Tíminn - 29.03.1973, Síða 3
Fimmtudagur 29. marz 1973.
TÍMINN
3
Högg Mbl. lenti
á Húsmæðrafél.
Rvíkur
1 forystugrein Mbi. I gær er
ritað uin mótmæli Húsmæðra-
félags Reykjavikur gegn verð-
lagi á iandbúnaðarvörum.
Þessi leiðari Mbi. er athyglis-
verður fyrir þá staðreynd, aö i
honum er viðurkennt, aö það
sé rétt, sem Timinn sagði i
leiöara á þriðjudag, að flestar
aðrar matvörur og innfluttar
vörur hafa hækkað mun
meira frá nóv. 1970 en bú-
vörurnar. Þessi leiðari hlýtur
þvi að hafa verið hnefahögg í
andlit þeirra félagskvenna i
Iiúsm æðrafélagi Reykja-
vikur, sem hafa Mbl.-asklokið
fyrir himin. Með þessum
leiðara staöfesti Mbl. það, að
þessar konur eru haldnar
alvarlegri glámskyggni i þjóö-
málum og hafa enga heildar-
yfirsýn yfir útgjöld heiinila
sinna, þar sem þær mótmæla
verðlagningu á þeim vörum,
sem minnst liafa hækkað i
verði á undanförnum 2-3
árum og eru jafnframt
hoilustu og hlutfallslega
ódýrustu vörurnar á mark-
aönum um leiö og þær hvetja
aörar húsmæður til að kaupa i
staðinn fyrir þessar vörur þær
vörutegundir, sem hækkaö
hafa miklu meira í verði og
eru jafnframt mun verri og
óhollari heimilismönnum.
En hvers vegna rekur Mbl.
Húsmæðrafélagi Reykjavikur
þennan löðrung? Það er sjálf-
sagt óviljaverk ritstjórans I
ákafanum við að koma höggi á
rikisstjórnina. Þaö er reitt
hátt til höggs, höggið geigar
og lendir ekki á rikisstjórn-
inni, eins og tii var ætlazt/
heldur á Húsmæðrafélagi .
Rcykjavíkur. Mbl. tekur
nefnilega verðhækkanirnar á
þeim vörum, sem konurnar i
Húsmæðrafélagi Reykjavikur
ætla að kaupa f staðinn fyrir
framleiðsiu fslenzks land-
búnaðar sem sérstök dæmi og
áþreifanlega sönnum um það,
„AD STJÓRNARSTEFNAN
HEFUR LEITT TIL OF-
BODSLEGRAR VERÐ-
HÆKKUNARÖLDU OG
BEINNAR LIFSKJARA-
SKERÐINGAR”
Þær vorur, sem hér cr fyrst
og fremst um að ræða og inest
liafa hækkað, eru innfluttar
vörur. Þær hafa liækkað svo
gifurlega á heimsmarkaöi og
vegna verðbólgu i ýmsum við-
skiptalöndum okkar, sem
sums staðar hefur verið meiri
en hér á tslandi sfðustu miss-
eri, og vegna sifelldra gengis-
breytinga erlendis og þeirra
sviptinga f viöskiptalifi, sem
þær liafa haft i för með sér.
Áhrif erlendra
verðhækkana
Enginn mannlegur máttur á
ísiandi heföi getaö komið i veg
fyrir, eða haft nokkur áhrif á
þessa hækkun á heims-
markaðsverði þessara inn-
fluttu vara. Þessar vörur
verðum við að flytja inn og
þær eru ekki faiar fyrir lægra
vrð erlendis, hver sem rikis-
stjórnin er, sem við völd situr
á Alþingi. Verö þessara vara
væri vissulega ckkert lægra
erlendis nú, þótt Gylfi og Jó-
hann hefðu setið áfram i
stjórnarstólum á tslandi og
það lækkar vist lieldur ekkert
við það, þótt þeir fengju völd-
in.
En til viðbótar við þá erfið-
leika i verðlagsmálum, sem
að núverandi rikisstjórn hefur
borið vegna verðhækkana er-
lendis má t.d. benda á til við-
bótar við þær verðhækkanir á
erlendum vörum, sem Mbl.
Frh. á bls. 15
Þarna sér framan á C-5A flutningaþotuna, sem kom til Keflavikurflugvallar i fyrrinótt. Undir vængnum vinstra megin er sæmilega stór
vörubill, og undir vængnum hægra megin má greina mann, en bæði hann og billinn eru litlir i samanburöi við þetta ferlíki
(Timamyndir G.E.)
Stélið er 20 m. hátt
Stéliö er tuttugu metra hátt, og
sést hæðin vcl á þessari mynd
þegar mennirnir eru bornir
saman við stélið.
800 vilja 200 hús
Vestmannaeyingar vilja setjast að alls staðar á landinu
ÞÓ, Reykjavik — Húsnæðis-
miðlun Vestmannaeyja hafa nú
borizt 803 umsóknir i innfluttu
húsin 200, sem Viðlagasjóöur
hefur fest kaup á frá Norður-
löndunum. Þessar 803 umsóknir
hafa komið frá meira en tuttugu
stöðum á landinu, og ber þvi ekki
á öðru, en Vestmannaeyingar
hafi hug á að setjast aö sem
viðast á landinu — að minnsta
kosti i bili.
Jónas Guðmundsson, hjá hús-
næðismiðluninni sagði i samtali
við blaðið, að til viðbótar þessum
umsóknum hefðu nú borizt 30-40
umsóknir, sem ekki væri búið að
innfæra. Hann sagði, að flestar
kæmu umsóknirnar frá
Reykjavik eða 201, frá Hafnar-
firði hafa komiö 110, Keflavik 76,
Selfossi 64, Þorlákshöfn 61,
Grindavik 40, Kópavogi 24, Mos-
fellssveit 24, frá Suðurnesjum
hafa borizt 16 umsóknir, frá
Akureyri 14, Hveragerði 14,
Eyrarbakka 12, Akranesi 10,
Hvolsvelli og Hellu 10, Hornafirði
9, Stokkseyri 7 og 85 hafa ekki
tekið ákvörðun um aðsetursstað.
Ennfremur sagði Jónas, að um-
sóknir um lóðir hefðu borizt frá
26 aðilum, eins og til dæmis á
Austfjörðum og tsafirði.
15þús.d.
Jón Kjartansson forstjóri ÁTVR
hefur afhent Hjálparstofnun
kirkjunnar D.Kr. 15.000.00 (isl.
kr. 234.389.00) sem gjöf til að-
stoðar Vestmannaeyingum frá
kr.tilEyja
fyrirtækjunum Danisco og De
Danske spritfabrikker i Kaup-
mannahöfn.
(Frétt frá
Hjálparstofnun kirkjunnar)
KJ, Reykjavik — t fyrri-
nótt kom til Keflavikur-
flugvallar stærsta flug-
vél, sem nokkru sinni
hefur komið hingað til
lands, og hafa þó hingað
komið t.d. Boeing 747
þotur „Júmbó” — þot-
urnar, sem eru stærstu
flugvélar, sem notaðar
eru i almennu farþega-
flugi i dag. Þá hafa
komið hingað til lands
stærstu flutningaflug-
vélar Sovétrikjanna, en
C-5A flutningaþotan frá
bandariska hernum,
sem kom i fyrrinótt slær
allar hinar út.
C-5A flutningaþotan kom
hingað til lands færandi hendi,
þvi að hún var hlaðin dælum og
pipum, sem nota á i baráttunni
við hraunstrauminn i Vest-
mannaeyjum. Það er erfitt að
lýsa þvi með orðum hverskonar
ferliki hér er um að ræða, en ef
þessi flutningaþota er t.d. borin
saman við Boeing 727 Flugfélags-
þoturnar, þá myndi saman-
burðurinn vera á þessa leið: C-5A
þoturnar eru 75.5 metra langar,
en Boeing þotur Flugfélagsins eru
40.6metra langar. Vængjahafið á
þeim stóru er 68 metrar, en 33 á
Flugfélagsþotunum. Stélið er 20
metrar á C-5A, en rúmir tiu á
Flugfélagsþotunum. Fullhlaðin
vegur C-5A þotan 348 tonn en
Boeing 727 vegur 73 tonn. Aftur á
móti hafa Flugfélagsþoturnar
vinninginn hvað hraða snertir,
þvi að hámarkshraðinn er 974
kilómetrar en hámarkshraði
flutningaþotanna er 919 km á klst.
Þá eru þessar C-5A flutninga-
þotur fimm metrum lengri en
„Júmbó” þoturnar.
Menn og bilar sýndust agnar-
litlir við hliö flutningaþotunnar á
Keflavikurflugvelli i fyrrinótt, og
þegar afturendi þotunnar var
opnaður var eins og verið væri að
opna flugskýli. Flugstjórnar-
klefinn er eins og upp á fjórðu
hæð i fjölbýlishúsi, og það er lika
betra fyrir flugmennina að hafa
gott útsýni, og nægt athafna-
svæði, þegar þeir aka þotunni á
flugvöllum.
Auk þessa ferlikis, komu tvær
aðrar bandariskar flutningaflug-
vélar með útbúnað til dælingar-
innar i Eyjum. Alls komu þessar
þrjár vélar með 160 tonn, en þar
af mun stóra vélin hafa flutt um
110 tonn, en hinar 25 tonn hvor. Þá
var von á fimmtu og siöustu vél-
inni i gærkvöldi, en fyrsta vélin
kom á mánudaginn.
Megnið af dælunum og
pipunum, sem bandarisku flutn-
ingaflugvélarnar komu með,
verður flutt með skipi til Vest-
mannaeyja, en Fragtflugsvél fór
eina ferð I gær með pipur til Ey ja
þvi að legið mun hafa á að fá þær
pipur strax.
Þarna er veriö að taka dælurnar út úr flutningaþotunni, og eins og sjá má er opið að aftan mikiö gimald .
(Timamyndir G.E.)