Tíminn - 26.02.1974, Síða 15
Þriðjudagur 26. febrúar 1974.
TÍMINN
19
GULLLEITIN
Norsk gamansaga eftir
Frederik Kittelsen.
Sigriður Ingimarsdóttir
þýddi.
ekki að beita neinni kúg-
un”, sagði Eðvarð fljót-
mæltur. „Qestir minir
hafa fullt athafnafrelsi
og ég treysti þvi, að þeir
rjúfi ekki lög gistivinátt-
unnar!” Hann gaf þeim
merki um að standa upp
frá borðum. Drengirnir
gengu hikandi út. Þeir
fóru upp á loft og sátu
þar lengi i alvarlegum
samræðum. — Þegar
þeir laumuðust niður i
garðinn eftir nokkra
stund heyrðu þeir pró-
fastinn og frænda hlæja
dátt i dagstofunni.
Áður en prófasturinn
fór frá Tröllahaugi,
þakkaði hann drengjun-
um hjartanlega greið-
ann og bauð þeim til
veizlu hjá sér næsta
sunnudág. Drengirnir
þökkuðu boðið feimnis-
lega og urðu fegnir þeg-
ar hann fór.
Þá langaði til þess að
segja Eðvarði frænda
allt af létta, en þeir
þorðu það ekki vegna
þess að þeir héldu, að
hann myndi draga dár
að þeim fyrir vikið. Bezt
var að biða og ganga úr
skugga um, hvort ,,gull-
ið” væri ósvikið.
Daginn eftir fór Jens
til bæjarins með gull-
sekkinn. Hann ætlaði að
hafa upp á sérfræðingi
og vita hvað hann vildi
greiða fyrir gullið.
Hann kom heim seint
um kvöldið, tómhentur.
,,Nú, hvað sagði
hann?” hrópuðu strák-
arnir i kór.
,,Hann sagði, að við
værum heimskingjar.
Og það get ég sagt ykk-
1B—jj
BI
ffl
Hafnarf jörður
Framsóknarfélögin i Hafnarfirði, Garða- og Bessastaðahreppi
halda spilakvöld i húsakynnum Iðnaðarmannafélags Hafnar-
fjarðar, að Linnetsstig 3, miðvikudagskvöldið 27. febrúar kl.
20.30. Góð verðlaun. Eysteinn Jónsson, forseti sameinaðs
alþingis, flytur ávarp. Stjórnirnar.
Framsóknarmenn
Kjördæmisþing Framsóknarmanna i Norðurlandskjördæmi
eystra fer fram að Hótel Varðborg , Akureyri, laugardaginn 16.
marz. Þingið hefst kl. 10 fyrir hádegi. Fulltrúar eru beðnir að
mæta stundvislega. Stjórnin.
Skrifstofa FUF Reykjavík
Skrifstofa FUF i Reykjavik að Hringbraut 30 er opin þriðjudaga ■
frá kl. 13 til 17 og miðvikudaga og fimmtudaga frá 9 til 12. Hafið
samband við skrifstofuna. FUF.
Aðalfundur Framsóknarfélags
Reykjavíkur
Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavikur verður haldinn að
Hótel Esju mánudaginn 4. marz n.k. og hefst fundurinn kl. 20.30.
Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf.
Tillögur stjórnar um fulltrúa félagsins — aðalmenn og vara-
menn — i Fulltrúaráð framsóknarfélaganna i Reykjavik, liggja
frammi á skrifstofu félagsins að Hringbraut 30. Viðbótartillögur
ber að leggja fram á sama stað eigi siðar en tveim sólarhringum
fyrir fundinn.
Stjórnin
80 l>USUND LITR
AR I VINNSLU
— ef verkfall leysist fljótt
O Fróðleikur
eftir hinn látna málara.
Næst kemur grein, sem heitir
Um atvinnulýðræði, og er eftir
Árdisi Þórðardóttur. Þetta er
stutt grein og ekki vel skrifuð.
Þar stendur meðal annars þessi
setning: ,,Siðan á fyrri hluta
þessarar aldar hófst þróun bæj-
anna.” Setningin er sjálfstæð,
punktur á undan henni og eftir
— en hún er nú lika lakasta
dæmið i greininni.
Á eftir grein Árdisar kemur
stutt og hnyttin saga úr Þjóð-
sögum Jóns Arnasonar. Hún
lifgar upp á umhverfi sitt og er
til verulegra bóta.
Að lokum er i heftinu fyrri
hluti þýddrar greinar eftir
Herbert Reed. Nefnist hún
Heimspeki stjórnleysis. Greinin
er þrjátiu og þriggja ára að
aldri og sitthvað hefur breytzt i
henni veröld á þeim tima. Þá
staðreynd verða menn að hafa i
huga, ef þeir vilja lesa þessa
grein sér að einhverju gagni.
Þá hefur verið getið — þótt i
litlu sé — efnis þessa
Eimreiðarheftis. Ótalinn er
aðeins stuttur formáli Hannesar
Gissurarsonar. Að lokum má
geta þess, að ritið er mjög
þokkalega úr garði gert, pappir-
inn er góður og prentið
sömuleiðis, þótt málfærið mætti
viða vera betra. Á forsiðu er
mynd af Sigurði Lindal á sjón-
varpsskjá, og var það ekki illa
til fundið. En það eintak, sem
undirritaður fékk i hendur, var
svo illa heft (limt), að arkirnar
losnuðu upp úr kilinum, ein af
annarri, um leið og þær voru
opnaðar til fulls. Það er slæmur
galli, ef þannig er ástatt um allt
upplag ritsins — en það er að
sjálfsögðu engan veginn vist. —
VS.
o 1%
félaga úr jöfnunarsjóði gangi upp
i vanskilin.
Ingólfur Jónsson, Gylfi Þ.
Gislason, og Bjarni Guðnason
taka fram, að þeir telja, að inn-
flutningstollar og söluskattar af
Viðlagasjóðshúsunum eigi að
ganga til uppbyggingar i Vest-
mannnaeyjum jafnóðum og hús-
unum er komið i verð, en þessir
tollar hafa ekki verið innheimtir
af þessum húsum, en gert ráð fyr-
ir, að þeir verði greiddir jafnóð-
um og húsin verða seld, þ.e.a.s.
jafnóðum og einhverjir aðrir eiga
að njóta þeirra heldur en þeir,
sem áttu að fá i þeim húsnæði
vegna áfallsins.
Hins vegar taka 3 af flutnings-
mönnum þeir, Eysteinn Jónsson,
Gils Guðmundsson, og Halldór S.
Magnússon, fram, að upplýst sé,
að rikisstjórnin hefur, samkvæmt
heimild i 8. gr. 32. lið gildandi
fjárlaga, ætlað þetta fé, þ.e.a.s.
það, sem kæmi inn i Viðlagasjóð
jafnóðum og húsin eru seld frá
honum i hafnarframkvæmdir,
sem teknar voru ákvarðanir um i
beinu sambandi við náttúruham-
farirnar i Vestmannaeyjum.
En þá er þess að geta, að þótt
skoðanamunur komi þarna fram
varðandi þessa fjármuni, þá er
samkomulag um að blanda þeim
skoðanamun ekkert inn i af-
greiðslu þessa máls.
Auk Eysteins Jónssonar töluðu
þeir Ingólfur Jónsson, Gylfi
Gislason, og ólafur Jóhannesson
við 1. umræðu málsins. Færði for-
sætisráðherra þakkir til þeirra
sem stæðu að flutningi málsins,
og fagnaði þeirri samstöðu allra
flokka, sem um málið hefði
myndazt.
Garðar Sigurðsson sagði, að
með frumvarpinu væri annað
söluskattsstig Viðlagasjóðs skor-
ið niður. Lýsti hann sig fylgjandi
þvi, að i stað 1% Viðlagagjalds,
eins og. frumvarpið ráðgerði,
kæmu 2%, enda væri það tillaga
stjórnar Viðlagasjóðs. Taldi
hann. að vegna samkomulags við
stjórnarandstöðuna hefði tekju-
stofninn verið skorinn niður um
helming.
Ingólfur Jónsson sagði, að
Garðar væri aö reyna að sundra
þvi samstarfi, sem náðst hefði um
afgreiðslu málsins, en samstaða
væri um það á Alþingi að áfla Við-
lagasjóði þess fjár i framtiðinni,
sem með þyrfti. Með frumvarp-
inu væru Viðlagasjóði tryggðar
1200 milljónir i viðbótartekjur.
EKKI
MIKLAR
VEGA
SKEAAMD
IR
Klp-Reykjavik. I rigningunum nú
um helgina urðu talsverðar vega-
skemmdir viðsvegar á Suður-
landsundirlendinu, og einnig i
Borgarfirði.
Að sögn Hjörleifs ólafssonar
vegaeftirlitsmanns fór t.d. vegur-
inn yfir Skeiðarársand i sundur á
einum stað, og var unnið að við-
gerð hans i gær.
Þá sagði hann, að viða væru
komin varasöm skörð i vega-
kantana, einkum i Arnessýslu.
Væri verið að kanna það betur,
svo og aðrar skemmdir, en engin
tilkynning væri enn komin um
verulegt tjón fyrir utan þetta á
Skeiðarársandi.
Tveir fá vís-
indastyrki
NEFND sú, er sér um úthlutun
styrkja til visindarannsókna á
vegum Atlantshafsbandalagsins,
hefur samþykkt að veita tveimur
islenzkum visindamönnum. þeim
Sveinbirni Björnssyni eðlis-
fræðingi og Guðmundi Eggerts-
syni erfðafræðingi, styrki til sér-
stakra yerkefna.
Styrkurinn til Sveinbjörns
Björnssonar nemur 10.000 dollur-
um. Er það framhaldsstyrkur til
framkvæmdár 4ára áætlunar um
að koma upp neti af skjálfta-
mælingastöðvum á Suðurla/di,
við strönd Norðurlands, svo og á
helztu gosbeltum landsins og á
'miðhálendinu.
Guðmundur Eggertsson hlýtur
styrk að upphæð 9.740 dollarar til
erfða- og lifefnalegra rannsókna
á myndun eggjahvituefna i
bakterium.
álykta að engin mengun liafi átt
sér stað.
Lýkur þar með skýrslu Geirs
Arnesen, en þess má geta, að
hann er heimsþekktur á sinu sviði
fyrir rannsóknir sinar og
uppgötvanir varðandi söltun fisks
og meðferð salts. Hann mun hafa
uppgötvað fyrstur manna, að
salt, sem komizt hefur i snertingu
við kopar, veldur þvi að fiskurinn,
sem er saltaöur með þvi verður
gulur og þ.a.l. slæm söluvara.
Gsal-Iteykjavik. Hjá mjólkur-
samlagi Kaupfílags Borg-
firðinga iiggur öll mjólkurviimsla
niðri, sakir verkfalla mjólkur-
fræðinga. Frá föstudagskvöldi i
siðustu viku hefur mjólk ckki
verið send frá sainlaginu. Að
sögn Sigurðar Guðbrandssonar
m jólkursa nt lagss tjóra, hafði
mjólk verið sótt til bænda i gær,
og fyrirhugað er að sækja mjólk
einnig i dag.
Allt svæði samlagsins er
tankvætt, og standa tankbilar
fullir af mjólk fyrir utan
miólkurstööina og biða þess að
verkíallið leysist. Sagði Sigurður,
að hátt i 80 þús. litrar yrðu i bilun-
um, þegar búið væri að sækja
mjólkina i dag.
— Ef nýta á þessa mjólk til
dyrkkjar, þolir hún ekki meira en
tveggja sólarhringa bið, en eitt-
hvað lengur, ef vinna á úr henni
afurðir, eins og t.d. smjör og ost,
sagði Sigurður.
Ef verkfallið leysist fljótlega,
fara þessir 80 þús. 1. beint i
vinnslu, en bilarnir sækja þá nýja
mjólk til drykkjar. Að öðrum
kosti verður að fleygja mjólkinni.
Geir Ar.nesen, efnaverkfræðingur viö tæki það sem hann hefur notað við rannsóknirnar. — Timamynu:
Gunnar.