Tíminn - 17.08.1974, Page 2
2
TÍMINN
Laugardagur 17. ágúst 1974.
Laugardagur 17. dgúst 1974
Vatnsberinn: (20. jaa-18. febr.)
Þetta er finn dagur til aö sinna atvinnumálum
eöa viöskiptum. Mjög góöur til viöræöna viö þá,
sem meira mega sin, sérstaklega ef þú þarft aö
koma einhverju fram eöa flýta fyrir gangi mála
á einhverju sviði.
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Það er ekki að vita, nema i dag stofnir þú til
kunningsskapar viö einhverja þá, sem hafa mik-
ið aö segja fyrir þig i framtiöinni, og þótt eitt-
hvaö smávegis bjáti á I dag, veröur þetta góður
dagur, ef þú lætur ekki koma þér úr jafnvægi.
Hrúturinn. (21. marz-19. april)
Það litur út fyrir, að þú getir stofnað til ánægju-
legra kynna i dag, og hætt við þvi, aö þú um-
gangist marga. En það er talsvert komið undir
þvi, að þú sýnir tilfinningum og skoöunum ann-
arra fyllsta tillit.
Nautiö: (20. april-20. mai)
Einhver I áhrifastöðu er liklegur til aö gera þér
greiða i dag, en þú þarft aö öllum llkindum aö
minna á þig. Það er heldur aldrei aö vita, nema
þú komist i vont skap vegna einhvers, sem þú
hefur trassað, en ert krafinn um.
•
Tviburamerkið: (21. mai-20. júni)
Þú þarft aö fara betur yfir þinar sakir, þvi að
þaö litur út fyrir, aö þessi dagur bjóöi upp á
mikla möguleika i sambandi við endurskoðun.
Hér er liklegast um fjármálalegan ávinning að
ræða, gæti lika verið á ööru sviöi.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Þaö er einhver, sem þarfnast þess, að þú gripir
til hæfileika þinna og ráöleggir honum. Þú skalt
búa þig undir andspyrnu i einhverju ákveðnu
máli, og það er þó nokkuð mikilvægt, aö þú látir
alls ekki undan, en beitir þér.
Ljóniö: (23. júli-23. ágúst)
Þetta er finn dagur til ferðalaga — og til þess að
auka þekkingu sina. Þaö litur út fyrir, að uppá-
stunga frá vini veröi þér til mikils góðs. Þaö
reynir talsvert á hæfileika þinn að sjá og skilja
fyrirfram.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. septj
Þetta er hagstæður dagur, og þess vegna ættir
þú að nota hann til þess að hagnast persónulega,
og þar er ekki endilega átt við á fjármálasvið-
inu. Þú þarft að vinna aðra á þitt band. Leitaðu
ráða við vandamáli.
Vogin: (23. sept-22. oktj
Það er rétt eins og eitthvert vandamál sé á döf-
inni, og þaö velti á þó nokkru, hvernig þér tekst
að leysa það, þvi að það er erfitt viðureignar.
Það er einhver að reyna að komast i samband
við þig, sem þú skalt nálgast.
Sporðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
Það hefur einhver gert þér greiða, sem kominn
er timi til aö þú endurgjaldir. Gerðu það I dag,
og á þann hátt, aö sómi sé að. Háttalag einhvers
vinar þins veldur þér áhyggjum, en það er ekki
tlmabært að skipta sér af þvi.
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.)
Það eru nú einu sinni svo með þessa tilveru, að
það skiptast á skin og skúrir, og engin ástæða til
að fyllast bölmóði, þó aö eitthvaö smávegis bjáti
á. Hitt er annað mál, að það gerir ekkert til að
sjá björtu hliöarnar á hverju máli.
Steingeitin: (22. des.-19. janj.
Það er einhver vinur þinn eða ættingi, sem
þarfnast heimsóknar þinnar og vináttu. Láttu
veröa af þvi i dag að lita til þessa aðila og dragðu
það ekki á langinn. Þaö er bjart yfir þér um
þessar mundir.
AUSTUR-
FERÐIR
Um Grimsnes — Laugarvatn — Geysi —
Gullfoss
Um Selfoss — Skeiðaveg — Hreppa —
Gullfoss.
Um Selfoss — Skálholt — Gullfoss — Geysi.
Daglega frá BSt — Simi 2-23-00 — Ólafur
Ketilsson.
Nýtt kjördæmi fyrir
Suðurnes!
Nokkur orð i viðbót um nýja
kjördæmaskipan.
í fljótu bragði finnst mér aðeins
þurfa eitt kjördæmi I viðbót viö
þau, sem fyrir eru á þingi, en það
er sérstakt Suðurnesjakjördæmi
(Vatnsleysuströnd, Grindavik,
Hafnir, Keflavikurflugvöllur,
Njarðvikur, Keflavik, Sandgerði,
og Garöur).
O AAeðalævi
meðalævi kvenna lengri en á ts-
landi. 1 Hollandi er hún 76,4 ár og i
Sviþjóð 76,5.
Ekki er ýkja langt um liöið sið-
an lifslikur ungbarna voru allt
aðrar og lakari en nú, eins og
ráða má af töflunni hér á eftir.
Karlar Konur
1850-60 ............ 31,9 ár 37,9 ár
1890-1901 ......... 44,4 ár 51,4 ár
1902-10 ............ 48,3 ár 53,1 ár
1911-20 ............ 52,7 ár 58,0 ár
1921-30 ............ 56,2 ár 61.0 ár
1931-40 ............ 60,9 ár 65,6 ár
1941-50 ............ 66,1 ár 70,3 ár
1946-55 ............ 69,4 ár 73,5 ár
1951-60 ............ 70,7 ár 75,0 ár
1961-65 ............ 70,8 ár 76,2 ár
1966-70 ............ 70,7 ár 76,3 ár
A rúmri öld hefur meðalævi ný-
fæddra barna þvi lengzt um 38,8
ár hvað sveinbörn áhrærir og 38,4
að þvi er tekur til meybarna.
Þessi lenging meðalævinnar staf-
ar að mestu leyti af minnkandi
barnadauða, en siður af þvi að
gamalt fólk hafi orðið langlifara.
Dánarlíkur
Sé athugað hverjar dánarlik-
urnar eru á ýmsum aldursskeið-
um, kemur I ljós, að miðað við
tiðni dauðsfalla eins og hún var
hérlendis á árunum 1966-’70, þeg-
ar sú könnun Hagstofunnar, sem
hér er stuðzt við, fór fram, má
vænta þess, að af hverjum eitt
hundrað þúsund lifandi fæddum
sveinbörnum, verði 89285 enn á
lifi um fimmtugt.
Með þvi að meðalævi kvenna er
hærri, er sama tala, hvað mey-
börn áhrærir, 94482.
Rúmlega tiundi hluti karla nær
þvi ekki fimmtugsaldri. Um sex-
tugt er látinn um fimmtungur
karla, röskur helmingur nær 75
ára aldri, og um fimmtungur lifir
85. afmælisdaginn sinn. Kven-
fólkið er hins vegar langlifara,
eins og áður segir, þannig að það
er ævinlega nokkru eldra en karl-
mennirnir, þegar jafnmikill hluti
þess er fallinn frá.
Meðalævi nýfæddra islenzkra
sveinbarna er sem fyrr segir 70,7
ár. Meðalævi sveinbarna á fyrsta
ári er hins vegar Ivið hærri, eða
70,8 ár. Þessu veldur að sjálf-
sögðu barnadauðinn á fyrsta ári
ævinnar.
Sé litið nokkur ár aftur i timann
og athugað , hver meöalævin var
á timabilinu 1961-’65, kemur i ljós,
að þá var likleg ævilengd ný-
fæddra islenzkra sveinbarna 70,8,
en meybarna 76,2. Meðalævin
hérlendis hefur þvi litið breytzt
siðan þá. Þess má geta að lokum,
að á þessum árum var meðalævi
kvenna á Islandi lengri en i
nokkru landi öðru, sem vitað var
um.
Breyttir atvinnu-
og félagshættir
Samkvæmt könnun, sem WHO,
hin alþjóðlega heilbrigðismála-
stofnun Sameinuðu þjóðanna
geröi 1970, bendir margt til þess,
að brátt reki að þvi, að meðalævi
fólks I iðnrikjunum hætti að lengj-
ast. Könnunin sýndi og að forskot
kvenna i þessum efnum hefur
stytzt s.l. tuttugu ár og dánartala
þess hækkað. Þetta er taliö stafa
af breyttum atvinnu- og félags-
háttum i iðnrikjunum. Munurinn
á atferli kynjanna veröur æ minni
— konur reykja t.d. meira en áður
gerðist, og þær aka bil i miklu rik-
ari mæli en áður, og lenda þvi oft-
ar i bilslysum. Auk þess er mun-
urinn i atvinnulegu tilliti minni en
áður gerðist. Þetta samanlagt er
talið orsök þess, að dánartölur
kvenna hafa farið hækkandi á
undanförnum árum.
Þessi hluti landsins á oftast nær
engan fulltrúa á þingi, jafnvel
þótt 15-20% af þjóðartekjunum
komiþaðan. (Ég reikna Keflavik-
urflugvöll ekki meö i dæminu).
Ikjördæmi þessu (væntanlegu)
virðast þó ekki vera til miklir
peningar til eins sjálfsagðra
framkvæmda og sómasamlegra
skólamála, varanlegra hafna-
gerða, hitaveituframkvæmda
o.fl. o.fl.
Sem sagt,: nýtt 4 manna kjör-
dæmi fyrir Suðurnes. Okkur veit-
ir ekki af!
Auövitað ætti að fjölga þing-
mönnunum úr 60165 — og hafa þá
12 uppbótarþingmenn I stað 11.
Talan „65” hefur þann bersýni-
lega kost, að hún er oddatala —
en það hefur ekki svo litið að
segja i tvisýnum kosningum.
Kosningalögum ætti lika að
breyta þannig, að ekki þurfi leng-
ur að fá mann kjördæmakosinn á
þing, til að fá uppbótarsæti (þó
mér sé persónulega nokkuð
sama, hvort Alþýöuflokkurinn
hangir á þingi eða ekki). í staðinn
skal meðalatkvæðamagn að baki
hvers þingmanns ráða um
ákvörðun uppbótarsæta.
Og hvenær hættir svo þingiö að
starfa i 2 deildum?
En auðvitað þyrfti að endur-
skoða kosningalögin á 10 ára
fresti, eða svo, þvi að timarnir
breytast hratt nú til dags — og
framtiðin getur orðiö ótrúlegt
ævintýri.
Þorsteinn Eggertsson,
Háholti 7, Keflavik.
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjald-
heimtunnar i Reykjavik og samkvæmt
fógetaúrskurði, uppkveðnum 16. þ.m.
verða lögtök látin fram fara fyrir van-
greiddum opinberum gjöldum, skv. gjald-
heimtuseðli 1974, er féllu i eindaga þ. 15.
þ.m.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, eignar-
skattur, kirkjugjald, kirkjugarðsgjald
slysatryggingargjald vegna heimilis-
starfa, iðnaðargjald slysatryggingargjald
atvinnurekenda skv. 36. gr. 1. nr. 67/1971
um almannatryggingar, lifeyristrygg-
ingargjaldskv. 25. gr. sömu laga, atvinnu-
leysistryggingagjald, launaskattur, út-
svar, aðstöðugjald og iðnlánasjóðsgjald.
Ennfremur nær úrskurðurinn til skatt-
sekta, sem ákveðnar hafa verið til rikis-
sjóðs og borgarsjóðs.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum,
ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, verða
látin fram fara að 8 dögum liðnum frá
birtingu þessarar auglýsingar, verði þau
eigi að fullu greidd innan þess tima.
Borgarfógetaembættið
ágúst 1974.
i Reykjavik, 16.
VIRIÍM
ÞAÐ ER I
SEM ÚRVALIÐ ER
íí\ n \r D Tj pnfii
L rj n
Veljið vegg
fóðrið og
mdlning
una d
SAAAA
STAÐ
lllKNI ?
Veggfóður- og mólningadeild
Ármúla 38 - Reykjavík
Símar 8-54-66 & 8-54-71
Opið tillO á föstudagskvöldum