Tíminn - 19.09.1973, Side 13
Miövikudagur 19. september 1973
TÍMINN
13
Þetta barn fannst i Sri Lanka á Ceylon.
„Úlfabörn"
— börn sem finnast
meðal dýra
Eftir tólf ára hlé viröist árið 1973
ætla að verða stórmerkilegt hvað
snertir manpfræðilegar uppgöt-
vánir, þ.e.a.s. hin svokölluðu
„úlfa-börn”. Þetta eru ung börn,
sem finnast á afskekktum stöð-
um, alin upp af villtum dýrum og
stundum jafnvel gefið af spena.
Síðan 1344, þegar fyrsti slikur
fundur var formlega skráður,
hafa fundizt 53 slik börn, alin upp
af alls kyns dýrum m.a. úlfum,
bjarndýrum, leopördum og
pardusdýrum. Siðasta tilfellið
var „gazellu-barnið”, sem fannst
árið 1961.
Þetta ár hafa þegar fundizt tvö
slik börn. 1 júni fannst um 12 ára
gamall drengur lifandi meðal apa
I frumskógunum i suður hluta Sri
Lanka (Ceylon). Drengurinn var
nefndur „Tissa” eftir þorpi ná-
lægt þeim stað er hann fannst.
Drengurinn getur ekki talað, en
gefur frá sér sömu hljóð og
aparnir og skriður um á fjórum
fótum. Undanfarið hafa italskir
sérfræðingar verið að rannsaka
hinn unga „Rocco”, sem fannst i
Abruzzifjöllum, og reyna þeir að
komast að þvi, hvort hann hafi
raunverulega alizt upp með
úlfum. Hann getur heldur ekki
talað, en hljóðin i honum likjast
hljóöum úlfa, og hann glefsar i cg
jafnvel bitur þá, sem koma ná-
lægt honum.
Talsverður vafi er á þvi, hvort
þessi börn hafi öll dýraeinkenni
þ.e. séu raunveruleg dýr, nema
hvað útlitið snertir. Hægt hefur
verið aö greina þau I þrjá megin
flokka. í fyrsta lagi þau, sem eru
andlega gölluð og oft einnig með
likamlega ágalla. Venjulega virð-
ast þau hafa verið borin út af for-
eldrunum þegar séð varð, að þau
voru ekki heilbrigð. Þessi börn
verða ekki langlif i óbyggðunum
— eru ófær um að lifa það af. Þau
ganga á fjórum fótum vegna
þess, að þau geta ekki annað, en
ekki vegna þess að þau hafi dýrin
sem fyrirmynd. Talað geta þau
ekki heldur vegna þess að
skilningarvit þeirra eru svo ófull-
komin.
í öðru lagi eru þau börn, sem
þjást af illskiljanlegum krank-
leika, sem stafar ef til vill af
utanaðkomandi sálrænum
áhrifum snemma i bernsku
þeirra. í þessum tilfellum vita
foreldrar barnsins sennilega ekki
hvað að barninu amar og bera
það út. Nokkur slik börn eru til i
Bretlandi, og haga þau sér að
mörgu leyti eins og dýr, þótt ekki
sé það vegna umgengni við dýr.
Sumir hafa viljað halda þvi fram,
að þetta sé vegna skyldleika
mannsins við önnur dýr.
Ef til vill eru áhugaverðust
þessara barna þau, sem ekkert
virðist ama að, en eru borin út
samt sem áður. Astæðurnar geta
verið margvislegar t.d. peninga-
leysi, eða að foreldrar vilja eða
þola hreinlega ekki börn. Þessi
börn virðast hæglega getað lifað i
nánd við dýr eða með dýrum og
þau apa siðan eftir það, sem þau
sjá að dýrin gera. Þannig sváfu
tvö börn ávallt eins og úlfar, ofan
á hvoru öðru, en þessi börn fund-
ust nálægt úlfum i Indlandi.
Oft eru skilningarvit þessara
barna frábrugðin skilningar-
vitum okkar mannanna, sem
lifum við venjulegar aðstæður.
Sagt var um eitt „gazellu-barn”,
að það hefði getað hlaupið á 50
milna hraða á klukkustund. Það
hafði einnig mjög góða sjón og
frábæra heyrn. Þó að þessi börn
geti ekki gengið og verði jafnvel
að lepja fæðuna af diski fyrst um
sinn, virðast þau fljótt aðlagast
menningunni og læra fljótt að
tala, stundum jafnvel innan
nokkurra mánaða.
þýtt og endursagt —hs—
Drykkjuskapur
þjóðarvoði
HINN heimsþekkti sovézki
visindamaður, Andrei Sakarov,
sem mikið hefur verið rætt um
undanfarið, segir i viðtali við
fréttamann NTB i Moskvu:
„1 Sovétrikjunum er ölvun
orðin það algeng, að telja má
þjóðarvoða. Hún er eitt þeirra
einkenna, sem benda til siðferði-
legrar hnignunar I þjóðfélagi, þar
sem langvarandi áfengiseitrun
veröur æ almennari.”
Frá
(Afengisvarnaráði)
Almannabætur hækka
1 samræmi við 78. gr. laga um
almannatryggingar hefur ráð-
herra ákveðið, að bætur
almannatrygginga, aðrar en
fjölskyldubætur og fæöingar-
styrkur, hækki um 7% frá 1.
október 1973 að telja.
Frá 1. október munu þvi bótaupp-
hæðir verða þannig:
1. Elli- og örorkulifeyrir
kr. 9.133.-
2. Liifeyrir - tekjutrygging
kr. 14.120.-
3. Barnalifeyrir kr. 4.674.-
4. Mæðralaun kr. 801,- kr. 4.349.-
og kr. 8.698 -
5. Ekkjubætur a) 6 mán.:
kr. 11.444,-
Ekkjubætur b) 12 mán.:
kr. 8.581,-
6. Átta ára slysabætur
kr. 11.444,-
Greiðslur dagpeninga hækka
einnig i samræmi við ofanritað,
svo og aðrar bótaupphæðir, sem
ekki eru tilgreindar hér.
Fjölskyldubætur, sem hækkuðu
hinn 1. mai s.l. úr kr. 13.000,- i kr.
18.000.-á ársgrundvelli, verða kr.
15.000.-á ári frá og með í.október
1973.
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið,
14. september 1973.
Skólinn tekur til starfa fimmtudaeinn 4. október.
■n*
Barnaflokkar — unglinga-
flokkar. Flokkar fyrir full- :
orðna einstaklinga. Flokkar
fyrir hjón. Byrjendur og fram- |
hald.
Innritun daglega trá 10-12 og
1-7.
Ileykjavik
Simar 20345 og 25224
Kópavogur
Simi 38126
Hafnarfjörður
Simi 38Í26
Seltjarnarnes
Sim'i 84829
Keflavik
Simi 2062 kl. 5-7.
UNGLINGAR:
Allir nýjustu táningadansarnir svo sem:
Le Slag, Vodotchka, Inkpot, Memphis nr. 2, Crossover, Heat
Wave, Chicago City, Rock Steady, Tumba Tumbala, Wilson,
Arthur Shuffle og fl.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
Á MORGUN
mætir ÍBV einu þekktasta og bezta knattspyrnuliði
Evrópu — Borussia Mönchengladbach —
í Evrópukeppni bikarmeistara
Leikurinn hefst á Laugardalsvellinum kl. 17,30
ÞETTA VERÐUR STÓRLEIKUR ÁRSINS