Tíminn - 26.02.1974, Síða 1
ÆNGIR?
Áætlunarstaðir:
Akranes - Blönduós
Flateyri - Gjcgur
Hólmavík - Hvammstangi
Rif - Siglufjörður
Sfykkishólmur
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
$2
KÓPAVOGS
APÓTEK
'Opið öil kvöid til kl. 7
Laugardaga t$ kl. 2
Sunnudaga kl. 1 til 3
Simi 40-102
SAMKOMULAG NÁÐIST
VERKFALLINU ER LOKIÐ
samninganefnda ASt og VSl. Að
loknu matarhléi var tekið til við
að ræða mdl mjólkurfræðinga,
vörubilstjóra og iðnnema. Heita
mátti að samkomulag hefði náðst
um mál mjólkurfræðinga og iðn-
nema um ellefu leytið, en
erfiðasta málið mun vera mál
vörubilstjóra.
Prósentutilboðið, sem fellt var
af ASt, en samþykkt af VSt i
fyrradag, hljóðaði upp á 7%
grunnkaupshækkun plús ellefu
hundruð krónur plús tvisvar 3% i
áföngum. Ekkert var i gærkvöldi
gert opinberlega uppskátt um þá
prósentu, sem samkomulag hafði
náðst um, en heyrzt hefur, að
samið hafi verið um 8 plús tólf
hundruð krónur, og siðan tvisvar
3% i áföngum. En þetta verður
ekki tilkynnt opinberlega fyrr en
að loknum félagsfundum þriðju-
dag.
Lauslega áætlaður kostnaður
við samningana mun nema 5-6
milljónum króna, en samninga-
menn fá dagpeninga og fargjöld
greidd búi þeir utan Reykjavikur.
Þetta eru þó smámunir miðað
við tapið, sem hlýzt af verkfall-
inu. Ýmsar tölur eru nefndar i þvi
sambandi og er talað um, að
verkfallið kosti frá 100 til 200
milljónir á sólarhring, miðað við
loðnuveiðina eina saman.
Þess vegna hefur verið um það
rætt, að veita undanþágu til þess
að hefja loðnumóttöku, þegar i
nótt, en óvist var þegar siðast
fréttist, hvort það reyndist unnt,
þótt svo væri að heyra sem
samningamenn væru vongóðir
um, að það tækist.
HHJ-Loftleiðahótelinu kl. 11
mánudagskvöld. Samningamenn
á Hótel Loftleiðum voru hýrir i
bragði, þótt mörgum þeirra hefði
ekki orðið svefnsamt að undan-
förnu, enda var þá að heita mátti
séð fyrir endann á allsherjar-
verkfallinu, nema óvæntir. örðug-
leikar kæmu i ljós i lokaumræð-
um.
Allt bendir til þess að samið
verði innan fárra klukkutima.
Samkomulag náðist um átta leyt-
ið um höfuðatriðið, það er pró-
sentuhækkunina, á fundum
EITT OG HÁLFT
TONN AF PÓSTI
BÍÐUR í RVÍK
Hér sést Guðmundur Arnlaugsson afhenda Smyrslof verðlaun
sigurvegarans á Reykjavíkurmótinu í gærkvöldi, en þd fór fram
lokahóf mótsins
FB—Reykjavik. Vikubirgðir af
pósti liggja nú hjá Pósthúsinu i
Reykjavik og biða þess að komast
með flugvélum úr landi. Matthias
Guðmundsson póstmeistari
KVIKASILFUR í FISKI VEIDDUAA
ÍSLANDSAAIÐUAA
í flestum tilfellum langt undir
leyfilegum mörkum
—hs—Rvik. — Neyzla á menguð-
um fiski hefur viða um heim vald-
ið stórslysum og jafnvel dauða
fjölda fólks. Kvikasilfur og kvika-
silfurssambönd, sem lenda i sjón-
um, breytast smátt og smátt fyrir
áhrif gerla i methylkvikasilfur,
sem er aðgengilegra fyrir fisk, en
fiskurinn mengast bæði gegnum
munn og tálkn. Áhrif kvikasilfurs
á manneskjuna geta verið skelfi-
leg, eins og bezt sást I Minamata i
Japan, þar sem fjöldi fólks veikt-
ist og dó eftir að hafa neytt að
staðaldri fisks, sem innihélt um
10 mg/kg af kvikasilfri. Aðalsjúk-
dómseinkennin eru alvarlcgar og
varanlegar skemmdir bæði á
taugakerfi og heilabúi, ásamt
heyrarleysi og blindu.
Svo segir i nýkomnum Tækni-
tiðindum, sem gefin eru út af
Rannsóknarstofnun fiskiönaðar-
ins. Þetta er Itarleg skýrsla,
byggð á rannsóknum Geirs Arne-
sen efnaverkfræðings við stofn-
unina, á magni kvikasilfurs i
neyzlufiski hér við land. Er þetta
fyrsti liður i rannsóknum hans á
svokölluðum sporefnum og magni
þeirra I matvælum, en áhugi
manna á þessum málum hefur
farið mjög vaxandi siðasta ára-
tuginn.
Nú er svo komið, að margar
þjóðir hafa lögfest hjá sér ákvæði
um leyfilegt hámarksmagn af
kvikasilfri I matvælum og þá
einnig i fiski, sem er á bilinu frá
0,1-1,0 mg:kg. Mjög misjafnt er,
hve þessum ákvæðum er strang-
lega framfylgt, en sums staðar
virðist fremur vera um leið-
beiningar að ræða en bann.
íslenzkar rannsóknir
Sölumiðstöð hpaðfrystihúsanna
fór þess á leit við Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins i ársbyrj-
un 1971, að hafnar yrðu ákvarðan-
ir á kvikasilfri i fiski og útvegaði
til þess tæki (Coleman MAS 50
Mercury Analyzer). Siðan hefur
mikill fjöldi sýna frá fiskvinnsu-
stöðvum úr öllum landshlutum
verið efnagreindur. FLest hafa
sýnin verið efnagreind beinlinis
vegna útflutnings til ítaliu, en
samkvæmt itöslkum lögum verða
að fylgja öllu innfluttu fiskmeti
vottorð um kvikasilfursmagn frá
framleiðslulandinu.
Samkvæmt rannsóknum Geirs
Arnesen, sem ná yfir árin
1971-1973, þá er kvikasilfurs-
magnið i langflestum tilfellum
langt undir Ieyfilegum mörkum.
Einustu undantekningarnar eru
raunverulega hákarl og hámeri,
en auk þess er magnið yfirleitt
meira eftir þvi sem fiskurinn er
eldri og stærri.
Mælingar, sem gerðar hafa
verið erlendis á fiski frá öðrum
veiðisvæðum, sýna yfirleitt hærra
kvikasilfursmagn. Isotopcentral-
en i Kaupmannahöfn hefur mælt
kvikasilfursmagn i söltuðum
þorski frá ýmsum veiðisvæðum
og fengið svipaðar tölur og við
fyrir Islandsfisk, en yfirleitt
meira magn I fiski bæði frá Fær-
eyjum og Grænlandi.
Kvikasilfur i loðnu
Á loðnuvertiðinni 1973 voru
fengin allmörg sýni af loönu til
ákvörðunar á kvikasilfri. Til-
gangurinn var að kanna hvort
nokkur breyting yrði á kvika-
silfursmagni loðnunnar frá þvi að
hún gengur upp á Norðaustur-
landinu og þangaö til hún er kom-
in inn I Faxaflóa og Breiðafjörð,
en hún mun á leið sinni hafa farið
yfir hafsvæði, sem kynnu að hafa
mengast vegna eldsumbrotanna i
Vestmannaevium. Oll voru svnin
skráð eftir veiðistöðum.
Enginn munur var á kvika-
silfursmagni loðnunnar eftir
veiðstöðum né heldur á karl- og
kvenloðnu. Það verður þvi aö
Framhald á bls. 19
SKÓLUAA LOKAÐ Á AKRANESI
FB—Reykjavik. A Akranesi hefur
verið lokað bæði barnaskólanum
og gagnfræðaskólanum, vegna
hraðfara innflúenzu, sem þar
gcngur yfir, að sögn fréttaritara
hlaðsins þar á staðnum, Guð-
mundar Björnssonar. 25-30%
nemenda i skólunum hefur verið
fjarverandi undanfarið vegna
veikinda, og kennarar voru farnir
að veikjast lika, svo héraðs-
læknirinn, Þórður Oddsson tók
það ráð, að láta loka skólunum.
Einnig hefur verið felld niður
kennsla i heimavistarskólanum
að Leirá.
Guðmundur sagðist hafa raétt
við héraðslækni og einnig við Njál
Guðmundsson skólastjóra barna-
skólans. Kom fram, að mikil
veikindi hefðu verið að undan-
förnu, og sagði héraðslæknirinn.
að ef til vill hefði verið réttaraað
Vegna
veikinda
loka skólunum fyrr, en gert hefði
verið, en það hefði ekki verið
gert. þar sem búizt hefði verið
við. að þetta gengi yfir.
Akveðið hefur veriö, að hefja
ekki kennslu aftur.fyrr en i fyrsta
lagi á föstudaginn.
skýrði okkur frá þvi að hann haTði
skrifað forseta Alþýðusambands
islands bréf, og farið þess á leit,
að undanþága yrði veitt, þannig
að leyft yrði að senda póst
meðþeim vélum.sem undanþágu
hafa fengið til þess að fljúga héð-
an, en þvi var hafnað.
Pósturinn hefur þvi safnazt fyr-
ir i Reykjavik, og biður þar eitt og
hálft tonn, sem Matthias sagðist
ekki geta sagt um. hversu fljótt
gæti komizt utan, þegar verkfall-
ið leysist. Hann sagði. að til
dæmis væri flugvélunum ekki
skylt að taka bögglapóst. Þess
vegna gæti það tekið nokkrar
flugferðir að koma öllum póstin-
um úr landi, sem að sjálfsögðu
þyrfti að fara bæði austur og vest-
ur um haf.
Meiri
skinka,
meira
vín!
Klp—Reykjavik. Tollverðir i
Iteykjavik hafa verið dug-
legir að þefa uppi smygl-
varning i kaupskipunum
undanfarna daga. Hafa þeir
tekið hvert skipið á fætur
öðru, og nú siðast m/s Detti-
foss, sem kom til Reykja-
víkur um helgina.
Þar um borð fundu þeir 89
flöskur af áfengi, 10.800
vindlinga, og 115 kg. af hinu
vinsæla reykta svinakjöti,
sem hér gengur almennt
undir nafninu skinka.
Varningur þessi fannst i
klefum skipverja i eldhúsi og
viðar. Eigendurnir voru ekki
fundnir i gær, en þá var unn-
ið að rannsókn málsins.