Tíminn - 02.11.1972, Side 7
Miðvikudagur 1. nóvember 1972
TÍMINN
7
Ctgefandi: Framsókuarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þór-:|
arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson,-:
Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaðs Timáns).|:
Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislasoni. Ritstjórnarskrif-;:
stofur í Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306.:;
Skrifstofur i Bankastræti 7 — afgreiðslusimi 12323 — auglýs i;
ingasimi 19523. Aðrar skrifstofurtsimi 18300. Askriftargjalá;
225 krónur á mánuði innan lands, i lausasölu 15 krónur ein-í
takið. Blaðaprent h.f.
Borgarstjóri kveður
1 kosningabaráttunni fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar 1970 lagði Sjálfstæðisflokkurinn
áherzlu á að borgarbúar væru fyrst og fremst
að velja sér borgarstjóra til næstu 4 ára. Geir
Hallgrimsson sagði þá, að hann kysi ekkert
frekar en gegna borgarstjóraembætti næstu 4
ár og hann leggði borgarstjóraembættið að
jöfnu við ráðherrastöðu, eða aðra vegtyllu i þvi
sambandi. Á þeim grundvelli biðlaði Geir til
Reykvikinga um traust og fékk það.
En fljótlega kom i ljós, að Geir stefndi á önn-
ur mið, og mat loforð sin við Reykvikinga ekki
mikils. Hann bauð sig fram til prófkjörs Sjálf-
stæðisflokksins fyrir alþingiskosningarnar,
þegar eftir að hann hafði tekið kjöri borgar-
stjóra til 4 ára og hreppti 2. sætið á lista flokks-
ins.
1 framhaldi af þvi lagði hann sig i framkróka
i valdabaráttunni innan Sjálfstæðisflokksins og
náði með naumindum eftir harða baráttu kosn-
ingu sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Sem slikur gerðist hann siðan einn helzti tals-
maður flokksins á Alþingi á sl. vetri.
Er þingi lauk i vor var búizt við, að borgar-
stjórinn tæki að sinna störfum sinum hjá borg-
inni eftir miklar frátafir um þingtimann, enda
þáði hann hátt á annað hundrað þúsund kr. i
laun á mánuði hjá borginni auk þingmanns-
kaupsins og var eini þingmaðurinn, er gengdi
öðru opinberu starfi, sem ekki tók skert
embættislaun. En i stað þess hóf hann um-
fangsmikil ferðalög um alia landsbyggðina á
vegum flokksins.
Er hér var komið málum gagnrýndi Kristján
Benediktsson, borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, borgarstjórann fyrir fjarveru frá
störfum og skyldum við borgina og taldi, að
hann hefði tekið að sér svo mörg og umfangs-
mikil verkefni borginni óviðkomandi, að óvið-
unandi væri. Borgarstjórastarfið væri nánast
orðið hreint aukastarf, þótt stundum hefði
heyrzt úr hans eigin herbúðum, að borgar-
stjórastarfið væri svo umfangsmikið, að vart
væri ætlandi einum manni.
Við þessari gagnrýni snerist Geir með hinum
mesta þjósti og Mbl. sagði, að bráðnauðsynlegt
væri, að i embætti borgarstjóra i Reykjavik
væri leiðtogistjórnmálaflokks og einkum þyrfti
hann að kynna sér málefni og viðhorf lands-
byggðarinnar. Sú var talin ástæða þess, að
borgarstjórinn var eins og útspýtt hundskinn út
um allt land til að afla sér fylgis þeirra Sjálf-
stæðismanna, sem studdu Gunnar Thoroddsen
á siðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
En viti menn. í fyrrakvöld kom Geir i sjón-
varpið og taldi, að hann hefði tekið svo mikil
verkefni að sér fyrir flokkinn, að hann gæti
ekki gengt áfram starfi borgarstjóra. Þannig
viðurkenndi hann réttmæta gagnrýni Kristjáns
Benediktssonar, en jafnframt varð það hans
persónulega mat, að innanflokksátökin i Sjálf-
stæðisflokknum væru honum mikilvægari en
loforð gefin Reykvikingum.
Ef kenningar Mbl. frá i sumar um borgar-
stjórastarfið eru einhvers metnar, hljóta nú að
hefjast umfangsmikil ferðalög Birgis ísleifs
Gunnarssonar til fundahalda og viðræðu við
fólkið úti á landsbyggðinni!
— TK.
J0HN BULL0CH, Daily Telegraph:
Enn einu sinni vofir
yfir ógnaröld á Kýpur
Grivas hershöfðingi bfður eftir tækifæritil að gera stjórnarbyltingu
BYRJAÐ er að bóla á lækn-
ingu þeirra meina, sem hafa
valdið sundrungu og átökum á
Kýpur á liðnum árum, en
samtimis sýnist vofa yfir ný
ógnaröld. sem geti skollið á þá
og þá. Griska rikisstjórnin
hefir valdið hvoru tveggja
með verkum sinum.
Tæpur fijnmtungur ibúanna
á Kýpur er af tyrknesku bergi
brotinn. Þeir búa i eigin hverf-
um og lúta eigin stjórn. Efnt
var til samningaviðræðna
milli fulltrúa tyrkneskra og
griskra ibúa eyjarinnar og
ætlunin var að binda endi á að-
skilnaðinn. Þessar viðræður
hafa staðið iengi án þess að
nokkuð yrði ágengt, en nokkr-
ar horfur þykja á, að árangur
gæti náðst, ef utanað komandi
aðili kæmi til skjalanna og
ræki á eftir.
SAMEfNUÐU þjóðunum
hefur nú verið falið þetta
verkefni. Ætlunin er að taka
málið þar til umræðu, og við
þær umræður á griska stjórnin
að lýsa yfir, að hún muni
aldrei fallast á Enosis — þ.e.
sameiningu Kýpur og Grikk-
lands, — hvað svo sem núver-
andi eða væntanleg sljórn á
Kýpur kynni að samþykkja i
þvi efni. Tyrkneska stjórnin
mun hins vegar hafna alger-
lega fyrir sitt leyti löglegri
skiptingu eyjarinnar með til-
heyrandi viðhaldi þess
ástands, sem nú rikir þar.
Þessar tvær yfirlýsingar
kynnu að nægja til þess að
blása nýju lifi i samningavið-
ræður þeirra Glafcos Cleridas
af hálfu griskra Kýpurbúa og
Rauf Denktash fyrir
tyrkneska ibúa eyjarinnar. Þó
vofir yfir sú hætta eins og
löngum áður, að nýtt vopna-
brak kunni að binda endi á
viðræðurnar þegar minnst
varir.
1 ÞETTA sinn eru þó mestar
likur á, að Grikkir berðust
innbyrðis. Tyrkjum sýnist þvi
geta orðið nokkur bið á, að við
völdum taki traust og lögmæt
stjórn, sem unnt verði að
semja við.
Það er George Grivas hers
höfðingi, sem ætlar að efna til
vopnaðra átaka. Hann er þjóð-
sagnahetja siðan hann stjórn-
aði frelsisbaráttu Eoka-
manna fyrir hálfum öðrum
áratug. Hershöfðinginn var þá
ekki einungis að berjast fyrir
þvi að losna undan Bretum,
heldur einnig fyrir samein-
ingu við Grikkland. Nú telur
hann Makariós forseta, fyrr-
verandi vopnabróður sinn,
hafa svikið og snúið baki við
þeirri hugsjón.
1 fyrra var hinn aldurhnigni
hershöfðingi seztur i helgan
stein i Aþenu. Honum gramd-
ist framvindan i stjórnmálun-
umá fæðingarey sinni, en fékk
ekki að gert. Þá leitaði rikis-
stjórn Grikklands til hans og
gaf honum kost á að hverfa
aftur til eyjarinnar og stjórna
þar nýrri krossferð, og i þetta
sinn á hendur þeim manni,
sem áður hafði verið yfirmað-
ur hans. Þegar þetta gerðist
hélt griska rikisstjórnin, að
Makarios erkibiskup og for-
seti ylli þvi, að friði á Kýpur
yrði ekki komið á og afréð að
leita liðveizlu Grivas
hershöfðingja við að steypa
forsetanum af stóli.
GRIVAS hershöfðingi hefir
látið hendur standa fram úr
ermum og ekki dregið af sér
þetta ár, sem hann er búinn að
Georgc Grivas
dvelja á Kýpur.Hann hefur
safnað saman öfgamönnum til
hægri, sem eru nákvæmlega
sama sinnis og hann, gömlum
Eoka-mönnum og unglingum,
sem lita upp til hans og dá
hann vegna frægðarljómans.
Grivas er búinn að mynda
skæruliðasveitir úr þessum
efnivið. Þær eru að visu fá-
mennar, en þrautþjálfaðar.
Hann hefur einungis beðið
þess að griska stjórnin gæfi
samþykki sitt til, að hann léti
til skarar skriða.
En heimildin til aö hefjast
handa lét á sér standa.
Hershöfðingjarnir i grisku
rikisstjórninni komust hins
vegar að þeirri niðurstöðu, að
hyggilegast yrði að sætta sig
við Makarios erkibiskup þeg-
ar öllu væri á botninn hvolft.
Arftakinn yrði sennilega enn
óþægari ljár i þúfu en hann og
tækist liklegast ekki að hafa
jafn ágæt tök á hinum stóra,
griska meirihluta á eynni.
Hershöfðingjastjórnin sneri
þvi við blaðinu og sagði Grivas
að hætta við allt saman. Hann
þverneitaði að verða við þeim
tilmælum og rikisstjórnin
gerði sér loksins ljóst, að hún
hafði vakið upp draug, sem
hún réði ekki við.
Nú ætlar gamla striðshetj-
an að róa á eigin spýtur.
Grivas hefur verið á höttunum
eftir átyllu til að hef jast handa
og notið við það aðstoðar
hinna þriggja biskupa á eynni.
Biskuparnir i Paphos, Kitium
og Kyreniu halda fram, að
erkibiskup kirkju þeirra geti
ekki samtimis farið m-eð ver-
aldlegt vald eins og Makarios
hefir gert.
Trúarhiti er afar mikill á
Kýpur. Grivas treystir á, að
annar hvor aðilinn aðhafist
eitthvað, sem hann geti not-
fært sér. Njósnarar grisku
stjórnarinnar halda fram, að
hershöfðinginn ætli að gera
horshöfðingi.
stjórnarbyltingu. Ráða eigi
fáeina lorustumenn af dögum
og siðan ætli liðsmenn hans að
ná erkibiskupaskrifstofunni,
forsetahöllinni, upplýsinga-
þjónustunni og helztu fjar-
skiptastöðvum á sitt vald.
Aðalstöðvar hershöfðingj-
ans eru nú i Limasol og hann
má heita frjáls ferða sinna.
Uikisstjórnin á Kýður getur
ekki hafizt handa gegn honum,
þar sem henni er ljóst að ef
hún gerði það hlyti hún
óhjákvæmilega að hraða
þeirri framvindu, sem hún vill
umfram allt reyna að forðast.
RAÐHERRARNIR á Kýpur
fullyrða, að griska rikisstjórn-
in verði að koma til hjálpar
einu sinni enn. Það hafi jú ver-
ið hún, sem sendi
hershöfðingjann til Kýpur til
þess að koma þar af stað
vandræðum. Henni beri þvi
skylda til að koma honum það-
an burl aftur.
Grivas hershöfðingi gerir
sér fulla grein fyrir ástandinu
engu siður en andstæðingar
hans. Hann hefir keppzt við
undirbúning sinn á liðnu ári og
skæruliðasveitir hans eru
reiðubúnar til atlögu. Eins og
stendur er aðeins spurt um eitt
á Kýpur: Hver verður til þess
að hleypa skriðunni af stað?
Gripi griska rikisstjórnin
ekki til sinna ráða hlýtur að
þvi að reka, að annað hvort
Grivas eða Makarios taki sér
frumkvæðið og þá verður ekki
hjá blóðsúthellingum og
mannfalli komizt. Þá verður
einnig að engu sá árangur,
sem áunnizt hafði i bættri
sambúð rikisstjórna Tyrk-
lands og Grikklands, en viö
hann voru bundnar vonir
beggja þjóðarbrotanna á Kýp-
ur. Þá hlýtur og að ásannast
að enn má Grivas hershöfðingi
sin meira en flestir aðrir, enda
þótt hann sé orðinn 78 ára.