Tíminn - 17.08.1974, Side 8

Tíminn - 17.08.1974, Side 8
8 TÍMINN Laugardagar 17. ágdst 1974. s Góð æfing björgunarsveitá Slysavarnafélag islands efndi til samæfinga fyrir björgunarsveitir sínar í Öræfasveit um síðustu helgi. Blaðamaður Timans fór austur og slóst i för með björgunarsveitafólki. Mjög margir sóttu þessa samæfingu/ eða rúmlega fjögur hundruð manns/ úr 26björgunarsveitum SVFI. Sveitirnar sendu mismun- andi marga fulltrúa/ flest- ir komu frá björgunar- sveitinni Tryggva á Sel- fos£i/ eða 26/ og frá björg- unarsveitinni Ingólfi í Reykjavík komu 21. Marg- ir áttu langt að sækja og má þar á meðal nefna full- trúafrá björgunarsveitun- um á ólafsfirði og á Hvammstanga. A11 stór hópur björgunarfólks hafði f jölskyldu sína með í þessari samæfingu. Samæfingar björgunar- sveita SVFI eru orðnar fastur liður í þeirra starf- semi. Fyrsta samæfingin var haldin 1. ágúst 1966 í Seiðisárrétt á Gili og árið seinna fóru fulltrúar sveit- anna í hringferð á sjó um- hverfis landið á Sæbjörgu og voru þá gerðar marg- vislegar sjóbjörgunaræf- ingar. Blaðamaður Tlmans hélt aust- ur i öræfasveit á föstudagskvöld og kom þangað laust eftir mið- nætti. A grasi gróinni grund við tæran læk, sem rennur úr hliðun- um fyrir ofan Hofsbæina, hafði tjöldum verið slegið upp. Flestir mótsgesta voru lagztir til hvilu, en þó voru fleiri að bætast i hóp- inn. Að sögn eins björgunarsveitar- manns, sem ég hitti við tjaldborg- ina, höfðu fyrstu mótsgestir kom- ið á fimmtudagskvöld, flestir „Yfir þrjátiu þúsund manns eru i dag félegar I hinum ýmsu slysavar’^ueildum. Björgunar- sveitir -'a Fl.Skiptast þær i þrjá hópa -$lir verkefnum, — sjó- bjö-í&narsveitir, landbjörgun- a.eAeitir og björgunarsveitir, s?m hafa hvor tveggja með höndum. Eins og gefur að skilja ræður landfræðileg staða björg- unarsveitanna hér mestu um.” hefðu komiö á föstudag, og sagði hann, að enn væri nokkurra að vænta Rignt hafði talsvert i V-Skafta fellssýslu, og á söndunum, en I öræfasveit var úrkomulaust, en nokkur næðingur. Við reistum okkar tjald og sofnuðum. Setning samæfingar Klukkan var vart nema rúm- lega átta, þegar syfjuleg augu min opnast við skerandi hljóð. I fyrstu kom ég ekki fyrir mig, hvar ég væri staddur, né hvað væri eiginlega um að vera. Þetta var þá hljóðmerki, sem gefið var til að vekja mannskapinn. Ég átt- aði mig þó fljótlega og leit út um tjaldskörina: björgunarfólk var að vakna. Börn, konur og menn, gengu niður að tærum læknum með þvottapoka, handklæði, sápu og tannbursta, — og buðu hvort öðru góðan dag. Þeir, sem voru félag- ar i björgunarsveitum klæddu sig i appelsinugulu stakkana með merki Slysavarnafélagsins. Veður var gott, sólarlaust en hlýtt. Þokubakki grúfði yfir hæstu hliðum fjallanna og björgunar- sveitafólk snæddi morgunverð. A slaginu tiu höfðu allir komið sér fyrir i hring umhverfis tjald stjórnarinnar, sem um fram- kvæmd þessarar samæfingar sáu. Hannes Hafstein, framkvæmdastjóri SVFl, gekk inn i hringinn með gjallarhorn sér við hlið, Sagði hann, að Gunnar Friðriksson, forseti stjórnar fé- lagsins, hefði gert þeim þann heiður að vera með þeim á þess- ari samæfingu, Siðan gaf hann Gunnari orðið. Byrjaði Gunnar Friðriksson ávarp sitt með þvi að þakka öllum fyrir að koma á þessa samæfingu, og sagði, að sumir hverjir hefðu lagt mjög langa leið að baki, unz komið var að leiðarenda. I ávarpi sinu komst Gunnar m.a. svo að orði: — Markmið samæfinga er að efla kynningu björgunarsveita- manna og gera þá hæfari til að annast þau versefni sem á herðar þeirra eru lagðar. Hér i öræfa- sveit, á samæfingu, á að vera skemmtileg stund og góð æfing i þýðingarmiklu starfi. Ég býð ykkur öll velkomin. Hannes Hafstein, tók til máls, og bauð sérstaklega velkominn til starfa hjá Slysavarnarfélaginu, nýskipaðan erindreka félagsins, Hálfdán Henrýsson, stýrimann, og sagði að þetta væri fyrsti fund- ur hans sem erindreka með ,,A fyrri samæfingum björgun- arsveita SVFI hafa verið dag- langar og oft tveggja daga stöð- ugar æfingar, þar sem björgun- arsveitunum var skipt niður i flokka eftir mismunandi verk- efnum. Að þessu sinni var sam- æfingin meira sem mót og kynn- ing, þar sem fléttað var inn i sjóbjörgunaræfingum, en björg- un manna úr sjávarháska hefur verið eitt meginverkefni SVFÍ frá öndverðu. björgunarsveitunum. Hlutverk erindreka SVFI er að ferðast um landið, heimsækja deildirnar og hafa æfingar með björgunar- sveitamönnum. Ennfremur bauð Hannes tvo gesti sérstaklega vel- komna. Kristin Sigurðsson, full- trúa frá Björgunarfélagi Vest- mannaeyja, en félagið er elzta björgunarfélag landsins og beitti sér m.a. fyrir að fá eftirlitsskip fyrir bátaflotann árið 1920. Hinn gesturinn, sem boðinn var sér- staklega velkominn, var Garðar Sigurðsson, frá Björgunarfélag- inu Stakk, i Keflavik. Skýrði Hannes frá þvi, að hald ið yrði til sjóbjörgunaræfinga við lón Jökulsár á Breiðamerkur- sandi, en áður en lagt yrði af stað þyrftu formenn sveita SB VI að ræða litillega saman, og kallaði Hannes á viðkomandi menn. Lagt af stað Stuttu eftir setningu samæfing- ar hélt bilalestin af stað frá tjald- búðunum. Margir bilanna voru orðnir þyrstir af langri ferð dag- inn áður, og þáðu þeir árbit sinn á Fagurhólsmýri, en þar er útibú frá Kaupfélagi A-Skaftfellinga með benzin- og oliustöö, „sjoppu” og öðru tilheyrandi. Eftir stutta viðdvöl á Fagur- hólsmýri var ekið austur á bóg- inn, og notið þess fagra útsýnis, sem fyrir augu bar. Aðeins eitt skyggði á gleðina: vegirnir voru vart jeppafærir. Bilarnir hristust og skóku sér á allar hliðar til að losna undan farginu, en allt kom fyrir ekki. út um gluggana mátti sjá fjöllin, jöklana, og lónin hrist- ast upp og niður, eins og mynd i biluðu sjónvarpstæki. Það var þvi ekki að undra þótt sumir bæðubílana sina afsökunar á meðferðinni. Þegar komið var að höfuðbólinu, Kvlskerjum, brauzt sólin út úr skýjunum og setti hún eðlilega strax sitt mark á umhverfið. Við Fjallsárlón gátu menn ekki stillt sig lengur, og hlupu út úr bilunum til að draga að sér ferskt öræfaloftið og teiga I sig náttúru jökla, áa og sanda. Frá liffræðilegu sjónarmiði, ef svo má að orði komast, hafa bil- arnir sennilega notið þessarar stundar mest við Fjallsárlónið, þótt hinu sé ekki að leyna, að mannfólkið undi sér vel þarna, við hina tignarlegu jöklasýn og beljandi Fjallsá, sem brauzt fram i farvegi sinum, með stóra og smáa isjaka. „Við völdum þennan stað fyrir samæfinguna, vegna þess, að við fundum að hugir margra beindust i þessa átt. Stærsti hlutinn af hópnum hefur aldrei áður komið i öræfasveit. Okkur fannst einnig kærkomið að efla tengslin við björgunarsveitir SVFt I þessum landshluta, en þær hafa ekki komið á samæf- ingu áður. Hannes Hafstein kynnir nýja tegund af linubyssum, fyrir björgunar- Siguröur Gislason frá Hrauni, skytta björgunarsveitarinnar Þorbjörns I Grindavik, býr sig undir að sveitamönnum. skjóta iinunni yfir jökulána. T.h. er Tómas Þorvaidsson, einnig úr Grindavik, en hann stjórnaði æfingunni.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.