Tíminn - 13.08.1974, Page 13
Þriðjudagur 13. ágúst 1974.
TtMINN
13
„Bomber
er efstur
á blaði
skorara
V-þýzki markaskorarinn Gerd Miiller, eða „Der
Bomber”, eins og hann er kallaður, er tvimæla-
iaust einn mesti markaskorari.sem hefur komið
sem
fram i sviðsljósið. Þessi snjalli leikmaður,
getur skorað mark úr nær hverri stellingu, er
efstur á blaði yfir þá leikmenn, sem hafa skorað
mörk i úrslitakeppnum HM, en hann hefur skorað
samtals 14 mörk i HM-úrslitum. Múiler skoraði 10
mörk i HM i Mexikó 1970 og siðan bætti hann við
fjórum mörkum i HM i V-Þýzkalandi i sumar.
Þar með var hann kominn einu marki yfir Frakk-
ann Fontaine, sem skoraði 13 mörk í HM i Sviþjóð
1958.
Gerd Mflller hefur náð frábærum árangri f landsleikjum með
V-Þýzkalandi, hann hefur skorað 68 mörk i 62 landsleikjum. Þá er
hann mesti markaskorari, sem hefur leikið f v-þýzka „Bundeslig-
unni”, en hann hefur verið markhæsti leikmaöurinn f 1. deildar-
keppninni þýzku i mörg undanfarin ár, siðan að hann byrjaöi að
leika með Bayern Miinchen hefur hann skorað um 160 mörk fyrir
félagið i Bundesligunni”. —SOS
Gerd Miiller — markaskorarinn mikli
IBA-VALUR 0:1
Línuvörður
svaf á
verðinum
Akureyringar verða að
bíta í það súra epli að híma
á botninum eftir 12. um-
ferðina i 1. deild/ — og
vissulega var eplið súrt í
þetta skiptið# þvi að segja
má/ að sigurinn hafi verið
innan seilingar — mest aII-
an leikinn/ og jafntefli
nokkurn veginn víst/ að
minnsta kosti ef línuvörð-
ur „að sunnan" hefði ekki
dottað svo illilega á verðin-
um á þýðingarmiklu
augnabliki.
Það verður að segjast eins og
er, að það var sannarlega hastar-
legt, að það skyldi vera á móti
Akureyringum, sem lánið skyldi
leika við Valsara og hefja þá upp
úr fallhættunni, og skilja Akur-
eyringana þar eftir, en beizkur er
sigurinn, og sannarlega mega
þeir vera þakklátir forsjóninni —
og starblindum linuveröi. En sem
sagt: Valsarar geta einbeitt sér
að bikarkeppninni, þeir hafa
engra hagsmuna að gæta lengur I
1. deild, — Akureyringar berjast
fyrir tilveru sinni i 1. deild, og það
verður hörð barátta, nema ham-
ingjusólin taki að skina á þá eins
og Valsara i þessum leik.
Það var Ingi Björn Albertsson,
sem skoraði eina mark leiksins i
siöari hálfleik. Sýndu Akur-
eyringar i þessum leik snjalla
rangstöðuaðferð, sem vissulega
krefst sæmilegrar athygli linu-
varða, að ekki sé meira sagt,
a.m.k. á stundum, en I þvi tilfelli,
er markið var skorað, var linu-
vörðurinn alveg úti að aka, Ingi
Björn fékk að bruna einn og
óvaldaður upp að marki og skora.
En tækifærin voru svo sem
mörg, mýmörg næstum þvi, og
þess vegna var leikurinn
skemmtilegur og f jörugur, — með
sinum eftirköstum, þvi að linu-
vörðurinn átti ekki upp á pall-
borðið hjá áhorfendum, fremur
en starfsbróðir hans i bikarleikn-
um fyrir skemmstu. En allt fór
vel.
Bæði léku liðin vel og gerðu sitt
bezta. Mesta athygli vakti Jó-
hannes EBvaldsson, og er þaö mál
manna, að hann hafi borið höfuð
og heröar yfir aðra leikmenn,
sem fyrir norðan hafi leikið á
þessu sumri a.m.k. Beztur
Norðanmanna var Gunnar Aust-
fjörð.
Elmarsmálið:
Leikurinn ógildur
I gærkvöldi fjallaði sérráðsdómstóll
KRR um Elmarsmálið svonefnda.
Varð það niðurstaða dómstólsins, að
umræddur leikur Vals og Fram skyldi
ógildur og leikinn að nýju
Halldórs-
son
sextugur
Gisli Halidórsson, forseti
iþróttasambands islands átti
sextugsafmæli i gær. Gisli hefur
um áratugaskeið veriö i forystu-
sveit islenzkra iþrótta og unnið
mikið og óeigingjarnt starf. Hann
var um langt árabil formaðu'
iþróttabandalags Reykjavikur,
eða frá 1949 til 1962, að hann var
kjörinn forseti ÍSt. Jafnframt átti
Gisli sæti I borgarstjórn Reykja-
vikur og var forseti borgarstjórn-
/ ar 1970-74.
Margir urðu til að sækja Gisla
og frú Margréti heim i gær, og
var þá þessi mynd tekin. tþrótta-
siðan vill nota tækifærið til að
þakka Gisla fyrir ánægjulegt
samstarf á liðnurn árum.
Listinn yfir þá leikmenn, sem hafa skorað flest mörk I
HM-keppni, lítur þannig út:
•• MÖRK AR
MULLER, V-Þýzkalandi 14 1970 (10) 1974 (4)
FLONTAINE, Frakklandi 13 1958
KOCSIS, Ungverjalandi 1954
RAHN, V-Þýzkalandi 10 1954 ( 4) 1958 (6)
PELE, Brasiiíu 1958 ( 6) 1970 (4)
EUSEBIO, Portugal 9 1966
JAIRZINHO, BrasiIIu 9 1970 ( 7) 1974 (2)
STABILE, Argentinu 8 1930
LEONIDAS, Brasilíu 1938
SZENGELLER, Ungverjalandi 7 1938
ADEMIR, Brasiliu 7 1950
LATO, Pollandi 7 1974
MORLOCK, V-Þýzkalandi 6 1954
PROBST, Austurriki 6 1954