Tíminn - 15.12.1973, Blaðsíða 6

Tíminn - 15.12.1973, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Laugardagur 15. desember 1973. Þorvaldur Árnason: Hugleiðingar um her Hugvekja i 4 þáttum HERSTÖÐVAMALID getur nú með sanni talizt vera mál mál- anna, þegar um sjálfstæöi Is- lenzku þjóöarinnar er aö ræöa. Þetta er afar umfangsmikiö mál og vert þess aö menn velti þvl vandlega fyrir sér og ræði sin á milli og myndi sér sjálfstæða skoðun út frá sinni eigin sann- færingu og beztum fáanlegum forsendum. Það er von min, að þessar hugleiöingar minar megi ýta dálitið við þeim, sem enn sofa og láta aðra um að hugsa fyrir sig. 1. þáttur: Mælt fyrir munn islenzks góðborg- ara á fullveldisdegj ís- lands (Leturbreytingar og athuga- semdir innan sviga eru frá rödd hrópandans i eyðimörkinni) ,,t augum okkar íslendinga, sem muna timana tvenna, er her gjöf af himnum ofan. Hann kem- ur á dögum atvinnuleysis og eymdarog gefur fátækum erfiðis- yinnu og rikum auð, konum elsk- huga og börnum sælgæti, allir fá eitthvað viö sitt hæfi. Allir verða ánægöir, nema einstaka skáld og sérvitringar (hugsjónamenn). Stundum heyrum við samt fréttir utan úr löndum af fólki, sem hefur aðrgr skoðanir á her, ef til vill að fenginni annarri reynslu (skyldi þó ekki vera?). Til dæmis i Grikklandi og Chile er mörgum (hér mun átt við alþýðu manna) meinilla viö herinn og láta heldur drepa sig en að sýna hernum tilhlýðilega virðingu (al- gjöra undirgefni). En þar eru lika aörir (hér mun átt við stóreigna- menn og þeirra skósveina), sem beinlinis elska herinn, enda eiga þeir allt sitt honum að þakka, eignirnar og jafnvel lif sitt. Trú- lega væri hann Onassis annað hvort landrækur eða þá stein- dauður, ef herinn hefði ekki tekið I taumana i tima. (Stjórnarfarið i Grikklandi var að þróast til vinstri, þegar herinn gerði sina byltingu og eignarnám heföi orðið eina raunhæfa leiðin til að bæta kjör almennings). Það er alltaf dálitið erfitt að skilja hér, það eru svo margir leyndardómar i kring um hann. t Sviþjóð urðu margir ruglaðir i riminu fyrir skömmu, þegar þrir blaðamenn einhvers kommúnistablaðs (FIB Kultur- front) héldu þvi fram, aö stofnun innan hersins heföi um árabil njósnaö fyrir útlendinga um ýmsa óvini þeirra, svo sem ýms- ar þjóöfrelsisfylkingar og skæru- liða (fólk, sem berst fyrir frelsun lands sins úr klóm nýlendukúg- ara). Einnig áttu þeir að hafa njósnað um innlenda kommúnista og verkalýðsfélög, svo að stjórn- völd gætu fylgzt með, að ekkert ósæmilegt færi þar fram. En allir heiövirðir (heiðvirðir = heiðrikir) borgarar létu þetta smámál alls ekkert á sig fá, enda engin ástæða til þess (eða hvað? ). Kommúnistablöð ljúga alltaf, og þar að auki er vel trúlegt, að þessir óforskömmuðu, blaða- menn hafi veriö útsendarar Rússa (Rússagrýlan vinsæla). Sænsk stjórnvöld tóku þetta mál föstum tökum og létu varpa blaöamönnunum i fangelsi (prentfrelsi I praksis). A þvi leikur enginn vafi, að viö Islendingar þurfum að vera i varnarbandalagi og hafa varnar- lið i landinu. Þótt allir herir séu i eðli sinu varnarliö, þá getur alltaf brotizt út striö, þar sem varnar- herir þurfa að verja hagsmuni landa sinna hvor fyrir öðrum og þetta gerist oft utan heimkynna þesara herja. Svo þarf stundum að vernda aðrar þjóðar gegn einhvers konar villutrú, einkum vinstrivillunni. Já, það er allt strið i raúninni varnarstrið. T.d. i Vietnam-striðinu höfðu báðir aðilar sitt að verja. Bandarikja- menn voru að verja hagsmuni sina i Indókina með þvi að verja Vietnama gegn kommúnisma (brjóta á bak aftur hreyfingu al- þýðunnar til frelsunar landi sinu undan erlendum og innlendum blóösugum) og Vietnamar væru að verja land sitt gegn erlendri Ihlutun (alveg hárrétt). Já, við þurfum svo sannarlega aö hafa varnarliö. Frændur okkar Norðmenn, sem alltaf hafa verið okkur til fyrirmyndar á öllum sviöum (viö öpum allt eftir þeim gagnrýnislaust), eyöa tals- verðum hluta þjóðarteknanna til aö halda uppi varnarher. Þó svo aö Bandarikjamenn láti þeim i té ókeypis ráðgjafa og lærifeður (sem I raun ráöa mestu i hernum) og slatta af tækjum, þá er herinn sjálfur skipaöur Norðmönnum og kostaður af norska rikinu. En Norðmenn eru smáþjóö og verða að sniöa sér stakk eftir vexti og hafa þeir hannað her sinn þannig, hafa hannaö her sinn þannig, að hann á aö geta varizt Rússum eða tafið fyrir þeim i 24 k5lt. Það sést bezt á þvi, hve bara 24 tima vörn er mikils viröi (að dómi norskra hermangara) aö Norðmenn skuli fórna mörgum prósentum af þjóðartekjunum ár hvert, svo og öllum (heilbrigðum karlmönnum (úr lágstéttum), ef til striðs kæmi, til aö verjast með dæmd (eins og þaö heitir), þó ekki sé nema I fáeina klukkutima. Aö þessum sólarhring liönum ættu þá bræöraþjóðirnar i vestri að vera komnar á vettvang og tækju við aö berja á Rússum og eftir þaö þyrftu Norömenn bara að lána landið sitt fyrir vigvöll. (Þetta myndi þýöa landeyðingu og óskapleg manndráp. Annað mál er þaö, að Rússar myndu aldrei ráðast inn i Noreg, nema ef einhvert Nató-riki hefði ögrað þeim sérstaklega, en það er mjög ótrúlegt, að Noregur yrði til þess. Þvi er Noregur dæmigerður pislarvottur). En viö tslendingar erum fáir, 20sinnum færri en Norömenn , og ef við settum markið jafnhátt og Norðmenn, miöaö við höfðatölu, þ.e 1. klst og 12 minútur vörn, þá hefðum við oröiö aö eyða til þess það miklu fé, að við vildum ógjarna fara þá leiö. En á það hefur ekki reynt, þvi vinaþjóðir okkar hafa af mikilli rausn haldið okkur hér i 3 áratugi allt frá þvi að við urðum sjálfstæð þjóð (?) Nú höfum við hér her, sem auk þess að heita varnarlið, hefur orðið tekjuling fyrir marga okkar mest metnu menn (metnum eftir eignum). Þó svo að stað- reyndin sé sú, að þessi her geti engan veginn varið okkur fyrir Rússum i 1 klst og 12 minútur og sé alls óhæfur til að verja okkur gegn Bretum og öðrum banda- laesbióðum okkar (ekki veitti þó af), en hafa bara það hlutverk að njósna um feröir Rússa, þá gerir það ekkert til. Herinn heitir jú varnarlið og hvers vegna getur fólk þá ekki trúað þvi, aö hann sé hér til að verja okkur? Reyndar hafa einhverjir haldið þvi fram, aö okkur tslendingum stafi bara hætta af þessari herstöð, þvi að Rússar hlytu að reyna að eyöi- leggja þessa njósnastöð sem fyrst, ef strið skylli á og gætu þá i leiðinni sprengt i loft upp allt þéttbýli á Reykjaneskjálkanum og þar með 60% af fólkinu og 90% af þjóðarauðnum. En slikar stað- hæfingar hafa verið bornar til baka af mikilli hörku (aðallega heilaþvottaraðgerðin) i biaði allra landsmanna, Morgun- blaðinu, og er þvi ótrúlegt að slikar skoöanir eigi trúnað margra (enda þótt þær séu mjög góðar og gildar). Nei, við ,,sjálfstæðis”-menr munum berjast til siðasta stór kaupmanns fyrir að varnarliðið fái að sitja hér i friði- sem og ófriði — til styrkingar Islenzku auðvaldi, þvi að þannig verður Islenzkt lýðræði bezt tryggt (lýð- ræði merkir hér stjórnkerfi, þar sem raunverulegir valdhafar telja lýðnum trú um að hann ráði öllu). Það er aldrei að vita nema alþýðuskrillinn gæti óhlýðnazt réttkjörnum (og réttbornum) yfirvöldum og verið með uppsteit eða jafnvel uppreisn. Væri þá ekki gott að geta leitað suður á Miðnesheiöi og fengiö aðstoð sér- þjálfaðra manna búnum nýtizku verkfærum til að berja á slikum uppreisnarseggjum? Það hefur komið sér vel fyrir rikisstjórnir margra þróaðra rikja (rikja með háþróuðu auðvaldsskipulagi) að geta leitað til hersins, þegar ai- þýðan hefur ógnað kerfinu með kröfum um jafnrétti. ( Hér er komiö aö aöaltilgangi hers, sein er — aö styöja viö þjóðfélags- kerfi, sem hefur misst fótanna og riöar til falls). Her er mjög hentugt tæki til að tryggja öryggi auðvaldskerfisins. Þaö er þannig uppbyggt, að það er nóg að kaupa fáeina æðstu kokkana til að gera þaö, sem gera þarf, þvi að æðstu menn hersins geta gefið skipanir til undir- manna sinna, án þess aö þurfa aö réttlæta þær eöa útskýra á nokkurn hátt. Heragi er heragi. 1 æðstu stööur hersins veljast venjulega gallharðir ihaldsmenn, sem vinna slik verk af einlægni. Svo er lika margfalt ódýrara að kaupa fáeina herforingja, jafnvel þótt þeir væru dýrkeyptir (her- foringjar eru vel borguö stétt), til að láta herinn lækka rostann i óánægöri alþýðunni, heldur en að þurfa aö kaupa stóran hluta al- þýðunnar til sátta með kaup- hækkunum eða jafnvel stjórnar- farslegum tilslökunum. 2 þáttur: Vöngum velt Þaö er eftirtektarvert, hvernig merking margra orða er afskræmd, þegar þau eru notuð i blekkingarskyni (sbr. aths. innan sviga i 1. þætti) Sorglegt er að hugsa til þess, aö margir láti blekkjast á þennan hátt. 1 1. þætti gerist góðborgarinn allopinskár undir lokin, meira en gerist yfirleitt um herunnendur opinberlega. Þessu likt má þó oft lesa milli linanna i Morgun- blaðinu og þótt viöa væri leitaö. Svo er það ekkert launungarmál, að Nató-samningurinn gerir ráð fyrir að bandalagsþjóðir megi gripa inn i, ef stjórnmálaþróunin i einhverju aðildarlandinu er á mo'ti skapi. Fer maður nú ekki að skilja, hvers vegna islenzkum hægrisinnum er svo umhugað að halda hernum kyrrum i landinu ? Það er ekki bara gróðinn, sem vakir fyrir þeim, þótt vissulega sé hann sumum valdamiklum aöilum mikils virði. Hvert stefnir meö islenzkt sjálf- stæði? Getur islenzk alþýða nokkru þar um ráðið hvernig hún vill móta og þróa sitt eigið þjóð- félag? Ráðum við þvi sjálf hverjar þjóðir við teljum vini okkar og hverjar ekki? Við tslendingar erum ófrjáls þjóð i ófrjálsu landi meðan við sitjum i Nató og höfum hér erlendan her. Væri ekki vel viðeigandi að minnast 1100 ára afmælis tslandsbyggðar með þvi að vinna sigur i sjálfstæðisbarátt- unni okkar, væri það ekki öllum skrautsýningum og snobbsam- komum verðugra? Þá ættum við þess kost að ákveða samkvæmt eigin samvizku að hve miklu leyti við vildum vera samábyrgir meðreiðarsveinar mestu nýlendukúgara okkar tima. 3. þáttur: Áskorun til þeirra, sem ennþá sofa: Vaknið og takið afstöðu til þessa mikilvæga máls og látið i ykkur heyra. Þetta er ekki neitt feimnismál og þvi siður mál fáeinna valdamanna. Þetta er mál okkar allra. 4. þáttur: Spurning dagsins: Verður herinn látinn fara? Þorvaldur Arnason .g|Sfe|*. tiuStfiu ENN EIN JÓLABóK FRÁ HILMI HILMISBÓK ER VÖNDUD BÓK Varahlutir Cortina, Volvo, Willys, Aust- in Gipsy, Land/Rover, Opel, Austin Mini, Rambler, Chevrolet, Benz, Skoda, Tra- bant, Moskvitch. Höfum notaða varahluti i þessar og flest allar eldri gerðir bila meðal annars: Vélar, hásingar og girkassa. Bilapartasalan Höföatúni 10, simi 11397. Endurminningar Fridriks Gudmundssonar Seinna bindi þessarar merku minningabók- ar er komið út. Gils Guðmundsson hefur séð um útgáfuna og fylgir síðara bindinu nafnaskrá yfir bæði bindin. Enginn þeirra, sem unna íslenskri menningu og sögu, getur látið þessa bók fram hjá sér fara. Nokkur ein- tök af fyrra bindinu eru ennþá fáanleg í bókaversl- unum VÍKURÚTGÁFAN Sögusafn Heimilanna AONCi M. KVNLffi filfTING tiÓCUSALN HCIMILANNA »ÓOU»AFW 44CIMILAWWA Kynleg gifting cftir Agiics M. Elcming cr 12. bók- in í bókaflokki Sögusafnsins. IIún cr cin af Jk'ssuiu „góðu gtinilu siig- um“ scm alltaf eru nýjar og vin- sælar. Bókin cr 367 blaðsíður og bundin í fallcgt. band. Arabahöfðinginn eftir E. M. IIull cr 13. bókin í sama flokki. Þctta cr ein liin viiisælasta skcmmtisaga, scm komið befur út liér á landi. IIún cr 221 blaðsíða og innbundin í samskonar band og aðrar bækur í þessum flokki. ■» i i .sfcw.* - - ; hystih ’ Systir Angela eftir George Slicldon var 2. bókin í bókaflokki Sögúsafnsins, en scldist upp á skömmum tíma. Ilún er nú komin út á ný og liefur verið send bóksölum um land allt. SÖGUSAFN HEIMILANNA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.