Tíminn - 09.11.1973, Side 19

Tíminn - 09.11.1973, Side 19
Föstudagur 9. nóvember 1973. TÍMINN 19 00 <}Q <0Q <30 <00 AXEL AXELSSON...sést hér skora hjá GUNNARl EINARS- SYNI...markverði Hauka, sl. miðvikudagskvöld. (Timamynd Gunnar) SflTwöíSHlif-as Svar við grein Alfreðs Þorsteinssonar: „STÓÐ TIL AÐ SETJA AXEL ÚR LANDSLIÐINU? — sem birtist í Tímanum þriðjudaginn 6. nóv. s.l. i Að stinga niður penna, blaða- manni til andsvars, er sama og stinga höfðinu i gin ljónsins, sem venjulega klippir á með þvi að hnýta litilli grein aftan við and- svarið. Ósannindi og órökstuddar dylgjur, er inntak þeirrar grein- ar, sem birtist i Timanum þriðju- daginn 5. nóv. 1973 undir fyrir- sögninni — Stóð til að setja Axel úr landsliðinu? Er greinin bersýnilega rituð til þess eins að koma á stað moldviðri, gefa slúðri byr og sundra einingu innan forustu handknattleiks- iþróttarinnar. Greinin byrjar þannig: „Það er hvorki stjórn H.S.l. né lands- liðsnefnd að þakka, að islenzka landsliðið hefur svo gott sem tryggt sér farseöla i lokakeppni H. M. i Austur-Þýzkalandi i byrj- un næsta árs. Litlu mátti muna, að handvömm við stjórn og sundurþykkja i landsliðsnenfd gerði þennan draum að engu”. Þarna varpar blaðamaður Timans fram órökstuddum ásökunum og ósannindum. I. Það er stjórn H.S.l. að þakka, að Geir Hallsteinsson lék með gegn Frökkum þann 4. nóv., og það er einmitt sá leikur, sem tryggir svo gott sem farseðla i lokakeppni H.M. 2. Það eru getsakir, að litlu hafi munað að sundurþykkja i landsliðsnenfd gerði drauminn um stór-sigur að engu. Ég tel, að auk þeirra sex útispilara, sem léku svo til allan siðari hálfleikinn, hafi Gunnar Einarsson markvörður skipt sköpum i þessum leik. Þennan mann vildi Jón Erlendsson út úr liðinu en fékk ekki ráðið. Páll Jónsson og ég vorum aldrei i vafa um að Gunnar ætti að leika þennan leik. 1 þriðju málsgrein segir blaða- maður Timans: „Þessi ákvörðun Jóns er heiðarleg, en það er siður en svo að hún leysi nokkurn vanda, miklu fremur eykur hún hann, þvi aö Jón Erlendsson var sá nefndarmaður, sem mest traust var borið til”. Ekki hirðir blaðamaður Tim- ans um að geta þess, af hverjum traustið var borið, og á meðan annað kemur ekki fram, verður að álita, að það sé af honum sjálf- um. Stjórn H.S.I. er sá aðili, sem ábyrgð ber hverju sinni á fram- gangi mála, til þess er hún kosin af heildarsamtökum iþróttarinn- ar, og þar erif þeir menn, sem mest traust er borið til hverju sinni, til að leysa aðsteðjandi verkefni. Hennar traust er það, sem skiptir máli. 1 síöari hluta þriöju málsgrein- ar keyrir um þverbak: „Og það er sennilega Jóni að þakka að Axel Axelsson lék með i leiknum gegn Frökkum á sunnu- daginn, en einhverjum i lands- liðsnefnd hafði dottið það i hug að setja Axel út úr landsliðinu”. Ein ósannindin enn. Enginn af okkur þremur landsliðsnefndar- mönnum hefur lagt það til, að Axel léki ekki með á móti Frökk- um hér heima. Og ef þessu er beint til min, sem allar líkur benda til, þá sjá allir, sem á leik- inn horfðu, hvort heldur i Laugar- dalshöllinni eða i sjónvarpi, að ég set mitt traust á Axel Axelsson frá byrjun leiks til enda. Og trúi þá hver sem vill, að mér hafi komiðtilhugaraðsetja Axelút úr liðinu 1 sjöttu málsgrein segir: „Mál Einars er raunar dæmi- gert um þau sjónarmið, sem ráða ferðinni i landsliösnefnd og munu ráða áfram, ef ekki verður gripið i taumana”. Þarna er skeytum beint að mér og Páli Jónssyni fyrir þá sök að hafa ekki viljað taka Einar út úr landsliðinu og setja i staðinn Stefán Gunnarsson eöa Sigurberg Sigsteinsson , eins og Jón Er- lendsson hefur viljað. Ekki þarf að eyða mörgum orðum i rök fyr- ir þvi, að hvorki Sigurbergur né Stefán fylla stöðu Einars Magnússonar. Ég vil mótmæla þvi, að Einar hafi staðið sig verr en margir aðrir, sem klæöast landsliðspeysunni þessa dagana. Sannleikurinn er hins vegar sá, að til Einars eru gerðar meiri kröfur en margra annarra leik- manna vegna likamsyfirburða hans. Þá segir ennfremur i sjöttu máisgrein: ....en þvi er ekki að neita, að honum geta verið mislagðar hendur um val manna i lið, hvort sem um landslið eða félagslið er að ræða Sömu sögu er aö segja um innáskiptingar hans”. Enn einu sinni er veitzt að mér og tilraun gerð til að draga niður i svaðið. Læða inn hjá unnendum handknattleiks ummælum um mig, sem ekki fá staöizt ef litið er á staðreyndir. Blaðamanni Tim- ans, sjálfum Alfreð Þorsteinssyni formanni knattspyrnufélagsins Fram.hlýturaðvera það ljóst, aö enginn hefur valið, þjálfað og leitt lið oftar til sigurs i meistara- fiokki karla innanhúss en ég. Honum má það einnig vera ljóst að það er ekki bara heppni. Ef leikur tapast og veldur vonbrigðum, er oft gripið til þess ráðs að kenna innáskiptingum um, en horft framhjá kjarna málsins, sem i flestum tilfellum er geta einstaklingsins og samæf- ing. Þeir leikmenn.sem þjálfar- inn leggur traust sitt á hverju sinni, eru litillækkaðir, en þeir, sem á bekknum sitja, fá hólið, og látið að þvi liggja, að leikurinn hefði unnizt, ef-ef-ef. Leikmönnum tekst misjafnlega vel upp i einum leik eru þeir góð- ir, öðrum lélegir. Þessi staðreynd villir oft fyrir bæði þeim, sem skiptir inná, áhorfandanum og blaðamanninum. Þessi mannlegi þáttur „amatör”- leikmanns verður ekki lagfærður nema þá helzt með auknum æfingum. Frægur iþróttablaðamaður i Englandi sat inni á „pöbb” og sötraði sinn bjór. Vinur hans, annar blaðamaður, settist hjá honum. „Eins og þú veizt, hef ég skrifað um knattspyrnu i 20 ár, en nú er ég að átta mig á þvi, að ég hef ekkert vit á knattspyrnu", sagði sá frægi iþróttablaðamaður við vin sinn. „Nú”, sagöi vinurinn, „hvers vegna hættirðu þá ekki að skrifa?” „Það get ég ekki”, sagði sá frægi, „það trúa mér allir”. Blaöamaöur Timans þarf aö vera varkár með penna sinn og hafa jákvæða afstöðu til iþrótta- mála. Meðan okkar iþróttir eru byggðar upp af áhugamönnum og nauðsyn ber til, aö allir leggist á eitt með að færa iþróttirnar til betri vegar, má iþróttaforustan ekki sofa á verðinum og láta það ltðast, að eitri sé spýtt inn i hreyf- inguna til þess eins að skapa þar sundrung og leiðindi. Draga úr áhuga manna til að starfa. Og i stað starfsgleði færist doði yfir athafnir. Iþróttafréttamenn dagblað- anna skrifa, þegar á heildina er litið, mjög jákvætt um handknatt- leik og aðrar iþróttir, og eiga þakkir inni hjá iþróttahreyfing- unni, en þessi grein i Timanum 6. nóv., skrifuð af Alfreð Þorsteins- syni, var neikvæð, og fann ég mig knúinn til andsvars. Karl Kenediktsson. Hibs tapaði í víta- spyrnu- keppni Hiberniun, skoska liðið sem sló Keflvikinga úr UEF"A- keppni Evrópu i knattspyrnu, náði frábærum árangri gegn enska toppliðinu Leeds i 2. uinferð. Hibs gerði jafnteíli, (1:0, á heimavelli Leeds, og á miðvikudagskvöldið skildu liðin aftur jöfn, 0:0, i Edin- borg. Vilaspyrnukeppni þurfti til að skera úr um. hvort liðið liéldi áfram I UEKA-keppn- inni. Leeds bar sigur úr býtum i vltaspyrnukeppninni og held- ur þvi áfram í keppninni. Af þessum úrslitum sést, að Keflvikingar hafa náð mjög góðum árangri gegn Hibs i 1. umferðinni, bezta árangri, sem islenzkt félagslið hefur náð fyrr og siðar gegn at- vinnumannaliði. Keflvikingar töpuðu aðeins 0:2 i Edinborg, og gerðu jafntefli, 1:1, á Laugardalsvellinum. Mega þvi Keflvikingar vel við una, að hafa aðeins tapað 1:3 fyrir Hibs, samanlagt. að hengja bakara fyrir smið Ég get huggað Karl Benedikts- son með þvi, að ótti hans um að lenda i gini Ijónsins er ástæðu- laus, þó að hér fylgi nokkrar linur fremur til skýringar en andsvara. Það hefur aldrei þótt sniðug „taktik" að hengja bakara fyrir smið. Og þar sem „taktikin” er nú sterkasta hlið Karls Kene- diktssonar, hcföi verið einfaldara og skynsamlegra fyrir hann að beina spjótum sínum til annarra aðila en þeirra, er skrifa íþrótta- siðu Timans. Það er nefnilega upplýst, að það sem Karl Kene- diktsson nefnir ósannindi og órök- sluddar dylgjur, er lalinn sann- leikur af fyrrverandi formanni landsliðsnefndar IISI, Jóni Er- lcndssyni. Ilér notar Karl rúss- nesku aöferöina, skammar Al- bani, þegar þarf að koma höggi á Kinverja. Nóg um það. Um önnur atriði rikir skoðanamismunur milli min og Karls Kenediktssonar. Hverj- um manni er frjálst að hafa sinar skoðanir. En varðandi það atriði, sem snýr að stjórn HSI, þá hefur það e.t.v. ckki komið nógu skýrt fram, að handvömm stjórnar IISI lá ekki i þvi, að hún heilti sér fyrir þvi að fá Geir llallsteinsson heim fyrir siðari leikinn gegn Frökk- um, heldur i þvi að beita sér ekki af alefli til að fá hann i fyrri leik- ina gegn italiu og Frakklandi. Það verður hver og einn að fá að dæma um það sjálfur, hvað telst jákvætt og neikvætt i iþróttaskrifum. Þó hygg ég, aö það geti varla talizt neikvætt að ræða um mistök, sem verða við stjórnun handknattleiksmála, i þvi skyni að koma i veg fyrir, að þau endurtaki sig. Karl Benediktsson hefur beitt sér fyrir margvislegum nýjung- um i islenzkum handknattleik og hefur hugmyndir um það, hvernig megi gera hann enn sterkari. Um þaö og fleira verður rætt við hann i sunnudagsblaðinu. —alf.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.