Tíminn - 13.08.1974, Side 15

Tíminn - 13.08.1974, Side 15
Þriöjudagur 13. ágúst 1974. TÍMINN 15 '4 Framhaldssaga '* ;!V Andri gamli er vissu i eldhús fram. Kom nú inn fyrsti matsveinninn með fat á lófa. Þegar Andri sá hann, sagði hann eins og við sjálfan sig: — Þar kemur sá fyrsti. Sveinninn heyrði þetta og sneri út aftur. Þegar hann kom til félaga sinna, sagði hann: — Hingað fer ég ekki aftur. Næst dyrunum situr öldungur einn, forn- eskjulegur á svip. Stendur mér ótti af hon- um. Hann sagði, er ég kom inn: — Þar kemur sá fyrsti. Varð nú annar mat- sveinnað fara. Og þegar hann gekk i salinn, taut- aði Andri: — Þetta er annar. Matsveininum brá, og sneri hann út. Hann sór og sárt við lagði, að hann skyldi aldrei fram- ar inn i salinn koma, meðan þessir gestir væru. Lagði nú þriðji matsveinninn af stað. Hann komst alla leið og bar fram matinn. Glöggt heyrði hann Andra tauta fvrir munni sér: — Þetta er sá þriðji. Matsveinninn hnippti i Andra, þegar hann gekk fram hjá honum. Andri skildi þetta svo, að mat- sveinninn vildi finna sig, og laumaðist út með sveininum. Þegar fram i eldhúsið kom, krupu matsvein- arnir grátandi að knjám Andra gamla. Hann skildi ekki háttsemi þeirra. Stóð hann undr- andi um stund og vænti, að þetta skýrðist fyrir sér. Loks stóð upp einn matsveinninn og þerraði tár sin. Hann sagði: — Ég veit þér er kunnugt hver stolið hefur festi ráðherradótturinnar. FYRIR BÖRN Leikfélag Reykjavíkur: LENGSTA LEIKÁR í SÖGU IÐNÓ GB—Reykjavík — A þjóöhátiö Reykvikinga lauk leikári Leik- félags Reykjavíkur, en þetta er i fyrsta skipti sem leikhúsiö i Iðnó hefur verið opið sumarlangt. Samkvæmt gamalli hefö hafa leikhúsin ekki starfað frain yfir Jónsmessu, en breyting var gerð á þessu þjóðhátiðarári. Sumarsýningar Leikfélags Reykjavikur hafa jafnan verið fyrir fullu húsi, svo ekki verður annað séð, en að fólk hafi svipað- an leikhúsáhuga i sumarbliðunni og i skammdeginu. Frumsýnd voru sjö ný verk hjá Leikfélaginu á liðnu leikári og er það tveim fleira en áður hefur verið á einu leikári. Auk þess var fjórum sinnum bryddað upp á nýju efni i Siðdegisstundum leikhússins, og flutt var sérstök dagskrá með brúðuleik i tilefni af Listahátiðinni siðastliðið vor. Sýningar i Iðnó urðu 252 á liðnu leikári og leikhúsgestir rúmlega 48 þúsund. Leikfélagið tekur til starfa á ný i byrjun október, eða mánuði seinna en venja er, vegna þess hve umliðið leikár teygðist fram á sumarið. I haust verða tekin til sýningafjögur verk frá fyrra leikári, þ.e. Selurinn hefur mannsaugu eftir Birgi Sigurðs- son, revian Islendingaspjöll eftir Jónatan Rollingstón Geirfugl, Kertalóg Jökuls Jakobssonar og Fló á skinni. Fyrsta nýja verkefni Leik- félagsins á næsta leikári verður sjónleikurinn Meðgöngutimi eftir pólska skáldið Slawomir Mrozek. Leikstjóri er Hrafn Gunnlaugs- son, sem er nýkominn heim frá námi i leikhúsfræðum. Æfingar eru þegar hafnar og er frum- sýning fyrirhuguð i októberlok. Nýr skuttogari til Ólafsfjarðar GB—Reykjavik. — Veður hefur verið með eindæmum gott á Ólafsfirði i sumar, sagði Björn Stefánsson skólastjóri á ólafsfirði i samtali við blaðið. Þrisvar sinn- um hafa komið stór-rigningar en hafa ekki staðið lengi. Ólafur Bekkur kom inn með 140 tonn i siðastliðinni viku, en Sigur- björg er ekki við veiðar eins og er, það er verið að lagfæra og mála skipið. Nýr skuttogari er væntanlegur til Ólafsfjarðar, sennilega um næstu mánaðamót. bað er út- gerðarfélagið Sæberg sem er að láta byggja togarann i Frakk- landi. Atti að afhenda hann seint á siðastliðnu ári, en þvi hefur ver- ið frestað aftur og aftur, en nú er hann sem sagt væntanlegur fljót- lega i fiskiflota ólafsfirðinga. Mun togarinn eiga að heita Sæ- berg. Atvinna er mikil i Ólafsfirði, og þá einna mest við húsbyggingar, en mörg ibúðarhús eru nú i byggingu þar. Það litur vel út með berja- sprettu i nágrenni ólafsfjarðar, sagði Björn. Ekki er þó mikið enn, enda er það ekki fyrr en seinni hlutann i ágúst, þegar þau verða fullþroskuð, að berjatinsla hefst að ráði. Bláber hafa fundizt, og krækiberin eru orðin nokkuð vel þroskuð. Aðalberjaland Ólafs- firðinga er i Skeggjabrekkudal, og við Stifluhóla, milli Stiflunnar og Fljóta. pÍVÆR^ÍÐUR^TVÆR ÚTGÁFUR FRÉTTAR L llússneskur Skrifstofustjóri stjóri í beimsóto sovézka utanrík- ^SSS^sJ^isráðiineytisins H!Sri*SS%hér á landi pans hing,tr,r:kisráðuneytiö eK* jndANFARNA daga hefur íslenzka u a . .ök erindi ra vajjzt j,ér 5 landi Juri prstök MORGUNBLAÐIÐ hefur haft mikið við sovézkan ráðuneytis- stjóra, sem hingað kom á dögun- um. Um hann birti hað tvær fréttaklausurálaugardaginn var, en þvi miður rákust þær Jálitið á. 1 annarri þeirra var sérstak- lega tekið fram, að Morgun- blaðinu hefði ekki tekizt að fá upplýsingar um erindi hans, ,,og vissi islenzka utanrikisráðuneytið ekki um nein sérstök erindi ráðuneytisstjórans”. í hinni var það haft eftir Pétri Thorsteinsson ráðuneytisstjóra, að koma mannsins væri liður i ferð hans um öll Norðurlönd, þar sem hann kynnti afstöðu Sovét- rikjanna til ýmissa mála á þingi S.Þ. „Pétur sagði, að slik viðkoma sovézks embættismanns mætti heita árviss.” Það virðist vera orðin oí löng leið á milii baksiðu Morgun- blaðsins og þriðju siðu! skrifstofustjóri iðuneytis Sovétrfkj- ir hann átt viðræður :ka ráðamenn um ál. Mbl. við Pétur Thor- ráðuneytisstjóra í iðuneytinu, kom koma Tcherniakov lands er liður í ferð öll Norðurlönd, þar kynnir ráðamönnum inda afstöðu Sovét- il ýmissa málaflokka i þjóðanna. Pétur lík viðkoma sovézks lanns mætti heita ár- ínti í þvf sambandi á iðstoðarutanríkisráð- itríkjanna hingað til rra í sömu erinda- | ÁuglýsicT | Skagaf jörður Héraðsmót framsóknarmanna i Skagafirði verður haldið i Mið- garði laugardaginn 24. ágúst kl. 9 s.d. Avörp flytja Ólafur Jó- hannesson forsætisráðherra og Halldór Ásgrimsson alþingis- maður. Guðmundur Jónsson óperusöngvari syngur. Leikþátt flytja leikararnir Geirlaug Þorvaldsdóttir og Jón Júliusson. Hljóm- sveitin GAUTAR leikur fyrir dansi. Nefndin. Héraðsmót Framsóknarmanna Héraðsmót framsóknarmanna verður haldið aö Breiðabliki föstudaginn 16. ágúst kl. 9 s.d. Nánar i blaðinu á morgun. Framsóknarfélögin á Snæfellsnesi. Skyndihappdrætti Framsóknarflokksins 1974 VINNINGASKRÁ v. 1. Hraðbátur með utanborðsvél: Nr. 32600. 2. Húsvagn: Nr. 18532. 3. Vatnabátur með utanborðsvél: Nr. 22316. 4. Utanlandsferð: Nr. 652. 5. Kvikmyndavél: Nr. 26169. 6. Tjald og viðleguútb. frá Sportval: Nr. 23999. 7. -15. Myndavélar: Nr. 9396, 10509, 16098, 21306, 22781, 23118, 24587, 25260 og 26002. 16.-25. Vörur frá Sportval f. 10 þús: Nr. 2662, 5656, 13717, 14386, 16324, 17268, 22334, 22349, 31324 og 32713. 26.-50. Vörur frá Sportval f. 5 þús.: Nr. 2394, 2814, 4776, 5783, 6999, 9909, 10566, 11766, 14210, 20039, 21406, 22889, 22899, 24931, 25662, 25979, 26923, 28819, 31994, 32602, 35452, 36799, 37027, 37028, 39688. Útdráttur fór fram 5. júli 1974. Vinningaskrá HÍ Mánudaginn 12. ágúst var dreg- ið i 8. flokki Happdrættis Háskóla íslands. Dregnir voru 4.500 vinn- ingarað fjárhæð 42.000.000 króna. Hæsti vinningurinn, fjórir mill- jón króna vinningar, kom á núm- er 31495. Einn miöi af þessu núm- eri var seldur i umboðinu i GRÍMSEY, tveir miðar i umboð- inu i KEFLAVIK og sá fjórði hjá Frimanni Frimannssyni I Hafnar húsinu. Það var starfsmannahóp- ur, sem átti milljón króna vinninginn hjá Frimanni. Áttu þeir röð af miðum og fá þvi báða aukavinningana. 500.000 krónur komu á númer 49913. Voru allir fjórir miðarnir af þvi númeri seldir i AÐALUM- BOÐINU, Tjarnargötu 4. 200.000 krónur komu á númer 27950. Allir fjórir miðarnir af þessu númeri voru einnig seldir i AÐALUMBOÐINU i Tjarnargötu 4. 50.000 krónur: 2346 2574 2653 4824 5583 6090 7081 7134 9348 9430 10208 10410 10693 11633 12352 17619 19192 19286 25443 26209 27953 30199 31494 31496 32862 35611 36283 37536 37728 38666 41157 45287 43838 43968 44557 45462 47096 47942 49989 50726 51600 52393. O Svanir ið hlutfallslega og finnst i fuglum sem ekki eru friðaðir. Þetta hefur leitt athyglina að þvi, að skilningi manna á friöunarlögum og löghlýðni er meira en litið ábótavant, allt of margir, sem skortir ábyrgðartil- finningu, hafa fengiö heimild til þess aö fara með byssu, og fram- kvæmd laga af þessu tagi og eftir- lit meö þvi, að þau séu ekki brot- in, er svo íélegt, að einskis vert má heita. O Fíkniefni — Það er hald manna og von, að hundurinn veiti alltaf nokkurt að- hald, sagði Asgeir. Fikniefnadeild lögreglunnar hefur undir höndum skrá yfir þá einstaklinga, sem hafa á einhvern hátt verið viðriðnir fikniefni, en ekki vildi Asgeir gefa okkur nein- ar tölur um þann hóp, sem á skránni er. Sagði hann, að fjöld- inn gæfi engan veginn rétta mynd af ástandinu, — þvi þar væru allir fikniefnaaðilar saman komnir, hvort sem þeir væru stórtækir innflytjendur fikniefna eða ein- staklingar, sem hafa keypt efni til eigin neyzlu. Það væri gleðilegt, ef satt væri, aö fikniefnaneyzla væri i rénun , en eins og Asgeir sagði, þá er breytileg þróun i þessum málum alla tið, og fullkominnar sönnun- ar þess, að neyzlan fari minnk- andi, verður að likindum langt að biöa. ALUR finna haldir, skrdr og lamir við sitt hæfi í okkar fjölbreytta úrvali: plövújcial furnituretrim ! Carriage House sepeijata. w colonial colonnade madeira l'enaissance 'Byzanline

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.