Tíminn - 13.08.1974, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 13. ágúst 1974.
TÍMINN
11
Nú vantar Akranes
aðeins herzlumuninn
— sigraði Fram á laugardaginn 3:1, og hefur 3ja stiga forskot. Staða Fram er alvarleg
Fátt virðist nú geta
hindrað það, að íslands-
meistaratitillinn hafni á
Akranesi. Eftir sigur
Skagamanna gegn Fram á
laugardaginn hefur Akra-
nes 3ja stiga forskot, en
aðeins er eftir að leika 2
umferðir í deildinni. Fari
svo, að Akranes verði is-
landsmeistari, mun það
ekki aðeins gleðja hjörtu
Akurnesinga, heldur einnig
fjölmargra aðdáenda liðs-
ins frá gamalli tíð.
Leikur Akraness og Fram, sem
lauk 3:1, var ekki eins ójafn og
markatalan gefur tilefni til að
halda. Sannleikurinn er sá, að
Fram var mun betri aðilinn i fyrri
hálfleik, og hefði þá átt að upp-
skera fleiri mörk en eitt. En hvort
tveggja var, að framlinuleik-
menn Fram ' voru einstaklega
klaufskir og Davið i Akraness-
markinu bjargaði vel. Það sem
gerði gæfumuninn, var að Fram
hafði undirtökin i fyrri hálfleik, er
miðvallarleikmenn liðsins réðu
lögúm og lofum á miðjunni, þ.e.
Asgeir Eliasson, Gunnar Guð-
mundsson og Guðgeir Leifsson.
Svo þung var sókn Framara i
byrjun leiksins, að það virtist
liggja i loftinu, að Fram myndi
vinna stórsigur, ekki sizt eftir
fyrsta mark leiksins, sem Rúnar
Gislason skoraði eftir 8 minútur.
En það var siður en svo noikkur
uppgjafarandi i liði Akraness. Og
á 17. minútu skoraði bezti maður
liðsins, Teitur Þórðarson,
jöfnunarmark með skalla.
Fleiri urðu mörkin i fyrri hálf-
leik ekki, en i siðari hálfleik varð
mikil breyting á. Nú náðu Skaga-
menn tökum á miðjunni, og réðu
eftir það öllum gangi leiksins.
Þeim tókst á 11. minútu siðari
hálfleiks að ná forystu með öðru
skallamarki Teits, en allan heiður
af undirbúningi marksins átti
hinn snaggaralegi hægri útherji,
Karl Þórðarson, sem sendi vel
fyrir markið á Teit. Þriðja og
siðasta mark Akraness skoraði
Jón Alfreðsson á 30. minútu.
Sigur Akraness var sanngjarn
að þvi leyti, að Skagamenn nýttu
tækifæri sin og sýndu mikinn bar-
áttuvilja, enda var mikið i húfi
fyrir þá, þar sem Islands-
meistaratitillinn er nú aðeins i
seilingarfjarlægð. En var ekki
einnig mikið i húfi fyrir Fram?
Liðið rambar á barmi falls, en
það var ekki að sjá á leikmönnum
liðsins i siðari hálfleik, að þeir
Teitur Þórðarson — lék aðalhlutverkið f liöi Akraness á laugardaginn
og skoraði tvö mörk.
Línurnar skýrast
í I. og II. deild
LINURNAR i 1. og 2. deild i Is-
landsmótinu i knattspyrnu hafa
skýrzt mjög að undanförnu.
Úrslit einstakra leikja um helgina
og staðan eftir þá er eins og hér
segir:
Vikingur—Keflavik 2:2
KR-IBV 2:0
Akranes—Fram 3:1
Akureyri—Valur 0:1
Akranes 12 7 5 0 20:8 19
Keflavik 12 6 4 2 20:10 16
Valur 12 3 6 3 15:14 12
KR 12 4 4 4 14:16 12
IBV 12 2 6 4 14:16 10
Fram 12 2 5 5 14:18 9
Vikingur 12 2 5 5 12:15 9
Akureyri 12 3 3 6 12:24 9
Markhæstu menn:
Teitur Þórðarson, Akranesi 7
Steinar Jóhannsson, Keflavik 7
Örn Óskarsson, IBV 5
Matthias Hallgrimss. Akranesi 5
Næstu leikir:
Föstudaginn 23. ágúst á Laug-
ardalsvelli KR—Fram.
Staðan i 2. deild eftir leikina um
helgina:
FH—Selfoss 8:0
Völsungur—Þróttur 0:3
Armann—ísafjörður 1:3
FH 12 9 3 0 33:4 21
Þróttur 12 6 5 1 22:12 17
Breiðablik 11 7 2 2 31:11 16
Haukar 11 5 3 3 18:14 13
Selfoss 12 4 0 8 14:30 8
Völsungur 12 3 1 8 17:29 7
Ármann 12 3 1 8 13:28 7
Isafjörður 12 2 1 9 13:33 5
Markhæstu menn:
Loftur Eyjólfson, Haukum 10
Ölafur Danivaldsson, FH 8
Ólafur Friðriksson, Brbl. 7
Helgi Ragnarsson, FH 7
Guðmundur Þórðarson, Brbl. 7
væru sér meðvitandi um það. Vist
er um það, að Fram-liðið er of
gott til að falla, en þá verða leik-
menn liðsins lika að gera sér
grein fyrir þvi, að án fyrirhafnar
vinnst enginn sigur.
Akraness-liðið er mjög gott um
þessar mundir. Það vann nokkra
heppnisigra i byrjun motsins, en
hefur siðan sigið jafnt og þétt á,
og er nú án nokkurs vafa okkar
sterkasta lið. Þjálfari liðsins
leyfði sér þann munað að hafa
Eyleif Hafsteinsson á vara-
mannabekknum á laugardaginn.
Það sýnir, að hann hefur full tök á
verkefni sinu. Teitur Þórðarson,
Karl Þórðarson, Jón Gunnlaugs-
son og Jón Alfreðsson eru sterkir
leikmenn. Sömuleiðis Björn
Lárusson i stöðu bakvarðar.
Dómari i leiknum var Valur
Benediktsson. Hann gerði hlut-
verki sinu góð skil, þó að stund-
um finnist manni hann óneitan-
lega dálitið svifaseinn.
Óskaði eftir
að víkia úr
dómstólnum
Sem kunnugt er fjall-
ar sérráösdómstóll
knattspyrnuráös
Reykjavíkur um svo-
kallað Elmars-mál
þessa dagana. I
dómstólnum eiga sæti
þrír aðalmenn/ Bergur
Guðnason (Val), Vilberg
Skarphéðinsson (Vík-
ingi) og Carl Bergmann
(Fram).
Carl Bergmann hefur
verið erlendis undanfar-
ið, en kom nýlega heim.
Hafði hann ekkert frétt
af máiinu annað en það,
sem hann sá í blöðum.
Mun Carl hafa sett sig i
samband við formann
dómstólsins, Berg
Guðnason, og tilkynnt
honum, að hann treysti
sér ekki til annars en að
víkja úr dómstólnum,
þar sem Fram væri aðili
að málinu.
Ekki er vitað, hvort
Bergur Guðnason fylgir
í fótspor hans, en sem
kunnugt er, var það Val-
ur, sem kærði Fram fyr-
ir að nota Elmar.
AAetþáfttaka í
íslandsmótinu
í DAG hefst á Grafar-
holtsveilinum íslands-
mót í golfi. Það telst til
tiðinda, að þátttakandur
i þessu móti eru á þriðja
hundrað talsins, og er
þetta langfjölmennasta
íslandsmót i golfi, sem
haldið hefur verið.
Vegna þessarar miklu þátttöku,
Guðrún Benediktsdóttir.
sem gerir alla framkvæmd erfið-
ari, hefur verið um það rætt
meðal kylfinga, hvort ekki væri
ástæða til að takamarka þátttöku
eða efna til undankeppni.
Hvað sem þvi liður, er þetta
aðeins skemmtilegur höfuðverk-
ur fyrir forráðamenn Golf-
sambandsins, þvi að það segir
sina sögu um vinsældir golfiþrótt-
arinnar hér, en fáar iþróttagrein-
ar hérlendis hafa verið i meiri
uppgangi en hún.
tþróttasiðan mun skýra frá úr-
slitum á golfmótinu næstu daga.
Nýtt
met
Guðrúnar
GUÐRÚN Benediktsdóttir bætti
eigið tslandsmet i kringlukasti
allverulega, er hún kastaði 38.22
metra á frjálsiþróttamóti, sem
haldið var á Höfn i Hornafirði um
helgina.
Þetta met er meira en einum og
hálfum metra betra en fyrra
metið, en það var 36,60 metrar og
var sett fyrr i sumar.