Tíminn - 17.07.1973, Side 7
Þriftjudagur 17. júli 1973
TÍMINN
7
Bandarlkjamennirnir kynna fréttamönnum áætlun sina og islenzku fyrirtækjanna. Lengst til
vinstri er Maurice Segall, þá Philip Kochenderfer og loks James Lancaster. — Timamynd: G.E.
„Uppgötvið ísland"
American Express efnir til mikillar herferðar til sölu d
íslenzkum varningi í samrdði við íslenzk fyrirtæki
ÓV-Reykjavfk: Bandariska stór-
fyrirtækið American Express
vinnur nú að undirbúningi mikill-
ar herferðar, sem nefnd er „Dis-
Ekkert
vott í
Arnarhvoli
„Þar sem ráðherrar fara er oft
góðra veitinga von”, hefur hann
sjálfsagt hugsað maðurinn, sem
flæktist um Arnarhvol í gær á
þeim tima, er ráðherraskiptin
fóru fram.
Maðurinn var vel hreifur, en
vinbirgðir hans voru þrotnar og
peningarnir vist lika, þannig að
hroðalegur þurrkur var framund-
an ef ekki var að gert. Við slikar
aðstæður mega menn ekki deyja
ráðalausir. Maðurinn lagði leið
sina upp i Amarhvol oj;hugðist ná
sér i aukasjúss til að framlengja
sæluna. En viti menn, engar
slikar veitingar voru fram bornar
heldur komu verðir laganna og
höfðu manninn á brott með sér.
Maðurinn hlaut ókeypis gist-
ingu fyrir vikið. — gj.
cover Iceland,” til kynningar og
sölu á islenzkum vörum. Á næst-
unni verður um 50.000 handhöfum
lánakorta American Express
sendur bæklingur, þar sem island
og islenzkar vörur eru kynntar og
boðnar til sölu. Verði þessar
fyrstu viðtökur góðar verður sett i
fullan gang áætlun, sem hugsuð
er fyrir árið 1974, og verður þá
öðrum lánakortahöfum send til-
boð, en þeir eru alls um 5 milljón-
ir viða um heim.
Þessi fyrsta kynningarherferð
hefur kostað um 50.000 dollaraeða
um 4.5 milljónir isl. króna en
gangi hún vel, mun American Ex-
press, sem er heimsins stærsta
fyrirtæki sinnar tegundar, leggja
þre- til fjórfalda þá upphæð i fyr-
irtækið.
Þessa dagana eru staddir hér á
landi þrir fulltrúar American Ex-
press og kynntu þeir fréttamönn-
um áætlanir sinar á mánudag.
Töldu þeir mikla möguleika á að
vel tækist til, þvi islenzkur varn
ingur hefði allt með sér. Vörurn-
ar, sem um ræðir, eru ullarvörur,
silfur, húsgögn, keramik og fleira
svipað. íslenzku fyrirtækin eru
Glit, Alafoss, Kristján Siggeirs-
son og loks Icelandic Imports,
sem áður hefur verið i sambandi
og samvinnu viö American Ex-
press og selt i gegnum það fyrir-
tæki þúsundir islenzkra peysa og
ekki minna en 40.000 islenzkar
ullarkápur, eins og menn muna.
Töldu Bandarikjamennirnir, að
hægt ætti að vera að selja islenzk-
ar vörur fyrir andvirði tveggja
milljóna dollara, eða tæplega 180
milljón islenzkra króna, miðað
viö núverandi gengi.
1 fyrstu umferð bjóða þeir
skjólstæðingum sinum pakka
með tiu eftirpretunum af mál-
verkum Asgrims Jónssonar, fyrir
25 dollara, auk þeirra vara, sem
áður hafa verið nefndar.
American Express selur ein-
göngu i gegnum póst en handhaf-
ar lánakorta geta notið skemmt-
ana, ferðalaga og annarrar þjón-
ustu viðs vegar um heim gegn
framvisun kortsins. Hér á landi
munu nokkrir hafa slik kort og
verða þeir þá að greiða reikninga
sina i brezkum pundum eða doll-
urum, þar eð enn þykir fyrirtæk-
inu ekki borga sig að hafa hér úti-
bú.
Undirbúningur þessa starfs
hófst i mai á siðasta ári en fyrstu
kápurnar og peysurnar voru seld-
ar til Bandarikjanna fyrir þrem-
ur árum.
MARGT UAA MANN-
INN í BLÍÐVIÐRI í
MÝVATNSSVEIT
JI-Reykjahlið. — Sláttur er haf-
inn á nokkrum bæjum hér i Mý-
vatnssveit og byrjar almennt I
þessari viku. Veðurfar hefur ver-
ið ákaflega gott siðustu daga.
Silungsveiði er dræm, og virðist
sem einn til tvo árganga vanti i
fiskstofninn I Mývatni, þar seni
dálitið veiðist aftur af vænum sil-
ungi, en svo verður helzt vart við
smásilung.
Nýting á rými gistihúsanna
hefur verið ágæt. Langmest hefur
Hreinsitækin
reynd í KísiU
verksmiðjunni
JI-Reykjahlið. Kisiliðjan
hefur gengið vel fyrri hluta
þessa árs, og lætur mjög
nærri, að allar áætlanir um
rekstur hennar standist.
Dálítil töf hefur orðið á
smiði og uppsetningu
hreinsitækja þeirra, sem
koma eiga, en þó mun verða
byrjað að reyna þau i þess-
um mánuði. Höfundur tækj-
anna er Jón Þórðarson, upp-
finningamaður i Reykjalundi
i Mosfellssveit.
verið af útlendum ferðamönnum
framan af sumri, en nú siðustu
daga hefur tslendingum fjölgað
mjög. Um helginavoru hér talin
tvö hundruð tjöld.
Þjónusta hér fer mjög batn-
andi. Fyrir skömmu var opnaður
nýr veitingastaður, Sel, að Skútu-
stöðum, þar sem fólk getur fengið
morgunverð, heita smárétti og
smurt brauð. Þetta er vistlegt hús
eign Kristjáns Yngvasonar, og
góð snyrtiaðstaða, og eftir svo
sem eina viku verður verzlun
opnuð i þessu sama húsi.
Lionsklúbburinn Middelfart i
Danmörku hefur sent Lions-
klúbbnum Ægi i Reykjavik 10.000
danskar krónur og er ætlunin að
fénu verði ráðstafað til hjálpar
Vestmannaey ingum.
Fjárins var aflað með þeim
Mjög hefur verið bætt aðstaða
tjaldbúa i samráði við Náttúru-
vendarráð Islands, og verið er að
smiða i Borgarnesi hús, sem flutt
verður fullgert norður hingað og
sett niður að Reykjahlið. Þar fær
fólk góða snyrtiaðstöðu. Tjald-
stæði hafa einnig verið leyfð á
túni i Álftagerði.
Eftirlit það, sem komið hefur
verið á, er áreiðanlega mjög
þarflegt, og stuðlar að aukinni
snyrtimennsku og kemur i veg i
fyrir skaðlegan átroðning.
hætti, að Lionsklúbburinn Ægir
sendi fimm tunnur af hrauni til
Danmerkur og danski Lions-
klúbburinn seldi hraunið á Flóa-
markaði.
Fé þetta mun væntanlega bæt-
ast við söfnunarfé annarra Lions-
klúbba á Norðurlöndunum.
Góð sala á hrauni:
Fengu 2000 d.
kr. fyrir tunnuna
JÚNÍ MEÐ
GÓÐAN AFLA
ÚR FYRSTU
VEIÐIFERÐ
HAFNARFJARÐARTOGARINN
Júni, systurskip Bjarna Bene-
diktssonar, kemur úr fyrstu
veiðiför sinni um hádegisbilið
með að minnsta kosti 250 lestir
eftir rúmlega tveggja vikna úti-
vist.
Okkur var sagt hjá Bæjarút-
gerð Hafnarfjarðar, að ekki hefðu
orðið neinar vélarbilanir i Júni,
en aftur á móti hefðu þess sézt
merki, að einangrun i skipinu
muni slælega gerð. Ekki hefur þó
neitt verið tekið innan úr skip-
inu til þess að leita að göllum.
Okkur var einnig tjáð, að
keyptir hefðu verið þrjú þúsund
niutiu litra plastkassar til þess
að isa i fisk, og væri að þvi stefnt
að geyma afla á þann hátt i hluta
af lestinni. Eitthvað hefði verið
farið með af plastkössum i þessa
fyrstu veiðiferð, en þó ekki mikið,
þar eð menn hefðu búizt við, að
aflinn yrði mestmegnis karfi.
— JH.
KJÖRBÚÐ OG
VEITINGAR
VIÐ GOÐAFOSS
KAUPFÉLAG Svalbarðseyrar
hefur opnað verzlun á Fosshóli
við Goðafoss i nýrri viðbyggingu
við gamla verzlunarhúsið þar.
Yið gerð nýrrar brúar á
Skjálfandafljót breyttist vegur-
inn, svo aö hann var bak við
gamla verzlunarhúsið.
Hin nýja verzlun er hundrað
fermetra kjörbúð. en auk þess eru
þar snyrtiklefar og aðstaða til
veitinga.
Ferðamannaverzlun við Goða-
foss hefur aukizt mjög undanfarin
ár, og hefur Kaupfélág Sval-
barðseyrar nú komið myndarlega
til móts við þá. sem þar eiga leið
um og vanhagar um eitthvað.
— JH.
Bandarískum
vísindamönnum
neitað um
rannsóknaleyfi
— fylgdu ekki settum reglum um
rannsóknir við Island
ÓV-Reykjavik: Bandarisku
rannsóknarskipi, sem legið
hefur i Reykja vikurhöfn
undanfarna daga og er ætlað
að sigla i dag, hefur verið neit-
að um leyfi til rannsókna á
hafsbotninum umhverfis ís-
land af rannsóknaráði ríkis-
ins. Astæðan er sú, að við fyrri
rannsóknarstörf visinda-
mannanna um borð fylgdu
þeir ekki settum reglum og
hafa auk þess ekki skilað
skýrslu um störf sin, svo sem
venja er.
Steingrimur Hermannsson,
framkvæmdastjóri Rann-
sóknaráðs, sagði i viðtali við
fréttamann blaðsins i gær, að
ráðið væri óánægt með störf
þessara manna á árinu 1971,
þegar þeir voru hér siðast. Þvi
væri leyfið ekki veitt nú.
Aöspurður um lögsögu Is-
lendinga i þessum efnum,
sagði Steingrimur, að um slikt
mætti vafalaust deila, en öll
tvimæli væru tekin af um störf
innan þriggja sjómilna land-
helginnar, þau yrðu ekki leyfð,
en samkvæmt samningum
hafréttarráðstefnunnar 1961
ættum við rétt til afnota af
landgrunninu allt niður á 200
metra dýpi. Nú væri yfirleitt
talað um 400 metra dvpi. en
hver niðurstaða slikra deilna
yrði væri ekki gott að spá um.
Sveinn P. Jakobsson. jarð-
fræðingur. hefur unnið við
svipaðar rannsóknir hérlendis
og hafði hann þvi einhver af-
skipti af bandarisku visinda-
mönnunum á sinum tima.
Hann sagði i stuttu viðtali við
fréttamann blaðsins. að þeir
hefðu ekki eingöngu látið und-
ir höfuð leggjast að skila
skýrslunni. heldur og stundað
ólöglegar og óleyfilegar rann-
sóknir á landi 1971. Hefðu þeir
fengið leyfi til að vinna að
rannsóknum á hafsbotninum
út af Reykjanesi, en siðan far-
ið i land, tekið þar jarðfræði-
leg sýnishorn og flutt um borð
I skipið.
Fréttamanni tókst ekki að
ná tali af yfirmanni visinda-
Framhald á bls. 19
SF&atm r-
Bandariska lannsoknaskipið „Tiideut” i Reykjavikurhöfn. Ilr.
Sehilling fylgdi ekki settum regluiti her 1971 og fivr ekki annað
lovfl- —Timamynd: G.E.