Tíminn - 29.03.1973, Side 16

Tíminn - 29.03.1973, Side 16
'---------------------------- Fimmtudagur 29. marz 1973. - MERKIÐ, SEM GLEÐUR HHtomist i Sumpfélaginu Gistió á gódum kjörum #HivraL# Iral Ei^iiy Inl SGOÐI I j fyrir ffóóan mut $ KJÖTIÐNADARSTÖD SAMBANDSINS % Elias Steinsson vift bryggju i Keykjavik, nú fyrir skömmu. Elias Steinsson á strandstað á Stokkseyrarfjöru Ljósm.HSi Sextándi skipsskaðinn á árinu Níu skipverjum bjargað við erfiðar aðstæður úr brimgarðinum við Stokkseyri Þó, Reykjavík— Sextándi skips- skaðinn á þessu ári átti sér stað i fyrrinótt, þegar Elias Sveinsson VE 167 strandaði rétt austan við Stokkseyri á svonefndu Langa- skeri, en það er rétt niður af ts- ólfsskála. Báturinn strandaði i dimmu en stilltu veðri skömmu eftir miðnætti. Þrátt fyrir lognið gekk björgun frekar erfiðlega, þar sem brim var nokkuð og báturinn lá i sjálfum brimgarðin- um. Skipverjunum, niu talsins, hafði þó verið bjargað á fjórða timanum. Elias Sveinsson, sem er 66 lesta eikarbátur, var að koma úr neta- róðri þegar hann strandaði. Báturinn, sem var gerður út frá borlákshöfn um þessar mundir, hafði fengið um 25 tonn af góðum þorski suðaustur af Vestmanna- eyjum. Báturinn var á fullri ferð, þegar hann strandaði og var stýri- maðurinn i brúnni, en skipstjóri og eigandi bátsins, Bjarnhéðinn Eliasson var sofandi. Þeir, sem sváfu fram i lúkar bátsins, vissu vart af sér fyrr en þeir vöknuðu á kafi i sjó, en um leið og báturinn strandaði gekk kinnungur bátsins inn. Skipverjar náðu fljótlega sam- bandi við Þorlákshöfn, og þaöan var haft samband við Björgvin Guðmundsson, formann björgunardeildarinnar á Stokks- eyri. Var björgunardeild Slysa- varnarfélagsins þar komin á staðinn skömmu siðar, og á eftir komu björgunarsveitarmenn frá Eyrarbakka. Ekki gekk sem bezt að ná til mannanna um borð i bátnum. Há- flæði var og var báturinn i aðal- brimgarðinum, þannig að stöðugt braut á honum. Björgunar- sveitarmenn fóru með tæki sin eins nálægt bátnum og þeir kom- ust, og voru þá 200 metrar út i bátinn. Var siöan skotið linu út i bátinn og átti að draga mennina i land á gúmmibjörgunarbátunum, en ekki vildi betur til en það, að báðir gúmmibjörgunarbátar bátsins rifnuðu, þegar tekið var i þá. Ekki þótti þorandi að draga mennina i land i linustól, þar sem hætta var talin á að þeir gætu lamizt við skerin og klettana á leiðinni. Var það þvi tekið til bragðs, að senda gúmmibát með utanborðsmótor út i brimgarðinn til að sækja mennina. Fóru þrir Frh. á bls. 15 Hersetu Bandaríkja- manna í Víetnam lokið NTB—Saigon. Sið- ustu bandarisku her- mennirnir áttu að fara frá Vietnam kl. 5 i morg- un að islenzkum tima og þar með mun hafa verið lokið 10 ára hersetu Bandarikjamanna i landinu. Stutt kveðjuat- höfn átti að fara fram er siðustu liðsforingjarnir færu úr landi. í gær fóru 1800 bandariskir her- menn frá S-Vietnam og 49 Varð undir dróttarvagni og beið bana BANASLYS varð á bryggjunni i Straumsvik s.l. þriðjudagskvöld. Varð maður þar undir dráttar- vagni og lézt samstundis. Maður- inn var danskur og bjó i Vest- mannaeyjum þar til gosið hófst, en hefur undanfarið verið starfs- maður i flutningadeildinni i Straumsvik. Hann var 49 ára gamall. Maðurinn bjó með is- lenzkri konu. Slysið varð með þeim hætti, að dráttarvél var ekið upp bryggj- una i Straumsvik og voru tveir vagnar aftan i henni. Stjórnandi dráttarvélarinnar sá tvo menn framundan og þar sem þeir gengu á akbrautinni gaf hann hljóð- merki, en að þvi er dráttarvélar- stjórnandinn ber, færðu þeir sig litið til. Hemlaði þá stjórnandinn, en þá komu báðir vagnarnir aftan á dráttarvélina og hún hentist áfram og á annan manninn. Varð hann fyrir öðru framhjóli dráttarvélarinnar og féll. Stjórn- andinn stöðvaði dráttarvélina og var maðurinn þá meðvitundar- laus vjð framhjól fremra dráttar- vagnsins. Þegar stjórnandinn var að reyna að ná manninum undan vagninum fór vélin af stað aftur og hljóp hann aftur upp á hana til að reyna að stöðva, en á meðan fór hjól dráttarvagnsins yfir höf- uð mannsins. OÓ. bandariskum striðsföngum var sleppt i Hanoi. 19 stórar flutningaflugvélar taka þátt i mannflutningunum. 2500 Bandarikjamenn voru i gær i Víetnam. Norðurvietnamar ætl- uðu að sleppa 67 striösföngum á sama tima og siðustu hermenn- irnir frá USA fóru i morgun. Bandarisku fulltrúarnir i sam- eiginlegri nefnd stríðsaðila, 825 manns, eiga að vera á burt úr Vietnam fyrir 31. marz svo og fulltrúar N-Vietnama. Siðasti fundur fjögurra þjóða nefndar- innar var haldinn I gær. Frá laueardeei verða aðeins fulltrúar Þjóðfrelsishreyfingarinnar og S-Vietnam I nefndinni. Nefndin kom sér ekki saman um sameiginlega tilkynningu, vegna þess að Bandarikjamenn og Suðurvletnamar héldu þvi fram, að hinir fulltrúarnir i nefndinni hefðu ekki viljað fylgi- ast með vopnahlénu á réttan hátt. Hver aðili mun birta sina eig- in tiikynningu. Michel Gauvin frá Kanada, einn fulltrúa i alþjóðlegu eftirlits- NTB-New York, Osló Norsks flutningaskips, Anitu, er nú saknað og hefur ekki heyrzt til þess siðan á miðvikudag 21. marz, er það átti að vera á sömu slóðum úti fyrir austurströnd Bandarikj- anna og systurskip þess Norse Variant, sem nú er talið af. Anita er frá Osló og fór frá Newport News i Virginiu 21. marz tveim timum eftir aö Norse Variant sigldi úr höfn i Norfolk i sama riki. Fundizt hefur bauja með áletruninni Anita á sömu slóðum og Norse Varint hvarf. Það er nefndinni, sagði i gær, að Kanadamenn hefðu.vegna alþjóð- legra tilmæla, fallizt á að vera áfram i nefndinni. Starfi nefndar- innar stafaði hætta af þvi, ef Kanadamenndrægjusigtil baka, eins og þeir vildu áður, af þvi að þeir töldu starfsemi hennar ófull- nægjandi. Ghana í 30 mflur A MIÐVIKUDAG lýsti Ghanastjórn þvi yfir, að hún hefði ákveðið að færa land- heigi landsins úr 12 mílum i 30. Jafnframt áskilur hún sér öll yfirráð yfir auðæfum iandgrunnsins, og kveðst innan tiðar munu færa fisk- veiðiiögsöguna út 1100 milur, en 30 milna útfærslan kemur til framkvæmda þegar I stað. þó ekki talin nein sönnun fyrir þvi að skipið hafi farizt vegna óveðursins, sem geysaði á svæði þessu i siðustu viku. Bandariska strandgæzlan hefur ekki hafið leit að Anitu. Þrjár konur og 29 karlmenn eru um borð i Anitu. Anita var samskonar skip og Norse Variant, og bæði fluttu kol. Annað var á leið til Skotlands en hitt til V-Þýzkalands. Áhöfnin átti að hafa loftskeyta- samband við land nú á sunnudag, en þegar ekki heyrðist frá henni eftir óveðrið var reynt að hafa samband við skipið á föstudag. Ekki var tilkynnt um að skipsins væri saknað fyrr en á þriðjudag vegna þess að stjórnendur út- gerðarinnar vildu fyrst hafa sam band við aðstandendur áhafnar- innar. DULARFULLT SKIPSHVARF Annars norsks skips saknað Miklar breytingar á frönsku stjórninni NTB, Paris — Franska rikisstjórnin lét i gær formlega af störfum, en Pompidou forseti bað Pierre Messmer að gegna áfram starfi for- sætisráðherra. Messmer verður leið- togi nýrrar stjórnar, sem forsetinn vonar að verði næmari á almenn- ingsálitið i Frakklandi er fráfarandi stjórn, einkum á umbóta- kröfurnar, sem settar voru fram i þingkosn- ingunum. Pierre Messmer varð forsætis- ráöherra i júli i fyrra og búizt var við að hann héldi ^eirri stöðu áfram. En kosningaúrslitiri hafa i för með sér stórbreytingar á stjórn hans þar sem þing- mönnum Gaullista fækkaði um 60. Skipun rikisstjórnarinnar verður sennilega ekki kunn fyrr en i lok næstu viku, en vist er, að nýir menn verða utanrfkis- og dómsmálaráðherrar. Maurice Schumann utanrikis- ráðherra og Rene Pleven dóms- málaráðherra voru ekki endur- kjörnir, og geta þvi að frönskum sið ekki átt sæti i stjórninni áfram. Valery Giscard 1’ Estaing er talinn liklegur utanrikisráð- herra, en ótrúlegt er aö Pompidou forseti vilji leyfa honum að hætta sem fjármálaráðherra meðan viðtækir verzlunarsamningar standa yfir við Bandarikjamenn. Talið er að nýir menn skipi þriöjung ráöherraembætta. Meginverkefni nýju stjórnar- innar verða miklar umbætur i félagsmálum, sem forsetinn lofaði fyrir kosningar að gerðar yröu. Messmer er talinn hafa haldið velli vegna góðrar frammistöðu i kosninga- baráttunni, en hann hefur aldrei veriö kunnur sem framfarasinn- aður stjórnmálamaður. Hin stóra spurning i frönskum stjórnmálum er, hvort kommúnistar og sósialistar haldi áfram samvinnu þeirri, sem þeir gerðu með sér fyrir kosningar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.