Tíminn - 09.12.1972, Qupperneq 15
Laugardagur í). desember 1972
TÍMINN
15
Þórarinn Tyrfingsson, leikur sinn 200, leik gegn Haukum. Hér á mynd-
inni, sést hann fleiknum gegn Haukum, sem lauk með sigri ÍR 17:16
Reykjavíkurmeistaramir
mæta íslandsmeisturunum
- verður Ingólfur tekin úr umferð, þegar Fram leikur gegn
Víking? Tekst IR að sigra Hauka í annað sinn?
Annað kvöld heldur
íslandsmótið i hand-
knattleik áfram i
Laugardalshöllinni, þá
verða leiknir tveir
spennandi leikir. Fyrst
leika ÍR og Haukar og
siðan leika íslands-
meistararnir Fram
gegn Reykjavikur-
meisturum Vikings, og
má búast við/ að það
verði hart barizt, þvl
liðin eru ákveðin að
blanda sér i baráttuna
um íslandsmeistara-
titilinn 1973. Leikirnir
annað kvöld hefjast kl.
20.15.
Fyrri leikurinn annað kvöld,
verður að öllum likindum mjög
skemmtilegur, en þá leika IR og
Haukar. Þessi lið léku í sfðast-
liðnu lslandsmóti um fallsætið og
var seinni leikurinn, mjög spenn-
andi og tvisýnn, hann endaði með
naumum sigri IR 17:16 og var
það i fyrsta skiptið, sem IR-Iiðið
hefur sigrað Hauka i handknatt-
leiksleik, i meistaraflokki karla.
Fram og Vikingur leika siðari
leikinn og verður örugglega hart
barizt þá — Vikingsliðið er i
stöðugri framför og liðið sigraði
Ármann létt á miðvikudags-
kvöldið. Veikasti bletturinn hjá
Víking, er vörnin. Ef henni tekst
vel upp gegn hinum „taktísku”
leikmönnum Fram, þá er aldrei
að vita, hvernig fer. Framliðinu
fer fram með hverjum leik og
ungu leikmennirnir i liðinu eru að
komast i toppklassa, sérstaklega
Guðmundur Sveinsson, Andrés
Bridde og Sveinn Sveinsson.
Ingólfur óskarsson, er nú kominn
i sitt gamla form og má búast við
að Pétur Bjarnason, þjálfari
Vikingsliðsins, setji Stefán
Halldórsson, til höfuðs Ingólfs og
láti hann elta hann um völlinn.
Spurningin er, tekst Reykja-
vikurmeisturunum að sigra
tslandsmeistarana?
„Fyritiiðinn sigursæli" Franz Beckenbauer:
r
HANN A AÐ GERA
V-ÞÝZKALAND AÐ
HEIAASMEISTURUM
Frægasti knattspyrnu-
maður Evrópu, Franz Beck-
enbauer. lifir ekki öfunds-
verðu lifi þessa daganna. Það
er sifellt verið að tilkynna
honum, að hann verði myrtur
og hann fær ekki frið heima
hjá sér fyrir hringingum og
hótunarbréfum. Hann er nú
undir stöðugu eftirliti lögreglu
vegna morðhótana, sem
honum hefur borizt —
vopnaðir lögregluþjónar gæta
heimili hans nótt og dag.
„Fyrirliðinn sigursæli”, hefur
Beckenbauer oft verið nefndur
, sérstaklcga eftir að hann
stjórnaði liði sinu til sigurs á
Wembley, þar sem V-Þýzka-
land sigraði Englendinga 3:1
og stuttu siðar urðu V-Þjóð-
verjar Evrópumeistarar
landsliða. Þá er Beckenbauer
einnig fyrirliði eins bezta
félagsliðs heims, Bayern
Múnchen, en með liðinu leika
sex fastir leikmenn I V-Þýzka
landsliðinu.
Margir halda, að morð-
hótanirnar séu settar S svið,
til að brjóta niður hið sigur-
sæla lið Bayern Munchen, en
liðið hefur verið nær óstöðv-
andi i V-Þýzkalandi siðan
1966. Hvaða áhrif þessar
morðhótanir hafa á liðið, veit
enginn enn þá — Bayern
Múnchen tapaði mjög óvart
fyrsta leik sinum eftir að
hótanirnar voru hafðar
frammi. En nú virðst liðið
vera aftur að ná sér á strik og
þá er erfitt að stöðva það.
Leikmenn liðsins eru algjörir
dýrlingar i heimaborg sinni
Munchen og einnig um allt V-
Þýzkaland, enda eru þarna
frábærir leikmenn á ferðinni,
ungir leikmenn, sem hafa
getið sér orð i heimsknatt-
spyrnunniá örskömmum tima
— með þessum ungu leik-
mönnum leika þrir af
frægustu knattspyrnumönn-
um V-Þýzkalands og
heimsins, það eru þeir Franz
Beckenbauer, Gerd Miiller og
markvörðurinn, Josep (Sepp)
Maier.
Bayern Múnchen er heims-
frægt félag, sem hefur unnið
margasigra: 1932 varð félagið
Þýzkalandsmeistarar og 1969
og 1972 Vestur-Þýzkalands-
meistarar. 1957, ’66, ’67, ’69 og
’71 varð félagið bikarmeistar-
ar. Bayern, eins og félagið er
kallað i daglegu tali, varð
sigurvegari i Evrópukeppni
bikarmeistara 1967. Bayern
Múnchen kom upp i
„Bundesliguna” (1. deild),
1965 og hefur liðið aldrei farið
fyrir neðan fimmta sæti, yfir-
leitt verið i fyrsta, öðru eða
þriðja. Leikvöllur félagsins
heitir: An der Grunwalder
Strasse og tekur hann um 44
þús. áhorfendur. Nú stendur
til að Bayern fái að leika
heimaleiki sina á nýja OL--
leikvanginum, en það stendur
til að hann verði skirður
„Beckenbauerstadion”, i
höfuðið á fyrirliðanum sigur-
sæla.
Frægustu leikmenn liðsins,
eru eftirtaldnir leikmenn:
Franz Beckenbauer (26
ára), miðvörður, er tvimæla-
laust kunnasti leikmaður v-
þýzka landsliðsins og talinn
einn allra bezti knattspyrnu-
maður heims, hann var til
dæmis valinn i „Draumalið”,
sem var valið af um hundrað
iþróttafréttariturum, frá um
fjörutiu löndum, en liðið var
skipað leikmönnum, sem hafa
leikið knattspyrnu einhvern-
timan á siðastliðnum tuttugu
árum. Lið þetta var valið 1970
og var Beckenbauer þá
aðeins 24 ára gamall. Liðið leit
þannig út:
Lev Yashin, Rússlandi
Djalma Santos, Brasiliu
Giacinto Facchetti, italiu
Josef Bozik, Ungverjal.
Billy Wright, Englandi
Beckenbauer, V-Þýzkal.
Stanley Matthews, Englandi
Pele, Brasiliu
Alfredo Di Stefano, Argentinu
Fcrenc Puskas, Ungverjal.
Bobby C'harlton, Englandi.
Beckenbauer er frægur mið-
vallaspilari, en er nú búinn að
draga sig til baka — hann
hefur yfir mikilli knatttækni
að ráða og framkvæmir
erfiðustu hreyfingar af þvi er
virðast án mikillar fyrir-
hafnar. Beckenbauer á það til
að rjuka allt i einu i sókn og
skora eitt af sinum frægu
mörkum, með utanfótar-
snúning, langt fyrir utan
vitateig. Hann var einn af
beztu leikmönnum V-Þýzka-
lands, i Heimsmeistarakeppn-
inni i Englandi og Mexico, þá
var hann maðurinn á bak við
sigur landsins i Evrópukeppni
landsliða, i júni s.l. sumar.
Scpp Maier (27 ára), mark-
vörður, hefur verið fastur
landsliðsmarkvörður, siðan að
Hans Tilkowski, hætti.
Georg Schwarzcnback (23)
ára), er einn af hinum ungu og
efnilegu knattspyrnumönnum
V-Þýzkalands og hefur verið
fastur miðvörður með lands-
liðinu i ár, samvinna hans og
Beckanbatier er frábær.
Paul Breitner (20 ára), bak-
vörður, setti Karl-Heinz
Schnellinger út úr landsliðinu
— honum er bezt lýst með
orðum Sir Alf Ramsey —
’Breitner er maður framtiðar-
innar, ég á aðeins eitt orð yfir
hann — frábær”.
Uli Hocness ( 19 ára) út-
herji, er eitt mesta efni, sem
hefur komið fram i v-þýzkri
knattspyrnu siðustu árin,
hann lék með landsliðinu fyrst
nú i ár og var þá skráður
áhugamaður — skoraði mark
á Wembley i 3:1 leiknum, sem
var hans annar landsleikur,
einnig skoraði hann mark i
sinum fyrsta landsleik.
Gcrd Múller (27 ára)
miðherji, mesti markaskorari
sem hefur verið uppi i V-
Þýzkalandi, — kallaður
„Bomber” þar i landi. Hann
þarf mjög litið svigrúm, er
eldfljótur að skjóta og er alltaf
á réttum stað.
Þessir sex leikmenn, eru
allir fastaleikmenn i landsliði
V-Þýzkalands, sem er talið
sterkasta landslið heims og
það hefur fengið erfitt hlut-
verk — nefnilega að sigra
Heimsmeistarakeppnina 1974
i V-Þýzkalandi. sos
I’RANZ BECKENBAUER....hann getur gert allt við knöttinn, nema
látið hann tala. Það er sagt, að fæturnir á honum séu álíka verðmætir og
fætur Marlcne Dietrichs og tryggingin á þeim álíka há.