Tíminn - 02.03.1973, Blaðsíða 4

Tíminn - 02.03.1973, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Föstudagur 2. marz 1973. Lausar skóreimar Albert Shiner óskar þess, að einhver hefði sagt honum að binda skóþveng sinn daginn sem hann gifti sig. Af þvi að enginn gerði það, átti hann eftir að lenda i vandræðum i kirkjunni. Þegar Albert gekk inn kirkju- gólfið steig hann á skóreimina, sem hafði losnað og hrasaði við. Ljósmyndarinn var byrjaður að taka myndir, svo atvikið verður Shiner og konu hans ógleyman legt. En það er hægt að detta um skóþvengi annars fólks lika. Jenny Mason var að stiga upp i járnbrautarlest, og hafði þá stigið á skóreim manns, sem stóð við hlið hennar. Maöurinn steig áfram, og kippti fótunum undan Jenny með skóreiminni, og hún var næstum dottin fyrir lestina. Álmtrén urðu að víkja Tvö hundruö álmtré urðu aö falla fyrir öxi I Paris á siðasta ári. Tré þessi höfðu staöiö meö- fram strætum borgarinnar, en höfðu orðið fyrir sýkingu ein- hvers konar. f Paris eru um 20 þúsund álmtré meöfram götum og strætum, og er þaö um 5% allra trjáa i borginni, en þau munu vera um 400 þúsund talsins. Það er einhvers konar sveppasjúkdómur, sem herjar á álmtrén. Hafa borgaryfirvöld nú gert tilraunir með að fá álmtré frá Japan og Siberiu, i von um að þessi tré hafi mót- stöðu gegn sjúkdómnum. En það eru fleiri trjátegundir i hættu i Paris. Nú deyja 1.66% allra triáa i borginni árlega. Fyrir tiu árum var þessi tala aðeins k2%. Telja garðyrkju- menn aö þetta stafi af síaukinni megun loftsins. Stríð við götumálarana Lögreglan i Paris er nú i strlði viö götumálarana i Place du Tertre á Montmartre-hæðinni. Hefur öllum málurum veriö skipað að hafa sig á brott þaðan, þar sem algjörlega sé bannaö aö mála og seljamálverká götum úti. Málararnir mótmæla harö- lega og segja aö fátt yröi þá fyrir feröamenn aö sjá og hafa gaman af á Montmartre, ef málararnir yröu aö hafa sig á brott. En lögin, sem fariö er eftir varöandi brottrekstur mál- aranna eru nokkuö loöin, og þvi er ýmislegt, sem málari getur gert án þess aö lögreglan geti rekiö hann i burtu fyrir þaö. Til dæmis er málurunum leyfilegt aö vera aö mála úti á götu. Þeir mega lika láta sem þeir séu aö mála, þ.e. þeir geta látiö málar- atrönurnar standa meö mál- verki á, meira aö segja fleiru en einu, þannig aö helzt megi halda, aö þeir séu aö byrja eöa ljúka viö aö mála málverk. Einnig er i lagi, aö málverkin séu aö þorna. En málari má alls ekki fara frá málartrönunum sinum, og ekki má hann heldur láta sjá aö hann taki viö peningum af kaupanda, en allt er i lagi meö þaö, aö vegfarandi dáist aö málverki, og spyrji málarann, hversu mikils viröi þaö sé. Lögreglan segir aö aöal- vandamálið við götumálara sé, hversu margir þeir eru. Daglega má sjá ekki færri en hundrað og fimmtiu málara aö „störfum" og þegar verst lætur, er svo þröngt á götunum, þegar allar málaratrönurnar eru komnar upp, aö ekki er hægt aö aka um þröngar götur Montmartre fyrir málara- trönum. Flatfættir fá uppreisn Þaö er engin ástæöa fyrir fólk aö láta það á sig fá, þótt þaö hafi flatan fót. Dr. Herman Tax hjá Fótaheilbrigöismiðstööinni i New York segir, aö flatfættir megi jafnvel vera þakklátir. Eðlilega flatur fótur sé sterkasti fóturinn. Þá er það stærri flötur en ella, sem gengiö er á og fóturinn endist betur Margvislegar fjáröflunarleiðir Fólk er alltaf að finna upp nýjar og nýjar leiðir tii fjáröflunar. Happdrætti eru sigild leið, tom- bólur, bázarar og nú siðar flóa- markaðir. En það má gera margt annað og fá fyrir það peninga. Sjónvarpsstjarnan Blái Pétur i BBC tok upp á þvi að selja gömul hnifapör til þess að afla fjár til að koma fátækum borgarbörnum i sumarleyfi út úr borgunum. Svo voru það þrjár ungar stúlkur, sem komu fyrir gömlu baðkari á Trafalgar togri i London, og einnig þær ætluðu sér að safna peningum til góðgerðarstarfsemi. Hér er svo þriðja fjáröflunarleiðin, sem þær Christine Strelis og Jenny Willis fóru. Þær seldu kossa á fimm pence á kappreiðum i Englandi, en þær seldu aðeins niu kossa, þó eru þær alls ekki sem verstar i útliti, en kannski málefnið hafi ekki verið nægi- lega gott. <mm jgMBg' e: - m „Rólegur herforingi. Þetta er aðeins ég". DENNI DÆMALAUSI Maður verður að vita, hvað maður á að segja til þess aö liann brosi. Sjáðu bara. Mundir þú ekki sakna min, hr. Wilson, ef ég flyttist i burtu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.