Tíminn - 09.12.1972, Qupperneq 13
Laugardagur !). desember 1!)72
TÍMINN
13
Forsagamannkyns
og geimfarið
Vóru guðirnir geimfarar?
nefnist bók.sem bókaútgáfan Orn
og örlygur sendir frá sér.
Höfundur bókarinnar heitir Erich
von Daniken. Hann er fæddur i
Sviss árið 1935.
Ráðgátur fortiðarinnar i ljósi
nútimatækni er undirtitiil
þessarar bókar. Og vist er svo, að
hún reynir að gera ýmsa hluti
skiljanlega i ljósi geimferðanna.
Það er alkunnugt, að lengi hef
ur verið vitað um forn mannvirki,
sem nánast eru óskiljanleg. Má
þar nefna piramidana miklu i
Egyptalandi. F'lestir menn játa,
að það sé raunar óskiljanlegt
hvernig frumstæðar fornþjóðir
Sagnir Bergsveins
Skúlasonar
Ut er komin hjá Leiftri bókin
Lent með birtu eftir Bergsvein
Skúlgpon sogur og sagnir úr
Breiðafirði.
Höfundur segir i aðfararorðum,
að teknar séu upp i þessa bók
flestar sögurnar, sem út komu i
litlu kveri hjá Isafoldarprent-
smiðju hf. 1950. og hél Sögur og
sagnir úr Breiðalirði, en miklu er
þar við aukið.
Bergsveinn Skúlason. hefur
gert Breiðafirði góð skil. Hann
hefur ritað breiðfirzkar sagnir i
þremur bókum og tveggja binda
verk: Um eyjar og annes. Þannig
hefur hann skilað til varðveizlu
miklum fróðleik um horfna at-
vinnuhætti og breyttar byggðir.
Þeir. sem lesið hafa eitthvað af
bókum hans, vita, að hann er hlut-
gengur sögumaður.
Þessar frásagnir eru sundur
leitar, enda komnar frá ýmsum
heimildarmönnum og ljalla um
ólik efni. Sumt eru nánast skrýtl-
ur. annað sögur um drauma og
fyrirburði. smáþættir af einstök-
um mönnum eða svaðilförum, og
i þeim l'lokki eru fyrstu sögurnar
Irá áhlaupaveðrinu mikla 14.
desember 1935. En allt eru þetta
þa'ttir úr islenzku þjóðlifi og þvi
heimild um þjóðlif og þjóðtrú
þann jarðveg. sem við erum öll
vaxin úr og mótuð af. v'
— II. Kr.
Börn í Bæjarhreppi sækja
skóia um 30 km leið
Barnaskólanum á Borðeyri var
s.l. haust breytt úr heimavistar-
skóla i það.sem kalla má heima-
akstursskóla. Eru þá börnin sótt
heim að morgni og þeim ekið
heim aftur að kennslu lokinni.
Eru börnin flutt á tveim bilum.
Fer annar norður i Bæjarhrepp,
en hinn suður á við. Lengst ferða-
lag i skóla eiga þau börn, sem búa
norður i Skálholtsvik, sern er 30
km leið frá Borðeyri. Aka þau
börn þvi 60 km leið á hverjum
skóladegi. Börnin, sem lengst eru
sótt i hina áttina.búa i 30 km f jar-
lægð frá skólanum.
Fyrir kemur, að ekki er hægt að
l'lytja börnin vegna ófærðar, en
það sem af er vetrar hefur það
verið furöusjaldan, og fáir
skóladagar fallið úr.
Þeir.sem kunnugir erumálum,
telja, aö þetta fyrirkomulag sé
mun betra bæði fyrir börnin og
kennarann en að hafa heimavist
á Borðeyri. Börnin eru þá aldrei
lengi að heiman i einu, og kennar-
inn þarf ekki að hafa áhyggjur af
þeim, nema meðan kennsla
stendur yfir, en ekki allan sólar-
hringinn, eins og áður var. i
skólanum eru tvær deildir, eldri
og yngri deild. Hvor deild um sig
er i skólanum annan hvern dag,
en á fri hinn daginn.
I ráði er að byggja nvtt
skólahús á Borðeyri, en skólinn er
nú til húsa i gömlu timburhúsj,
sem ekki er fullnægjandi sem
skólahúsnæði.
Verður væntanlega hafizt handa
um byggingu nýs skólahúss að
vori, ef næg fjárveiting fæst.
gátu byggt slikt. þó að reynt hafi
verið að gizka á einhverjar
skýringar. A seinni öldum hafa
fundizt i Suður-Ameriku leifar af
fornum mannvirkjum, sem svip-
að er um að segja.
Daniken dregur saman ýms
ummæli og frásagnir úr fornum
ritum, einkum trúarlegs eðlis,
sem honum þykja benda til,að
sagt sé frá geimskipum einhvers
konar. Meðal annars vitnar hann
þar i bibliuna. Frásagnirnar um
Enok og Elia, sem fóru til himna
á eldlegum vögnum, eru vitan-
lega næsta ónákvæmar, en vel
gætu þær byggt á minni um geim-
íerðir. Miklu fyllri og nákvæmari
er sýn Esekiels spámanns, og
raunar ekki annað hægt en lesa
hana með nýrri athygli á öld
geimferðanna.
Daniken tengir hin fornu minni
saman, og óneitanlega finnur
hann nokkuð viða rök og likur,
sem l'alla saman hjá honum.
Einna mest sannfærandi finnst
mér sú staðreynd, að til er gamalt
landabréf, sem er nákvæmlega
rétt umhverfis Miðjarðarhaf, en
þegar fjær dregur, er það með
þeim skekkjum.sem verða, þegar
horl't er á jörðina utan úr geimn-
um, en kortin ná alla leið á heims-
skaut. Þessi kort eru alveg eins
og myndir, sem Bandarikjamenn
geta tekið i dag beint yfir Kairó.
Hér er ekki rúm til að endur-
segja fræði eða röksemdir
Danikens svo að nokkru nemi.
Hugmynd hans er sú, að hingað til
jarðar hafi komið geimfarar frá
öðrum hnöttum. Kunnátta þeirra
og visindi hafi legið til grundvall
ar óskiljanlegum stórvirkjum
lornaldarinnar. Jarðarbúar voru
þá á steinaldarstigi, en með kyn-
blöndun við geimfarana kom
lram nýtt mannkyn, og urðu það
þáttaskil i sögu okkar.
Þvi fer íjarri, að Daniken haldi
sig kunna þessa sögu til hlitar, og
hann slær fram ýmsum hug-
myndum, sem honum þykja
hugsanlegar, svo sem þeirri, að
hingað kunni að hal'a komið land-
námsmenn lrá Mars.
Mér linnsl þessi bók vera
skemmtileg aflestrar og fróð-
leg er hún, þvi að höfundur getur
um margt, bæði nýtt og gamalt.
Loftur Guðmundsson belur þýtt
bókina. Það hefur eflaust verið
erfitt verk, en það hefur tekizt
vel, þvi að hér er talað um þessi
efni öll á alþýðlegu og hreinu
máli, svo sem vera ber.
— II. Kr.
VIRKNIi
Ármúla 24
Jóía-
markaður;
Leikföng
Kerti
Sælgæti
Skraut
II
Bygginga*
VÖRUR
Veggfóöur^
Málning
Boltar
Skrúfur ^
Verkfæri <
AAAAÁAAAÆ
VIRKMf
Ármúla 24
Nauðungaruppboð
sciii augiysl var i 43, 45, og 49. tbl. Lögbirtingarblaðs 1972
á luiseigii að Borgarmýri 5 (Sútunarverksmiðju) á Sauð-
árkróki, með lilbeyrandi lóðarréltindum, véluin og verk-
læriim, þinglýstri eign Loðskinns h.f., fer fram að kröfu
(iuðnumdar Malmquist lögfræðiugs f.b. Byggðarsjóðs,
Brunabótal'élags Islands, innheimtumanns ríkissjóðs o.fl.,
á eigninni sjállri fimmludaginn 14. desember 1972 ki.
17.0(1.
Ba'jarfógetinn á Sauðárkróki
pappirs
HANDÞURRKUR
á alla vinnustaði
Á. A. PÁLMASON
Simi 11517
N? 26762
VINNINGAR:
Opel Rekord, árg. 1973 Kr. 605,000-
Opel Kadett, árg. 1973 - 475,000-
Heildarverömæti vinninga Kr. 1.080,000-
ÚTGEFNIR MIÐAR 75 þús.
Upplýsingar Hringbraut 30,
simi 24483.
Verð kr. 100,00
Þeir, sem hafa fengið heimsenda miða, eru vinsamlegast beðnir að gera skil á skrif-
stof u happdrættisinsað Hringbraut 30, sími 2-44-83, sem er opin til kl. 7,00 i dag, eða
á afgreiðslu Timans, Bankastræti 7, frá kl. 9—12.
Einnig taka á móti uppgjöri umboðsmenn happdrættisins víða um land.
Einnig hefur happdrættið gíró-reikning nr. 34444 við Samvinnubankann og má
greiða inn á það númer í bönkum, sparisjóðum og pósthúsum um allt land.
DREGIÐ í DAG