Tíminn - 02.02.1973, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Föstudagur 2. febrúar 1973
Ertu gift manni,
sem á sér aðra?
Það er engin örugg leið, sem
kona hefur til að komast að þvi,
hvort maðurinn hennar sé með
aðra konu i takinu, og bui jafn-
vel með henni annars staðar.
En i hjónabandsleiðbeininga-
bæklingum er oft að finna smá-
ábendingar, sem ættu að aðvara
hana ef maðurinn skyldi eiga
heimili heiman að, hvort heldur
þar er um aðra giftingu að ræða
eöa ekki.
1. Geturðu náð til mannsins
þins hvenær dagsins sem er?
2. Lofar hann þér að sjá öli
bréf sem hann fær?
3. Ef hann er fráskilinn, veiztu
þá hvar fyrri konan hans heldur
sig?
4. Hefurðu séð skilnaðarskjöl-
in?
5. Veiztu allt um bankavið-
skipti hans?
6. Veiztu nákvæmlega hve
mikið hann hefur i tekjur?
7. Komu einhverjir ættingjar
hans i brúðkaupið ykkar?
8. Veiztu hvar billinn hans er
tryggður?
9. Ef hann þarf að ferðast
mikið i starfi sinu, veiztu þá
hvar hann dvelst á ferðalögum?
10. Ef hann hefur gert
erfðaskrá, hefur þú þá séð
hana?
11. Vill hann einhverntima
eiga fridaga alveg út af fyrir
sig?
12. Hittirðu vinnufélaga hans
af og til?
13. A hann það nokkurn tima
til að kalla börnin örðum
nöfnum en þau heita?
14. Eru nokkrir staðir, sem
hann neitar að koma á?
15. Biður hann þig alltaf að
festa tölurnar á jakkann.?
16. Veiztu hvar hann var i
nótt?
Ef maki þinn á sér engin
leyndarmál ættir þú að hafa
svarað spurningum 11 13 og 14
með neii en sagt já við öllum
hinum. Teljið einn fyrir bæði
spurningar þrjú og fjögur, ef
hann hefur ekki verið gif.tur
áður.
Ef þú hefur fengið 12 eða
meira, skaltu ekki hafa neinar
áhyggjur. Enginn tveggja
kvenna maki gæti verið svo
opinskár.
8—11 Flestir vilja eiga ein-
hver leyndarmál, svo að þú
skalt ekki hafa áhyggjur þótt
hann vilji ekki segja þér alveg
allt.
4—7 Einkalif hans er mjög
lokað er það ekki? bú ættir að
opna nokkur bréf, sem hann fær
— bara af misgáningi.
0—3 Þú ættir að fara að hafa
ofurlitlar áhyggjur og nokkru
meiri, ef þú hefur svarað
spurningum 3,4 og 7 rangt.
Rósin í Róm
Þannig er hún nefnd þessi
laglega hnáta hér á myndinni.
Hún er reyndar bandarisk leik-
kona, og heitir Sydne Rome, og
býr um þessar mundir i Róma-
borg, þar sem hún leitar frægð-
ar og frama. Liklega verður
framabrautin ekki þyrnum
stráð, eöa að minnsta kosti von-
um við, að svo verði ekki.
óvelkomnir gestir
Franska lögreglan hefur látið i
Ijós grunsemdir um, að Keith
Richard, einn af hljómsveitar-
mönnum The Rolling Stones, og
vinkona hans Anita Pallenberg,
hafði haft undir höndum bæði
heroin og hass. Þau Anita og
Keith eru ekki þau einu, sem
yfirheyrð hafa verið vegna
þessa máls, það hafa sömuleiðis
allir meðlimir hljómsveitarinn-
ar verið, en hljómsveitin kom til
Nissa eigi alls fyrir löngu, og
lenti þá i kasti við iögregluna.
Rolling Stones — menn hafa all-
ir fest kaup á stórhýsum iNissa,
og það gerðu þeir til þess að
losna undan skattpiningunni i
Englandi, aö þvi er þeir segja.
En ekki verða þessir menn
neinir aufúsugestir i Frakklandi
ef þeir breyta ekki um háttar-
lag. Myndin er af þeim Keith og
Anitu.
Frá dómssölum Parísar
Itétturinn tók fyrir mál hertoga-
ynjunnar af Windsor, sem hún
hafði höfðað gegn vikublaðinu
France-Dimanche. Svo var
ákveðið, að öll óseld eintök
blaðsins skyldu upptæk gerð,
þvi þar væri að finna grein, sem
fullyrti, að hertogaynjan væri i
gitingarhugleiðingum. Réttur-
inn taldi þetta „óþolandi innrás
i einkalif hertogaynjunnar” og
dæmdi henni bætur fyrir.
Þá var og tekið fyrir ákæru-
mál á hendur pop-söngvaranum
Michael Polnareff. Hann var
sektaður um 60.000 franka fyrir
að hafa sýnt bera þjóhnappana
opinberlega, eöa þvi sem næst,
en út höföu verið gefin 6.000
veggspjöld með mynd af rassi
þessa fræga manns.
— Mikið eru karlmenn allir eins,
þegar þeir eru veskislausir.
☆
—Jæja Gunni litli. Nú er kominn
háttatimi. Sérðu ekkitað allar
konurnar i sjónvarpinu eru að
hátta sig?
Það átti að fara að fullnægja
dauðadómi i litlu riki i S-
Ameriku. Aftökusveitin stóð með
byssurnar við vangann og beið
eftir merki. Fórnarlambið stóð
með andlitið upp að vegg og hafði
þegar reykt siðustu sigarettuna.
Skyndilega kom skrifstofumaður
einn hlaupandi með miklu ira-
fári og hrópaði: —Stanz, stanz!
Fintalningin sýnir, áð hann hefur
verið kosinn forseti
4
— Meðmælin yðar eru góð fram
til 1945. En hvað hafið þér gert
siðan?
DENNI
DÆMALAUSI
..Farðu i baö! ,,Éttu matinn
þinn! Farðu út i horn!"
Hva? Ekkert manneskja.... Ég
er Inira að tala við sjálfan mig.