Tíminn - 19.09.1973, Side 5

Tíminn - 19.09.1973, Side 5
Miðvikudagur 19. september 1973 TÍMINN 5 Vetraráætlun Flugfélagsins Þetta er uppslátturinn, sem nú hefur gerzt svo viðförull. Kranarnir eru að búast til átaka. (Tfmamynd Fylgja skal línunni! Uppsláttur að húsgrunni að Fornuströnd á Seltjarnarnesi færður til í heilu lagi. AAælingamönnum hafði skeikað. Það munaði einum metra eða svo MEÐFYLGJANDI mynd tók ljós- myndari blaðsins, Guðjón Einarsson, sfðastiiðinn laugardag úti á Seltjarnarnesi. Á myndinni er ekki að sjá annað, en að þarna sé bara verið að byggja ósköp venjulegt hús. Það er að vfsu rétt, þarna er hús i byggingu. En þarna eru tveir heljarmiklir kranar að verki við nokkuð, sem ljósmyndaranum þótti ástæða til að mynda. Það var nefnilega ver- ið að flytja til allan uppsláttinn að grunninum! Og til þess að hann liðaðist ekki sundur, voru fengnir til tveir kranar. Það er ekki oft, sem maður heyrir um svona nokkuð. Að visu var það ekki iöng vegalengd, sem uppslátturinn var SB-Reykjavik — Viðbót sú við flugstöðvarbygginguna á Akur- eyri, sem verið hefur I byggingu i ein fjögur ár, verður væntanlega tekin i notkun fyrir áramótin. Við það gjörbreytist öll aðstaða við afgreiðslu og móttöku farangurs og vöru. Viðbótin er byggð norðan við flugstöðvarhúsið og er um 500 fer- metrar á einni hæð. Afgreiðslu- salurinn stækkar um helming og Klp-Reykjavik. Um helgina voru framin a.m.k. þrjú innbrot i báta i Vesturhöfn. En undanfarið hefur verið mikiö um innbrot i báta hér i Reykjavfkurhöfn og er talið, að þar séu að verki „pilluætur’,’ enda eru það aðallega sjúkrakassar bátanna, sem verða fyrir barðinu á þjófunum. Um helgina var einnig brotizt fluttur, eða eitthvað innan við einn metra. Þetta hús, sem þarna er verið að reisa, er við götuna Fornu- strönd á Seltjarnarnesi, það fyrsta á þessari hlið við götuna, en búið er að reisa hús hinum megin. Þetta eru einbýlishús. Að sögn sveitarstjóra Seltjarn- arhrepps, Sigurgeirs Sigurðsson- ar, kom þessi skekkja mælinga- manna i ljós, er siðari mæling var gerð, áður en hafizt var handa við að steypa. — Við erum tiltölulega nýbúnir að taka upp tvöfaldar mælingar við húsbyggingar og komu þær reglur sér vel i þessu tilviki, þar eð við hefðum þurft að breyta allri götulinunni, ef þessi sett verða upp færibönd fyrir far- angur og vörur, en slikt hafa af- greiðslumenn hingað til þurft að bera á milli. í vor stóð til að malbika svæðið umhverfis flugstöðina, en ekki varð af þvi vegna fjármagns- skorts. Vegagerð rikisins lét mal- bika vegarspottann heim að stöð- inni og var það mjög til bóta. Gert er ráð fyrir að af áætlaðri malbik- un verði næsta vor. inn i hárgreiðslustofuna að Hall- veigarstöðum. Þarhafa þjófarnir eða þjófurinn komizt inn um op- inn glugga og stolið um 60 þús. krónum i peningum, sem þar voru geymdar. Þá var einnig brotizt inn i þrjá sumarbústaði viö Rauðavatn og þar unnin mikil spellvirki og verðmætum stolið. skekkja hefði ekki uppgötvazt. — Þetta voru bara mannleg mistök, sem aldrei er hægt að koma alveg i veg fyrir. Spurn- ingin var sú, hvort ætti heldur að rifa uppsláttinn niður og rifa siðan á nýjan leik eða færa hann til. Þetta var spurning um kostn- að, og völdum við þvi siðari kost- inn. Þetta heppnaðist ágætlega, en ég hef ekki heyrt um, að svona nokkuð hafi verið framkvæmt fyrr. Sem sagt, rétt skal það vera. Mannleg mistök af þessu tagi geta kostað nokkuð, en það tók tvær dagstundir, laugardag og sunnudag, að koma uppslættinum á réttan stað. — Stp ísbirnirnir í nýtt húsnæði SB-Reykjavik —ísbirnirnir i Sæ- dýrasafninu munu væntanlega flytja búferlum i næsta mánuði. Nýr bústaður handa þeim hefur verið i byggingu siðan i vor, þar sem þeir eru að vaxa upp úr sinu fyrra húsnæði. Nýja isbjarnaheimilið er ofan við safnsvæðið eins og það er nú, hægra megin við veginn, þegar ekið er niður að safninu. Siðan verður þetta tengt saman, er safnið færir út kviarnar. A nýja staðnum er öll aðstaða mun betri og rýmri. Gryfjan, sem bangsarnir hafa til að synda i, er stór og þægileg og þarna er einnig húsnæði handa þeim að skriða inn i, er þeim sýnist svo. Þá er miðað við að þarna geti kvendýrið fætt unga við góðar aðstæður, ef til kemur. Ekki er annað að sjá, en bangs- arnir þrifist vel i Sædýrasafninu. Nú eru þeir orðnir geysistórir og verða sennilega með stærstu is- björnum. Fæði þeirra er einkum ódýrt kjör, selkjöt og þess háttar og svolitið af fiski. Skammturinn er 12 til 15 kiló á dag handa hvor- um. Vetraráætlun innanlandsflugs Flugfélags Islands gengur I gildi 1. október n.k. Aætlunarflugiö innanlands verður flogið með Fokker Friendship skrúfuþotum félagsins og gert er ráð fyrir 70 flugferðum frá Reykjavik I hverri viku með 85 viökomum á hinum ýmsu stöðum á landinu. Þetta er viðameiri vetraráætl- un heldur en nokkru sinni fyrr I sögu félagsins. 1 flugáæltun s.l. vetrar var gert ráð fyrir 54 flug- ferðum frá Reykjavik með 67 við- komum i hverri viku. Veruleg aukning verður á flugi til Norö- austurlandsins, til Raufarhafnar og Þórshafnar. Þangað veröa þrjár ferðir i viku. Einnig fjölgar flugferðum milli Akureyrar og Reykjavikur úr 17 i 21 og til Vest- mannaeyja úr 10 i 14. Einnig verður aukning á flugi til Egils- staöa, Isafjarðar og Fagurhóls- mýrar. Þá verða flugferðir án viökomu annars staðar til Þing- eyrar, en áður var flogið með við- komu á ísafiröi eða Patreksfirði. Samkvæmt þessari vetraráætlun Flugfélagsins getur sætaframboð i viku hverri til og frá Reykjavik orðið 6528 sæti, séu flugvélarnar fullnýttar til farþegaflutninga i hverri ferð. A ýmsum flugleiöum eru hins vegar höfö færri sæti i flugvélunum og meira rými nýtt til vöruflutninga. Flugferöir til Vesturlands. I vetur veröur áætlunarflugferö- um til Vestfjarða hagað, sem hér segir: Til Patreksfjaröar verður flogiö á mánudögum, miðviku- dögum og föstudögum. Til Þing- eyrar veröur flogið á þriðjudög- um og Iaugardögum. Þarna er um að ræöa flugferð'ir milli Þing- eyrar og Reykjavíkur án viðkomu annars staöar. Ti! Isafjaröar veröa 9 feröir í viku. Þar af veröa venjulegar áætlunarflug- ferðir á hverjum degi, en áætlun- arflug með vörur á þriöjudögum og fimmtudögum. I sambandi viö flugferöir til ofangreindra staöa veröa bilferðir til nærliggjandi byggðalaga. Flug til Noröur- og Norðausturlands. Til Sauðárkróks veröa i viku hverri þrjár ferðir frá Reykjavik á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Til Akureyrar veröa þrjár ferðir alla daga. Til Húsa- vikur veröa ferðir á mánudögum, miövikudögum og föstudögum. Til Raufarhafnar og Þórshafar verða ferðir á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. I feröum til Raufarhafnar og Þórs- hafnar verður komið við á Akur- eyri i báðum leiðum. I sambandi við flug til Sauðár- króks verða áætlunarbilferöir til Hofsóss, Skagastrandar og Siglu- fjarðar. Flug til Austurlands. Til Egilsstaða verða niu áæltun- arferöir i viku, þaö er feröir alla daga og tvær ferðir á mánudög- um og föstudögum.Til Neskaups- staöar verða flugferðir frá Reykjavik á miðvikudögum og sunnudögum. Milli Akureyrar og Egilsstáöa verða flugferðir á mánudögum og föstudögum fram og aftur. I sambandi við flugferöir til Egilsstaöa verða svo sem verið hefur áætlunarbilferöir til fjöl- margra staöa á Austfjröðum. Þar á meðal til Borgarfjaröar, Seyð- isfjaröar, Reyðarfjaröar, Eski- fjaröar, Fáskrúðsfjarðar, Stöðv- arfjarðar og Breiðdalsvikur. Flugferðir til Suöur- og Suð-Austurlands Frá Reykjavik tii Hafnar i Hornafiröi verða fimm ferðir i viku á þriöjudögum, fimmtudög- um, föstudögum, laugardögum og sunnudögum. Til Fagurhólsmýr- ar verður flogiö á fimmtudögum og laugardögum. Til Vestmanna- eyja veröa fjórtán ferðir i viku tvær feröir alla daga. Auglýsicf ílímanum Hagstæð bókakaup Á undanförnum árum hefur Sögusafn Heimilanna gefið út gamlar skemmtisögur, sem notið hafa mikilla vinsælda hjá almenningi. Bókum þessum hefur verið mjög vel tekið og eru margar þeirra að iverða uppseldar. Nú hefur útgáfan ákveðið aðgera þeim tilboð, sem vildu eignast allar bækurnar ellefu að tölu. Tilboðið hljóðar upp á kr. 5.000.00 og eru þeir, sem vildu sinna þessu beðnir að senda nafn og heimilisfang ásamt kr. 5.000.00 til Söfusafns Heimilanna, Póst- hólf 1214, Reykjavik, og fá þeir þá sendar bækurnar um hæl. I kaup- bæti fá þeir að velja sér aðra þeirra tveggja bóka, sem koma út i bókaflokknum i haust. Eftirtaldar bækur eru komnar út i bókaflokknum Sigildar skemmtisögur: 1. Kapitóla eftir E.D.E, Southworth. 2. Systir Angela eftir Georgie Sheldon. .3. Astin sigrar eftir Marie Sophie Schwartz. 4. Heiðarprinsessan eftir E. Marlitt. 5. Aðalheiður eftir C. Davies. 6. Vinnan göfgar manninn eftir Marie Sophie Schwartz. 7. Af öllu hjarta eftir Charles Garvice. 8. Gull-Elsa eftir E. Marlitt. i 9. Golde Fells leyndarmálið eftir Charlotte M. Braéme. 10. örlög ráöa eftir H. St. J. Cooper. 11. Kroppinbakur eftir Paul Féval. Og væntanlegar eru á þessu ári: 12. Kynleg gifting eftir Agnes M. Fleming. 13. Arabahöfðinginn eftir E.M Hull. Bækurnar eru allar innbundnar I vandaö band Þetta hagstæða tilboð stendur aðeins skamman tima, þvi að margar af bókunum eru senn á þrotum. útfyllið eftirfarandi pöntunarseðil 'og sendiö útgáfunni: Nafn___________________________________________ Heimilisfang___________________________________ óskar eftir að fá sendan bókaflokkinn Sigildar skemmtisögur, ellefu bækur frá Sögusafni Heimilanna og fylgir hér með kr. 5.000.00 i ábyrgðarbréfi. I kaupbæti óska ég eftir að mér verði send strax og út kemurOKynleg giftingD Arabahöfðinginn. (Setjið X i reitinn fyrir framan þá bók, sem þér óskið eftir). Sögusafn heimilanna Pósthólf 1214 — Reykjavik Flugstöðin á Ak- ureyri stækkar „PILLUÆTURNAR" SÆKJA í BÁTANA

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.