Tíminn - 20.07.1973, Síða 16
16
TÍMINN
Föstudagur 20. júli 1973.
Austur-Þjóöverjar voru
óþekkjanlegir frá fyrri
leiknum, þegar þeir
mættu íslandi i lands-
leiknum i gærkvöldi.
Þeir sýndu stórgóða
knattspyrnu og islenzku
leikmennirnir náðu
aldrei að sýna getu sina
gegn þeim. Knatt-
spyrnusnillingarnir
Ducke, Kreische og
Vogel réðu algjörlega
gangi leiksins á miðj-
unni og þá voru bak-
verðir a-þýzka liðsins
mjög góðir og voru þeir
oft fremstu menn liðs-
ins. islenzka liðið var
mjög dauft og olli hinum
fjölmörgu áhorfendum
miklum vonbrigðum.
Framlina islenzka liðs-
ins var bitlaus og var
Ásgeir Sigurvinsson elt-
ur allan leikinn af bak-
verðinum Reinhard
Lauck, sem gætti hans
mjög vel.
KBEIUIAKT VOGEL....reynir að leika á Einar Gunnarsson, hinn snjalla miðvörð islenzka liðsins. Þeir voru beztu leikmenn liða sinna
Islenzka liðið náði sér
Þjóðverjar sýndu snilld sína í síðari
landsleiknum, sem lauk með sigri þeirra
2:0 á Laugardalsvellinum í gærkvöldi
aldrei á strik
Einar Gunnarsson hinn snjalli
miðvörður islenzka liðsins var
beztur, hann reyndi að lifga upp &
sóknarleikinn, meö þvi að koma
fram i sóknina með góðum ein-
leiksköflum. En þaö dugði ekki,
Þjóöverjarnir voru það sterkir,
þeir áttu aigjörlega miðjuna og
þar með leikinn. tslenzka liðið
fékk ódýrt mark á sig á 18. min.
fyrri hálfleiksins. Það var Hans
Jurgen Kreische, sem skoraði
bæði mörk V-Þýzkalands I fyrri
leiknum, en hann komst upp að
endamörkum og sendi þaöan fyr-
ir markið — Þorsteinn Ólafsson
hafði hendur á knettinum, en
missti hann inn.
A 33. min. komst svo Kreische i
opiðfæri á markteig, en skot hans
þaut yfir þverslá. Min. siðar
bjargaði Þorsteinn snilldarlega
skoti frá Peter Ducke i horn.
Ducke var i mjög góðu færi i vita-
teig.
Það var greinilegt, að Haf-
steinn Guðmundsson og Albert
Guðmundsson voru ekki ánægðir
með leik islenzka liðsins, þvi að
þeir létu þrjá leikmenn fara að
hita upp, fyrir utan völlinn. Ás-
geir Eliasson kom inná fyrir Guð-
geir Leifsson rétt fyrir hálfleik,
Teitur Þórðarson var settur inná i
siðari hálfleik fyrir Olaf Júliusson
og þá kom örn Óskarsson inná
fyrir Asgeir Sigurvinsson.
Strax á fyrstu sekúndunum i
siðari hálfleik, skoruðu Þjóðverj-
ar sitt annað mark. Það var ein-
leikssnillingurinn Eberhard
Vogel sem einlék frá miðju —
skaut frá vitateig — skotið hafn-
aði óverjandi i bláhorninu. Eftir
markið, lifnaöi yfir islenzka lið-
inu og það fór að sækja og lék þá
oft skemmtilega. A 7. min. átti
Marteinn Geirsson stórgóðan
skalla að marki þýzka liðsins —
knötturinn stefhdiupp undir þver-
slá, en á siöustu stundu bjargaði
markvörður þýzka liðsins I horn.
Asgeir Eliasson tók þá góða
spretti og ógnaði hann þýzka
markinu tvisvar sinnum og I
þriðja skiptið sendi hann knöttinn
I netið. Ahorfendur fögnuðu
geysilega markinu — sá fögnuöur
stóð ekki lengi, þvi að Hinrik
Lárusson linuvörður dæmdi hann
rangstöðu. VAFASAMUR
DÓMUR.
A 30. min. komst Orn óskarsson
einn inn fyrir og skaut — knöttur-
inn lenti i andlitinu á markveröi
þýzka liðsins, sem þurfti aö yfir-
gefa völlinn.
Eins og fyrr segir réöu islenzku
leikmennirnir ekki við hina
snjöllu leikmenn a-þýzka liðsins
og þeir náðu sér þvi aldrei á strik.
En það er greinilegt, að við erum
á góðri leiö meö að ná saman góð-
um landsliðskjarna, sem á eftir
að halda heiðri Islands á lofti i
framtiöinni.
SOS
ASGEIR SIGURVINSSON...sést hér brjótast fram hjá varnarmanninum Reinhard Lauck, sem elti
hann eins og skuggi allan leikinn. (Timamynd Gunnar)