i kórnum. Annars var friðsælt rökkur i kirkjunni, og i söngstúkunni glórði i eirrauöar pipur orgelsins. Svona höfðu þær ein- mitt komið mér fyrir sjónir áður fyrr, þegar ég var ekki stærri en það, að ég gat rétt skyggnzt yfir stólbrikurnar. Svona höfðu furugreinarnar angað á jólunum i bernsku minni. Ég settist i bekk framarlega i kirkj- unni. En hátiðablær hins heilaga húss gat ekki veitt mér sömu hugsvöl- un og fró áður fyrr. Ég stóð upp og staðnæmdist snöggvast fyrir framan eirskjöldinn, sem hengdur hafði veriðupp til minja um föður minn. ,,Til dýrðar Guði og minningar um Elliot Blair”, las ég. Ég þráði föður minn, og ég las þessi orð hvað eftir annað. En það var aöeins eins og hann væri mér ennþá fjariægari en áður. Og svo sneri ég loks við og gekk hljóðlega út. Hefði hann getað komiöá fund minn þetta jólakvöld, myndi ég áreiðan- lega hafa komið honum enn ókunnuglegar fyrir sjónir en hann mér. bað var oröiö dimmt, er ég kom heim á akbrautina við húsið okkar. Táta var óvenjulega óstýrilát við mig. Hún togaði f bandið, nuddaði hausnum við fætur mér og reyndi hvaðeftir annað að hiaupa frá mér út i garðinn. Ég snupraði hana, en hún varð þvi þrárri, þvi meir sem ég reyndi aö fá hana til að fýlgja mér heim að húsdyrunum. Loks varð ég að láta undan henni. Ég fór i humátt á eftir henni, og þá var það, sem ég fann Emmu frænku liggjandi hjálparvana við stigaþrepin fyrir framan gafldyrnar. Ég man óljóst, hvað gerðist eftir það. Manga og Jói gamli Kellý hjálpuðu mér að bera hana inn, og þar reyndum við að hressa hana með ammoniaki og brennivini, meðan verið var að sækja Weeks lækni. bess á milli hlúðum við að henni með brekánum og ábreiðum og reynd- um að ylja iskaidar hendur hennar. Jólatréð stóð i einu horninu og beið þess, að það væri skreytt. Ég sá, að Emma frænka renndi augunum i áttina til þess, þegar ég lyfti höfði hennar upp af bekknum til þess að smeygja undir það kodda. Andlit hennar var afskræmt af þjáningum, en samt varðhenni fyrst litið á jólatréðog svo á mig, eins og hún væri á þögulan hátt að biðjast afsökunar á því, að þetta slys skyldi einmitt hafa hent sig á sjálfan aðfangadaginn. Vissulega hefði hún orðið fyrir slysi, miklu alvarlegra heldur en mig grunaði, unz ég sá svipinn á Weeks lækni, er hann hafði skoðað hana. Við Manga þustum sin i hvora áttina — hún að símanum, ég upp á loft að sækja fleiri brekán, fleiri kodda og sæng. Hún var mjaðmarbrotin, sagöi Weeks, þegar hann gaf sér tima til að segja, hvað i efni var. Hann óttaðist, að beinið hefði gengið mjög úr skorðum, og sjálfsagt hefðu til- raunir hennar til þess að risa á fætur og klaufaleg handtök okkar, er við bárum hana inn, ekki bætt úr skák. bað yrði þegar i stað að flytja hana i sjúkrahús og gegnumlýsa hana til þess að sjá, hvernig brotinu væri háttað, áður en henni væri veittur umbúnaður. — Ef hægt hefði verið að ná til Mereks Vance... Mér varð lika hugsað til hans, er ég var að gera það litla, sem ég gat gert til gagns, áður en sjúkravagninn kæmi. begar þvi var lokið, settist ég hjá henni og tók utan um kalda hönd hennar og reyndi að vera eins róleg og sviplétt og ég gat. Emma frænka hafði andæft að veikum mætti, þegar Weeks nefndi sjúkrahúsið. Hún var þvi óvön, aö óskir hennar væru að engu hafðar, en i þetta skipti varð hún þó að sætta sig við annarra ráð. Ég klökknaði, þegar hún loks lét undan lækninum. En þrátt fyrir andmæli hennar duldist mér ekki á þessari stund, að hún leit ekki aðeins á hann sem lækni og venjulegan ráðvin. Og sjálf varð ég snögglega hugdeig og kviðin, þvi að ég vissi, að i sjúkrahúsinu mundi Merek Vance ekki biða komu okkar i hvitum slopp og með leiknar hendur til liknar og bjargar. Blair afi minn hafði látið reisa Minningarsjúkrahús Blairsborgar og séð þvi fyrir föstum tekjustofni. bó haföi enginn af ætt okkar notið þar læknishjálpar fyrr en þetta kvöld. Sjúkrahúslæknirinn og hersing af hjúkrunarkonum biðu komu okkar. Allt var til reiðu, og ekkert, sem hægt var að gera, var látið ógert. Ég vissi, að Emmu þótt vænt um þetta umstang, þrátt fyrir þjáningar sinar. bað minnti hana á hina gömlu góðu tima, þegar þeim var virðing sýnd, sem viröing bar. Ég vona, að hún hafi gleymt um hrið erfiðleikum og andstreymi liðandi stundar. ,,En hvernig gat þetta komiðfyrir?” spurði Wallace frændi hvað eftir annað og gekk um gólf i biðstofu sjúkrahússins. Hann hafði komið heim úr skrifstofum verksmiðjanna, þegar sjúkravagninn var að fara út úr garðshliðinu og undir eins flýtt sér á eftir okkur. ,,Hún fór út i einhverjum erindum”, svaraöi ég, ,,og datt á dyra- þrepunum, þegar hún var að koma heim. bú veizt, hvernig lekur af upsunum, þegar sólin skin á snjóinn á þakinu, og svo verða þrepin flug- hál strax og kvöldar. Við vitum ekki, hve lengi hún kann að hafa legið þarna”. ,,Og að þetta skyldi koma fyrir á jólakvöldið”. Wallace frændi hristi höfuðið og kveikti að nýju i vindli sinum. ,,Nú verður Emma sifellt að ásaka sig fyrir aö hafa spillt jólaánægjunni fyrir okkur hinum. — Mér þykir þeir vera lengur að gegnumlýsa hana en eðlilegt er”. Ég leit á klukkuna frammi i ganginum. bað voru nákvæmlega sjö minútur siðan hún var borin inn i röntgenstofuna. Ég tók timarit, sem lá á borðinu, og fletti blöðunum með ankannalegri nákvæmni. Við bið- um i hálfa aðra klukkustund. Ég mundi orðið eftir hverri mynd og grein og sögu i heftinu, og ég hefði getað þulið upp allt, sem þar var auglýst. Ég þekkti lika orðið hverja rós i gluggatjöldunum, og ég haföi margtal- ið skrautperurnar á litlu jólatré, sem hjúkrunarkonurnar höfðu komið fyrir viðgluggann. bær voru þrjátiu og fimm : niu hvitar, sex gular, sex grænar, þrjár bláar og ellefu rauðar — tólf að meðtalinni einni, sem ekki lýsti. 1224 Lárétt 1) Land - 6) Dreg úr,- 7) Att - 11) 15) :i) 5) 9) Ofug röð,- 10) Áttin. 995,- 12) 51,- 13) Ellegar. Kaffibrauðið- Lóðrétt 1) Kaupstaður,- 2) E11.- Fermdi,- 4) Hasar,- Andlátið,- H) Veik,- 9) Hefi löngun til,- 13) Eins.- 14) Úttekið- X itáðning á gátu No. 1223 Lárétt 1) Georgia,- 6) Kór - 7) Ró.- 9) DD,- 10) Vakandi.- 11) Or - 12) RN.-.13) Onn - 15) Bolanna- Lóðrétt 1) Gorvömb,- 2) Ok,- 3) Rós- anna,- 4) Gr,- 5) Aldinna,- 8) Oar-9) DDR - 13) 01. 14) NN,- HVEU G E I R I lilil II1111 1 FIMMTUDAGUR 5. október 7.00 Morgunútvarp veður- fregnir kl. 7.00 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr, dagbl.), 9.00 og 10.00 Morgunbæn kl. 7.45. Morgunleikfimi kl. 7.50 Morgunstund barnanna kl. 8.45: Guðrún Guðlaugs- dóttir heldur áfram aö lesa „Vetrarundrin i Múmindal” eftir Tove Janson (10) Til- kynningar kl. 9.30. Létt lög milli liða. Popphornið kl. 10.25: Link Wray og The Doors syngja og leika Fréttir kl. 11.10. Hljóm- plötusafnið (endurtekinn þáttur G.G.) 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 13.00 A frivaktinni Margrét Guðm undsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 ,, Lifið og ég”, Eggert Stefánsson söngvari segir frá. Pétur Pétursson les (13) 15.00 Fréttir. Tilkynningar. 15.15. Miðdegistónleikar: Tón- list eftir Richard Strauss Margit Weber og Útvarps- hljómsveitin i Berlin leika Búrlesku i d-moll fyrir pianó og hljómsveit: Ferenc Fricsay stj. Oskar Michalik, Jurgen Butt- kewitz og Útvarpshljóm- sveitin i Berlin leika Konsertinu fyrir klaéinettu, fagott og strengjasveit: Rögner stj. Útvarpshljóm- sveitin i Brussel leikur valsa úr „Rósariddar- anum”. Franz André stj. 16.15. Veðurfregnir. Létt lög 17.00 Fréttir Tónleikar. 17.30 Saga gæðings og gamalla kunningja Stefán Ás- bjarnarson segir frá (2) 18.00 Fréttir á ensku 18.10Tónleikar, Tilkynningar. 18.45 Veðurfrégnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir.Til- kynningar. 19.30 Litið um öxl i Gnúpverja- hreppi Loftur Guðmunds- son rithöfundur ræðir við Ólaf Jónsáon i Geldingaholti og Agúst Sveinsson i Asum. 20.00 Gestur i útvarpssal: Mary MacDonald leikur á pianó tvær sónötur eftir Antonio Soler, „15 ung- verska bændasöngva eftir Béla Bartók og „Tvær myndir frá Róm” op. 7 eftir Charles T. Griffes. 20.20 Leikrit: „Heiðvirða skækjan” eftir Jean Paul Sartrc býðandi: borsteinn O. Stephensen. Leikstjóri: Sigmundur Orn Arngrims- son Persónurog leikendur: Lizzie...bóra Friðriksdóttir, Fred...Arnar Jónsson, Negrinn...Jón Aðils, bing- maðurinn...Baldvin Halldórsson, John...Guðjón Ingi Sigurðsson, Tveir menn...Harald G. Haralds og Randver borláksson. 21.20 Vettvangur i þættinum er fjallað um skemmtanalif ungs fólks. Umsjónarmaður Sigmar Hauksson. 21.40 Tækni og visindi. Páll Theódórsson eðlisfræðingur og Guðmundur Eggertsson prófessor sjá um þáttinn. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir Endur- minningar Jóngeirs Jónas Árnason les úr bók sinni „Tekið i blökkina” (11) 22.35 Manstueftirþessu? Tón- listarþáttur i umsjá Guð- mundar Jónssonar pianó- leikara. 23.20 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.