Tíminn - 26.02.1974, Side 2
2
TÍMINN
Þriðjudagur 26. febrúar 1974.
Þriðjudagur 26. febrúar 1974
Vatnsberinn: (20. jaa-18. febr)
Það er einhver vinur þinn, sem á um sárt að
binda þessa dagana vegna einhverra einkamála
sinna. Þú gerðir vel i þvi að reyna að létta undir
með honum og reyna að aðstoða hann eins og þú
framast getur.
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Það rikir einhver óvissa i sambandi við ákveðið
mál á vinnustað þinum, en það er eins og fyrri
daginn, þú ættir að fara varlega i að blanda þér i
það, af þvi að i rauninni kemur það þér ekkert
við og þú getur skaðast af afskiptum af þvi.
Hrúturinn. (21. marz-19. april)
Þessi dagur verður svolitið sérkennilegur fyrir
þig. Þú skalt fara mjög varlega I öllum
samskiptum þinum við persónu af hinu kyninu,
og þó sérstaklega ef um er að ræða einhvers kon-
ar viðskipti eða fjármál.
Nautið: (20. apriI-20. mai)
Þér gefst eitthvert stórkostlegt tækifæri i dag, en
engu að siður hefur þú ekki möguleika á að nýta
þá nema að litlu leyti. Hugsaðu meira um vinn-
una i dag en venjulega. Það getur haft sitt að
segja fyrir þig siðar.
Tviburamerkið: (21. mai-20. júni)
Einhver vinur þinn kemur að likindum að máli
við þig i dag, og þú skalt taka vel eftir þvi, sem
hann hefur að segja. Að likindum gerir hann þér
eitthvert tilboö, að likindum fyrir annarra hönd,
en þú skalt hugsa þig vel um.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Það er eitthvað að fjármálunum hjá þér um
þessar mundir, og þessi dagur er öðrum heppi-
legri til þess að reyna að koma einhverju lagi á
þau, þvi ekki veitir af. Hafðu samband við kunn-
ingja þinn eða vin af þvi tilefni, það reynist bezt.
Ljónið: (23. júlí-23. ágúst)
Það litur út fyrir, að i sambandi við starf þitt,
eða á vinnustað verði þér á einhver skyssa, en þó
mun þér reynast auðvelt að komast hjá þessu, ef
þú sýnir ýtrustu varkárni. 1 kvöld skaltu svara
bréfi, sem þú hefur trassað.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept)
Þetta verður að líkindum mikill annadagur hjá
þér en engu að siður hefurðu tima til að lenda i
einhverju þrasi á vinnustaðnum, og ef þú gætir
þin ekki þvi betur, máttu búast við, að þetta
dragi dilk, fremur óþægilegan, á eftir sér.
Vogin: (23. sept-22. oktj
Það er einhver á vinnustaö þinum, sem virðist
fara I taugarnar á þér, það er alltaf hægt að
komast af við fólk með lipurö, og þú ætlar þó
ekki aö fara að skipta um starf vegna svona
smámuna? Hugsaðu þig að minnsta kosti betur
um.
Sproödrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
Það litur út fyrir, að gamall kunningi setji sinn
svip á að öðru leyti fremur leiðinlegan dag. Ann-
ars ertu störfum hlaðinn i dag og vafasamt að þú
njótir heimsóknar hans til fulls, þvi starfið
máttu ekki svikja.
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.)
Það er hætt við, að þú hafir talað eitthvað af þér
nýlega, en þaðer vandalitið að bæta fyrir það, ef
þú vilt sjálfur. Hitt er annað mál, aö ef þú ætlar
að bæta ósannindum ofan á annað, er hætta á, að
illa fari.
Steingeitin: (22. des.-19. jan).
Þú skalteinbeita þér aðstarfinu I dag. Það getur
verið gott að láta sig dreyma, en raunveruleik-
inn fer þér bezt um þessar mundir, og þessar
grillur, sem þú hefur verið aö gera þér, eru ekki
til frambúðar, þvi miður.
Ford Bronco — VW-sendibílar
Land-Rover — VW-fólksbílar
EKILL
BRAUTARHOLTI 4
Bíla
leigan
Simar 2-83-40 og 3-71-99
KNK.liRUMi 1111
Ósmekklegar nafngiftir
Mér hefur lengi þótt það mikið
smekkleysi af þeim, sem gefa
götum nöfn i Reykjavik, að
þeir skuli seilast til þess aö taka
bæjarnöfn hvarvetna að af land-
inu og setja þau á götur. Þetta er
þarflaust hnupl, en getur valdið
óþægindum og jafnvel sárindum.
Tviliða nafngiftir á götum, þar
sem annar liður nafnsins er sam-
eiginlegur fyrir allar götur
hverfisins, eru ágætar. Kostir
þessa eru að auðvelt er að átta sig
á nýjum götum eftir hverfum
borgarinnar, og aðferðin býður
upp á óþrjótandi möguleika til
fjölbreytni i nafngiftum.
Smekkleysið i þvi að taka nöfn
sveita og sveitabæja er augljóst.
Það er löngu hætt að hafa fyrir
þvi i fréttum og frásögnum að
taka fram, að þessi eða hinn at-
burðurinn hafi gerzt eða að þetta
eða hitt sé i Reykjavik. Það finnst
vist öllum sjálfgefið, ef ekki er
annars getið. Fréttir koma um,
að þetta hafi gerzt i „Fellunum”,
að svo og svo margir hafi i nótt
Dregið hefur verið
i Happdrætti Landssambands slökkviliðs-
manna. — Þessi númer hlutu vinning:
1. vinningur: Nr. 4976 (húsgögn).
2. vinningur: Nr. 1001 (flugfar).
3. vinningur: Nr. 1322 (trygging).
Fjósamaður
Bændaskólinn á Hvanneyri óskar að ráða
vanan fjósamann nú þegar.
Upplýsingar gefur bústjóri.
Bændaskólinn á Hvanneyri.
Árshótíð Farfugla
verður haldin 8. marz i Domus Medica kl.
19.30. Miðar verða seldir á Laufásvegi 41 á
miðvikudags- og fimmtudagskvöld kl.
20-22.
Stjórnin.
1) TUNGSRAM 1>
LJÓSA
PERUR
Kúlu- og kertaperur
eildsölubirgðir fyrirliggjandi
RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS HF.
Ægisgötu 7 — Sími 17975/76
Leiðsögumanna-
nómskeið 1974
verður haldið frá 7. marz til 29. mai n.k.
Kennt verður á mánudögum og
fimmtudögum kl. 20:30 — 22:00 i stofu nr.
201 i Árnagarði við Suðurgötu.
Vigdis Finnbogadóttir hefir skipulagt
námskeiðið. Auk hennar leiðbeina kunnir
fyrirlesarar og leiðsögumenn.
Upplýsingar og umsóknaeyðublöð er að fá
i afgreiðslu Ferðaskrifstofu rikisins,
Gimli við Lækjargötu.
Innritun hefst 1. marz.
gist i „Siðumúla”, og svo nýlega
það, sem tók steininn úr, að stór-
framkvæmdir standi fyrir dyum
við Hólaskóla”.
Hvað þýðir þetta? Var eitthvað
að gerast austur i Fellum á
Fljótsdalshéraði eða var það i
nýja hverfinu efst i Breiðholtinu i
Reykjavik? Var svona gest-
kvæmt hjá bændunum i Slðumúla
i Hvitársiðu I Borgarfirði eða i
ákveðnu húsi við götu i Reykja-
vik, samnefnd þessum borgfirzka
rausnargarði?’ Út yfir tekur þó
frekjulegt smekkleysi að skira
fyrirhugaðan skóla i einu af út-
hverfum höfuðborgarinnar Hóla-
skóla. Hólaskóli er til að hefur
verið lengi, eða siðan 1881 i
núverandi mynd, og er á sama
stað, Hólum i Hjatadal, og hinn
forni Hólaskóli, annar af þeim
tveimurskólum.sem okkur öllum
ættu að vera helgastir i minni.
Forráðamenn Reykjavikur.
Hættið að hnupla bæjarnöfnum
á göturnar, og látið ykkur ekki
henda þá ósvinnu að skira skóla
hér i Reykjavik Hólaskóla.
Jónas Jónsson
Varahlutir
Cortina, Volvo, Wiilys,
Austin Gipsy, Land/Rover,
Opei. Austin Mini, Rambler,
Chcvrolet, Benz, Skoda, Tra-
bant. Moskvitch.
Höfum notaða varahluti i
þessar og flest allar eldri
gerðir bila meðal annars:
Vélar, hásingar og girkassa.
Bílapartasalan
Höfðatúni 10, simi 11397.
1
QPIO
Virka daga
Laugardaga
Kl. 6-10 e.h.
kl. 10-4 e.h.
BILLINN BÍLASAL Þ
HVERFISGÖTU 18-simi 14411
BÍLALEIGA
Car rental
£4*41660&42902
BÍLALEIGA
CARRENTAL
» 21190 21188
i^BÍLALEIGAN
felEYSIR
CAR RENTAL
V24460
í HVERJUM BÍL
PIONEER
ÚTVARP OG STEREO
CASETTUTÆKI