Tíminn - 20.07.1973, Síða 4
4
TÍMINN
Föstudagur 20. júli 1973.
Skrítin
rafmagnstæki
Þegar Tom Leonard sat dag
einn við orgelið sitt og var aö
leika ,,An English Country
Garden” af miklum móð heyrði
hann rödd segja: „Beygðu til
hægri á næstu ljósum”. Tom
hætti spili sinu og hlustaði á
röddina gefa fleiri fyrirskipan-
ir. Fyrirskipanirnar virtust
koma innan úr rafmagsnsorgel-
inu. Tom þótti þetta að sjálf-
sögðu merkilegt og hringdi þvi i
framleiðendur hljóðfærisins.
Sérfræðingar þeirra komu á
staðinn og rannsökuöu hljóðfær-
ið. Niöurstaða þeirra varð sú, aö
hljóöfærið reyndist sem mót-
takari fyrir talstöövar lögreglu-
og sjúkrabifreiða i nágrenninu.
Það er ekkert eins dæmi að
svona gerist. Svipað henti ný-
lega prest einn i Bolton, sem
mátti þola það, að i miðri stól-
ræðu hans greip kirkjuorgelið
fram i fyrir honum. Röddin sem
þaöan hljómaði flutti skipa-
fregnir. Hljóðfæriö reyndist
sem móttakari fyrir skipafréttir
BBC. Rafmagnsgrillofn, sem
nýlega var tekinn i notkun á
sjúkravaktinni i Scarborough,
hefur þann eiginleika að hann
nær aöalútsendingu BBC, auk
þess sem hann þjónar sinu eig-
inlega hlutverki meö miklum
ágætum. Eitt ágætt rafmagns-
tæki olli miklum erfiðleikum i
Birmingham ekki alls fyrir
löngu. Þetta var litil vél sem átti
aö þjóna þvi hlutverki að gera te
fyrir húsbónda sinn John Simp
son. Þegar tesopinn var tilbúinn
kviknaði á blikkljósi, þannig að
auðvelt var fyrir eigandann að
sjá hvenær hann gat byrjað að
svala þorsta sinum. Þessi ágæta
vél bilaði einn morguninn með-
an húsbóndinn var enn i fasta-
svefni og byrjaði aðvörunarljós-
ið að blikka i sifellu. Vörubil-
stjóri, sem keyrði fram hjá ibúð
Johns, kom auga á aðvörunar-
ljósið og hafði þegar i stað
samband við lögreglu staðar;-
ins og tilkynnti henni að liklega
væri maður i nauðum staddur i
þessari ibúð, þvi þaðan mætti
sjá morsað eftir hjálp. Lögregl-
an flýtti sér á staðinn og barði
að dyrum. John gamli er farinn
að tapa heyrn að verulegu leyti,
þannig aö hann svaf hinn róleg-
asti þrátt fyrir barsmiðarnar.
Lögreglan kallaöi þá á slökkvi-
liðiö, sem kom á staðinn og
reisti stiga að svefnherbergis-
glugganum hjá John og reyndi
siöan að vekja hann meö þvi að
berja i gluggann. Allt kom fyrir
ekki. John svaf sem fastast. Þá
sóttu slökkviliðsmennirnir 5000
kerta neyðarljós og lýstu með
þvi i gegnum gluggann beint
framan i gamla manninn. Það
dugði. John vaknaði, gekk að
glugganum og fullvissaði hina
óvæntu gesti um að Qkkert am-
aði að honum. En siðar um
morguninn þegar hann ætlaði að
fá sér te kom i ljós aö nýja tevél-
in hans var biluð.
★
Þurrkur eða raki
Það er hvergi eins mikill
þurrkur og i Alice Springs i
Astraliu. Það er að segja, þessi
þurrkur er mikill frá veöur-
fræðilegu sjónarmiði, en sé það
undanþegið, er sennilega hvergi
eins mikill raki, sérstaklega i
mannfólkinu. t Alice eru
ibúarnir um 10 þúsund talsins,
en þar eru kúrekasýningar og
annað til skemmtunar kemur
þangað geysilegur mannfjöldi,
og drykkja er þar meiri en
★
viðast annars staðar. Fyrstu
átta mánuði siðasta árs höfðu
um 4000 menn og konur verið
sektuð fyrir drykkjuskap. Á
laugardagskvöldum skemmtir
fólkið sér aðallega, og það er
mikið um að vera á þeim þrem-
ur hótelum, sem i bænum eru,
og ekki nóg með það, fólk getur
keypt sér drykkjarföng i öllum
matvöruverzlunum.
Lögreglustjórinn ibænum segir,
aö fátt sé þar annað hægt að
gera en drekka. Margir
karlmennirnir sem til bæjarins
koma, koma frá fjarlægum
stöðum inni i landinu, þar sem
fátt er að gera annað en vinna,
og vilja þeir þvi gjarnan lyfta
sér upp, þegar i bæinn kemur.
Móttökustjórinn á einu
hótelanna sagði, að þar væri
ekkert til skemmtunar nema
drykkjan, enda þýddi ekkert að
vera að hafa danssýningar, eða
meira að segja stripalinga.
Fólkið gæfi sér ekki tima til að
horfa a álikt, svo önnum kafiö
væri það við drykkjuna.
★
ca
Martha Lousie^
vinsælli en afinn
Þegar ólafur Noregskonungur
varö sjötugur komu ljósmynd-
arar til hallarinnar til þess að
mynda hann i tilefni afmælisins.
Það fór þó svo, að fleiri myndir
voru teknar af litlu sonardóttur-
inni hans, heldur en honum
sjálfum. Hér er ein þeirra
mynda, sem tekin var á afmæl-
isdaginn. Þarna er Mártha
Louisa aö faðma myndastytt-
urnar i hallargarðinum, en það
þótti henni einstaklega
skemmtilegt, eins og sjá má. A
annarri mynd er svo Sonja kona
Haralds krónprins að óska
tengdaföður sinum til hamingju
með afmælið, og Mártha heldur
i pilsfald móður sinnar. Sonja á
nú aöeins fáa mánuði eftir af
meðgöngutimanum, en læknar
hafa fyrirskipað henni að hafa
hægt um sig fram á siðasta dag,
til þess að síður sé hætta á að
hún missi barnið.
DENNI
DÆMALAUSI
Hann er gamall og ágætis
köttur. Hann myndi ekki gera
flugu mein, hann bara stökk
svona hálfpartinn framan i mig.