Tíminn - 29.03.1973, Qupperneq 6

Tíminn - 29.03.1973, Qupperneq 6
6 TÍMINN Fimmtudagur 29. marz 1973. ALÞINGI Umsjón: Elias Snæland Jónsson Tillaga Björns Pdlssonar (F) um endurskoðun tryggingakerfisins: AFNEMA VERÐUR ÞAÐ MARGFALDA OG RÁN- DÝRA KERFI SEM NÚ RÍKIR EJ—Reykjavik. Björn Pálsson (F) mælti i fyrradag fyrir þing- ályktunartillögu, sem hann flytur um endurskoðun á tryggingakerfinu. Þar leggur hann m.a. til að ,,af- numið sé hið tvöfalda, lögboðna örorku- og lifeyris- sjóðakerfi þannig, að einn sameiginlegur lifeyris- sjóður sé fyrir alla landsmenn”. Tillagan felur í sér, að rikis- stjórnin láti endurskoða tryggingakerfið i heild i þeim til- gangi að gera það einfaldara, ódýrara og réttlátara. Eftirfar- andi atriða sé einkum gætt: 1. Afnumið sc hið tvöfalda, lög- boðna örorku- og lifeyrissjóðs- kerfi, þannig að einn saineigin- legur lifeyrissjóður sé fyrir alla landsmenn. Miðað skal við, að uppliæð fullra örorku- og lifeyrishóta eftir l!7 ára aldur geti numiö allt að 2/3 af venju- legum starfslaunum, hafi bóta- þegi engar aðrar tekjur, en lif- eyrir sé lægri ef um aðrar tekj- ur er að ræða. 2. Tryggingakerfið sé fjármagn- að annað tveggja af rikissjóði að öllu leyti eða af rikissjóði og iðgjöldum cinstaklinga og fyr- irtækja, hliðstætt þvi, sem er i Noregi og Sviþjóð. Verði siöari kosturinn valinn, sem hag- kvæmara mun reynast, greiða atvinnurekendur ákveðna prósentu af nettótekjum, en launþegar og vinnuveitendur sameiginlega tiltekna prósentu af vinnulaunum og sé miðað við dagvinnu og kauptryggingu sjómanna. 3. I.ifeyrissjóði þá, sem nú eru lögboðnir, sé heimilt^að hafa i vörzlu þcirra aðila eða stétlar- samtaka, sem sjá um þá nú, og skal ávaxta þá og nýta á hag- kvæman hátt fyrir viökomandi aðila. Kikisvaldið skal hafa eftiriit mcð starfsrækslu þeirra og verðtryggja ef unnt er. 4. Sé álitiö ógerlcgt að afnema ið- gjöld lifey riss jóða stéttar- félaga, vegna þess að þeir séu álitnir nauðsynlegir til öflunar lánsfjár, þá verði frekar horfið af þeirri leið að afla lánsfjár á þann hátt að skylda einstakl- inga á aldrinum 37-62 ára til aö kaupa sparimerki, hliðstætt þvi, sem ungt fóik verður að gera nú. Miðað sé við 4-6% af venjulegum vinnulaunum. Sparimerkin skal vcrðtryggja og endurgreiða eftir ákveönum rcglum eigendum þeirra, eftir að þeir hafa náð 67 ára aldri. Sé eigandi sparimerkja látinn, áð- ur en þau eru að fullu greidd, skal innistæöa hans ganga til erfingja eftir sömu reglum og aðrar eignir. Fyrirkomulagið í ná- granna löndunum f itarlegri greinargerð sem Björn Pálsson flutti með þessari tiílögu, sagði hann m.a. eftirfar- andi: Ég hef kynnt mér tryggingamál i nágrannalöndum okkar. Þar er kerfið einfalt, og eigi tvöfalt og þrefalt eins og hér. Um það er tal- að i þessum löndum, að heildar- lifeyrir þurfi að vera 2/3 af venjulegum vinnutekjum, ef eigi er um aðrar tekjur að ræða. En lifeyrir er eigi greiddur i Noregi og Danmörku fyrr en eftir 69 ára aidur. f Noregi greiða atvinnurekend- ur, þar á meðal bændur, 7,8% af nettótekjum sinum i trygginga- gjöld, launþegar 4% af launum, en atvinnurekendur 8,8% á móti. Kiki og sveitarfélög greiða litið. í Sviþjóð er svipað kerfi, en i Dan- mörku greiðir rikið mun meira, en iðgjöld einstaklinga eru lægri. Þessar tryggingar svara til al- mannatrygginga hér, og verðgildi elli-og örorkubóta er svipað og er hjá okkur. Lögboðnir lif- eyrissjóðir eru eigi i þessum löndum, hvorki fyrir launþega né bændur, nema hjá Finnum. Þeir hafa sérstakan lifeyrissjóð fyrir bændur. Þar greiðir rikið 50% ið- gjalda og bændur 50%, og er mið- aö við matsverð jarða. Það er viturlegri heiðarlegri og einfald- ari innheimtuaðferð en hér á landi. Tvöfalt og þrefalt kerfi hér á landi Itikið greiðir hér allan kostnað við almannatryggingar og nær allan sjúkrakostnað. Til tryggingamála er varið nær 1/3 af rikisútgjöldum. Þarsem 4/5 hluta rikistekna er aflað með óbeinum sköttum er þvi ljóst, að allir þurfa að greiða verulegar fjárhæðir til tryggingamála. Auk þess þurfa félagar stéttarfélaga innan Alþýðusambands íslands að greiða 10% af dagvinnukaupi i lif- eyrissjóði. Vinni gift kona úti, þarf hún i flestum tilfellum einnig að greiða 10% af vinnulaununum. Ungmenni, 16 ára og eldri eru lát- in greiða til lifeyrissjóða en séu þau i skóla meira en 6 mánuði á ári, fá þau 4% endurgreidd, en þau 6%, sem talið er að atvinnu- veitandinn greiði, hirðir sjóður- inn. Þær prósentur eru vitanlega greiddar fyrir vinnu viðkomandi aðila. Þessar reglur hafa einnig verið notaðar við sjómenn. Félagar i stéttarfélögum og bændur munu þvi greiða, þegar kerfið er komið i fullan gang, yfir 20% af dagvinnukaupi sinu til tryggingamála, sé tillit tekið til þess, sem greitt er i gegnum rikiskerfið. Auk þess eru greiðsl- ur atvinnurekenda til slysa-, at- vinnuleysis- og sjúkratrygginga. Þetta er miklum mun meira en nágrannaþjóðir okkar greiða. Samkvæmt þessu ætti að vera hægt að greiða hærri lifeyri eftir 67 ára aldur en venjuleg vinnu- laun eru, ef eigi væri um verulega lækkun á verðgildi peninga að ræða. Enginn veit fyrir vist, hvað lifey rissjóðir stéttarfélaga eru margir, en álitið er, að þeir séu 27. Litið eftirlit er með fjárreiðum þeirra, en allir hljóta þeir að hafa stjórnir og framkvæmdastjóra. Kerfið er allt tvöfalt eða þrefalt og fáránlegt i framkvæmd. Trúnaðarmenn verkalýðsfélaga hlaupa um og innheimta iðgjöld hjá atvinnurekendum, greiða gamalmennum nokkrar krónur ársfjórðungslega, sem lækka bætur almannatrygginga i mörg- um tilfellum hliðstætt. Kaup- félagsst jórar taka ákveðnar prósentur af innleggi hvers bónda auk ákveðinnar prósentu af heildarinnlegginu, nema rikið greiði þann hluta af niður- greiðslufé. Mun hér vera um heimsmet að ræða hvað inn- heimtuaðferðir snertir. örorku- bætur og sennilega mat á örorku eiga að vera i tvennu lagi, sjúkrabætur i sumum tilfellum i þrennu lagi, þvi að ýmis stéttar- félög hafa sérstaka sjúkrasjóði, sem atvinnurekendur verða að borga i. Hér er þvi um tvöfalt og þrefalt innheimtukerfi aö ræða og tvöfalt eð.a jafnvel þrefalt greiðslukerfi. öllu þessu fylgir mikil skriffinnnska og kostnaður. Lífeyrisbætur frá mörgum aðilum önnur hlið tryggingamálanna eru lifeyrisbætur. Opinberir Björn Pálsson starfsmenn hafa verðtryggð eftiriaun, þannig að lifeyrissjóður þeirra greiðir ákveðna prósentu launa miðað viö það ár, sem þeir hættu störfum. Eftir 30-35 ára starfsaldur getur sú upphæð orðið 2/3 launa. Verði verðbreytingar eða launahækkanir, greiðir rikis- sjóður mismuninn. Sú fjárhæð hefur farið vaxandi og nemur nú ca. 200 milljónum. Auk þess hafa opinberir starfsmenn lifeyri frá almannatryggingum, þannig að þeir eru á fullum launum, eftir að þeir hætta störfum. Þeir eru þvi á vissan hátt betur settir fjárhags- lega en á fyrri starfsárum sinum þegar þeir þurftu að stofna heim- ili, ala upp börn og greiða náms- skuldir. Ráðherrar og þingmenn hafa nokkra sérstöðu. Hafi þeir gengt störfum um árabil, fá þeir i fyrsta lagi eftirlaun sem ráðherrar eða þingmenn. Sé um embættismenn eða bankastjóra að ræða, hafa þeir eftirlaun sem slikir. Sé um bændur eða félaga i stéttarfélög- um að ræða, fá þeir væntanlega eftirlaun þannig, þegar þeir sjóð- ir taka til starfa til fulls að 12 ár- um liðnum. Eiga þær bætur að nema 2/3 hlutum af venjulegum vinnulaunum. 1 þriðja lagi eiga þeir að fá bætur frá almanna- tryggingum. Sennilega nema þessar bætur samanlagt hærri fjárhæð en tekjur viðkomandi að- ila voru, meðan þeir voru i starfi. Félagar i stéttarfélögum og bændur eiga að fá tvöfaldan lif- eyri, þ.e. frá almannatryggingum og hinum lögboðnu lifeyrissjóð- um, þegar þeir taka til starfa. Sé gert ráð fyrir, að bæt- ur almannatrygginga nemi allt að 2/3 af venjulegum vinnu- launum, eins og stefnt virðist að, og bætur sérsjóða nemi 2/3 hluta vinnulauna, ættu aldraðir lif- eyrisþegar að hafa meiri tekjur en þeir höfðu af vinnu sinni, með- an þeir voru ungir. Auk þess hafa margir aldraðir menn tekjur af eignum, og ýmsir geta haft ein- hver störf með höndum. Er það meira virði fyrir gamalt fólk en háar bætur. Hiö mikla ranglæti Starfsaldur þeirra, sem stunda langt nám, er styttri en bænda og almennra launþega. Þetta atriði hafa þeir athugað, sem sömdu lögin um lífeyrissjóð sjómanna, þótt illa hafi verið með sjómenn farið. Þar er hámark iðgjalda- timabils 30 ár. Almennir launþeg- ar eiga nú að greiða iðgjald til lif- eyrissjóða frá 16-17 ára aldurs, en það getur orðið 51 ár. Bændur eiga að greiða frá 20-67 ára, eða i 47 ár, búi þeir svo lengi. Ég lét reikna út fyrir tveimur árum, hve miklar fjárhæðir þetta yrðu mið- að viðverðlag 1970. Launþegi eða bóndi, sem hefur 330 þús. kr. á ári i tekjur, þarf að greiða 33 þús. kr. árlega, en það gerir i 30 ár með 10% vöxtum og vaxtavöxtum 5.971.133 kr., en i 40 ár 16.066.109 kr. Upphæðin nær þrefaldast á fjórða áratugnum og vex mun hraðar á þeim fimmta. Sá, sem greiðir iðgjald i 50 ár, mun þvi greiða allt að þvi sjö sinnum hærri upphæð með vöxtum og vaxtavöxtum en sá, sem greiðir iðgjald i 30 ár. Þetta er tilfinnan- legt ranglæti i lifeyrissjóðalög- gjöfinni. Það væri til mikilla bóta, ef tryggingakerfið væri aðeins 30 ár og iðgjaldagreiðslur hæfust eigi fyrr en eftir 35 ára aldur. Laun og afurðaverð hefur hækkað mikið i krónutölu siðan 1970. Hjón, sem vinna bæði úti, hafa gjarnan 600 þús. kr. i dag- vinnukaup, iðgjöld af þvi eru 60 þús. á ári. Það gerir með 10% vöxtum og vaxtavöxtum i 40 ár 29.211.107 kr. Hliðstætt munu stærri bændur eiga að greiða, þvi að iðgjöld þeirra eiga að vera 50% hærri en bænda, sem hafa meðal- bú. Ljóst er, að iðgjaldagreiðslur félaga i stéttarfélögum og bænda eru allt of háar, nema reiknað sé með miklum gengislækkunum. lögjöld 2000 milljónir 1972 1 lifeyrissjóði stéttarfélaga og bænda greiða 40-50 þús. manns 10% af vinnulaunum. Iðgjöld hafa sennilega numið árið 1972 nær 2 milljörðum en nálgast sennilega 3 milljarða i ár, ef iðgjöld inn- heimtast. Úr sjóðum þessum á engu að eyða næstu 12 árin. Allir sjá hversu óhemju miklir fjár- munir þetta verða með vöxtum og vaxtavöxtum. Peningar skapa vald. Hvert stéttarfélag mun vilja ráða yfir sinum sjóði. Banka- starfsemin myndast þá um hvern sjóð með tilheyrandi kostn. Deil ur munu verða milli rikis- valds og sjóðsstjórna um yfirráð þessara fjármuna. Þetta fé mun verða lánað út, eftirlitið verður misjafnt og fénu misvel varið. Eftir nokkra áratugi munu þessir sjóðir eiga verulegan hluta af eignum landsmanna og sjóðs- félagar strita við að greiða vexti af eigin fé. Á þann hátt mun skap- ast öflugra auðvald en kaþólska kirkjan var á sinum tima. Tryggingakerfi okkar er nú tvöfalt eða jafnvel þrefalt og fáránlegt i framkvæmd. Þessu þarf að breyta, gera það einfald- ara réttlátara og framkvæman- legra. Ég hef eigi trú á, að það takist, hema horfið sé að þvi að taka upp svipað kerfi og Norð- menn og Sviar hafa. Sjúkratrygg- ingar ættu einstaklingar og sveitarfélög að greiða að hálfu og eftirlitið að vera i heimabyggð- um. Það mundi spara mikla fjár- muni. 1 þvi sambandi vil ég benda á, að daggjöld á sjúkrahús- um úti á landsbyggðinni eru sums staðar þrefalt lægri en i Reykja- vik. Væri þetta gert, gætu útgjöld rikisins til tryggingamála lækkað um allt að 5 milljarða. Hægt væri þá að stórlækka tekjuskatt, af- nema launaskatt og jafnvel lækka eða afnema fleiri skatta. Bættur hagur rikissjóðs mundi einnig Frh. á bls. 15 III Mörg mál voru tekin til um- ræðu i báðum deildum Alþing- is i gær. i efri dcild voru eftirtalin mál afgreidd: 1) Stjórnarfrumvarpið um hlutdeild rikisins i byggingu og rekstri dagvistunarheimila var samþykkt til 3. umræðu með nokkrum minni háttar breytingum. 2) Halldór E. Sigurðsson, fjármálaráðherra, mælti fyrir frumvarpi um staðfestingu rikisreiknings 1970, en neðri deild hefur þegar samþykkt það frumvarp. Var þvi visað til 2. umræðu og fjárhags- og viðskiptanefndar. 3) Stjórnarfrumvarp til námulaga var samþykkt frá deildinni og til neðri deildar. 4) Stjórnarfrumvarpið um breytingu á orkulögum, hvað stuðning við mótorrafstöðvar bænda snertir, var samþykkt til 3. umræðu með nokkrum breytingum. 4) Frumvarp um breytingu á lögum um stofnun og slit hjúskapar var samþykkt til 3. umræðu. 5) Stjórnarfrumvarpið um Happdrætti DAS var sam- þykkt til 3. umræðu. 6) Loks var stjórnarfrum- varpið um Happdrætti háskól- ans samþykkt til 3. umræðu með nokkrum breytingum á minni háttar atriðum núgild- andi laga. i neðri deild voru eftirfar- andi mái tekin fyrir: 1) Stjórnarfrumvarpið um dvalarheimili aldraðra var samþykkt frá deildinni til efri deildar með einni smávægi- legri breytingu, en breytingartillögur, 8 talsins, frá Pétri Sigurðssyni (S), voru allar felldar. 2) Halldór E. Sigurðsson, fjármálaráðherra, mælti fyrir frumvarpi um breytingar á tollskrá, sem efri deild hefur afgreitt, og var þvi visað til 2. umræðu og fjárhags- og við- skiptanefndar. 3) Ólafur Jóhannesson, dómsmálaráðherra, mælti fyrir stjórnarfrumvarpi um dómara og rannsóknardeild i ávana- og fikniefnamálum, sem efri deild hefur afgreitt. Friðjón Þórðarson (S) efaðist um gildi frumvarpsins, en þvi var siðan visað til 2. umræðu og allsherjarnefndar. 4) Stjórnarfrumvarpið um breytingar á lögum um eitur- efni og hættuleg efni var sam- þykkt frá deildinni til efri deildar. 5) Pétur Sigurðsson (S) flutti framsögu fyrir frum- varpi, sem hann flytur ásamt 5 öðrum þingmönnum úr 4 flokkum um að vissan hluta ársins verði vissum fjölda báta af ákveðinni stærð leyft að veiða með botnvörpu eða dragnót i Faxaflóa til að afla neyzlufiskjar fyrir ibúa á Faxaflóasvæðinu. Jónas Árnason (AB) sagði þetta frumvarp eitt hið versta, sem lengi hefði verið flutt á Alþingi. Rakti hann siðan ýmis mót- mæli gegn þessu frumvarpi, sem borizt höfðu. Var frum- varpinu visað til 2. umræðu og sjávarútvegsnefndar. 6) Stjórnarfrumvarp til hafnarlaga var samþykkt til 3. umræðu með nokkrum breytingum, sem óskað var eftir af hálfu Hafnamálasam- bands sveitarfélaga, og auk þess breytingatillögu, sem Matthias Bjarnason hafði lagt fram við 1. umræðu málsins. Frh. á bls. 15

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.