Tíminn - 26.02.1974, Side 9

Tíminn - 26.02.1974, Side 9
Þriðjudagur 26. febrúar 1974. TÍMINN 13 Rétt er að láta í ljós ánægju sina yfir velfluttri tónlist, ekld siöur á barnatónleikum en þegar áheyrendurnir eru úr eldri aldursflokkunum. Hvenær skyldi ég sitja þarna uppi á sviðinu og leika með hljómsveitinni, gæti þessi litla alvariega stúlka verið að hugsa. Kannski það verði einhvern tima. Alitaf er gaman að mega taka sjálfur þátt I skemmtuninni, og hér taka börnin lagiö. Það eru tilþrif Istjórninni hjá Páli P. Pálssyni. Hvað er f róðleikur? Ekki alls fyrir löngu var höfundur þessara lina beðinn að skrifa nokkur orð um siðasta hefti Eimreiðarinnar, það er að segja 2.-3. tölublað 1973. Þetta skal nú reynt, þótt sannast sagna sé það ekki neitt sérlega skemmtilegt verk, þvi ranglátt væri að segja.að þetta Eimreið- arhefti sé kjarnmikil lesning, þótt sumt sé þar þokkalega sagt og auðvelt að vera sammála sumum skoðunum, sem þar koma fram. Fremst i heftinu er langt viðtal við Sigurð Lindal prófess- or. Þar kennir margra grasa, þótt meginuppistaða viðtalsins sé um þjóðræknisstefnu al- mennt, og þjóðrækni íslendinga sérstaklega. Margt segir Sigurður Lindal, og sumt skynsamlega. Hann talar mikið um islenzka stjórn- málaflokka og vandar þá ekki alltaf Sjálfstæðisflokknum eða málgögnum hans kveðjurnar. „Þegar þetta er haft i huga, sést, hversu fráleit þau skrif eru, sem hafa birzt i Morgun- blaðinu og Visi um mörg undan- farin ár þess efnis, að islenzk menning standi svo traustum fótum, að ekkert megni að granda henni, og þv.i séu allar áhyggjur út af framtið hennar óþarfar.” (Bls. 100). Og á bls. 110 stendúr: „Málgagn þessa hálftryllta liðs virðist vera Vel- vakandi Morgunblaðsins.” Hér skulu þessi orð prófess- orsins hvorki lofuð né löstuð. Ég þykisthingað til hvorki hafa lát- ið menn njóta né gjalda stjórn- málaskoðana og ætla ekki að byrja á þvi i þessu greinarkorni. Hins er ekki að dyljast, að sumar staðhæfingar Sigurðar Lindals i þessu viðtali eru slikar, að ekki er hægt að neita sér um að minnast á þær, hvort sem mönnum kann að lika betur eöa verr. Á bls. 97 standa meðal annars þessar linur: „Stór hóp- ur þjóðarinnar kallar sig krist- inn, hvað sem liður afstöðu til grundvallarkeppninga kristinnar trúar, jafnvel sýnist orka tvimælis, hvort unnt sé að kalla alla presta þjóðkirkjunnar kristna.” Um þetta skal ég ekki þræta við Sigurð Lindal, fremur en um pólitikina. Ég hef aldrei rannsakað trúarlif islenzkra presta, en kannski hefur Sigurður gert það — ég veit það ekki. Enn skulum við lesa orð prófessors Lindals og fletta nú upp á bls. 95. Þar segir svo, fi> meðal annars: „Stúdentafélag Reykjavikur heldur kannski einna bezt uppi þessari tegund viðtekinnar þjóðernisstefnu. Þar er enn háð sjálfstæðisbar- átta við Dani, eins og ekkert hafi gerzt siðan 1918.” Nú, jæja, þá veit maður það. En ekki er ég viss um, að þeir I Stúdentafélagi Reykjavikur séu þau nátttröll i nútiðinni, sem Sigurður vill vera láta. Þá er loks komið að þeirri staðhæfingu, sem prýðir upphaf þessa mikla viðtals. A bls. 94 má lesa eftirfarandi: „Ef opinber- lega er fylgt hreintungustefnu, ef konur bera þjóðbúning — að ekki sé talað um, að karlmenn smeygi sér i fornmannabúning — ef menn háma i sig islenzkan mat — helst úr trogum — og ef menn kunna einhver kynstur af þeim gömlu kjaftasögum, sem gengur undir nafninu þjóðlegur fróðleikur, er það talið bera vitni um trausta þjóðmenn- ingu.” Hér skulum við nema staðar andartak og ihuga orð prófessorsins. Hvað er „kjaftasaga”? 1 munni flestra landsmanna þýðir oröið nokkurn veginn sama og Gróusaga, slefburður, sem litið mark er takandi á. Og undir öll- um kringumstæðum er kjafta- sagan ósönnuð, nánast slúður. Vitanlega getur kjaftasaga lika stundum verið sönn: „Oftratast kjöftugum satt á munn.” Þjóðsaga getur lika verið sönn eða ósönn eftir atvikum, en hún er allt annars eðlis en það, sem venjulega er nefnt kjafta- saga. Og svo er annað: Þjóðleg- ur fróðleikur er margt fleira en þjóðsögur. Þjóðlegur fróðleikur er meðal annars vitneskja um verktækni, vinnubrögð og dag- legt lif genginna kynslóða. Er slikur fróðleikur „kjafta- sögur”? Til þess nú að vera ekki of ein- strengislegur, skal það viður- kennt, að tilvitnuð ummæli Sigurðar Lindals bera á sér nokkurn blæ gamansemi, sbr. orð hans um að éta mat úr trogum. En flestu gamni fylgir nokkur alvara, og háskóla- prófessorar, sem leggja mikið upp úr lærdómi og virðuleik, eiga að sniða fyndni sinni verð- ugan stakk, en ekki hafa uppi vafasamar alhæfingar án und- antekningar og fyrirvara. Eins og kunnugt er, er Sigurður Lindal mjög á móti hermannasjónvarpinu i Kefla vik. „Ofan á þetta bætist svo, að sjónvarpsstöðin er algerlega ólögleg að islenzkum lögum og sennilega einnig að bandarisk- um,” segir á bls. 103. Vonandi hefur Sigurður hér á réttu að standa, og hafi hann þökk fyrir að láta slik ummæli frá sér fara. Næst á eftir viðtalinu við Sigurð Lindal koma fjórar smásögur eftir Matthias Jó- hannessen. Þær eru allar örstuttar, og um þær sýnist mega nota orð Noregskonungs, þegar hann atti þeim saman, Þjóðólfi og Sneglu-Halla, að heldur væri skáldskapurinn fenglitill, enda yrkisefnin smá. Þá er að geta greinar eftir Þráin Eggertsson hagfræðing. Hún heitir Mannauður. Nafnið segir strax nokkuð um efni hennar, en kaflafyrirsagnir veita frekari innsýn: „Áhrif skólagöngu á tekjur.” „Fjárfesting og menntun vinnu aflsins.” „Mannaflaáætlanir.” Hér er sem sagt á ferðinni sigilt vandamál og umhugsunarefni manna i velferðarþjóðfélögum okkar tima. — Aður fyrr var menntunin hamingja, sem nálgaðist að vera æðst jarðneksra gæða. Nú er hagnýtt gildi hennar „hvort tveggja i senn, orsök og afleiðing hag- vaxtar,” — þessarar sálarlausu ófreskju aldarinnar. Þessu næst birtir Eimreiðin bréf Alexanders Solsjenitsyns til Pimens kirkjuföður i Sovjet. Bréfið er ritað „á stóruföstu i krossbænaviku 1972.” 1 skýring- um segir, að i rússnesku rétt- trúnaðarkirkjunni sé sex vikna föstutimi næst á undan kyrru- viku og páskum kailaður stóra- fasta. Af bréfinu má ráða, að Solsjenitsyn sé sanntrúaður kristinn maður, sem leggur mikið upp úr brauði og vini heilagrar kvöldmáltiðar, og hann er, svo sem alkunnugt er, harla ósáttur við stjórnendur lands sins, svo i trúarefnum sem stjórnmálum. — En hinn islenzki búningur bréfs hans hefði að skaðlausu mátt vera betri, bæði hvað stil og orðaval snertir. Læsilegasti hluti þessa Eim- reiðarheftis er grein Hjörleifs Sigurðssonar um Gunnlaug Scheving. Þetta er einkar viðfelldin grein, prýdd myndum Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.