Tíminn - 17.07.1973, Side 19

Tíminn - 17.07.1973, Side 19
Þriðjudagur 17. júli 1973 TÍMINN 19 AÐALFUNDUR NORÐLENZKRAR TRYGGINGAR HF. O Mannfall á Háskólaköppum Islands um sina þrettándu aldar ritfræði, ís- lendingasagna og lygasjónarmið þeirra á fræðum merkilegra manna. Sagnabækurnar sem komu fram i Holti 1370, eru eflaust að stórum hluta bækur Guðrúnar Ormsdóttur. Ormur, og flestir synir Jóns, voru óskilgetnir og þvi eigi arftækir að lögum. Hér i Reykholti eru eflaust allar dýr- ustu bækur á íslandi, eins og Heimskringla, Njála, Egilssaga, að sjálfsögðu Laxdæla og fleiri slikar. Hér gefst svo órækur vitnisburöur um mikinn fjölda bóka, sem saminn er á 12. öld, að það virðist óþarfi að halda uppi heilli fræðadeild i Háskóla til að neita staðreyndum upp á fullkomið andleysi og skilnings- leysi á mikilvægi sannindanna um menntir íslendinga á 12. öld og fyrr. A þeim sannleika hafa byggzt allar fræðarannsóknir, og þetta er fræðaheimur um íslend- ingasögur öldum saman, þangað til hægt var að búa til háskóla, sem skilur hvorki upp né niður I málinu, hrekur ekkert af þvi, sem sannleikanum samkvæmt er búið að gera að niðurstöðum i málinu, en spinnur upp úr sjálfum sér rakalaust slúður og gera sig sjálf- ir að doktorum við þann virðulega háskóla, eða hitt þó heldur. í fáum máldögum kirkna, sem til eru frá 12. öld, er hvergi getið um bækur, en siðan fara þær að vitna um sig á mörgum kirkju- stöðum er kemur fram yfir 1200. Og i Vilkiusmáldögum frá 1397 eru þær á mjög mörgum kirkju- stöðum i Skálholtsbiskupsdæmi, enda verið haldið áfram að rita bækur, en mest kirkjulegs efnis, sem von var, þvi að búið var að trúæra þjóðina, og fara þó þýddar riddarasögur fram hjá þvi efni. En i áhrifum íslendingasagna kemur upp hin ljúfa mennta- stefna, sem fellst i þjóðkvæðun- um, sem siðaskiptin drápu. Næstelzti máldagi, sem getur um bækur, er máldagi Mela- kirkju i Melasveit 1220. Þá eru bækur, fyrst taldar, og messu- búnaður, 25 hndr. virði. Um það leyti er Markús að setjast þar að, sá er gerði Landnámabók, sem við Mela er kennd. Hann var frændi Snorra. Þá segir það, sem er einstakt að frétta. 1 máldagan- um segir: ,,Þar liggur til kirkjuti- und af 19 bókum”. Þetta segir ótvirætt: Bækurnar eru lánaðar út til lestrar fyrir ákveðið gjald. Það er stundum nýtt að frétta i gömlum fræðum, en til þess þurfa fræðimennirnir að vera meira en sjálfkjörnir doktorar i vitleysu. Arið 1269 er máldagi gerður i Haukadal. Þá er þar fyrir utan messubúnað, 26 bækur. Á 13. öld- inni eru auðmennirnir að safna bókum. Arið eftir, 1270, er gjörður máldagi i Holti undir Eyjafjöllum Þá er þar fyrir utan venjulegan kirkjubúnað „fjöldi sagnabóka”, stendur i máldaganum. Dettur nokkrum manni i hug að hér séu ekki á ferðinni Islendingasögur, sem ritaðar hafa verið á 12. öld, og rikir menn búnir að safna fjölda þeirra, er liða tekur á 13. öld? Dettur nokkrum i hug, að meöal þessara bóka sé ekki Njáls- saga, sem undarlegir meinasauðir segja að sé ekki skrifuð fyrr en 1285-90, og láta prenta þennan vlsdóm? Er nú mannfall sem óðast I Stóra- Hvammi, en grátið þurrum tár- um, sem sjaldan var i íslands- sögu. A Noröurlandi, Hólabiskups- dæmi, gefst ekki að skoða þetta fyrr en á allsherjar máldögum Auðuns rauða, biskups á Hólum, árið 1318. Þá er á Svalbarði i Eyjafiröi, sögubók með mörgum heilagramanna sögum og sést nú, að greint er á milli slikra bóka er flestar voru þýddar á is lenzku úr útlendum tungumálum og annarra bóka, eins og „sagna- bókanna” i Holti. En á Höfða i Höfðahverfi, er „sögubók er á eru margar fornar sögur”. Skyldi nokkur efa að hér er um Islend- ingasögur að ræða, og fornar, auðvitað frá 12. öld. Þá koma Draflastaðir, fornt auðmannaset- ur. Þar eru fyrir utan kirkjubún- að „6 bækur eftir Grim prest”. Ekki semur Grimur prestur heilagramanna sögur, svo hér eru á ferðinni Islendingasögur. Og hér er nefndur höfundur að ís- lendingasögum, Grimur prestur, og það hefur aldrei verið borið orð á slikan hégóma i Háskólanum! Og ekki verið að brjóta heilann um hvaða Grimur þetta sé, enda liggur hundavaðið fyrir þvilikum mönnum og mundu þeir tilnefna Grim prest Hólmsteinsson frá Holti undir Eyjafjöllum. Hann þýddi sögu Jóhannesar skirara fyrir Arna biskup I Skálholti Þor- láksson og skrifar honum bréf með þýðingunni, sem algerlega hreinsar hann af þvi, að hafa skrifað nokkrar Islendingasögur. Hann er of mikill prestur i Arna biskups stil, til að fást við slikt, en engar íslendingasögur samdar á dögum hans, d. 1298. — Hér er án alls efa um að ræða Grim prest, skáld og munk, Hjaltason. Hann er einn af þeim virðingarmönnum landsins, sem fylgja Guðmundi Arasyni til biskupsvigslu 1202, og kveður á leiðinni um heldur erfiða ferð. Þetta hefur verið stórfræg- ur maður og minning hans i heiðri höfð eftir að skrifa þingeyskar- eyfirzkar sögur og ef til vill Drop- laugarsonasögu að austan. Og á Draflastööum eru bækurnar geymdar sem kirkjufé, er ei má lóga. Hér sýnir háskólinn á íslandi frægð sina, að minnast ekki á þann eina mann, sem nefndur er, sem höfund Islendingasagna. Grimur hefur fyrst verið prestur á Draflastöðum, en með aldri gengur hann i klaustur, eflaust i Munkaþverá, og verður þar fræg- ur af bókritun, og sjálfkjörinn i fylgd með biskupsefni til vigslu. Svo er til forn bók i selskinni i Grimsey. Mundi ekki ráð fyrir háskóla- fræðimennina að horfa i sinar eigin iljar ofan af sjónarhóli sög- unnar og iðrast, áður en lengra er farið út á návíkina til að sökkva fjöreggi þjóðarinnar? Og vist er um það, að hér kunna þeir engin svör fyrir sinu máli að halda, og eiga þvi ekki margra kosta völ. Og verður það ekki gaman að halda 11 hundruð ára minningar- hátið um byggð landsins 1974, og offra i það skáldum og spekingum fyrir botnlausan aðhlátur innan litils tima, fyrir að taka hvorki mark á heimildum eða vitsmuna rannsókn á málinu. Þá yrði þó kannski hægt að skrifa nýjar Is- lendingasögur og drita i þær atómskáldskapnum frá þessum hátiðartima i landinu með land- námsmanna höll uppi á hálend- inu! Verið þið nú sælir aliir, og fari hver sina fyrirsettu leið! Ég óska þjóðinni til hamingju með mannfallið i Stóra-Hvammi, og við sjáum nú til, hvort þeir ganga aftur. Q Neitað um mannanna, dr. Schilling haf- 'fræðingi, en skipstjóri skipsins kvaðst hafa öll siglingaleyfiog væri honum heimilt að sigla skipi sinu inn á hvaða islenzka höfn sem væri. — Rannsóknarleyfin höfum við aftur á móti ekki, og þvi reikna ég með að við verðum aö fara út fyrir 50 milurnar, sagði skipstjórinn. Steingrimur Hermannsson kvaðst búast við, aö fundur um þetta mál yrði haldinn I rannsóknarráði i dag. Rannsóknarskipið Trident er gert út af háskólanum I Rhode Island en nýtur auk þess styrkja frá bandariska sjóhernum og National Sci- ence Foundation. o Víðivangur — En ekki geta varðskipin fylgzt með aflamagni togar- anna og rikisstjórnin hefur ná- kvæmlega engar tillögur gert um það, hvernig eftirliti meö þessu hámarksaflamagni yrði háttað. — Það er of mikið sagt. Ýmsar hugmyndir hafa veriö uppi. Við gætum haft menn i brezkum höfnum til þess að fylgjast með þessu. Við vorum ekki með hámarksafla i okkar tillögum I upphafi, einmitt út frá þessu sjónarmiði. — En hvers vegna hefur rikisstjórnin þá gengiö inn á tillögur Breta um hámarks- afla? — Til þess að koma til móts við þeirra sjónarmið og greiða fyrir samningum.” —TK O Útlönd ihlutun Bandarikjamanna, ef bylting yrði gerð við Persaflóa eða hætta þætti á henni. Ljóst þykir að andúðar gætti á sliku ævintýri i kjölfar Vietnam- styrjaldarinnar, en jafnframt er bent á, að Bandarikjamenn eigi miklu brýnni hagsmuna að gæta við Persaflóa en i Indókina, og sér i lagi þó i Saudi Arabiu. transkeisari hefirsagtblátt áfram, að hann liði ekki nærveru róttækra við Persaflóa. Ef til vill hefir Fulbright hugsað til íran þegar hann talaði um „stað- gengla” Bandarikjamanna i stjórnmálum. Bandarikjamenn eða íranir gætu ekki sent hersveitir sinar á vettvang, nema rikisstjórn, sem riðaði til falls eða teldi sér ógnað, bæði þá um aðstoð. Hugsanlegt er, að þetta gæti gerzteða yrði ef til vill „látið” gerast. En hvað gætu Banda- rikjamenn gert, ef sitjandi rikisstjórn takmarkaði sölu á orkugjafa til þeirra án nokk- urrar byltingar? Eigi að nota oliu sem vopn i átökunum milli Israels og Arabarikjanna hefir enginn jafn góða aðst. til að beita þvi vopni og Feisal konungur sjálfur. Hann gerir það sennilega ef til styrjaldar kemur og gæti jafnvel gert það, án þess. © íslandsvinur sjónum. Tilgangurinn með þessu er tvenns konar. 1 fyrsta lagi ætla Bretarnir að halda út fyrir 50 milurnar hluta ágústmánaðar, þ.e. þegar þeir eru búnir að ná hinum umrædda hámarksafla og sýna þar með umheiminum að þar fari löghlýðnir menn, sem hliti úrskurði dómstóls þjóðanna. Að sjálfsögðu ætla þeir inn fyrir mörkin aftur skömmu siðar, og halda áfram fyrri iðju. 1 öðru lagi hyggjast brezku út- gerðarmennirnir með þessu sýna, umheiminum, að nógur fiskur sé á íslandsmiðum og að allt tal um ofveiði sé blaður eitt. Þeim hafi tekizt að ná þvi aflamagni, sem dómstóllinn úrskurðaöi þeim á skemmri tima en einu ári, þrátt fyrir þá staðreynd, að veitt var við erfiðar aðstæður. Slikt getur ekki þýtt nema eitt: Nægur fiskur er i sjónum. Að lokum hvatti David Jarvis Islendinga til framhaldandi bar- áttu I landhelgismálinu og bað menn að vera óhrædda við að skrifa Félagi Islandsvina I Bret- landi og senda þeim upplýsingar og gefa þeim góð ráð. Röggsamur fundarstjóri var Pétur Guöjónsson, forstjóri. Utanáskrift samtakanna er. Friends of Iceland, David Jarvis 121 Hartland Avenue, Wyken Coventry, Warwicks. England. © Vopnasmygl samtals um fimm tonn. Yfirvöld irska lýöveldisins hafa undanfarna daga aukiö mjög varögæzlu á landamærum N-lr- lands til aö hindra, að IRA-menn ferðist aftur og fram. Talsmenn brezka hersins segja, að þessar aðgerðir hafi leitt til þess að mun færri árásir hafa veriö gerðar á fólk nú I þrjá daga en áður var. Þá hafa landamæraveröir fengið mikið af nýjum tækjum, m.a. blla. © Loftárásir fölsku skjölin hefðu ei verið ætl- uð stjórnmáiamönnum, sem eiginlega hefðu átt aö fá aö vita um árásirnar. Opinber talsmaður varnar- málaráöuneytisins, Jerry Fried- heim, segir fullyrðingar Knights ósannar og segir jafnframt, aö háttsettir embættismenn, bæði innan hersins og utan, hafi gefiö leyfi til árásanna. Viðskipti við Norðlenzka tryggingu h/f hafa farið stöðugt og ört vaxandi á fyrsta starfsári hennar. Reikningslegt tap varð á fyrsta starfsárinu, en þrátt fyrir það hafa viðskiptin við félagið farið fram úr björtustu vonum. Þetta kom fram á aðalfundi Norðlenzkrar tryggingar h/f, sem haldinn var að Hótel Varðborg á Akureyri 30. júni s.l. Valdemar Baldvinsson stjórnarformaður flutti skýrslu stjórnar. Hvatti hann alla hluthafa til að auka DAGANA 2. og 3. júli s.l. fóru fram i Moskvu viðræður um ástand og horfur i samskiptum tslands og Sovétrikjanna á sviði viðskipta- og efnahagsmála. For- o siðast til vélarinnar, en hún var þá yfir Akranesi. Stuttu siðar sást til vélarinnar frá Reykholti, en siðan sást hvorki né heyrðist til hennar. Leit hafin Um hálf átta leytið á sunnudag hafði flugvélin ekki komið fram á Þórshafnarvelli. Var þá þegar far- ið að svipast um eftir henni, en það bar engan árangur. Um leið var hafin skipulögð leit að vélinni, bæði úr lofti og af landi. Fjölmennir leitarflokkar gengu um hálendið i grennd við Reykja- vik, Hvalfjörð og Þingvelli, svo og Dali og hálendið milli Hvammsfjarðar og Hrútafjarðar. Þá tók fjöldi flugvéla þátt i leit- inni, m.a. þyrla og björgunarvél frá Varnarliðinu, vél frá flug- stöðinni og vélar Landhelgisgæzl- unnar. Flakið finnst Veður var óhagstætt til leitar, mjög lágskýjað, allt niður i miðj- ar fjallshliðar. Kl. 7.10 I gær- morgun tilkynnti Orn Einarsson, bóndi i Miðgarði i Stafholtstung- um, að flak flugvélarinnar væri fundið. Stuttu siöar komu félagar úr björgunarsveitinni Ok á slys- staðinn og voru þá allir látnir, sem meö vélinni voru. hlutafjáreign sina og beina við- skiptum sinum i enn rikari mæli til fyrirtækisins. Friðrik Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri, las upp og skýrði reikninga félagsins. Hluthafar eru i dag 157 og innborgað hlutafé um 4 milljónir. Stjórn félagsins var öll endur- kjörin, en hana skipa Valdemar Baldvinsson, Pétur Breiðfjörð, Óli J. Ölason og Aðalsteinn Jósepsson. maður islenzku nefndarinnar var Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneyt- isstjóri, en A. Manzhulo aðstoðar- ráðherra utanrikisviðskipta. var formaður sovézku nefndarinnar. Flugslysið Ekki er akfært að slysstaðnum, sem er syðst i Snjófjöllum, u.þ.b. 6-7 km norður af Fornahvammi. Þyrla Landhelgisgæzlunnar sótti þvi likin fjögur og flutti þau til Reykjavikur. Skv. upplýsingum Loftferða- eftirlitsins hefur flugvélin rekizt á fjallið og þeir, sem með henni voru, látizt samstundis. Að öðru leyti liggja orsakir slyssins ekki fyrir, en rannsókn þesserihönd- um Rannsóknarnefndar flug- slysa. Veður á sunnudag var lág- skýjað og þvi óhagstætt skyggni. Að sögn Leifs Magnússonar, for- stöðumanns flugöryggisþjónust- unnar, er algengt, að einkaflug- vélar fái sérstaka heimild til sjónflugs, þótt lágskýjað sé. Þau Ingimar og Sigriður áttu eins árs brúðkaupsafmæli á sunnudag. Ingimar var alinn upp hjá ömmu sinni og afa á Þórs- höfn, en þeir bræður voru einmitt á leið þangað ásamt konum sin- um, til að vera við áttræðisafmæli ömmu sinnar. Þá má geta þess að lokum, að Sigriður, sem starfaði sem flug- freyja hjá Loftleiðum, var i Loft- leiðaþotunni, sem hlekktist á i lendingu á Kennedyflugvelli 23. júni s.l. — ET. Viðræður við Sovétmenn

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.