Tíminn - 19.09.1973, Síða 3

Tíminn - 19.09.1973, Síða 3
Miövikudagur 19. september 1973 TÍMINN 3 Cabaret kominn H I N HEIMSFRÆGA, bandariska kvikmynd Cabaret, áttfaldur óskars- verðlaunahafi frá þvi siöast, verður frumsýnd i Háskóla- biói annað kvöld, fimmtu- dagskvöld. Myndin hefur verið sýnd við metaðsókn um allan heim undanfarna mánuöi, og nú er hún loks komin hingað. I.iza Minnelli leikur Sally Bowles i myndinni og komst á toppinn fyrir vikið, cins og flestir vita. Skemmti- stjórann leikur ungur, brezkur leikari, Michael York og þykir takast frábærlega upp. Það verða þvi „tveir Kabarettar” i gangi næstu dagana, kvikmyndin f Há- skólabiói og leikverkið i Þjóð- leikhúsinu, sem tekið hefur verið upp frá siðasta vori. Allverulegur munur er þó á þessum tveim uppfærslum, hvað efnismeðferð og útfærslu snertir, svo sem verða vill i slikum tilvikum, enda þótt haldið sé sama efnisþræði svona nokkurn veginn. —Stp Eitt af sameiningarmálum flugfélaganna Kanna kaup á litlum flugvélum til að annast þjónustu við smærri staðina Forráðamenn litlu flugfélaganna lítið hrifnir af þessari hugmynd Klp- Reykjavik. — Þegar sameining stóru flugfélaganna tveggja, Loftleiða og Flugfélags íslands, bar fyrst á góma, kom fram sú hug- mynd, að hið sameigin- lega félag skyldi kanna, hvort hagkvæmt yrði að kaupa litlar vélar, sem siðan yrði falið að fljúga með farþega og annað út frá aðalflugleiðunum og til minni staða á land- inu. Að undanförnu hefur verið starfandi nefnd á vegum nýja félagsins, Flugleiða, sem hefur kannað allar hliðar á þessu máli. Nefndin hefur -ekki enn skilað áliti, en samkvæmt upplýsingum, sem við höfum aflað okkur, hefur hún m.a. verið að kanna rekstargrundvöll og hvaða flugvélategundir komi helzt til greina i svona þjónustu. Hefur hún aflað sér upplýsinga viðsvegar að og er að vænta álits- gerðar hennar einhvern næstu daga. Biða margir spenntir eftir þvi, sérstaklega þó þeir, sem til þessa hafa stundað rekstur litilla flugvéla, en ef af þessu verður LIST UM LANDIÐ ísfirðingar tóku sýningunni vel Dagana 18,—26. ágúst hélt Myndhöggvarafélagið i Reykja- vik listsýningu á tsafirði. Alls sýndu 17 listamenn verk sin á sýningunni og þar af niu félags- menn, þeir Björgvin Sigurgeir Haraldsson, Guðmundur Bene- diktsson, Jón Gunnar Arnason, Magnús A. Arnason, Ragnar Kjartansson, Sigrún Guðmunds- dóttir, Sigurður Steinsson og Þor- björg Pálsdóttir. Auk þess sýndu, sem gestir félagsins, þau Bar- bara Arnason, Benedikt Gunn- arsson, Einar G. Baldvinsson, Jó- hannes Geir, Hreinn Eliasson, Hringur Jóhannesson, Hörður Ágústsson, Ragnheiður Jónsdótt- ir og Niels Hafstein, en hann er ungur myndhöggvari, sem ekki hefur áður sýnt opinberlega. Markmið félagsins er fyrst og fremst að kynna höggmyndalist, og i þvi skyni hyggst það halda a.m.k. eina sýningu á ári annað- hvort i Reykjavik eða úti á lands- byggðinni. Siðast liðið ár urðu Vestmannaeyjar fyrir valinu, en i ár tsafjörður, sem fyrr segir. Fé- lagið hefur notið styrks frá Menntamálaráði til þessara sýn- inga, og hefur þar með verið gert kleift að kynna fleiri listgreinar jafnhliða höggmyndalistinni. Yfir 600 manns komu á sýning- una og 11 verk seldust eftir eftir- talda listamenn: Þrjár vatnslita- Framhald á 7. siðu. getur það haft alvarlegar afleið- ingar fyrir Jiá. Viðhöfðum tal af tveim aðilum i gær, sem hafa með flutninga i litlum vélum að gera, og spurðum þá um álit þeirra á þessu. — Þetta er hlutur, sem F1 átti að gera fyrir mörgum árum, en ég efast um að það sé grundvöllur fyrir þessu hjá þeim i dag — sagði Hreinn Hauksson hjá Flug- félaginu Vængir. — Það er þegar komin allgóð þjónusta við fámennari staðina og við þá þjónustu verður þetta nýja félag að keppa og standa sig vel ef það ætlar sér að yfirtaka hana. — Ef af þessu verður getur þetta þýtt dauðadóm yfir þau félög og menn, sem hafa lagt hornstein að þessari þjónustu viða um land — sagði Einar Fredriksen hjá Flugskóla Helga Jónssonar. Og hann bætti við: — Þessir menn hafa fjárfest milljónir i vélum, varahlutum og aðstöðu, en siðan á rikisrekið fyrirtæki að yfirtaka starfssvið þeirra, þegar það er loks farið að sjást út út skuldasúpunni. Það segii- sig sjálft, að þegar tvistirnið ræður ekki lengur við þetta, kemur það i hlut okkar skattgreiðenda að borga brúsann, en þess þarf ekki með, eins og málunum er háttað nú. Nei, þetta getur haft hinar al- varlegustu afleiðingar fyrir flug á þessa smærri staði og einnig fyrir sjúkraflug og fleira. Eg er ekki búinn að sjá það i verki, að menn þaðan séu tilbúnir allan sólar- hringinn til að sækja sjúkt fólk eða annað, eins og þessi mörgu litlu flugfélög hér og út á landi gera i dag og hafa gert undan- farin ár. Sfldarsölur f Danmörku og Pýzkalandi 23. maf til 15. sept. 1973. Heildar- Heildar- MeSal- verSmæti. afli. verS Kr.: Tonn: pr. kg. 1. Albert GK. 592.932.- 27.2oo 21.8o 2. Ásberg RE. 21.474.816,- 887.613 24.19 3. Asgeir RE. 17.249.047.- 73o.42o 23.62 4. BJarni dlafss. AK. 5. Börkur NK. 12.811.447.- 532.197 24.o7 4.618.991.- 197.8o9 23.35 6. Dagfari I>H. 6.083.137.- 258.5o8 23.53 7. Eldborg GK. 7.736.171.- 321.24o 24.o8 8. Faxaborg GK. 24.051.713.- 1.3o4.523 18.44 9. Faxi GK. 6. o87.oo3.- 262.5o7 23.19 lo. Fífill GK. 22.181.621.- 932.5o4 23.79 11. GCsli tCrni RE. 27.276.481.- 1.274.243 21.41 12. Gissur hvfti SF. 8.463.442.- 339.559 24.92 13. Grímseyingur GK. 2.o55.o31,- 84.244 24.39 14. Grindvfkingur GK. 9.853.62o.- 361.825 27.23 15. GuSmundur RE. 27.982.721.- 1.25o.43o 22.38 16. HéSinn ÞH. 11.897.888.- 556.3ol 21.39 17. Helga 11. RE. 17.982.267.- 885.466 2o.31 18. Helga GuSmundsd. BA. 18.7o6.27o.- 926.957 2o.l8 19. Hilmir SU. 16.859.26o.- 855.724 19.7o 2o. Hrafn Sveinbjarnars. GK. 9.36o.829.- 335.023 27.94 21. Höfrungur III. AK. 7.63o.ooo.- 3o2.275 25.24 22. fsleifur VE. 15.185.593.- 683.539 22.22 23. fsleifur IV. VE. 9.olo.8o7.- 363.7o6 24.77 24. Jón Finnss. GK. lo.329.068,- 445.430 23.19 25. Jón GarSar GK. 18.867.653.- 843.148 22.38 26. Keflvíkingur KE. 14.200.263,- 677.898 20.95 27. Loftur Baldvinss. EA 42.089.424.- 1.679.164 25.07 28. Magnús NK. 14.129.772,- 633.o98 22.32 29. Náttfari ÞH. 1o.9o3.532.- 444.014 24.56 30. öskar Magnúss. AK. 31. Pétur Jónss. KÓ. 6.990.224,- 25o.o5o 27.96 15.810.744,- 666.194 23.73 32. RauSsey AK. 12.3o6.2oo.- 578.122 21.29 33. Reykjaborg RE. 24.6o6.392.- 1.173.285 20.97 34. SkarSsvfk SH. 5.077.562,- 2o5.714 24.68 35. Skírnir AK. 15.244.514.- 634.188 24.o4 36. Súlan EA. 32.887.795,- 1.411.190 23.3o 37. Svanur RE. 14.656.628,- 6ol.338 24.37 38. Sveinn Sveinbjörnss. NK. 12.3o5.471.- 652.550 18.86 39. Sæberg SU. 40. VörSur ÞH. 12.376.576.- 586.648 21.lo 2.991.576.- 136.457 21.92 41. ÞÓrSur jónass. EA. 5.579.370.- 229.703 24.29 42. Þorsteinn RE. 27.199.165,- 1.172.744 23.19 43. Örn SK. lo.797.885.- 417.391 25.87 Samt. 614.499.9ol,- 27.112.139 22.67 í. - fc Seðlabankabyggingin: 5000 hafa skrifað undir — skipulögð undirskriftasöfnun hefst í kvöld ANDSTAÐAN gegn byggingará- formuni Seðlabankans á norðan- verðu Arnarhólstúninu er geysi- lega mikil, sem sést bezt af þvi, að sam vinnunef ndinni gegn byggingunni hafa borizt á sjötta þúsund undirskriftir þeirra, er mótmæla vilja byggingaráform- unum og er þó skipuleg undir- skriftasöfnun naumast hafin. i kvöld og annað kvöld verður hins vegar gengið i það af fullum krafti að safna undirskriftum og er ætlunin að ganga með undir- skriftalista i hús á Reykjavíkur- svæðinu þessi kvöld og gefa fólki kost á þvi að skrifa þar nöfn sin, sagði Þorsteinn Ö. Stephensen, leiklistarstjóri i viðtali við Tim- an n. — Margir virðast álita að hætt- an á, þvi að áformin um banka- bygginguna á Arnarhólstúninu verði að veruleika, sé úr sögunni og undirskriftasöfnun sé þvi ó- þörf. Þvi miður er svo alls ekki. 1 yfiriýsingum Seðlabankans er hvergi minnzt á það, að ákvörðun hafi veriö tekin um aö breyta staöarvalinu. Hins vegar lýsir bankastjórnin sig fúsa til viðræöu við borgaryfirvöld um aðra lóð og er bankastjórninni sæmd af þeim vinnubrögðum. Hins vegar verð- ur að tryggja, að viðræður banka- stjórnarinnar og borgarstjórnar leiði til þess, að byggingunni verði fundinn annar staður og siikt verður bezt gert með þvi að sýna fram á eindregna andstöðu almennings gegn staðarvalinu á Arnarhóli. — Við þurfum á gifurlegum fjölda fólksað halda til að safna undirskriftunum og biðjum við þá, sem áhuga hafa á þvi að hjálpa okkur við undirskrifta- söfnunina að hafa samband við okkur i sima 26184 og láta skrá sig sem sjálfboðaliða. 1 þessari lotu höfum við þvi miður ekki tök á þvi að fara með undirskriftalistana út á land, en minnum þess i stað landsbyggðarfólkið á það, að hægt er að senda undirskriftalista i pósthólf 7086 i Reykjavik Æsispennandi atkvæðatalning i Svíþjóð Mikil spenna rikir nú i stjórnmáluin i Sviþjóð eftir kosningarnar, sem þar fóru fram á sunnudaginn. Atkvæðatalningin var afar spennandi og gckk á ýmsu. Við kynningu atkvæðataTná i Sviþjóð fylgdi jafnan tölvuspá uin skiptingu þingsæta milli flokkanna. Þegar fyrstu tölur lágu fyrir spáði tölvan þvi, að borgaraflokkarnir þrir myndu i'á hreinan meirihluta á þingi og þar með væri lokið 40 ára s a m I’ e 11 d u valdatimabili .1 afnaðarm anna i Sviþjóð. Þessi „meirihluti” borgara- flokkanna slóð nokkra hrið, en siðan fór sinám saman að saxast á hann og kl. hálf tvö aðfararnólt mánudags fullyrti saoiska útvarpið, að dæmið liefði gjörsamlega snúizt við. Jafnaðarmenn lengju skv. tölvunni 177 þingsæti ásamt vinslri koin múnistúm en bor ga r a flokkaruir 173. Sósialistar hefðu þvi 1 þing- sæta meirihluta á þingi og Olof Paline yrði þvi áfrain for- sætisráðherra Sviþjóöar. En þegar á nóttina leið minnkaöi hilið aftur og lengi stóð svo, að J.ifnaðarmenn voru taldir muuu fá 176 þing- sæti en borgaraflokkarnir 174. En um miöjan dag á mánudag voru mctin orðin jöfn, hvor lylking um sig með 175 þing- sæti. Þctta voru þau úrslit, sem fæstir höfðu viljað ræða mikið um, en flestir óttuöust, m.a. vcgna þess, að niöur- stöður skoðunakannana liöfðu gefið til kynna að þessi kynnu úrslitin að vcrða. 175 gegn 175 Fintalning og talning nokkurra tuga þúsunda utan- kjörfundaratkvæða cr eftir og mun hún fara l'ram i dag og á morgun. Borgaraflokkarnir virðast liafa átt inun hærra hlutlall i ulankjörf undar- atkvæðunum og þvi talið ósennilegt að þau geti brcytt úrslitum á þann veg að Jafnaöarmenn fái einu þing- sæti meiraf en þeir eru sú fylkingin, sem nær stcndur þvi að hljóta þingsæti, cf utan- kjörfundaratkvæðin breyta n iðurstöðunni. Borgara- flokkarnir eru sagðir hafa liaft hlutfallið 60—80% úr þeim utankjörstaðaatkvæðum, sem húið er að telja, en þeir þyrftu að hljóta nær iill þau utankjör- lundaratkvæði, sem ótalin eru til þess að vinna þingsæti til viðbótar og er það talið úti- lokaö. Crslitin verða þvi 175 þing- sæti borgaraflokkanna gegn 175 atkvæöum Jafnaðar- manna og kommúnista. Þingmönnum verður fækkað í 349 Það er langt siðan um það hófust umræður I Sviþjóð, að óheppilegt væri að fjöldi þing- sæta stæði á jafnri tölu, en þingsætin eru 350. Um þetta voru allir stjórnmálaflokkar sammála og á siöasta ári samþykkti sænska þingið til- iögu um stjórnarskrár- breytingu þess efnis, að þing- mönnum yrði fækkað i 349 i stað 350, þannig að ekki geti komiö upp sú staða i þinginu, að tvær öndverðar fylkingar mæti hnifjafnar að styrkleika til þings. Þessi stjórnarskrár- breyting nýtur stuðnings allra stjórnniálaflokkanna i Sviþjóð, en stjórnarskrár- breyting krefst samþykktar tveggja þinga og það, „sem helzt hann varast vann varð þvi að koma yfir hann”. Það er talið óhugsandi, að einhver borgaraflokkanna Frainhald á 7. siðu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.