Tíminn - 18.10.1972, Side 2
2
TÍMINN
Miðvikudagur 18. október. 1972
fcaía!Í«rB^rr337ír
^ - jrðar krtfðáur
bCnaðarbanki
ISLANDS
Bréf frá
lesendum
VELJUM ÍSLENZKT-/H\
ÍSLENZKAN IÐNAÐ
AUDVELT AÐ AFMA
ÞENNAN BLETT
Sá ágæti læknir, Asmundur
Bændur
VIL KAUPA eftirtaldar heyvinnuvélar.notaðar, en i góðu
standi:
Traktor, sláttuþyrlu, heyþyrlu (tætlu), múgavél og
heyvagn.
Tilboð sendist afgreiðslu blaösins sem fyrst, merkt:
Heyvinnuvélar.
Landshappdrætti
Rauða krossins
Dregið hefur verið i landshappdrætti
Rauða kross tslands 1972.
Mercury Comet bifreiðin kom á miða nr.
19885.
Ilange Itover bifreiðin kom á miða nr.
90(511.
Rauði kross Islands.
Nýr Sönnak^
RAFGEYMIR
GERÐ 3CW17
þentar m.a. fyrir Opel,
eldri gerð en 1966.
6 volt, 120 amp.tímar,
225x17x192 mm.
Þetta er rafgeymir með
óvenjumikinn ræsikraft
miðað við stærð á raf-
geymakassa.
ARMULA 7 - SIMI 84450
Brekkan, spyr i dag: Eru vinsölur
leigubilstjóra verndaðar og þá af
hverjum?
Ég minntist á þessa grein við
leigubilstjóra i dag og hann sagði,
sem rétt er: Lögreglan veit mjög
vel um leynivinsalana og hverjir
þeir eru, enda eru þetta alltaf
sömu mennirnir, sem teknir eru
og setja blett á stétt okkar. Ef
dómsmálastjórnin vill uppræta
þennan ósóma, og þá um leið einu
smyglsöluna, er það ósköp ein-
falt. Hún sviptir hvern leynivin-
sala ökuleyfi i eitt eða tvö ár og
jafnframt atvinnuleyfi ævilangt.
betta sagði atvinnubilstjórinn,
og ég er viss um að hann mælir
fyrir hönd sinnar ágætu stéttar.
Þvi ekki aö fara eftir þessu
heilræði?
Rvik, 12. okt. 1972
Kristin Pálsdóttir
KLAPPAD FYRIR ÍSLANDI
í JÚGÓSLAVÍU.
Kannsi hefur ýmsum hér heima
hlýnað i brjósti við að heyra frá
þvi sagt, að suður i löndum sé
klappað fyrir landi voru og borið
lof á þá, sem i forsvari standa
hér. En þetta gerði alþjóða skák-
sambandið á dögunum á þingi
sinu. Þar var skáksambandi Is-
lands borin svo vel sagan fyrir
ágæta frammistöðu i sumar, að
þingið klappaði bæði vel og lengi.
Okkur er gjarnt til að deila, og
æði oft um kóngsins skegg. Og
vist mun eitthvað hæft i þvi, að
okkur sé tamara last en lof. Og
komizt var nýlega svo að orði i út-
varpi, að ekkert vekti jafn mikla
gagnrýni og góður árangur. Þetta
er ihugunarvert, enda erum við
skritnir fuglar, þessar mannkind-
ur, sem þurfum oft að skeyta
NORSKU
landhelgisKORTIN
fást á ritstjórn
Tímans.
Send i póstkröfu.
Takmarkað upplag.
Verö krónur 45.
Allurágóði rennur i Landhelgissjóðinn.
Sjúkrahúsið á Blönduósi
óskar að ráða nú þegar eða siðar
2 hjúkrunarkonur
og Ijósmóður
Sjúkrahússtjórnin
Sólaðir
HJÓLBARÐAR
TIL S'OLU
FLESTAR
STÆRÐIR
Á FÓLKSBlLA.
BARÐINNf
ÁRMÚLA 7 SlMI 30501
skapi okkar á þvi, sem vel er gert,
ef hægt er að finna eitthvað að,
jafnvel bláber aukaatriði, til þess
að hengja hatt sinn á.
Það var óneitanlega mikil
dirfska i þvi fólgin, að bjóðast til
að taka skákeinvigið að sér hér á
s.l. sumri. I raun og veru gekk
það fram af okkur, við trúðum þvi
ekki fyrst að slikt kæmi til mála.
Við þóttumst vita með vissu, að
augu veraldar myndu hvila á
þeim stað og bletti, þar sem þeir
sátu er einvigið háðu, og að
kröfurnar yrðu miskunnarlausar
um að hér væri allt i toppi, sem
hafa þurfti. Og hvernig i ósköpun-
um myndi slikt ganga, þar sem
allir þóttust vita um ótal margt,
er skorta mundi. Og svo ekki sizt
allar milljónirnar, hvar myndu
þær verða teknar, var þetta allt
saman ekki eintóm vitleysa?
Þannig held ég að flestir hafi
hugsað, þótt þeir segðu það ekki
allir.
En ungu mennirnir voru á öðru
máli. Þeir voru furðulega
óhræddir. Þeir hugsuðu og þaul-
hugsuðu málin. Þeir fóru að visu
hægt i sakir, sem hygginna er
háttur. En þeir komu auga á ótal
möguleika, sáu ótal ráð, létu ekki
villa sér sýn né króa sig inni.
Þetta var i raun og veru glima við
ofurefli, að þvi er virtist, sem
hleypti hitamagni i allar áætlanir
og ákvarðanir. Og það var a.m.k.
djarfur leikur, sem endað gat
með vansæmd fyrir land og lýð.
Og það hefir þeim lika vafalaust
verið ljóst.
En þeir trúðu þvi aö þeir gætu
þetta. Þeir lögðu sig alla fram af
ýtrustu getu, töldu ekki eftir sér
amstur og erfiði, mættu hverri
raunaöldu og öllu mótlæti og mót-
blæstri með skynsamlegri ró og
þrautseigri þolinmæði, rétt eins
og vera þurfti og átti.
Og þeir unnu Ifka frækilegan
sigur.
1 raun og veru var þessi sigur
þrekvirki, sem ber að þakka og
ekki má gleymast. Þvi að þessir
ungu menn sýndu það og sönnuðu,
að við værum menn með mönn-
um, og ættum skilið að vera það.
Sú landkynning er lika það sem
gildir.
Ekki þekki ég nöfn allra þeirra
heiðursmanna, sem að þessu
unnu af trú og dyggð. Þar munu
vissulega hafa verið margir að
verki. En vafalaust hefir þó mest
mætt á stjórn skáksambandsins
og ekki sizt á formanni hennar,
Guðm. G. Þórarinssyni. Svo og
Guðmundi Arnlaugssyni rektor,
em vann sér aukinn heiður, sem
dómari, og svo ekki sizt Friðriki
Ólafssyni stórmeistara. Þeir voru
lika oftast i sviðsljósinu, sem
kallað er, þessa markverðu
sumardaga.
En um formanninn mætti
segja, að varla mundi það koma á
óvart, að honum yrði, fyrr eða
siðar, trúað fyrir verkefnum, sem
mikilsverð kynnu að þykja.
Ég hefi að gamni rifjað upp
þessi atriði nú, að gefnu tilefni.
SnS.
— PÓSTSENDUM —
Hálfnað
erverk
þá hafið er
iparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn