Tíminn - 09.11.1973, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Föstudagur 9. nóvember 1973.
ELLEN
DUURLOO:
Geymt
en
ekki
gleymt
20
til Edvards, þar sem stóö aö þær
vonuöust til aö hann kæmi i
heimsókn áöur en hann héldi af
staö.
Edvard sat inni i dagstofunni og
velti tebollanum i hendi sér án
þess aö láta sér detta i hug aö
setja hann á borðiö. Hann hélt
uppi kurteislegum samræðum viö
móöur hennar, um leið og hann
sendi henni leynilegar augnagot-
ur. Þegar móöir hennar sá það,
var hún svo hugsunarsöm, að hún
leit undan og lét sem hún sæi það
ekki! Já, móöir hennar hafði
meira að segja verið svo
skilningsrik að hún geröi sér er-
indi niöur til Láru og Haralds og
varþar ( hálftima, svo að unga
fólkiö fengi tækifæri til aö talast
viö i einrúmi.
Þetta hafði veriö hamingju-
samasti timinn i lifi Constance.
Hún sat við gluggann og saumaði
út.
Edvard haföi setiö við stóra
kringlótta mahónyboröiö. t fyrstu
vissu þau ekki hvaö þau áttu aö
segja, þetta var svo nýtt fyrir
þeim, og þau höföu ekki haft
mörg tækifæri til aö vera ein og
tala saman, en þó haföi þaö komiö
fyrir. Þau höfðu tvisvar mætzt i
lystigaröi konungsins, og þau
höföu stöku sinnum spilaö krikket
á sveitasetri Tesjens heildsala við
Kampenborg. Einnig höföu þau
oft fariö i gönguferöir i fallega
garöinum hans Tejsens ásamt
ööru ungu fólki, og þá höföu þau
gætt þess aö dragast aftur úr, og
þannig fengiö tækifæri til aö
kynnast hvort ööru nánar. Þau
höföu aö visu ekki talaö mikiö um
tilfinningar sinar. Þaö var ekki
fyrr en daginn, sem Edvard var
kallaöur i herinn, aöhann sagöi:
„Frk. Constance, þýöir mér
nokkuö aö vona”, — og hún haföi
roðnaö og hvislaö já.
Þetta sama kvöld haföi hún, ör
af gleði, trúaö móöur sinni fyrir
leyndarmálinu. Hún vissi vel aö
móöur hennar gazt vel aö
Edvard, og hún vissi sömuleiöis
aö móöur hennar var mjög
umhugaö aö hún giftist, giftist
góöum manni.
„Ógift kona er ekki öfunds-
verö”, haföi hún eitt sinn heyrt
móöur sina segja. „Konan á aö
eignast mann heimili og börn, til
þess er hún sköpuö”.
Þegar hún heyröi móöur sína
segja þetta, haföi hún ekki skiliö
af hverju ógift kona væri ekki
öfundsverö, en fáum árum seinna
skildi hún þetta. En það var vist
ekki öfundsvert aö verða ekkja á
unga aldri eins og mamma
hennar hafði orðiö. En hún haföi
þó þrátt fyrir allt verið gift og
eignazt tvö börn, hana og Hinrik,
sem var þrem árum eldri en hún.
Hinrik var faöir Fritz litla. Þaö
sem Constance þótti verst, var aö
hún myndi aldrei eignast börn.
Henni féll þaö enn ver en lát
Edvards. 1 byrjun haföi hún
auövitað syrgt hann djúpt, en hún
varö aö leyna harmi sínum, þvi
aö þau voru aldrei opinberlega
trúlofuö. Aöeins móöur hennar
var kunnugt um sorg hennar og
haföi reynt aö hugga hana eftr
mætti. Þó aö hún heföi gert allt
sem i hennar valdi stóö, til aö
leyna utanaökomandi sorg sinni
haföi hún þó vitaö aö fjölskyldan
og vinir hennar töluöu um hana.
„Aumingja Constance litla, það
var vist eitthvað á milli hennar og
Edvards Tejsens....”
En svo aftur að deginum, þegar
þau voru ein i stofunni daginn áð-
ur en Edvard átti að ganga i her-
inn, þá höfðu þau talað
hreinskilnislega saman þegar
mesta feimnin var rokin af þeim.
Edvard hafði beðið hennar, skýrt
og skorinort. Hann haföi beðið
hana að giftast sér um leið og
striðið væri búið. Hann sagði
henni einnig að hann væri búinn
að fá vinnu á gamalli og rótgró-
inni lögfræöiskrifstofu, svo hann
gæti séð sómasamlega fyrir
henni. Constance hafði roðnað og
gleymt að halda áfram við
saumaskapinn. Edvard sat kyrr á
stólnum nokkra metra frá henni.
En svo haföi hann allt i einu lagt
frá sér tebollan, kropið á kné fyrir
framan hana, tekið saumadótið
úr höndum hennar, og þakið
hendur hennar og arma kossum.
Hún haföi setið grafkyrr og fundið
til gleði, sem hún hafði aldrei
fundið til áður. Hann reis á fætur
dró hana að sér og spurði hikandi.
Má ég, á morgun legg ég af staö,
og það væri mér svo óendanlega
mikils viröi, ef ég mætti kyssa yð-
ur áöur en ég fer. Minngingin um
kossinn myndi ylja mér um
hjartaræturnar á köldum og
dimmum v e t r a r n ó 11 u m .
Constance lét hallast upp að hon-
um. Hún haföi lifað fyrir þennan
koss og fyrir failegu bréfin hans,
sem hann sendi henni, á meðan á
striöinu stóð. Hún haföi hlakkaö
svo ósegjanlega til þess dags er
þau mundu hittast á ný. Hún hafði
meira að segja byrjað að sauma i
búið. Móðir hennar sem var svo
einkar skilningsgóö stakk upp á
þvi brosandi að hún skyldi hefj-
ast handa, það væri ekki eftir
neinu að biöa. Constance tók
aldrei þessa handavinnu með sér,
þá sjaldan aö þær fóru að
heimsækja vini eða kunningja, og
gætti þess vandlega að enginn
utanaökomandi sæi þaö sem hún
var að gera, en ófáar voru stund-
irnar sem hún sat i vistlega
súðarherberginu, og saumaði
hverja servéttuna á fætur ann-
arri. En allt þetta var liöiö, og
þessi fallega hálfkláraöa handa-
vinna lá nú neðst i kommóöu
skúffu. Edvard haföi fallið fyrir
þýzkri byssukúlu seint aö hausti.
Þaö er aö segja, hann dó fyrst
eftir að hann hafði verið fluttur á
sjúkrahús og læknirinn, sem hafði
annast hann hafði seht henni
signethringinn hans, og skrifað
örfáar linur með, þar sem hann
sagöi að Edvard hefði talað svo
fallega um hana, unnustu sina og
beðið hann að sjá til að hún fengi
þennan hring til minningar um
sig. Nú lá hringurinn i litilli öskju
ásamt bréfum Edvards. 011 þessi
ár haföi hún hugsað mikið um
Edvard, en með árunum hafði
sorgin og þráin eftir honum blikn-
að fyrir annarri sorg. Allar jafn-
öldrur hennar voru giftar og áttu
börn. Constance langaði meir og
meir til aö eignast barn. Hún
hafði elskað Edvard innilega og
af öllu hjarta, en hún hafði ákaf-
lega oft hugsað sér hann sem föð-
ur barna sinna, fremur það, en
sem elskhuga. Þetta mátti vissu-
lega rekja til tiöarandans og þess
uppeldis sem ung stulka af góðum
ættum var vön að fá á þessum
timum, en þetta átti ekki siður
rætur sinar að rekja til þess að
Constance var i eðli sinu móður-
leg en ekki ástriðufull.
Það sorglega við þetta allt
saman, var það — hún vissi það
ekki sjálf — aö hún heföi
hæglega getað orðið móðir. En
þegar sá möguleiki var fyrir
hendi, var sorgin yfir láti
Edvards alltof sár til að hún gæti
tekið bónorði annars manns, sem
hafði þó án efa gert hana
hamingjusama. Það var
trésmiðameistari Haralds frænda
Bernhard Lange sem baö um
hönd hennar. Enn þann dag i dag
striddi frændi henni með þvi aö
það væri hennar sök að hann hefði
misst einn sinn duglegasta mann
og fengið skæöan keppinaut að
auki. Bernhard Lange haföi sett á
stofn trésmiöafyrirtæki, og þaö
var orðið jafn þekkt og fyrirtæki
Werners fjölskyldunnar. Nú var
Bernhard hamingjusamlega
kvæntur og faðir þriggja barna.
Constance haföi aldrei hugsað
út i að hún hefði átt að giftast hon-
um. Hún lifði enn i þeirri vissu að
Edvard hefði verið hennar eina
og sanna ást. Konan elskaði að-
eins einu sinni á lifsleiðinni. Hún
yröi einungis hamingjusöm meö
þessum eina manni.. En þetta var
nú löngu liöiö, og hún að verða
gömul. Fritz litli var uppáhaldiö
hennar, en þó að hann væri
hæglátur af strák að vera, þá
varð ekki hjá þvi gengið að hann
var strákur, og það var ákafiega
erfitt að verða strák aö einhverju
gagni. Svo var það hún Lena litla
frá Noregi, en það var lika ákaf-
lega erfitt að veröa henni að ein-
hverju gagni. Hún var allt
öðruvisi en allar aðrar ungar
stúlkur, sem hún hafði kynnzt.
Hún var einkennilega sjálfstæð,
og svo var hún æ hún vissi ekki
hvað hún átti aö kalla það, en hún
var frjálsari, óbundnari af sið-
venjum, en gott þótti i góð-
borgarafjölskyldu i Kaupmanna-
höfn.
Nei það var ekki auðvelt að fá
leyfi til að vera stoð og stytta
fólks, nema móöur hennar, auð-
vitað.
Dyrnar opnuðust aö baki henn-
ar:
„Constance, við erum að verða
of seinar....”
Það var móöir hennar, frú
1548
Lárétt
1) Mjólkurmatur,- 6) Óhrein-
ar,- 10 öfug röö,- 11) Fer á
sjó,- 12) Viöburöurinn.- 15)
Þunguð.-
Lóörétt
2) Und.-3) Ótta.- 4) Kvöld.- 5)
Reiöi.- 7) Alegg,- 8) Land-
námsmaður.-9) Fræöimaöur.-
13) Fugl.- 14) Glöö,-
Ráöning á gátu nr. 1547
Lárétt
I) Júdas,- 6) Spillti.- 10) Ná,-
II) Og.- 12) Armlegg,- 15)
Stöng.-
Lóðrétt
2) Oði.- 3) Afl,- 4) Asnar.- 5)
Sigga,- 7) Pár,- 8) LLL,- 9)
Tog,- 13) Met,- 14) Ein,-
zmzm*
íi n
Föstudagur
9. nóvember
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25. Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.00 Meö sínu lagi. Svavar
Gests kynnir lög af hljóm-
plötum.
14.30 Siödegissagan: „Saga
Eldeyjar-Hjalta” eftir Guö-
mund G. Hagalin. Höfundur
les (6).
15.00 Miödegistónleikar: Tón-
list eftir Richard Strauss og
Richard Wagner Oskar
Michallik, Jurgen Buttke-
witz og hljómsveit Berlinar-
útvarpsins leika Duettkon-
sertinu fyrir klárinettu,
hörpu og strengjasveit eftir
Strauss, Heinz Rögner stj.
Frida Leidker, Friedrich
Schorr og hljómsveit Rikis-
óperunnar i Berlin flytja tvö
atriði úr óperunni „Valkyrj-
um” eftir Wagner, Leo
Blech stj.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Popphornið.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Mamma skilur allt” eftir
Stefán Jónsson. Gisli Hall-
dórsson leikari les (6).
17.30 Framburðarkennsla I
dönsku.
17.35 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veður-
fregnir 18.55 Tilkynningar.
19.00 Veðurspá. Frcttaspegill.
19.20 Þingsjá. Davið Oddsson
sér um þáttinn.
19.45 Tannlæknaþáttur. Börk-
ur Thoroddsen tannlæknir
talar um tannskemmdir i
börnum og unglingum.
20.00 Frá tónlistarkeppni
ungra organleikara á
Norðurlöndum, sem fram
fór i Stokkhólmi 9.-12. f.m.
Árni Kristjánsson tónlistar-
stjóri flytur inngangsorð og
kynningar.
21.00 Tveggja manna tal.Þor-
steinn Matthíasson kennari
talar við Sigurö Jóhanness.
fyrrum bónda á Vermund-
arstöðum i ólafsfiröi.
21.30 Útvarpssagan: „Dverg-
urinn” eftir Par Lagerkvist.
i þýðingu Málfriðar Einars-
dóttur. Hjörtur Pálsson les
(6).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Eyjapistill.
22.40 Draumvísur. Sveinn
Magnússon og Sveinn
Árnason sjá um þáttinn.
23.40 Fréttir f stuttu máli.
Dagskrárlok.
IIB
liill
Föstudagur
9. nóvember 1973
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Að ári liðnu (Last Year's
Confetti) Breskt sjónvarps-
leikrit eftir Adel Rose. Leik-
stjóri Alan Gibson. Aöal-
hlutverk Stephanie Beac-
ham, Terence Edmond og
David Langton. Þýðandi
Jón O. Edwald. Aðalpersón-
ur leiksins, Jenny og Peter,
hafa verið gift i eitt ár, og
Jenny er farin að efast um
ágæti hjónabandsins. Hún
reynir að ræða vandamál
sin við móður sina, en án
verulegs árangurs.
21.25 Landshorn Frétta-
skýringaþáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaður
Eiður Guðnason.
22.00 Músik og myndirBanda-
riskur skemmtiþáttur með
poppmúsik og myndefni af
ýmsu tagi.
22.25 Dagskrárlok