Tíminn - 13.08.1974, Blaðsíða 3

Tíminn - 13.08.1974, Blaðsíða 3
TÍMINN 3 Framkvæmdum viö væntanlegar stórbyggingar Sambandsins við Sundaböfn miðar vel áfram. — Tfma- mynd Gunnar. Birgðastöð Sambands- víð Sundahöfn ins — miðar vel áfram Framkvæmdum við væntanleg- ar stórbyggingar Sambandsins við Elliðavog i Reykjavik hefur miðað eftir áætiun, og er nú svo komið, að fyrsti hluti þeirra er um það bil að komast i notkun. Það er skipadeild, sem tekur i notkun vörugeymslu i kjallara undir hluta hinnar væntanlegu birgðastöðvar og á geymslusvæði utan hennar. Að sögn Hjartar Hjartar, fram- kvæmdastjóra skipadeildar hefur nú þegar verið tekin i notkun um 500 fermetra tengiálma i bygg- ingunni, og verður það húsnæði notað sem vörugeymsla. Þá verður einnig tekin i notkun á næstunni i þremur áföngum 4.000 fermetra vörugeymsla i kjallara birgðastöðvarinnar, og sagði Hjörtur, að gert væri ráð fyrir að hún yrði komin i fulla notkun um áramótin. Lika væri verið að ljúka við að ganga frá 7.500 fer- metra útigeymslusvæði, sem deildin myndi taka i notkun á næstunni. Hjörtur gat þess, að þetta breytti stórlega aðstöðu skipa- deildar i sambandi við vöru- gevmslur. Deildin hefði undan- farið haft geymslu á Reykjavfkur flugvelli, þaðan sem hún þyrfti að vikja i þessum mánuði, og auk þess hefði hún haft vörugeymslu i örfirisey, sem hún þyrfti þó alltaf að rýma, þegar loðnu- eða sildarvertið stæði yfir. Auk þess er, eins og áður hefur verið greint frá, fyrirhugað að reisa þarna á svæðinu stóran vöruskála fyrir skipadeildina. Sú framkvæmd er þó ekki á dagskrá fyrr en lokið hefur verið byggingu birgðarstöðvarinnar. m bm i Veiðimál á vestanverðu Norðurlandi t Degi 8. þ.m. er vakin athygli á grein eftir Einar Hannesson, sem nýlega birtist i Frey og fjallar um veiðimái á vestanverðu Norður- landi eða i Skagafjaröarsýslu. Húnavatnssýslum og Strandasýslu. Þar segir, að um 60 silungs- og göngusilungsár séu á þessu svæði og 226 stöðuvötn, yfir 300 metra á breidd. Hann lýsir nánar ám, vötnum, vatnsmagni og vatnasvæðum, og telur, að heildartekjur af veiði í þessum vötnum og ám sé um 20 milljónir króna á ári, en að þessi hlunnindi ættu að geta gefið 36 milljónir. Beina og óbeina verðmætamyndun þessara hlunninda telur greinarhöfundur geta orðið allt að 100 milljónum króna. Til þess að ná þvi marki þarf að gera fiskvegi um hindranir ánna, miðla vatni, sleppa gönguseiðum i árnar, bæði laxa og silunga, og setja silungaseiði i fisklaus vötn. i þessari grein, sem hér er aðeins vikið að, eru upplýsingar og ábendingar, sem vlðar eiga við en á nefnu svæði, og er hún þvi hin fróðlegasta og uppörvandi lestur, varðandi þessa hjálpargrein landbúnaðarins, sem að visu er og hefur verið mikils metin, en býr yfir nær óþrjótandi möguleikum. Skörin færist upp í bekkinn í degi 8 þ.m. birtist eftirfarandi klausa i þættinum Smátt og stórt: „Eitt af slagorðum manna, sem á siðustu árum hafa verið að bjástra við myndun nýrra flokka, er „nýtt stjórnmálaafl I islenzkum stjórnmálum”, eins og þeir orða það. Og þetta „nýja stjórnmálaafl” er skreytt með sameiningarhjalinu, sem allir kannast við. Menn, sem kljúfa flokka og stofna nýja segjast, alltaf vera að sameina fólkið! 1 málgangi Framsóknarmanna á Austurlandi eru þessir nýju menn nefndir „umhlaupandi strákar”. Hvort sem það er nú við hæfi, er svo mikið vist, aö fólk i Austur- landskjördæmi hafnaði þcim. En það er viðar en á tslandi, sem ný stjórnmálasamtök eru stofn- uð, þvi viða I Evrópu hafa nýir flokkar sett svip á stjórnmála- baráttuna isiðustu misserum, og er nærtækast að nefna Danmörku i þvi sambandi. En sunnar I álfunni færist skörin upp i bekkinn, að þvi er mögum þykir, þvi að á ítaliu hinni sólriku og fögru hafa at- vinnugleðikonur.er áður höfðu sin stéttarfélög, stofnað nýjan stiórn- málaflokk.og þykir ekki ósennilegt, að innan tiðar muni einhverjir fulltrúar þeirra þurfa að sinna löggjafarstörfum þar I landi” Þ.Þ. „íslenzk myndlist í 1100 ár" framlengd AKVEÐIÐ hefur verið að framlengja opnunartima sýningarinnar islenzk myndlist i 1100 ár að Kjar- valsstöðum til 25. ágúst næstkomandi, en sýningunni átti að ljúka þann 15. ágúst. . Mjög mikil aðsókn liefur verið að undanförnu og hafa nú alls um 25 þúsund gestir komið á sýninguna. S.l. sunnudag vóru gestir um 2 þúsund talsins. Með hliðsjón af þessu og fjölda áskorana, ákvað fram- kvæmdastjórnin að fram- lengja sýningartimann til 25. ágúst, eins og áður segir. Nýjar samvinnuverzl- anir víða um land A SÍÐUSTU mánuðum hafa all- margar nýjar samvinnuverzlanir verið opnaðar hjá kaupfélögunum viðs vegar um landið. Ýmsar þeirra eru i beinu sambandi við vaxandi umferð ferðamanna eftir opnun hringvegarins, en öðrum er ætlað að bæta þjónustuna við heimamenn. Við greinum hér á eftir frá þeim verzlunum, sem okkur hafa nýverið borizt fregnir af. Brúarland Kaupfélag Kjalarnesþings á Brúarlandi opnaði nýja verzlun sina 20. júni. Hún er i nýbyggðu verzlunarhúsi við Vesturlands- veginn, og er stærð þess 455 fer- metrar, þar af sölurými verzlun- ar 190 fermetrar og veitingasölu 40 fermetrar. Auk þess eru skrif- stofur félagsins i húsinu. nrfflTl If I iwí D i í Vatnasvæði Breiðdalsár. Sigurður Lárusson hafði sam- band við Veiðihornið á mánu- daginn, og sagði að veiðin væri nokkru minni heldur en i fyrra. en nú munu um sjötiu laxar vera komnir á land. Siðastliðið veiðitimabil i f yrrasumar komu 190 laxar á land i allt. Þeir laxar, sem veiðzt hafa i sumar, eru nokk- uð vænir, en sá þyngsti sem enn hefur fengizt, er 16 pund. Óvenjumikið hefur veriö selt af leyfum i Breiðdalsá I sumar, og miklu meira heldur en siöastliðið ár. Stangveiði- félag Reykjavikur hefur ána á leigu og hefur undanfarin sumur sleppt nokkru magni af seiðum i ána, og er það nú I ár sem árangurinn er að koma I ljós. Nóg mun um lax i ánni, og I siðustu viku ringdi I tvo daga, þannig að hún varð vatnsmikil og er enn. Norðurá. Haraldur Helgason, mat- reiðslumaður i veiðihúsinu, sagði að heldur væri nú veiðin daufleg. Ain er mjög vatns- litil, og þó að nóg sé af laxi i henni, þá liggur hann bara og tekur ekki, sökum þess hve vatnið er heitt og einnig er áin mjög vatnslítil. Ekki gat Haraldur gefið okkur upp heildartölu þeirra laxa, sem komið hafa á land, en siðast- liðna þrjá daga hefur fimmtán til tuttugu löxum verið landað. Meðalþyngd þeirra er tiu til tólf pund. Steikjandi hiti hefur verið við Norðurá undanfarið og sannkallað Mallorka-veð- ur. Veiðimennirnir eru brúnir og sællegir, og llta út eins og þeir séu að koma frá sólar- ströndum suðurlanda. Það er sama sagan að segja frá lax- veiðimönnum við Norðurár, eins og á svo mörgum stöðum annarsstaöar á landinu. að það sem þeir þrá mest er góð rigningardemba, sem mætti gjarnan standa I nokkra daga, þvi áin er svo vatnslitil. Langá. Ragnhildur Jóhannsdóttir sagði, að heldur hefði veiöin verið daufleg nú upp á siðkast- ið, en hún hefur annars verið ágæt I sumar, en Langá hefur haft vatnsmiðlun, og er vatni veitt úr vatni upp á fjalli, en nú er það orðið alveg þurrt. Aðeins er leyfilegt að veiða á flugu i Langá og eru nú Blue Charm og Hairy Mary einna vinsælastar. Fimm hundruð og fimmtiu laxar voru komnir á land á sunnudagskvöldið, og mun það vera svipuð veiði og á sama tima siðastliðið ár. Meðalþyngd laxanna er um átta pund, en sá þyngsti sem fengizt hefur reyndist átján og hálft pund. Þorlákshöfn Hinn 18. juli opnaði Kaupfélag Arnesinga að nýju verzlun sina i Þorlákshöfn, en gagngerðar breytingar höfðu þá verið gerðar á henni eftir brunaskemmdir, sem þar urðu i febrúar s.l. Stærð hússins er 390 fermetrar, og þar af er sölurými 156 fermetrar. Er það nokkru meira en var þar áöur, þvi að veitingasala þar hefur nú verið lögð niður. Vik i Mýrdal og Kirkjubæjarklaustur Þá er Kaupfélag Skaftfellinga nýbúið að opna ferðamannaverzl- un með hreinlætisaðstöðu og bensinsölu I nýbyggðu 350 fer- metra húsi sinu við Vik i Mýrdal, sem nefnist Vikurskáli. Húsinu er hins vegar enn ekki lokið, og er fyrirhugað að opna þar veitinga- sölu næsta vetur. Á Kirkjubæjarklaustri, þar sem félagið rekur útibú, er auk þess i undirbúningi bygging nýs verzl- unarhúss með veitingasölu, þar sem auk þess verður rekið útibú frá Sam vinnubankanum og upplýsingaþjónusta fyrir ferða- menn. Standa báðar þessar fram- kvæmdir i sambandi við opnun nýja hringvegarins, en ferða- mannastraumur um þessar slóðir hefur verið mjög mikill i sumar. Skaftafell í öræfum Þá var fyrir skömmu opnað til bráðabirgða útibú Kaupfélags Austur-Skaftfellinga i Skaftafelli i öræfum, sem sérstaklega er ætlað að þjóna auknum ferða- mannastraumi eftir nýja vegin- um sunnan Vatnajökuls. Húsnæð- ið er þó ekki enn fullgert, en vænt- anlega verður þvi lokið næsta sumar. Egilsstaðir Þá opnaði Kaupfélag Héraðs- búa verzlun sina i nýju húsnæði hinn 26. april, eins og frá hefur verið skýrt i fjölmiðlum. Húsið er 810 fermetrar, og þar af sölurými 720 fermetrar. —- Auk þess lét félagið nýlega gera nokkrar breytingar á söluskála sinum á Egilsstöðum, og var veitinga- salan þar stækkúð. Ásbyrgi Seint i júli opnaði Kaupfélag Norður-Þingeyinga á Kópaskeri nýtt útibú við Ásbyrgi i Keldu- hverfi, þar sem rekin er verzlun, veitingastofa og bensinsala. Húsið er samtals 280 fermetrar, og þar af sölurými 85 fermetrar og veitingastofa rúmir 40 fer- metrar. Jafnframt var verzlun félagsins i Keldunesi lögð niður. Varmahlið Þá er skammt siðan verzlun og veitingasala Kaupfélags Skag- firöinga i Varmahlið var stækkuð. Á efri hæð hússins eru nú auk þess ibúðarherbergi fyrir starfsfólk með sameiginlegu eldhúsi og setustofu. Hvammstangi Loks er að geta um nýja bygginga vöruverzlun, sem Kaupfélag Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga opnaði seint i mai. Hún er i 110 fermetra húsnæði, og þar eru seldar hvers kyns byggingarvörur og hreinlætis- tæki, en auk þess rafmagns- heimilistæki, verkfæri, viðleguút- búnaður og vörur fyrir veiði- menn. 82% sölu- aukning véla- deildar HEILDARSALA véladeildar Sambandsins fyrstu sex mánuði þessa árs nam 688 milljónum króna á móti 378 milljónum á sama timabili i fyrra, sem er aukning um 82,3%. Að sögn Jóns Þórs Jóhannssonar frkvstj. er aukningin nokkuð jöfn i öll- um undirdeildum og útlit fyrir að hún haldist að veru- legu leyti þaö sem eftir er ársins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.