Tíminn - 20.07.1973, Qupperneq 8
8
TÍMINN
Föstudagur 20. júH 1973.
YNGVI STEINN
— Flakkarasöngurinn —
Your Beauty Shades the
Dawn — Krystal-músik
plata KM-1, 45 rpm,
stereo
YNGVI Steinn Sigtryggsson hefur
um nokkurra ára skeiö fengizt viö
söng og hljóöfæraslátt, meöal
annars meö hljómsveitinni
Júdas, sem gaf upp öndina fyrir
nokkrum árum. Hann er úr
Keflavik, i miklum metum þar —
enda fallegur ungur maöur — og
almennt búizt viö mjög miklu af
honum. Ekki er mér þó alveg ljóst
hvers vegna, þvi hann hefur
aldrei sýnt af sér neina afburöa
snilli, hann er aö visu dágóöur
pianóleikari og ágætlega viöfelld-
in söngvari en á sennilega þaö
sammerkt meö mörgum öörum,
aö vera alltaf talinn mjög ,,efni-
legur”.
Þessi plata er sú fyrsta sem
hann syngur inn á undir eigin
nafni og I fyrsta skipti, sem tón-
smiöar hans koma almenningi al-
mennilega fyrir eyru. Frumraun
hans var B-hliöin á plötu Júdasar
hér um áriö, „You’ll Never Walk
Alone”, sem hann söng meö prýöi
og er ekki hægt aö segja annaö
um þessa plötu. Hún er hin
þokkalegasta i alla staöi og likleg
til frekari vinsælda, en þegar hef-
ur orðiö.
Yngvi Steinn hefur sjálfur sam-
ið lagið á „Inn-hlið,” sem er
Flakkarasöngurinnvið texta Þor-
steins Eggertssonar. Ef til vill er
lagið ekki alveg nægilega grip-
andi til að veröa „lag sumarsins”
en vinnur þó mjög á. Texti Þor-
steins er ekki listaverk enda
varla til þess ætlazt. Yngvi Steinn
leikur sjálfur á pianó og gerir það
vel skammlaust, svo og aðrir
hljóðfæraleikarar, sem munu
hafa verið helztu spámennirnir af
SV-landi.
A „Út-hlið” er lag eftir þá
Magnús og Jóhann, Your Beauty
Shades the Dawnviö texta Barry
Nettles en hann er einn af þessum
viökunnanlegu Amerikumönnum,
sem fá furöulega ást á þessu landi
og vilja helzt ekki annars staöar
vera. Barry hefur gert marga
texta fyrir þá Magnús og Jóhann
og gerir það vel, enda skáldskap-
ur þessarar tónlistartegundar
ekki alltaf upp á marga fiska.
Lagið sjálft er gott, töluvert betra
en Flakkarasöngurinn að minu
áliti og þarf það ekki að vera und-
arlegt, þvi að þeir Magnús og Jó-
hann hafa mun meiri reynslu i
tónsmiðum en Yngvi Steinn og
þeirra fyrstu lög voru vissulega
ekkert til aö stökkva hæð sina i
loft upp yfir. tJthliö plötunnar
veröur þó tæplega nokkurn tima
vinsæl, enda leggur nýja hljóm-
plötuútgáfan Krystal-múslk mest
upp úr þvi aö kynna Flakkara-
sönginn— meö góðum árangri, að
þvi er viröist.
Mikil deyfö hefur annars verið
yfir hljómplötuútgáfu á tslandi að
undanförnu og viröist lltíö vera aö
gerast ipoppinu. Sennilega er þar
þyngst á metunum, aö ekkert
blaðanna helgar þessu áhugamáli
mikils hluta þjóðarinnar nokkurt
rúm og rokkhljómsveitir hafa fá
tækifæri til aö flytja tónlist sina
fyrir þá, sem helztan og mestan
hafa áhugann. Vonandi rætist úr
þvi.
Einmitt þess vegna er þessi
plata velkomin á markaðinn. Ef
ekki fyrir gæöi hennar — upptak-
an er til dæmis i slakasta lagi
enda gerð i Stapa — þá vegna hins
nýja fyrirtækis, sem gat vitað
fyrirfram, aö um milljónagróða
yröi ekki að ræða, enda mun tak-
mark Siguröar Garðarssonar,
forstjórans, vera það eitt að
leggja sitt af mörkum og reyna að
gera það vel.
Ilin nýju húsakynni rikisprentsmiöjunnar Gutenbergs. Hún fær bæöi þessi hús viö Siöumúla til umráöa. —TImamynd:GE.
Gutenberg:
Flytur í Síðumúla 16 og 18
Stórbætt húsakynni og vélbúnaður — Hóskólinn mun fó aðstöðu
til útgófustarfsemi í prentsmiðjunni
SAMNINGAR hafa tek-
izt milli Rikisprent-
smiöjunnar Gutenberg
og Gunnars Þorleifsson-
ar og hluthafa i Prent-
smiöju Jóns Helgasonar
h.f., Siðumúla 8 h.f og
Félagsbókbandinu h.f.
um hlutafjárkaup, kaup
á fasteignum og véla-
kosti, og voru samning-
ar þessir undirritaðir 17.
júli s.l. Rikisprentsmiðj-
an hefur búið við afar
slæman húsakost og vél-
búnað undanfarin ár, en
fær með fyrrnefndum
samningum aðstöðu i
2000 fermetra nýtizku
iðnaðarhúsnæði að Siðu-
múla 16 og 18 i stað 874
fermetra áður.i Þá er
vélbúnaður prentsmiðj-
unnar stórbættur með
þessu og aðstaða sköpuð
fyrir frekari vél-
væðingu. Samanlagt
kaupverð nam 76 millj.
kr.
Aödragandi þessara samninga
er sáaö i desember 1971 skipaöi
iönaöarráöherra, Magnús
Kjartansson, nefnd, er endur-
skoöa skyldi rekstur Rikisprent-
smiöjunnar og gera tillögur um
bætta aöstööu fýrir hana, svo að
hún gæti gegnt sem bezt verkefn-
um sinum, m.a. i þágu Alþingis,
Stjórnarráösins og Háskóla ts-
lands. Nefnd þessi skilaöi áliti I
desember 1972. Meginniöurstööur
hennar voru þær, aö óhjákvæmi-
legt væri meö tilliti til sérhlut-
verks prentsmiðjunnar, að húa-
og vélakostur hennar yrði stór-
bættur. Tillögur nefndarinnar eru
nú komnar I framkvæmd.
Hefur orðið að ýta frá
sér fjölda verkefna
Við höföum tal af iðnaöarráð-
herra, Magnúsi Kjartanssyni, og
spurðum hann, hvenær prent-
smiöjan myndi væntanlega taka
til starfa I hinu nýja húsnæöi. Aö
sögn iönaöarráðherra miöast
eignaskiptin viö 1. ágúst, en þaö
þyrfti sinn aðdraganda, aö hún
tæki til starfa og yrði unniö sér-
staklega aö þvi.
— Astandiö hefur veriö þannig,
sagöi iönaöarráöherra, — að
Gutenberg hefur alls ekki getaö
annaö þeim verkefnum, sem
henni var ætlaö, þannig aö hún
hefur oröiö aö ýta frá sér mjög
mörgum verkefnum, sem hún
hafði áöur fyrr, svo sem Rikisút-
gáfu námsbóka. Og ætlunin er, aö
hún veröi nú fær um að rækja
þessi verkefni. Henni var alltaf
ætlað sérstaklega aö sinna verk-
efnum I þágu ríkisins, ríkisstofn-
ana og Alþingis.
— Svo kom Háskólinn inn i
þetta. Hann haföi áform um aö
koma sér upp eigin prentsmiöju,
og ég ræddi þá viö forráöamenn
hans um þaö, hvort ekki væri
TF—Flateyri. — Fyrir nokkru
var haldinn I örlygshöfn
aðalfundur Búnaðarsambands
Vestfjarða. Þar var myndar-
leg bændavaka eitt kvöldið og
verðlaunuö býli, sem af þóttu
bera um snyrtimennsku.
Þaö vakti athygli, að þrjú
þessara býla voru á Ingjalds-
sandi, þar sem nú er oröið
mjög fáliöaö. Var Brekku á
Ingjaldssandi skipaö I fyrsta
sæti, en siöan voru fimm aörir
verölaunabæir, er ekki var
raðaö — Astún og Sæból III,
skynsamlegra aö sameinast um
þetta verkefni. Háskólinn var þvi
i ráöum um þetta llka, og ætlunin
er, aö hann geti fengið aöstööu I
prentsmiöjunni i framtiöinni, en
hann áformar aö auka útgáfu-
starfsemina.
— Þaö veröur áreiöanlega eng-
inn verkefnaskortur fyrir prent-
smiðjuna, sagöi iönaðarráöherra
aö lokum. Kvaö hann ekkert
ákveöið enn um gamla húsnæöiö,
en að likindum yröi reynt aö
koma þvi I verð.
—Stp
báöir á Ingjaldssandi, Mýra i
Dýrafiröi Botn i Súgandafirði
og Vaðlar i önundarfirði.
23 nemendur
luku prófi fró
Húsmæðra-
skólanum
að Laugum
Fimm vestfirzk-
ir verðlaunabæir
Hákon Bjarnason:
UM SOÐASKAPINN
í ÞÓRSMÖRK
I TILEFNI af fréttum útvarpsins
og grein i Þjóðviljanum, þ. 16. og
14. júli um óhreinlæti i Húsadal i
Þórsmörk, svo og um girðinguna
um Mörkina vil ég taka eftir-
farandi fram:
Skógrækt rikisins lét friöa
Þórsmörk og Goöaland fyrir hart
nær hálfri öld. Hefur það
eingöngu hvilt á hennar heröum
aö verja landiö fyrir beit, og
einnig hefir þaö falliö I hennar
hlut, að sjá fyrir salernum,
vatnslögn og sorphreinsun, nema
i Langadal, þar sem Ferðafélag
Islands hefur skála sinn.
Þórsmörk hefur allt frá fyrstu
tiö verið opin feröafólki á sama
hátt og flest önnur skóglendi
Skógræktar rikisins, enda eru
þetta fjölsóttustu staðir lansins að
sumarlagi. Með vaxandi umferö
ár hvert hefur reynzt æ erfiðara
aö þrifa löndin eftir dvöl manna
og halda við hreinlætistækjum.
Um mörg ár hefur verið farið
fram á sérstakar fjárveitingar til
þess að geta veitt feröafólki
sæmilegan aöbúnaö og til
hreinsunar eftir dvöl þeirra, sem
voru hiröulausir um frágang sinn.
Þessu hefur ávallt veriö synjaö.
Nú er svo komið, aö Skógrækt
rikisins hefur ekkert fé aflögu til
aö sinna hreinsun eða viöhaldi
hreinlætistækja. Þvi var þaö i
vor, að ég sagði starfsmönnum
mlnum, að réttast væri aö láta
hreinsanir vera aö mestu til þess
aö menn mættu sjá hversu
ástandið yröi. Þá kæmi og i ljós,
hvaö þeir heföu lagt á sig á
undanförnum árum i þágu gesta
sinna. Af þessum ástæöum var
ekki hreinsaö til i Húsadal i allt
vor.
Ég vona að af þessu megi sjá,
hvers konar fólk þaö er, sem
meðal annara hefur lagt leiö sina
i Þórsmörk allt frá þvi á páskum
en þó einkum um og eftir hvita-
sunnuna. Meðal slfkra má nefna
ýmsa starfsmannahópa frá
ýmsum fyrirtækjum, sem haga
sér verr en nokkrir villimenn úti i
guðs grænni náttúrunni.
Skógrækt rikisins hefur
mörgum þarfari störfum að sinna
en að annast sorphreinsun eftir
fólk,, og þar til fást peningar til að
hafa eftirlit með slikum stöðum
sem Þórsmörk, veröur varla hjá
þvi komizt að banna ferðir um
Mörkina, nema á vegum Feröa-
félags Islands.
Þaö, sem Þjóöviljinn segir um
ástand girðingarinnar um
Mörkina, er byggt á ókunnug-
leika. A vetrum skemmist
giröingin allviöa og er á stundum
tekin upp á nokkrum stööum
vetrarlangt meöan ekkert fé er
fyrir innan hana. Hún er reist að
nýju og endurbætt á hverju vori
eða sumri um sama leyti og rekiö
er á fjall. Aö visu er hún gömul
orðin og fornfáleg, en hún er
a.m.k. fjárheld aö viögerö
lokinni.
Annaö mál er, aö bæöi skilja
margir eftir opin hliö ásamt þvi,
sem verra er, að girðingin er oft
eyðilögð á ýmsum stööum
skömmu eftir aö fé er rekiö til
fjalls. Svo var t.d. I fyrra á þrem
stöðum, og nú siðast i fyrri viku,
er rofið var skarð i hana i
Tindfjallagili, greinilega af
ásettu ráöi til aö hleypa fé inn.
Afleiðingin er auövitað sú, að
Mörkin getur fyllzt af fé áöur en
nokkurn varir.
Húsmæöraskólanum aö Lauga-
landi i Eyjafiröi var slitiö 8. júni
s.l. Á siðastliönu starfsári stund-
uðu 25 nemendur nám i skólan-
um, en 23 luku prófi. Hæstu eink-
unh hlaut Jónina Guðný Bjarna-
dóttir frá Þrastarlundi, Noröfiröi,
1. ágætiseinkunn fyrir ágætan
námsárangur, ritsafn Kristinar
Sigfúsdóttur, sem Héraðssam-
band eyfirzkra kvenna veitti.
Næst hæstu einkunn hlaut Ingi-
björg Ingólfsdóttir, Mörk, Keldu-
hverfi 9,17.
Þann 15. mai heimsóttu skólann
tiu, tuttugu og þrjátiu ára
nemendur, og færðu þeir skólan-
um góðar gjafir. Eru þeim hér
með færðar innilegar þakkir fyrir
hlýhug i garö skólans.
Bifreiða-
viðgerðir
Fljótt og vel af hendi >
leyst.
Reynið viðskiptin.
Bifreiðastillingin
Grensásvegi 11, simi
81330.