Tíminn - 02.02.1973, Page 19
Föstudagur 2. febrúar 1973
TÍMINN
19
Þorrablót
Framhald
af bls. 9.
gengið og sveitin, með fólki sínu
og fénaði að baki, finnst manni
reyndar, að samkom_an hafi,
þrátt fyrir allt, verið alltof fá-
menn. Á heimleiðinni er alltaf
annað slagið að skjóta upp i hug-
ann nýjum og nýjum andlitum,
sem gaman hefði verið að sjá,
þótt ekki hefði verið nema rétt i
svip.
Um heimferðina er annars fátt
að segja. Að sjálfsögðu var rennt
heim að Gunnarstöðum og setið
um stund að veitingum og visna-
spjalli hjá Óla bónda. Lofaði ég
sjálfum mér þvi, að hætta ekki að
nauða á honum, fyrr en hann
hefði látið mig fá einhverjar linur
úr ljóðasyrpu sinni. Svo var enn
haldið áfram og náð siðustu hátt-
um á Kópaskeri. Voru þá liðin
rösklega fimm dægur frá þvi að
lagt hafði verið af stað frá
Reykjavik, og á þeim tima hafði
aðeins verið sofið i tæpar fjórar
klukkustundir, sinar tvær i hvort
sinn. Var maður þvi hvildinni feg-
inn.
Nú var ferðazt
í björtu.
Frá Kóapskeri var haldið siðla
morguns. Nú var komið gott veð-
ur, bjart og kyrrt — og óskap-
legur munur var nú að aka um
Axarfjörð, Keldúhverfi og fyrir
Tjörnes um hádaginn, heldur en
verið hafði i myrkri laugardags-
næturinnar. Við stönzuðum hjá
barnaheimilinu að Ástjörn i
Axarfirði. Það er fagur staður,
sem verðskuldar að vera sóttur
heim að sumarlagi og að sagt sé
frá þeirri þörfu starfsemi, sem
þar fer fram. Aftur var ekið
framhjá Lóni, og enn voru hlýar
hugsanir sendar konunni, sem af-
greitt hafði benzinið á föstudags-
kvöldið. A Lóni er bæjarstæði frá-
bærlega fagurt og snyrti-
mennska, hvert sem litið er.
Af Auðbjargarstaðabrekkum er
útsýni mikið og fallegt — og
Mánáreyjarnar voru á sinum
stað, Háey nær, Lágey fjær. A
Máná sá ég ekki betur en að ný
mykjuhlöss væru á túni, enda allt
að þvi vor i lofti, þótt enn sé þorri.
Annars var það áberandi i allri
þessari ferð, að hvar sem komið
var, mátti sjá vitnisburð þeirrar
miklu árgæzku, sem verið hefur á
þessum slóðum að undanförnu. A
flestum eöa öllum bæjum voru úti
hey, sem ekki höfðu komizt i hlöð-
ur, og voru þau betur upp borin og
snyrtilegar frá gengin, en oft má
sjá i öörum landshlutum. Á einum
bæ taldi ég þannig sjö stór hey i
hvrifingu skammt frá hlöðu, en
að visu mun ekki vera einbýli á
þeim bæ, svo að verið getur, að
þau hey séu ekki eins manns eign.
Andleg sjálfsbjörg.
Nú mun bezt að keyra korkinn i
tunnuna, áður en þolinmæði hátt-
virtra lesenda hefur verið mis-
boðið frekar en orðið er. Frá
Akureyri var farið með flugvél til
Reykjavikur, og var ekki verið á
lofti nema réttar fjörutiu min-
útur. Vist er það þægilegt ferða-
lag, en ólikt er þó skemmtilegra
að sitja i bil og njóta landsins i
kring, jafnóðum og það ber fyrir
augu.
Vissulega er alltaf gaman að
yfirgefa Reykjavikurþvargið um
stund og virða fyrir sér kyrrlátt
lif annarra staða. En að fara slika
skyndiferð, sem hér var farin á
heimaslóðir, er auðvitað ekki til
neins annars en að æra upp sult.
Hitt var ánægjulegt að sjá,
hvernig fólk i afskekktu byggðar-
lagi getur verið sjálfu sér nóg,
þegar það vill gera sér dagamun.
Og þá minnist maður þess, ennþá
einu sinni, að meginatriðið er
ekki, hvað sýslan eða sveitin
heitir, þar sem örlögin hafa skák-
að manni niður, heldur hitt, hvort
menn hafa til að bera þá skyn-
semi og menningu hjartans, sem
gerir þeim kleift að vera andlega
sjálfbjarga.
— PÓSTSENDUM —,
Víðivangur
Framhald
af bls. 3.
við þær hugmyndir, sem þar
eru settar frain, eða að hve
miklu leyti hún vill á þvi
byggja, en hvað sem um það
er, þá er ég ekki i nokkrum
vafa um það, að það getur
orðið henni til mikiis iéttis við
starf hennar að hafa þannig
frumvarp fyrir hendi, jafnvel,
þó að hún viidi fara inn á
annan grundvöll heldur en það
frumvarp er á byggt.”
-TK.
Rithöfundar
Framhald
af bls. 1.
höndum Rithöfundafélags ts-
lands, og hefur nú Rithöfunda-
sambandið boðað til fundar, þar
sem ræða skal um meðhöndlun
þessara fjármuna — i trássi við
Félag islenzkra rithöfunda, að
stjórn þess telur. Finnst stjórn
þess félags farið aftan að hlutum,
þar sem sniðgengin sé sérstök
nefnd, er skipuð hafi verið til þess
að gera tillögur um þetta efni, og
vill þar af leiðandi engan hlut
eiga að fundinum. Sendi það blöð-
unum i gærkvöldi svolátandi
samþykkt, er gerð hafði verið
einróma innan vébanda þess:
,,Þar sem Félag islenzkra rit-
höfunda hefur kjörið sérstakan
fulltrúa sinn i nefnd, sem fjalla á
um meðferð svonefnds sölu-
skattsfjár samkvæmt tillögu
samþykktri af Alþingi, og þar
sem ekki er vitað til, að fyrir liggi
neinar niðurstöður af störfum
nefndarinnar, litur stjórn FIR svo
á, að sameiginlegur fundur félag-
anna samkvæmt fundarboði
stjórnar Rithöfundasambands ís-
lands um þetta mál sé með öllu
ótimabær og óviðeigandi, og þvi
munu félagar i FIR ekki mæta á
þessum fundi”.
Aðstoð
Framhald
af bls. 1.
syni hennar, Brini Helgason, er
nú búa i Danmörku 20 þúsund
krónur.
Frá bæjarstjórn Værlöse I Dan-
mörku 25 þúsund danskar krónur.
Frá ritstjórahjónunum Inger og
Alf Schiöttz Christensen, Ála-
borg, 3.500 danskar krónur.
Frá Lionsfélaginu I Halmstad,
Sviþjóð, 5 þúsund sænskar krón-
ur.
Frá Ernu og Svenn Eske, Dan-
mökru, 10 þúsund danskar krón-
ur.
Frá norskum fiskimönnum,
sem eru aðilar að Feitsildfisker-
ens salgslag, Norges markellag
s/1 og Norges sildesalgslag, sam-
tals 100 þúsund norskar krónur.
Margvisleg önnur tilboð um að-
stoð hafa borizt, m.a. eftirfar-
andi:
UNESCO, Menningar- og vis-
indastofnun Sameinuðu þjóðanna
hefir boðið visindalega aðstoð,
bæði visindatæki og sérfræðinga.
Fulltrúi frá stofnuninni er kominn
til landsins út af þvi.
Strax á fyrsta degi eldgossins i
Ves tm annaeyjum bauð
Rikisspitalinn i Kaupmannahöfn
aðstoð, ef á þyrfti að halda.
Fyrirtækið Parca Norrahamar
a/b i Sviþjóð hefur boðið mið-
stöðvar og hitatæki i hús, sem
kann að þurfa að byggja fyrir
Vestmannaey inga.
Slysastofnun Stokkhólmsborg-
ar hefur sent hingað fulltrúa til að
athuga, hvort sú stofnun geti veitt
aðstoð.
Skipasmiðastöðin I Helsingör
hefur boðizt til að taka við 100
fjölskyldum frá Vestmannaeyj-
um og útvega atvinnu, húsnæði og
menntunaraðstöðu i Helsingör.
Lindö-skipasmlðastöðin i
Odense býður 25 logsuðu- og raf-
suðumönnum atvinnu og húsnæði
við skipasmiðastöðina.
Falkoner-teatret, stærsta leik-
hús Kaupmannahafnar efnir til
Islandskvölds 8. þ.m. og á ágóð-
inn að renna i Vestmannaeyja-
söfnun. Þar koma fram helztu
listamenn Konunglega leikhúss-
ins og fleiri.
Ýmsir aðrir aðilar á Norður-
löndum eru að safna fé vegna
Vestmannaeyja.
Samúðarkveðjur hafa borizt
viða að, m.a. frá utanrikisráð-
herrum á Norðurlöndum,
utanrikisráðherrum Irlands,
Frakklands og Israels, frá mörg-
um ræðismönnum Islands og
ýmsum öðrum.
Utanrikisráðuneytið,
1. febrúar 1972.
Vikur
Framhald af
bls. 20.
þrærnar, þvi ef það verður ekki
gert getur loönan eyðilagzt i
þrónum, ef gjallregn skyldi skella
yfir bæinn. Menn eru strax farnir
að biða eftir að loðnan gangi
vestur með landinu, þvi að menn
telja að miklu sé bjargað um leið
og eitthvað atvinnufyrirtæki fer i
gang.
Jarðýtur halda áfram að gera
varnargarða vestan við Kirkju-
fell og er þessi garður nú orðinn
allhár. Liggur hann frá norðri til
suðurs, og yfir mörg húsanna i
nýja hverfinu. Ekki er laust við
að mann hrylli við að sjá jarð-
ýturnar aka ofan á sumum nýju
húsunum, og ryðja um leið veggj-
um þeirra um. Þetta verður að
gera til að koma i veg fyrir
hraunrennsli, ef svo skyldi fara
að hraunið tæki upp á þvi að
renna i vestur. 1 öðru lagi má bú-
ast við þvi, að, þó að hægt væri að
grafa upp þessi hús, yrðu þau
ekki ibúðarhæf aftur.
Byggðin undir Helgafelli, eins
og t.d. Gerðisbraut, er að mestu
leyti i kafi. A þessum stað upp-
götvaðist i gær eitt hús, sem var
að mestu leyti horfið undir gjall-
ið, og gleymzt hafði að taka bú-
slóðina úr. Er menn urðu þess
varir, var strax brugðið við og
jarðýta fengin á staðinn. Var
strax byrjað á þvi að ryðja frá
húsinu, og var grátlegt að sjá
rúðurnar spýtast inn i stofuna,
þegar jarðýtan fór meðfram hús-
inu. Við sömu götu tókst ekki að
bjarga búslóð úr einu húsinu,
áður en gjallregnið dundi yfir bæ-
inn um helgina. I gjallregninu fór
húsið i kaf, og I gær ætlaði eigand-
inn að gera tilraun til þess að
bjarga út úr húsinu þvi sem eftir
var. Það var ekki auðvelt, þvi að
hvergi bólaði á húsinu. Jarðýta og
skurðgrafa kom á vettvang, og
var lengi leitað. Loks þegar
skurðgrafan var búin að grafa
fimm metra djúpa gjótu, var
komið niður á þak hússins. Menn
geta þvi rétt imyndað sér, hve
mikið gjallið er á þessum slóðum,
þegar fimm metrar eru orðnir
niður á þökin.
Þótt merkilegt megi virðast, þá
hefur aldrei orðið rafmagnslaust i
Eyjum i þessum hamförum, en
vararafstöðin hér hefur verið i
gangi allan timann, þannig að
ekki á að verða rafmagnslaust,
þótt svo kunni að fara að raf-
magnslinan úr landi fari úr sam-
bandi.
Enn er unnið að þvi að skipa út
sjávarafurðum i Eyjum. I gær-
morgun kom Jökulfell til Vest-
mannaeyja til að lesta það sem
eftir er af frystum sjávarafurð-
um. Talið er að skipið taki sjö
hundruð lestir, og með skipinu
komu þrjátiu verkamenn úr
Reykjavik til að flýta fyrir út-
skipuninni. Reiknað var með þvi
að búið yrði að lesta skipið i
morgun.
Þá eru skip Skipaútgerðar
rikisins og varðskipin i stanzlaus-
um ferðum. Esja og Herjólfur
voru hér i gærkvöldi, og átti
Herjólfur að fara um kvöld-
matarleytið, en Esja um mið-
nættið. Þá kom varðskipið öðinn
hingað og tók 40 trésmiði, sem hér
hafa verið siðan um helgi. Hafa
þeir varla litið upp þann tima,
sem þeir hafa verið hér að störf-
um.
I fyrrinótt tókst aö ná fyrsta
bátnum niður úr Slippnum, það
var Meta, sem fyrst fór á flot, og i
gær var verið að hlaða bátinn
allskonar varningi, en siðan átti
að draga hann til lands. Siðari
hluta dags i gær, var annar bátur
kominn i sleðann, og er það
Sindri. Atti að koma honum niður
á flóðinu i nótt.
Þá má geta þess, að búið er að
koma dráttarvélum með skóflu
upp á steinsteypt þök hér i bæn-
um. Dráttarvél var td. að moka
fram af þakinu á fiskiðjunni i
gær, og gekk það verk mjög vel.
Minningargjafir um
próf. Snorra
Hallgrímsson
Minningarsjóði Dr. Victors
Urbancic hafa borizt all-
margar minningargjafir,
samtals um 12.000 krónur, i
tilefni af andláti prófessors
Snorra Hallgrimssonar, en
hann var formaður
sjóðstjórnar frá stofnun hans.
Sem kunnugt er, er það hlut-
verk sjóðsins samkvæmt ósk
Dr. Urbancic, að styrkja
lækna til sérnáms i heila- og
taugaskurðlækningum, og
hefur þegar áunnizt nokkuð i
þvi efni.
Minningarspjöld sjóðsins
fást I Bókaverzlun ísafoldar,
Bókaverzlun Snæbjarnar,
Hafnarstræti 4, og á aðalskrif-
stofu Landsbankans, Ingólfs-
hvoli.
Hjálparstarfsemi
Rauða krossins
í Vestmannaeyjum
Búizt er við að 1000 manns muni
verða i fæði hjá mötuneyti Rauða
krossins i Vestmannaeyjum fram
yfir helgi. Mötuneytið tók til
starfa undir umsjón Rauða kross-
ins fyrir þremur dögum, en fram
að þeim tima hafði Sigurgeir Jó-
hannsson annazt matseld fyrir
björgunarmenn i Eyjum. I gær og
i fyrradag voru gestir i mötu-
neytinu afgreiddir við mjög erfið-
ar aðstæður um 5000 sinnum
hvorn daginn með mat og hress-
ingu, en i Eyjum voru þá 1000
manns, 22 við björgun á búslóð-
um, 200 við önnur björgunarstörf
og 600 Vestmannaeyingar, sem
heimild höfðu fengið til að fara til
Eyja.
Þeir Erling Aspelund, hótel-
stjóri á Hótel Loftleiðum, og
Stefán Ölafsson, eigandi Múla-
kaffis i Reykjavik, fóru til Vest-
mannaeyja á þriðjudaginn sem
sjálfboðaliðar á vegum Rauða
krossins. Var verkefni þeirra að
skipuleggja mötuneytisrekstur i
Eyjum, sem hafði reynzt erfiður,
vegna skorts á starfsfólki og bún-
aði. Fyrst var kannað, hvaða hús-
næði myndi henta fyrir rekstur
mötuneytisins og var afráðið að
það skyldi vera i húsakynnum Is-
félagsins. Þar hefur verið rekið
mötuneyti fyrir starfsfólk fyrir-
tækisins, en aðeins miðað við 150
manns, þannig að afkastagetan
hafði ekki fullnægt þeirri þörf,
sem var i Eyjum siðustu daga.
Að sögn þeirra Erlings og
Stefáns voru afgreiddar 675
máltiðir i mötuneytinu á tveim
klukkustundum, á timabilinu frá
Kl. 20 til Kl. 21. á þriðjudag, en 40
sendar út til slökkviliðsmanna.
Lögð er áherzla á að bjóða heitan
og næringarmikinn mat, og má
geta þess að i kvöldmáltið hafa
farið 200 lambalæri og 300 kiló af
pylsum. A miðvikudaginn borð-
uðu 1500 manns i mötuneyti
Rauða krossins i Vestmannaeyj-
um. Matvælainnkaupin annast
skrifstofa Rauða krossins i
Reykjavik og eru þar nú birgðir,
sem endast munu fram yfir helgi.
Matsveinar af hótelum i
Reykjavik og nemar úr Hótel- og
veitingaskóla Islands hafa unnið
mjög mikið og gott starf i mötu-
neytinu, en Sigurgeir Jóhannsson
er þar bryti. Mötuneytið er opið
frá kl. 7 að morgni til 1 eftir mið-
nætti og starfa þar rúmlega 30
manns á hvorri vakt. Við af-
greiðslu á slikum fjölda hefur
ekki verið hægt að nota venjuleg-
an borðbúnað. Loftleiðir hf., gáfu
pappa- og plastilát og bakka, sem
notað hefur verið til þessa, og
sömuleiðis mjólkurduft. Þá hefur
Chef Orchid, matvælafyrirtæki á
Kennedy-flugvelli, sem Loftleiðir
verzla við, sent rúmlega 200 kiló
af plastilátum að gjöf til mötu-
neytisins. A morgun eru svo
væntanlegar 15000 einingar af
plast borðbúnaði með flugvél frá
Bandarikjunum. Verksmiðjan
Vifilfell hefur lika gefið talsvert
magn af drykkjarilátum.
Þeir Erling Aspelund og
Stefán Ólafsson munu verða
áfram til aðstoðar við rekstur
mötuneytisins og ætluðu til Eyja i
dag að huga að frekara skipulagi
þessara mála, en þeir áætla þó að
verði björgun búslóða lokið um
næstu helgi muni fólki i Vest-
mannaeyjum fækka um 500 frá
þvi sem nú er.
Ráðleggingamiðstöð
fyrir Vest-
mannaeyinga
Rauði kross íslands hefur
haft forgöngu um, að opnuð
verður ráðleggingamiðstöð
fyrir Vestmannaeyinga i
Heilsuverndarstöðinni við
Barónsstig. Tekur hún til
starfa föstudaginn 2. febrúar
og verða þá læknar, félags-
ráðgjafar, lögfræðingar og
endurskoðendur til viðtals
kl. 17-20.
„SÓLARKAFFI”
ARNFIRÐINGA
verður að Hótel Borg sunnudaginn 4.
febrúar kl. 20,00
Skemmtiatriði.
Sala aðgöngumiða fer fram í anddyri
hótelsins frá kl. 16,00 og borð verða tekin
frá milli kl. 16,00 og 18,00 sama dag.
Mætum vel og stundvislega.
NEFNDIN.