Tíminn - 11.08.1973, Blaðsíða 19
Laugardagur 11. ágúst 1973.
TÍMINN
19
Overath víll
ekki fara
til Spánar
Tekur við stöðu Zetzer í iandsliði
V-þýzkalands í HM keppninni 1974
Hinn snjalli v-þýzki landsliðs-
maður. Wolfgang Overath,
hefur verið mjög eftirsóttur af
spæsnkum félagsliðum. Mörg
beztu lið Spánar hafa boðið
honum að gerast leikmaður
með þeim, fyrir góða peninga-
upphæð. Overath hefur neitað
öllum tilboðunum, hann vill
frekar vera kyrr i V-Þýzka-
landi og leika meö sinu gamla
félagi 1. F.C Köln.
Wolfgang Overath hefur
verið einn bezti knattspyrnu-
maður' V-Þýzkalands undan-
farin ár. Hann lék t.d. í heims-
meistarakeppninni í Englandi
1966 og i Mexikó 1970, þar sem
hann var talinn einn bezti
maður keppninnar. Overath
tók við fyrirliðastöðunni i
v-þýzka landsliðinu af Seeler.
Overath meiddist svo árið 1971
og gat ekki leikið knattspyrnu
um langan tima. Nú er hann
búinn að ná sér og miklar likur
eru á þvi að hann leiki aftur
með þýzka landsliðinu i
heimsmeistarakeppninni 1974.
Hann tekur þá við stöðu Netz-
er, sem er farinn til Spánar.
Wolfgang Overath.
KEPPNIN VERÐUR
VAFALAUST HÖRÐ
— sagði Olympíumeistarinn Mary Peters. Evrópukeppnin
hefst klukkan 10 fyrir hódegi. Margt frægt
íþróttafólk meðal keppenda
Evrópubikarkeppn-
in i fjölþrautum hefst
á Laugardalsvellin-
um i dag kl. 10 f.h. og
keppnin stendur yfir i
allan. i dag verður
eingöngu keppt í tug-
þraut, en á morgun
verður fimmtarþraut
kvenna. — Keppt er i
þremur riðlum, hinir
riðlarnir fara fram i
Inssbruck i Austurriki
og Sofia i Búlgariu.
Átta beztu þjóðirnar
keppa síðan til úrslita
i Bonn i V-Þýzkalandi
22. og 23. september.
Þjóðirnar, sem keppa hér
auk Islendinga eru Frakkar,
Bretar, Hollendingar, Belgiu-
menn og Danir. Tveir þeir sið-
arnefndu keppa þó aðeins i
tugþraut.
Bretar og Frakkar komu til
Reykjavikur i fyrradag, en
hinir flokkarnir i gærkvöldi.
Þekktasti ke'ppandinn er
Mary Peters frá Belfast, en
hún sigraði i fimmtarþraut i
Munchen og setti heimsmet,
hlaut 4801 stig.
Peters sagði i viðtali við
iþróttasiðuna i gær, að keppn-
in hér yrði vafalaust hörð, en
hún var bjartsýn á sigur i
fimmtarþrautinni. Hún vildi
litiðsegja um árangurinn, hér
er ekki tartanbraut og ég
keppi ekki orðið á öðru visi
brautum. Að visu verð ég
stöku sinnum að keppa i Bel-
fast, en þar er aðeins gras-
braut sagði hin viðkunnanlega
Mary.
Franski tugþrautarmaður-
inn Leroy, sem er sá eini af
tugþrautarmönnunum, sem
náð hefur yfir 800 stig, er i
mikilli framför. Hann setti
franskt met i sumar, 8140, sem
er með þvi bezta, sem náðst
hefur i greininni i heiminum á
þessu ári. Leroy stefnir að
sigri á EM i Róm næsta ár,
baráttan verður hörð, sagði
Leroy.
Mary Peters cftir sigur i Mífnchen — verður hún jafnglöö eftir keppn-
ina i Iteykjavik?
Margir blaðamenn
fylgjast með
Evrópukeppninni
Allmargir blaðamenn
eru mættir til að fylgjast
með Evrópubikar-
keppninni um helgina.
Keppt verður i auka-
greinum i sambandi við
Evrópukeppnina. í dag
verður 400 m hlaup
Mikið hcfur verið talað um
það upp á siðkastið, aö Leeds
United láti hinn snjalla mark-
vörð, Gary Sprake, fara frá
sér fyrir þetta keppnistimabil.
Sprake hefur verið einn allra-
bezti markvöröur á Bret-
landseyjum undanfarin ár og
hann hefur verið fastur mark-
vörður i landsliði Wales.
Fyrir tveimur árum varð
hann fyrir meiðslum og gat
hann þá ekki leikið með félag-
inu um tima. Þegar hann náði
Þrir koma frá Belgiu og
fjórir sjónvarpsmenn
frá franska sjónvarpinu.
karla kl. 5 og á morgun
verður 3000 m hlaup og
keppnin hefst einnig kl.
sér eftir meiðslin, komst hann
ekki sem fastur leikmaður i
liðið. T.d. lék hann aðeins einn
leik meö Leeds á siðasta
keppnistimabili — gegn Birm-
ingham. Þótt að hann hafi ver-
ið varamarkvörður hjá Leeds
tvö siðustu árin, hefur hann
verið fastur leikmaður i lands-
liði Wales. Ef hann verður lát-
inn fara frá Leeds, eru miklar
likur á þvi, að hann fari til
Birmingham eð Manchester
City.
Leikur
eitt ár til
viðbótar
Nú hcfur verið ákveðið að
Alan Gilzean, hinn gama!-
kunni leikmaður Tottenham,
verði látinn fara frá lclaginu
eftir þetta keppnistimabil.
Gilzean, sem hefur verið einn
lilrikasti knattspyrnumaður
félagsins, verður að vikja fyr-
ir sér yngri leikmönnum.
„Gillic”, eins og hann er kall-
aður, hefur leikið með skozka
landsliðinu. Hann hcfur verið
mjög, lunkinn að skora mörk
fyrir Tottenham, geysilega
mikill skallamaður. Áhang-
endur Tottenham munu
örugglega sjá eftir „Gillie”,
sem er einn vinsælasti leik-
maöur Tottenham. Gilzean lék
hér á Laugar.dalsvellinum
gegn Keflavik í Evrópukeppn-
inni 1971.
Watney
Cup
Enska knattspyrnan hefst af
fulium krafti i dag. Þá hcfst
svokölluð Watney-Cup keppni,
— Keppni þeirra liða i deildun-
um fjórum, sem hafa skorað
flest mörk á siðasta keppnis-
timabili. Fjórir leikir verða
leiknir i dag:
Bristol Rovers — West Ham
Plymouth — Stoke
Peterborough — Bristol City
Mansfield — Hull
AUKAGREINAR
LÆTUR LEEDS
GARY FARA?