Tíminn - 20.07.1973, Side 15
Föstudagur 20. júli 1973.
TÍMINN
15
Fékk dufl
í vörpuna
Togarinn Narfi fékk tundurdufl i
vörpuna siðdegis i gær, þegar
hann var i þann mund að ljúka
veiðiferð. Tundurduflið var úr áli
og var lokinn dottinn af, en allir
þræðir voru á sinum stað.
Skipsmenn höfðu samband við
Landhelgisgæzluna, sem útveg-
aði sprengjusérfræðing og var
flogið með hann i þyrlu land-
helgisgæzlunnar út i togarann og
gerði sérfræðingurinn sprengjuna
óvirka.
Narfi var væntanlegur til
Reykjavikur i morgun.
-gj-
o Víðivangur
atvinnu i heimabyggð sinni,
geti fyrirtækið orðið betri
skattgreiðandi en það er þegar
orðið.
Til þess að sannfæra yður
um sannleiksgildi þess hluta
frásagnar minnar, að starf-
semin i Borgarnesi haldi
áfram af fullum krafti, hef ég
farið þess á leit við fram-
kvæmdastjóra Prjónastofu
Borgarness h.f. að bjóða
blaðamanni Alþýðublaðsins,
annarra blaða og fjölmiðla að
koma og skoða fyrirtækið,
þegar það hefur störf að nýju
að loknum sumarleyfum, sem
verður um miðjan ágúst.
Ég leyfi mér að lokum að
óska þess, að þér birtið frá-
sög'n þessa á svipuðum staö i
blaði yðar og þér birtuð yðar
grcin.”
—TK
© Seðlabanki
frá 1971, 1. gr. um að Fram-
kvæmdastofnun rikisins hafi
með höndum heildarstjórn
fjárfestingarmála og með
hliðsjón af mikilli og óum-
deilanlegri þenslu i fjár-
festingu og á vinnumarkaði,
samþykkir stjórn Fram-
kvæmdastofnunarinnar að
beina þeim eindregnu til-
mælum til stjórnar Seðla-
banka Islands og rikisstjórn-
ar, að fyrirhuguðum fram-
kvæmdum við húsbyggingu
Seðlabankans á Arnarhóli
verði frestað og felur fram-
kvæmdaráði að ræða við
stjórn bankans um slika
frestun, jafnframt þvi sem
athugað verði hvað fram-
kvæmdum öðrum á vegum
bankastofnana og annarra
hliðstæðra aðila megi fresta.
Bankastjórn Seðla-
bankans
þögul sem gröfin
Nú hefur verið afráðið, að
viðræður milli forráða-
manna Framkvæmda-
stofnunarinnar og Seðla-
bankans hefjisti næstu viku.
Bankastjórn Seðlabankans
verst allra frétta um þetta
mál. Þegar Timinn reyndi i
gær að ná tali af einhverjum
forráðamanni bankans, voru
þeir, sem eitthvað vissu um
málið, annað hvort i sumar-
leyfi eða ekki viðlátnir.
Framkvæmdum við Seðla-
bankabygginguna var hins
vegar haldið áfram af fullum
krafti i gær. 1 gærmorgun
var byrjað að sprengja fyrir
grunni byggingarinnar, eins
og til stóð.
Það skal að lokum itrekað,
að skv. lögum nr. 10 frá 1961
er yfirstjórn Seðlabankans i
höndum ráðherra þess, sem
fer með bankamál, Lúðviks
Jósefssonar, og bankaráðs
Seðlabankans. Nú er að biða
og sjá, hver viðbrögð yfir-
stjórnar bankans verða við
framangreindri áskorun
Framkvæmdastofnunar
rikisins. — ET
© Skattskrá
þúsundum. Þá eru einnig tveir
viðlagagjaldsliðir á skattskránni,
þ.e. viðlagagjald af útsvari og
viðlagagjald af aðstöðugjaldi.
Landsútsvör
Landsútsvör eru reiknuð ýmist
af veltu eða hagnaði. Hjá bönkum
af vaxtatekjum. Landsútsvörin
eru ekki innifalin í þeim upphæð-
Tveir hæstu skattgreiðendurnir i Reykjavik 1973, Rolf Johansen t.v. og
Friðrik A. Jónsson.
um, er hér hafa verið nefndar að
framan. Lög um landsútsvör voru
sett 1962 og gilda þau fyrir nokkur
félög og stofnanir, er sérstöðu
hafa. Hæstu landsútsvör i
Reykjavik eru að þessu sinni:
Afengis- og tóbaksverzlun rikis-
ins — 83.416.515.- kr. Oliufélagið
h.f. — 24.109.888.- kr., Oliuverzlun
tslands — 15.191.953.- kr. og i
fjórða sæti Oliufélagið Skeljungur
13.917.729.- kr.
Heildargjöld 3 milljónir
i Reykjavik árið 1934.
Halldór Sigfússon skattstjóri lét
þess getið i gær, „svona til gam-
ans”, að þegar hann hefði tekið
við störfum skattstjóra árið 1934,
hefðu gjöldin i Reykjavik sam-
kvæmt skattskrá numið samtals
um 3 milljónum. Oðru visi mér
áður brá!
Það var lokadagur hjá Skatt-
stofu Reykjavikur i gær.
Alagningarseðlar einstaklinga
höföu þegar verjð póstlagðir, og
lokið var við að póstleggja seðla
félaga- og stofnana i gær. En svo
er það kærufresturinn. Hann er
hálfur mánuður og rennur út að
kvöldi 2. ágúst.
Stp.
Tveir slasast
í umferðinni
TVO SLYS urðu i umferðinni i
Reykjavik á fimmtudag. Fyrra
slysið átti sér stað á Kleppsvegi
um hádegisbilið, þegar bill ók á
dreng.sem var á reiðhjóli. Dreng-
urinn, sem er átta ára gamall,
meiddist töluvert, hlaut meðal
annars fótbrot, en nánar var ekki
kunnugt um meiðsli hans.
Siðara slysið gerðist á Suður-
landsbraut skömmu siðar. 54 ára
gamall maður varð fyrir bil og
skall i götuna. Slasaðist maðurinn
á höfði og hálsi og var fluttur á
slysadeild Borgarsjúkrahússins,
og siðan lagður inn á sjúkradeild
Borgarsjúkrahússins.
— gj-
Skoðið hina nýju
ATONÍJllLD
ATON-húsgögnin eru
glæsileg
°9
alíslenzk
Skoðið renndu
vegghúsgögnin
skápana og
skattholin
Engir víxlar heldur
mánaðargreiðslur með
póstgíróseðlum sem
greiða má í næsta banka,
pósthúsi eða sparisjóði
Næg bílastæði
Opið til kl. 7 í dag föstudag og til kl. 12 á hádegi laugardag
JON LOFTSSON HF.
Hringbraut 121 . Sími 10-600