Tíminn - 26.02.1974, Síða 5
Þriðjudagur 26. febrúar 1974.
TÍMINN
5
Blaðaútgdfa í Vestmannaeyjum:
900 EINT. DREIFT f EYJUM
600 FARA UPP Á LAND
FB—Reykjavik. — t Vestmanna-
eyjum er gefið út blað, sem nefn-
ist Dagskrá. Það átti eins árs af-
mæli um það leyti sem gosið hófst
þar, en útgefandinn lét ekki gosið
á sig fá, né heldur það, að prent-
smiðja er ekki lengur i Vest-
mannaeyjum, heldur hóf hann að
gefa út blaðið fjölritað. Kemur
það nú út i 1500 eintökum.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Dagskrár er Hermann Einarsson
kennari. Hann sagði i stuttu við-
tali við Timann, að blaðið hefði
komið út i 1500 hundruð eintökum
fyrir gosið, og væri nú komið i
sama upplag aftur. Það kemur út
einu sinni i viku, og er þvi dreift
ókeypis meðal fólks, en hins veg-
ar þurfa þeir, sem óska eftir að fá
Varadekk í hanskahólfi!
ÁRMÚLA 7 - SÍMI 84450
skyndiviðgerð
Puncture Pilot
ef springur á bílnum
án þess að þurfa að
skipta um hjól.
Þér sprautið Puncture
Pilot, sem er fljótandi
gúmmíupplausn, í hjól-
barðann. Brúsinn er me_
slöngu og tengingu til að
tengja við ventil hjólbarð-
ans. Efnið lokar fyrir lekann
og þér akið áfram.
Tvær brúsastærðir og 2ja brúsa
sett fyrir vörubíla. — Islenskar
notkunarreglur fáanlegar með
hverjum brúsa.
Menntamálaráðuneytið,
21. febrúar 1974.
Norrænir
iðnfræðslustyrkir
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands, Noregs
og Sviþjóðar munu á þessu ári veita nokkra styrki
handa tslendingum til náms við iðnfræðslustofnanir i
þessum löndum.
Er stofnað til styrkveitinga þessara á grundvelli álykt-
unar Norþurlandaráðs frá 1968 um ráðstafanir til að
gera islenskum ungmennum kleift að afla sér sér-
hæfðar starfsmenntunar á Norðurlöndum. Styrkirnir
eru einkum ætlaðir.
1. Þeim sem lokið hafa iðnskólaprófi eða hliðstæöri
starfsmenntun á islandi, en óska að stunda framhalds-
nám í grein sinni,
2. Þeim sem hafa hug á að búa sig undir kennsiu f
iðnskólum, eða iðnskólakennurum, sem leita vilja sér
framhaidsmenntunar.
3. Þeim sem óska aö leggja stund á iöngreinar, sem
ekki eru kenndar á tslandi.
Varðandi fyrsta flokkinn hér aö framan skal tekiö
fram, að bæði koma til greina nokkurra mánaða
námskeið og lengra framhaldsnám fyrir þá, er lokiö
hafa sveinsprófi eöa stundað sérhæfð störf I verk
smiðjuiönaði, svo og nám við listiðnaðarskóla og hlið-
stæðar fræðslustofnanir, hins vegar ekki tæknifræði-
nám. Hugsanlegt er, að í Finnlandi yrði styrkur
veittur til náms I húsagerðarlist, ef ekki bærust
umsóknir til náms á þeim sviðum, sem aö framan
greinir. ... . , .
Styrkir þeir, sem i boði eru, nema sjo þusund
dönskum krónum eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar I
norskum og sænkum krónum, og er þá miðað við styrk
til heils skólaárs. 1 Finnlandi verður styrkfjárhæöin
væntanlega nokkru hærri. Sé styrkur veittur til
skemmri tima, breytist styrkfjárhæðin i hlutfalli við
timalengdina. Til náms i Danmörku eru boðnir fram
fjórir fullir styrkir, þrir I Finnlandi, fimm i Noregi og
jafnmargir i Sviþjóð.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til
menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik,
fyrir 30. mars n.k. 1 umsókn skal m.a. skýrt frá náms-
og starfsferli og tekið fram, hvers konar nám umsækj-
andi hyggst stunda, hversu lengi og við hvaða náms-
stofnun. Fylgja skulu staðfest afrit prófskirteina og
meðmæli. Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
það sent að borga burðargjaldið
sjálfir.
Um þessar mundir fara 900
eintök til Vestmananeyinga
heima fyrir, en 600 til Eyjamanna
uppi á fastalandinu.
Staðlar í
byggingar-
iðnaðinum
— spara mikið fé
við íbúðabyggingar
Húsnæðismálastofnun ríkisins
og Iðnþróunarstofnun Islands
hafa nýlega gert með sér
samning um skipulagt samstarf
um gerð nýrra islenzkra staðla og
um notkun staðla við framkvæmd
á sviði ibúðabygginga. A grund-
velli þessa samstarfs mun Iðn-
þróunarstofnun Islands auka
verulega starf sitt að staðlagerð
til notkunar i byggingariðnaða-
inum og Húsnæðismálastofnun
rikisins mun stuðla að þvi, að
islenzkir staðlar verði i vaxandi
mæli notaðir við hönnun þeirra
ibúðabygginga, sem hún veitir
lán til.
Með aukinni notkun staðla við
hönnun ibúðabygginga er m.a.
stefnt að lækkun byggingar-
kostnaðar. I fyrsta áfanga þessa
samstarfs verður höfuðáherzla
lögð á fjölgun staðla, sem tengdir
eru svokölluðu „mátkeríi”, en
það er stærðarkerfi fyrir
byggingariðnaðinn. Verður stefnt
að þvi, að i þessum áfanga liggi
fyrir staðlar um ákveðin kjörmál
fyrir veggi, tröppur, hurðir og
karma, innréttingar, gluggahluta
og gluggastærðir.
A siðasta ári hafa orðið stór-
felldar hækkanir á ýmsum
byggingavörum og sér enn ekki
fyrir endann á þeim. Er mikil-
vægt að við þeim verði brugðizt
með jakvæðum hætti. Vafalaust
er, að eitt ráðið til varnar er stór-
aukin stöðlun byggingahluta, er
tryggir m.a. miklu hagkvæmari
notkun byggingarefnanna og
stórbætta nýtingu þeirra. Er
þessi þvi vænzt, að byggingar-
iðnaðurinn og allur almenningur
taki vel og veiti brautargengi
þeim islenzku stöðlum, sem
þegar eru fyrirliggjandi og koma
munu út á þessu ári og siðar.
Víðtæk áhrif
gróðureyði-
efna í Víet-
nam
NTB—Washington — Dreifing
gróðurdrepandi eiturefna úr
ameriskum flugvélum i Vietnam i
striðinu veldur skemmdum og
eyðileggingu á gróðri næstu
hundrað árin, segir I skýrslu, sem
Visindaakademian i Washington
hefurgert fyrir bandariska þingið
og varnarmálaráðuneytið.
17 þekktir visindamenn frá
Bandarikjunum, Bretlandi,
Sviþjóð og Suður-VIetnam tóku
þátt i skýrslugerðinni.
Skýrslan verður lögð fyrir
þingið einhvern næstu daga, en
New York Times birti hluta úr
henni i gær. Þar stóð m.a., að
dreifing gróðurdrepandi efna
hefði leitt til barnadauða i þeim
héruðum, sem urðu fyrir barðinu
á eiturdreifingunni. 1 skýrslunni
segir, að þetta hafi haft alvarleg-
ar afleiðingar, einkum fyrir hita-
beltisskóginn i innri héruðum S.-
Vietnams og eyðilagt 36% skóg-
anna meðfram strönd Suður-Viet-
nams.
ÖSKUDAGS-
MERKJASALA
RAUÐAKROSSINS
Á öskudaginn er hinn órlegi
merkjasöludagur Rauða krossins.
Merki verða afhent á neðan
töldum útsölustöðum frá kl. 9,30.
Börnin fá 10% sölulaun og þau
söluhæstu fá sérstök verðlaun.
Vesturbær:
Skrifstofa R.K.I., öldugötu 4
Efnalaug Vesturbæjar, Vesturgötu 53
Melaskólinn, v/Furumel
Skjólakjör, Sörlaskjóli 42
Skerjaver, Einarsnesi 36
Verzlunin Perlon, Dunhaga 20.
Austurbær:
Fatabúðin, Skólavörðustig 21
Verzlunin Barmahlið 8
Björgunartækni, Frakkastig 7.
(Friðrik Brekkan).
Silli og Valdi, Háteigsvegi 2
Sunnukjör, Skaftahlið
Hliðaskóli, Hamrahlið 8-12
Dagheimilið Lyngás, Safamýri 5
Austurbæjarskólinn
Verzl. Skúlaskeið, Skúlagötu 54.
Smáíbúðar og
Fossvogshverfi:
Fossvogsskóli
Breiðagerðisskóli
Alftamýrarskóli
Verzlunin Faldur, Háaleitisbr. 68.
Laugarneshverfi:
Laugarnes-apótek, Kirkjuteig 21
Laugalækjarskóli, v/Sundlaugaveg.
Kleppsholt, Vogar
og Heimar:
Langholtsskóli
Vogaskóli
Þvotahúsið Fönn, Langholtsv. 113.
Árbær:
Árbæjarskóli
Rofabæ 7
Breiðholt:
Breiðholtsskóli, Arnarbakka 1
Fellaskóli — Breiðholti III.
Seltjarnarnes:
Mýrarhúsaskóli
Kópavogur
Karsnesskóli, Skólagerði
Kópavogsskóli, Digranesvegi