Tíminn - 09.12.1972, Page 8
8
TÍMINN
I.augardagur !). desember I!)72
Meðan jörðin grær er skáldsaga
eftir Einar Guðmundsson. Þctta
er sveitasaga, sem gerist íyrir
miðja öldina eða svo. Höfundur er
þar að lýsa þvi, sem hann þekkir
af eigin raun. Hann lýsir sinni
samtið og sinu lifi, getum við
sagt, þvi að uppeldi, þrár og óskir
og draumar er allt svo áþekkt
einni kynslóð við sömu lifskjör.
Sagan er liðlega sögð og verður
skemmtileg aflestrar a.m.k.fyr-
ir þá, sem þekkja örlög sin og um-
hverfi i henni. Hað eru kannski
ekki stórbrotnar mannlýsingar,
en sveilaíólkið sem frá er sagt, er
allt saman ósköp eðlilcgt. Við
þekkjum það og þann gang sög-
unnar, sem þar er lýst.
Krekar orkar tvimælis um
sennileikann, þegar. sagan berst
til höluðstaðarins, og þó er það
raunar ekki nema Klara Vest-
fjörð, sem segja má að sé ósenni-
leg. l>eir feðgarnir, Hávarður og
Hreggviður eru svo sem engir
Eiiiar Guöinundsson
furðufuglar, enda engin illmenni.
()g lýsing Kliiru Vestfjörð er eng-
an veginn út i bláinn. Annaö mál
er það, að menn geta ekki gert
börn sin arflaus á íslandi, en
þrátt fyrir þau lagaákvæði er ekki
vist, að alltaf sé skipt jafnt milli
systkina.
l>að eru ekki æsilegir atburðir i
þessari sögu, umfram þaö, sem
gengur og gerist i hversdagsleg-
um veruleika. Ef til vill finnst
einhverjum, að sumt af sögufólk-
inu sé heldur lýtalaust, en það er
ástæðulaust, þvi að þannig er
margt fólk.
Kannski er það gömlu hjónin á
Grjótncsi og I)al, sem taka hug
lesandans löstustum tökum,
þessir gömlu búendur, sem hafa
bundið örlög sin og lifsstörf við
bújarðir sinar, en lifa siðan þá
tima, að ,,það er ekki lengur i
tizku að búa i sveit”.
l>ó að þetta sé ekki stórbrotin
saga.þykir mér hún þokkaleg og
skemmtileg aflestrar.
II. Kr.
Nlagnús E. Baldvinsson
Laugavegi 12 - Simi 22604
Veljið yður í hag -
OMEGA
Úrsmíði er okkar fag
Niuada
©I
nOAMErc
PIERPOflT
25555
14444
wmm
BILALEIGA
IIVJ5UFISGÖTU 103
VWSemliíerðabiffeið-VW 5 manna-VWsvefnvagn
VW9manna-Landrover 7manna
I Jóla 1
slwiðarnar
X> Itomnar
GUuMUNDUR
ÞORSTEINSSON
Gullsmiður
Bankastræti 12
Sími 14007
Vb
MÁLARAMEISTARINN
Opna í dag nýja glæsilega
málningavöruverzlun að
Grensásvegi 50
Þorsteinn Gíslason
mólarameistari. Simi 8-49-50
AAEISTARI HLUT-
SKYGGNINNAR
t>að er tiltölulega stutt siðan
farið var að rannsaka svokallaða
hlutskyggni með visindalegri ná-
kvæmni. Sitthvað hefur verið rit-
að um þau fræði á seinni árum og
þó nokkuð af sliku komið á is-
lenzku. Nú hefur Ævar Kvaran
þýtt bók sem sýnir vel hvað hér
er um að ræða, þar sem er bókin
Hugsýnir Croiset eftir Jack
Harrison Pollock.
Croiset þessi er hollenzkur
maður, en i Hollandi er viðkunnur
prófessor, dr. Willem Fanhaeff,
sem lengi hefur rannsakað fólk
með dulargáfur. Á rúmum 40 ár-
um rannsakaði hann 47 mann-
eskjur, sem höföu ófreskigáfu, en
Croiset ber af þeim öllum. Fan-
haelf prófessor er talinn merkasti
vísindamaður á sinu sviði ásamt
dr. J.P. Rhine prófessor við
Duke-háskólanum i Ameriku.
Croiset hefur verið kallaður til
hjálpar við ýmsar aðstæður og af
margskonar tilefni: Lögregla
hel'ur leitað til hans.þegar upp-
lýsingar vantar. Visindamenn
hafa leitað til hans með forna
muni.
Þessu er yfirleitt þannig varið,
að þegar Croiset fær i hendur ein-
hvern hlut, sér hann eða skynjar
sitthvað i sambandi við eiganda
hans. Dannig hafa komiö fram
UDPlýsingarum týnda menn, eldri
og yngri, lifs eða liðna. Og það
virðist vera eins hvort um er að
ræða týnt barn, miðaldahandrit,
eða jaínvel fornsögulegar minjar.
Hitt er svo annað mál, að það er
margt, sem getur ruglað fólk með
þessa gáfu. Til dæmis er hætt við
þvi, að ákveðnar skoðanir eða
hugmyndir viðstaddra geti haft
sin áhrif.
Margar sögur eru sagðar af
Croiset i þessari bók. Lögreglu-
sögurnar eru eðlilega heldur
óskem mtilegar sumar, enda
margar i sambandi við morð og
mannahvörf, en fróðlegar eru
þær engu að siður. Og það eitt út
af fyrir sig, að lögregla viða um
lönd leitar nú slikra ráða til að
upplýsa mál, kynni sumum að
virðast frásagnarvert. En auðvit-
að er slikum leiðbeiningum ekki
trúað i blindni.
Dessar dulskynjanir eru fyrir-
bæri, sem enginn skilur eða skil-
greinir til íulls. Það er fullsannað,
að hinn dulskyggni sér oft eða
skynjar það, sein gerðist, eins og
það var. Hvernig sú vitneskja er
geymd og hvaðan hún kemur
kann enginn enn að skýra. Stund-
um a.m.k. er um það að ræða,
sem enginn lifandi maður veit.
Hitt er þó e.t.v. enn furðulegra
hvernig Croiset hefur sagt fyrir
óorðna hluti. Hann hefur verið
látinn segja fyrir hver settist i
ákveðið sæti i tiltekinni samkomu
einhverntima áður en hún er.
Umsögn hans hefur verið hljóð-
rituð og siðan geymd i lokuðu um-
slagi þangað til samkoman er
byrjuð. Þá er lýsing hans athug-
uð. Þá kemur i ljós, að hann hefur
sagt, það sem enginn vissi.og talið
var, að enginn gæli vitað. Slikar
staðreyndir hljóta að verða til
þess, að þeir, sem á þeim þreifa,
eigi erfitt með að álíta alla spá-
dóma vitleysu.
Ekkert er eðlilegra en mönnum
sé illa við að trúa þvi, að allt sé
fyrirfram ákveðið. Rétt er lika,
að gera sér ljóst, að það er allt
annað, að eithvað sé fyrirsjáan-
legt og að það sé fyrirfram ákveð-
ið. Ef einhver þekkir okkur nógu
vel, getur hann vitað hvernig við
bregðumst viö og þannig séð fyrir
hvað verða mun og verða hlýtur.
Sögurnar •um fyrirburði og
vitranir til að afstýra slysum og
óhöppum standa jafnréttar eftir,
þó að atvik séu séð og sögð fyrir.
1 þessari bók um hugsjónir
Croisets er nokkurt yfirlit um
þróun dularsálfræði. Það er ekki
löng saga, þvi að sem visinda-
grein i háskólum var hún ekki til
fyrr en á dögum núlifandi manna.
Nú er fengizt við hana viða um
heim jafnt i Bandarikjum Ame-
riku sem Sovétrikjunum. Og þessi
bók gefur allgóða hugmynd um,
hvað hún er,og hvar hún er á vegi
stödd.
H.Kr.
,ÍSLAND BÝÐUR
YÐURVELKOMINN’
Frábær landkynningarmynd Loftleiða
frumsýnd í gær
Stp—Reykjavik.
Það vill stundum verða svo, að
kvikmyndir, sem teknar eru hér á
landi, þjóni ekki tilgangi sinum,
þ.e. að sýna fegurð og gæði lands-
ins.
Þetta átti sannarlega ekki viö
landkynningarkvikmynd þá, sem
Loftleiðir frumsýndu i gær. Hafi
einhver gengið með þá grillu, að
hér væri um eitthvert fúsk að
ræða, þá mun sá hinn sami
tvimælalaust hafa skipti um
skoðun, eftir að hafa séð hana.
Óþarfi er að fletta upp á
klassiskum fagurfræðiyrðum til
að finna rétta oröið yfir þessa
mynd. Það nægir að segja, að hér
er um eina beztu- lslandskvik-
mynd, að ræða, og er þá átt við
landkynningarmynd. Myndin
„Iceland Welvomes You” sam-
einar allt i senn — frábæra töku,
klippingu, liti, tónlist og texta.
Sér i lagi ber að vekja athygli á
uppbyggingunni og klippingunni,
þar sem atriðin eru stutt en itar-
leg og vixluð saman á afar
skemmtilegan hátt. Sýningartimi
myndarinnar er 27 min. (16 mm
filma), og er undravert. hve vel,
hefur tekizt að skapa skýra og
fullnægjandi heildarmynd, án
þess að gengið sé fram hjá nokkr-
um verulegum atriðum. Islend-
ingar, jafnt reyndustu ferðamenn
sem aðrir, munu fylgjast spenntir
með henni frá upphafi til enda.
Má þvi gera sér i hugarlund, hve
mikil áhrif hún hlýtur að hafa á
útlendinginn, sem aldrei hefur
augum litið þá dýrð, sem Island
býr yfir.
Kvjkmyndin er að mestu leyti
gerð af bandariskum manni að
nafni William Keith, en nokkur
atriði eru tekin af þeim Ásgeiri
Long, Árna Stefánssyni og Ernzt
Witzel. Tónlistin við myndina er
frumsamin af Magniisi Blöndal
Jóhannssyni og hefur honpm
sannarlega tekizt vel upp, það er
viss ,,sjarmi” yfir henni og fram-
andi blær, sem eykur dýpt
myndarinnar. Eins og þegar hef-
ur verið greint frá i fjölmiðlum,
hefur myndin nýverið hlotið við-
urkenningu á alþjóðlegri kvik
myndaháfið, ferðamyndahátið, i
Tékkóslóvakiu. Hafa Loftleiðir
gert um 80 eintök af kvikmynd-
inni.með texta á fimm tungumál-
um, og dreift henni viða um heim.
Það yrði of langt mál að fara að
rekja minnisstæð atriði úr mynd-
inni, þvi að þau eru mörg. Kvik-
myndavélinni er beint um allt
land, ekki hvað sizt Reykjavik, og
einnig er brugðið upp myndum af
höfuðatvinnuvegum þjóðarinnar
og hinum ýmsu þjóðfélagshátt-
um. Er vert að þakka Loftleiðum
það framtak, sem hér hefur verið
innt af hendi. Ef til vill á mynd
þessieftirað verða rikasti þáttur-
inn i viðleitni að auka ferða-
mannastrauminn til landsins i
framtiðinni.