Tíminn - 17.08.1974, Page 4
4
TÍMINN
Laugardagur 17. ágúst 1974.
Leiðbeiningar fyrir Italíufara
Eitt af þvi/sem fólk sækist eftir
að sjá á ttaliu, þegar þangað
kemur, er basilika heilags Franz
frá Assisi. Og nú er hún orðin
enn fegurri.
Hin undurfögru málverk og
kalkmálverk eftir málarana
Giotto og Cimabue, Simone Mar-
tini og Pietro Lorenzetti voru til
skamms tima lýst meö mjög
daufu skini. Vikum saman lét
fyrirtækið Siemens tæknimenn
sina rannsaka og gera tilraunir
með ljósaútbúnað. Nú hafa þeir
komið fyrir 900 rafmagnsluktum,
þannig að áhorfendur sjá þær
ekki, en lýsingin jafnast og kemur
listaverkunum til góða. Arangur-
inn varð góður, en slika lýsingu
sér fólk sialdan i kirkjum.
Afsakið, frú Sukarno!
Fræg brezk „simavændiskona,
Norma Levy að nafni (sem sést
hér á minni myndinni), gaf út
bók i fyrra, sem vakti mikla at-
hygli. Þetta voru endur-
minningar hennar úr starfinu,
og þar sagði hún m.a. að hún
hefbi átt vingott við Sukarno,
forseta Indonesiu, — og hann
hefði verið einn af viðskiptavin-
um sinum. Ekkja Sukarno for-
sta, Dewi Sukarno, — sem er
33ja ára gömul, mjög falleg og
ungleg kona af japönskum ætt-
um, — brást skjótt við og fékk
sér góðan lögfræðing til að mót-
mæla þessu og kveða nið-
ur þennan ósóma um sinn látna
eiginmann. Niðurstaða
rannsóknarinnar varð sú, að
þessi ummæli voru dæmd -hel-
ber uppspuni og lygi Normu
Levy, þvi að gleðikonan hafði
aldrei svo mikið sem augum lit-
ið Sukarno forseta. Norma var
dæmd til að eyðileggja allt óselt
upplag af bókinni og biðja
forsetafrúna fyrrverandi afsök-
unar. Þessu var framfylgt i
London, og á stærri myndinni
sjáum við hvar frú Sukarno
kemur frá bókaútgefandanum
eftir þessa athöfn. — Mér fannst
mér skylt að krefjast málaferla
út af bókinni, þótt ómerkileg
væri, sagði frú Dewi, — bæði
sem ekkja Sukarnos og einnig
sem móðir barna hans, og ég er
fegin að þetta leiðindamál er til
lykta leitt, sagði hún að lokum
— Hvað er þetta, maður, hefurðu
aldrei séð sjómann hoppa fyrir
borð?
— Heyrðu mig Hildur, voru það
ekki 50 grömm af mjöli og 500
grömm af geri, sem ég átti að
nota í kökuna?
DENNI
DÆMALAUSI
Ó þetta eru bara þið, ég hélt,
að þið væruð komin i rúmið.