Tíminn - 17.08.1974, Side 3
Laugardagur 17. ágúst 1974.
TÍMINN
3
Viðurkenning fyrir fegrun og snyrtimennsku:
Hvassaleiti fegursta
gata Reykjavíkur í ár
BH—Reykjavík. — Hvassaleiti
varð að þessu sinni fyrir valinu,
sem fegursta gatan i Reykjavik,
og hefur viðurkenningarmerki
fegrunarnefndar verið komið upp
við götuna. Þá hefur og 11 mann-
virkjum í Reykjavik verið veitt
viðurkenning, svo og 3 fyrirtækj-
um fyrir snyrtimennsku. Loks
hlutu þrjár verzlanir viðurkenn-
ingu fyrir fallegar gluggaút-
stiliingar og fimm aðilar fyrir
fegurstu veggmerkingar I borg-
inni. Viðurkenningarskjölin voru
afhent i Höfða i gær, föstudag, og
ávarpaði Birgir Isleifur Gunnars-
son, borgarstjóri, viðstadda og
þakkaði framtak það, sem unnið
hefur verið tii fegrunar Reykja-
vikur.
Það hefur legið i loftinu nokkur
undanfarin ár, að Hvassaleiti
fengi viðurkenningu sem fegursta
gata borgarinnar, og vissulega
hefur þessi gata margt sér til
ágætis, svo að enginn þarf að
undrast þá viðurkenningu, er gat
an hlýtur nú. Þegar við renndum
þangað upp eftir til að kynna okk-
ur betur forsendur þess,að hún
var valin, fannst okkur augljóst,
aö vel hafði tekizt til. Þarna er
snyrtimennskan I fyrirrúmi, vel
hlúð að gróðri, hlaðnir steinvegg-
ir, litafegurð og skipulag. Gatan
er nokkuð stór, U-laga út frá Háa-
leitisbraut, og þar er mikill fjöldi
SóleyjargaU 1.
húsa, aðallega fjölbýlishúsa og
raðhúsa. Við götuna eru viðbótar-
stigar fyrir bakhús, sem setja
sinn sérkennilega svip á um-
hverfið.
Dómnefndinni, sem valdi .
Hvassaleiti fegurstu götu borgar-
innar, þótti einnig ástæða til að
benda á Stóragerði, Sunnuveg og
Eikjuvog.
Fulltrúar Arkitektafélags Is-
lands völdu 11 fegurstu mann-
virki I Reykjavik, og var val
þeirra bundið við þrjú timabil,
1930-’38, 1939-’70 og eftir 1970.
Urðu eftirtaldar byggingar að
þessu sinni fyrir valinu:
Einbýlishús að Sóleyjargötu 1,
Fossvogskirk ja, Sundhöll
Reykjavikur, Neskirkja, sam-
býlishúsið Skaftahlið 12-22,
Menntaskólinn við Hamrahlið,
iðnaðarhúsið að Dugguvogi 2,
iönaðarhúsið að Sundagörðum 4,
Kirkja óháða safnaðarins við
Háteigsveg, kyndistöð Hitaveitu
Reykjavikur við Bæjarháls og
innsiglingarvitar við Reykja-
vikurhöfn.
Þá hafði sérstök nefnd valiö
snyrtilegustu fyrirtækin og
stofnanirnar og fallegustu út-
stillingarnar, og lagði hún til, að
eftirtalin fyrirtæki og stofnanir
fengju viðurkenningu:
Tollhúsið, Tryggvagötu 19,
lögreglustöðin, Hverfisgötu 113-
Gaml* iBndböllin.
115, og afgreiðsla smjörlikisgerð-
anna hf., Þverholti 19.
Einnig lagði nefndin tií, að
þessir aðilar fengju viðurkenn-
ingu fyrir fallegar gluggaút-
stillingar:
Optik sf., gleraugnaverzlun,
Hafnarstr. 18, verzl. Vogue,
Skólavörðustig 12, og verzlun H.
Biering, Laugavegi 6.
Þá völdu fulltrúar Félags is-
lenzkra teiknara fegurstu vegg-
merkingarnar i Reykjavik, og
hlutu þessir aðilar viðurkenn-
ingu.
Rafmagnsveita Reykjavikur,
Frh. á bls. 15
InnsigiingarviUrntr við Reykja-
vikurhöfn. (Timamyndir Gunn-
ar).
Leikskóli viö Hvassaleiti.
Garöar vlö fegurstu götuna. Stigur aö húsabaki. !
Hlaöinn garöveggur.
Grimsá
Þórunn ráðskona I veiöihús-
inu sagði, að laxveiðimenn-
irnir væru mjög ánægðir með
veiðina eins og er. Þó að áin sé
fremur vatnslitil, þá er hún
full af laxi. A miðvikudaginn
rigndi litið eitt og glæddist
veiðin þá um leið.
A fimmtudagsmorgun komu
hvorki meira né minna en 27
laxar á land, veiddir á átta
stengur.
Þeir laxar, sem hafa veiðzt
undanfarið, eru um 15-16
pund, en Björn Pétursson úr
Reykjavik fékk einn áíján
punda á Blue Charm NO.8.
Nú eru komnir um eitt þús-
und laxar á land i allt, en það
eru bæði erlendir og innlendir
laxveiðimenn, sem eru nú við
veiðar i Grimsá.
Laxá i Aðaldal
Helga Halldórsdóttir ráðskona
I veiðihúsinu sagðist halda, að
laxarnir væru einhversstaðar
á þjóðhátið, þvi svo dauflega
hefur veiðin verið undanfarið.
Það hefur verið mjög heitt i
Aðaldalnum, og segja kunnug-
ir,að þá komi mikið slý I ána,
vatnið verður að sjálfsögðu
alltof heitt og súrefnislitið.
Laxinn liggur þvi og hreyfir
sig ekki.
Siðasta „holl”, sem var við
veiði I fióra daga, fékk aðeins
nitján laxa. En I allt munu
komnir á land rétt um niu
hundruð laxar, sem er tölu-
vert minna heldur en á sama
tima I fyrra.
Fnjóská.
Veiði hefur verið óvenjugóð I
Fnjóská I Þingeyjarsýslu i
sumar, sagði Sigurður Ring-
sted, formaður Stangveiði-
félagsins Flúða á Akureyri.
Sérstaklega hefur veiðin veriö
góð á miðsvæðunum. Neðan
brúarinnar við Vaglaskóg eru
leyfðar sex stangir.
A öllu veiðitimabilinu i
fyrra komu 273 laxar alls á
land, en nú eru þegar komnir
um þrjú hundruð laxar, svo
allar likur eru á, aö veiöin
verði stórum betri en i fyrra.
Auk þess hefur bleikju-veiðin
verið mjög góð i sumar, en
engar tölur gat Sigurður
Ringsted gefiö okkur, en þær
munu skipta tugum hundruða
bleikjurnar, sem fengizt hafa,
og eru þær óvenjustórar I ár.
Bezti bleikjuveiðitlminn er þó
eftir, en hann er i september.
Þaö mun vera alveg fullbók-
að og uppselt I Fnjóská það
sem eftir er af veiðitimabilinu
i ár.
Vatnsmagniö I Fnjóská er
undir meðallagi þetta árið, en
öfugt við flestar aðrar lax-
veiðiár, þá er veiðin meiri
þegar minna vatn er i henni.
Sagan endursamin
Það er ekki óalgengt i löndum austantjalds, aö sagan sé endurrit-
uð eftir þvi, hvernig pólitiskar aðstæöur eru hverju sinni. Þannig er
margsinnis búið að endursemja sögu margra þekktustu manna I
rússneskum alfræðibókum. Oftast liða nokkur ár á milli, en þó
stundum ekki nema fáir dagar. Ýmislegt bendir til þess, að ritstjórn
Þjóðviljans hafi tekið sér þessa sagnritun til fyrirmyndar, og geri
stundum betur en sjálfir lærimeistararnir. Þannig var aðalfyrir-
sögn i Þjóöviljanum siðasti. miðvikudag á þessa leiö: Alþýðuflokk-
inn skorti viljann til samstarfs. Samkvæmt þessu lýsti Ragnar Arn-
alds þvi I viðtali, að viðræðurnar um vinstri stjórn hefðu strandað á
viljaieysi Alþýðuflokksins. A forsiðu Þjóðviljans i gær (föstudag) er
sagan hins vegar orðin á aöra leið. Þá birtist þar eftirfarandi fyrir-
sögn, sem náði yfir alla siðuna: ólafur greip tylliástæðu til þess að
hætta stjórnarmyndunartiiraun.
Á miövikudaginn var Alþýðuflokkurinn talinn sökudólgurinn, en á
föstudaginn er það ólafur Jóhannesson. Svona fljótt hafa þeir aust-
antjalds sennilega aldrei breytt sögunni. Það verður aldrei af rit-
stjórum Þjóðviljans skafið, að þeir eru bæði námfúsir og næmir.
Laxveiðimaðurinn
Þar sem Þjóðviijinn er nú farinn að telja þá
upp, sem blaðið teíur hafa haft litinn áhuga á
nýrri vinstri stjórn, ætti það að segja söguna
af manninum, sem einn núverandi stjórnar-
flokka kaus i samninganefnd sina, en brást
þannig við, að hann fór i laxveiöar, þegar
viöræðurnar hófust eftir þjóðhátíðina, og var
fjarverandi mestallan timann, sem viöræö-
urnar stóðu yfir. Hefði Þjóöviljinn talið þaö
merkium brennandi áhuga á myndun nýrrar
rikisstjórnar, ef þessi maður heföi tilheýrt
öörum flokki en Alþýðubandalaginu?
600 millióna króna yfirdróttur
1 Þjóðviljanum I gær var greint frá ótrúlega miklum yfirdrætti
Reykjavikurborgar i Landsbankanum. Þjóöviljinn segir:
„Yfirvöld Reykjavikurborgar bera nú ábyrgð á einhverju stór-
felldasta skuldasukki, sem um getur i sögu borgarinnar. Reykja-
vlkurborg skuidar um 600 millj. kr. Iyfirdrátt I Landsbanda tslands,
en það samsvarar um það bil helmingi til þriðjungi allra útsvara i
Reykjavík á þessu ári.
Af þessum 600 milijónum kr. eru 100 millj. kr. umsamdar, en allt
hitt er á sektarvöxtum. Þessar yfirdráttarskuldir borgarinnar hafa
aukist um 500 millj. kr. frá siðustu áramótum — sexfaldast.
Þessi skuldasúpa er auðvitað i beinum tengslum við kosningabar-
áttu ihaldsins. Þannig skirrist ihaldið ekki við að hirða hundruð
miiljóna i sina þágu á sama tima og talað er f málgagni þess um
þenslu og aftur þenslu.
En auk þessa hafa allar skammtfmaskuldir borgarinnar af öðru
tagi aukizt mjög verulega.” Þ.Þ.
Mikið smygl í
Grmdvíkingi
Timanum hefur borizt svo-
hljóðandi fréttatilkynning: Fyrir
atbeina islenzku tollgæzlunnar
fann norska tollgæzlan i fyrrinótt
mikið magn smyglvarnings i
m/b . Grindvlkingi GK 606, þar
sem báturinn var i Egersund i
Noregi.
Fundust i bátnum 98.800 vindl-
ingar, 3000 vindlar, 885 flösk-
Norðmenn
sér íslenzk
BH-Reykjavik — Kirkju- og
menntamálanefnd norska
Stórþingsins hefur dvalizt hér á
landi um vikutima og kynnt sér
mennta- og menningarmál hér á
landi, með sérstöku tilliti til
grunnskóialaganna, sem sam-
þykkt voru á Alþingi á siðasta
vetri. Nefndin er skipuö fulltrúum
allra stærri flokkanna I þinginu,
og annast hún framkvæmd ailrar
kennslu i Noregi. Hún er skipuð 12
manns, og kom nefndin öll hing-
að ásamt ritara sinum.
A fundi með blaðamönnum á
fimmtudaginn gerði formaður
nefndarinnar, Lars Roar Langs-
let, nokkra grein fyrir tildrögum
feröarinnar, hlutverki nefndar-
innar og loks velheppnaðri ferð,
sem allir þátttakendur væru mjög
ánægðir yfir. Hefði hún i senn
verið fróleg og skemmtileg.
1 samræðum við nefndarmenn
kom i ljós, að þeir þekktu vel til
hugmynda að baki islenzku
ur af áfengi og 88 kassar af áfeng-
um bjór. Var varningurinn falinn
að hluta til I stýrishúsi, en aö
mestu leyti þó i tvöföldum tanki,
sem fylltur var til hálfs af vatni.
Taliö er vist, að varningnum hafi
átt aö smygla til Islands.
Báturinn hefur fengið að fara
frá Noregi gegn tryggingu.
kynna
skólamól
grunnskólalaganna, þvi að þau
voru að nokkru sniðin eftir þeim
norsku. Það væri ljóst, að erfiö-
leikar væru á framkvæmd þeirra,
Norðmenn hefðu enn ekki séð fyr-
ir endann á þeim öllum, og Is-
lendingar ættu vafalaust eftir að
reka sig á marga agnúa, en hitt
hefðu nefndarmenn séð, sér til
undrunar og ánægju, hversu Is-
lendingar væru vel búnir að skól-
um, og þá sérstaklega hversu
umhirða öll i skólunum virtist
vera góð.
Norsku nefndarmennirnir
gerðu allviðreist meðan þeir
dvöldu hér á landi, heimsóttu
margvislegar stofnanir i höfuð-
borginni, fóru austur fyrir fjall til
merkisstaða, að Reykholti,
Nesjaskóla i Hornafirði, og þaðan
að Hallormsstað. Loks fór nefnd-
in út I Vestmannaeyjar til að
kynnast staðháttum þar, og mun
flestra mál, að þeim hafi þótt
einna mest til koma að sjá upp-
bygginguna á Heimaey.