Tíminn - 17.08.1974, Qupperneq 13
Laugardagur 17. ágúst 1974.
TÍMINN
13
„Góð æfíng
i veigamiklu
starfí"
O
aðgerða við. Tiu komast til
byggða, en tveir félagar þeirra
liggja i valnum. Læknar frá
Klaustri og Höfn, ásamt ljósmóð-
ur i sveitinni þurftu að vinna mik-
ið verk, sem tókst með ágætum.
Vakti þessi atburður mikla at-
hygli.
Það varð til þess, að þýzki
konsúllinn i Reykjavik, lét reisa á
eigin kostnað skipbrotsmanna-
skýliá Kálfafellsmelum árið 1903,
eða sama ár og þýzki togarinn
strandaði. I skýlinu voru vistir og
skjólfatnaður. Þá lagði þýzki
„Okkur finnst áriðandi að
björgunarsveitir SVFl komi
saman til sameiginlegra björg-
unaræfinga, þvi við öll meiri
háttar verkefni sveitanna,
vinna nokkrar sveitir alltaf
saman.”
konsúllinn ennfremur til efnivið i
skipbrotsmannaskýli á Ingólfs-
höfða.
Sagði Hannes, að árið 1911
hefðu útgerðarmenn frá brezku
útgerðarbæjunum Hull og
Grimsby, lagt til efnivið i skip-
brotsmannaskýli á Mánabót i V-
Skaftafellssýslu.
— Eftir að SVFI er stofnað 29.
janúar 1928, byggjast skipbrots-
mannaskýlin eitt af öðru og hefur
alla tið verið lögð mikil áherzla á
þennan þátt i starfsemi félagsins.
Það voru hinar ötulu kvenna-
deildir, sem sérstaklega hvöttu til
skjótra aðgerða i þessum málum
á bernskuárum félagsins.
— Hvað eru mörg skipbrots-
mannaskýli við strendur landsins
i dag?
— Þau eru 46, og öll búin fjar-
skiptabúnaði, annað hvort
neyðartalstöð eða simum. 1 þess-
ari ferð komum við m.a. með
neyðartalstöö i skipbrotsmanna-
4
i
**?*{£$" V.v, - '
Hér er Gunnar Pétursson lagður
af stað I björgunarstólnum og
nálgast árflötinn jafnt og þétt.
skýlið á Skeiðarársandi, sagði
Hannes.
Það fer óneitanlega um mann
einkennileg tilfinning, að sitja
þarna upp á Ingólfshöfða, sem er
girtur sjó og vötnum á allar hlið-
ar, — og horfa yfir gráu sand
flæmin, sem teygja sig svo langt
sem augað eygir, og hlusta á frá-
sögn Hannesar.
— Þessir sandar hafa oft verið
nefndir „krikjugarðar” skipa,
hvað hafa mörg skip strandað
hérna á söndunum, svo þú vitir
til?
). Milli höfða, sem kenndir eru
við þá fóstbræður Ingólf og Hjör-
ieif, hafa strandað 35 skip, 26 er-
lend og 9 islenzk, fyrir utan þau
sem hafið og fjaran og sandurinn
geymir, — og okkur er ekki kunn-
ugt um. t þremur tilvikum af
þessum 35, yfirgáfu áhafnirnar
ekki skipin, en i hin skiptin var
reynt að koma mönnum i land, en
þeir hafa verið 429 talsins. 140
komust af sjálfsdáðum til lands,
17 létust, skoluðust fyrir borð,
drukknuðu á leið til lands eða lét-
ust af völdum hrakninga á sönd-
unum. 262 hefur verið bjargað I
land á vegum björgunarsveita.
Sagði Hannes, að Meðallands-
buktin hefði alla tið verið hættu-
legust, og flest skipin hefðu
strandað þar.
— Eitt sinn strönduðu þrir
brezkir togarar i einu, á Foss-
fjöru. Það gerðist á striðsárun-
um, árið 1944, að mig minnir, —
„Það verður lögð rik áherzla á
þennan þátt i starfi SVFl i ná-
inni framtið, vegna þess að
reynslan af þessum samæfing-
um hefur verið mjög góð.”
og lentu skipverjar i fimtán
klukkustunda hrakningum um
sandana, áður en þeir komust að
Sléttabóli á Siðu. Þrir fórust, en
hinir björguðust allir.
Sagði Hannes mér að siðustu,
að á vegum SVFl væru tólf skip-
brotsmannaskýli á milli þessara
tveggja áðurnefndu höfða.
Fólk var byrjað að tinast niður
af höfðanum. Við stóðum upp og
fylgdum straumnum.
Á kvöldvöku
Þegar fólk hafði komið sér fyrir
i tjöldum sinum, hvilt lúin bein
um stund, og fengið sér batarbita,
— var skundað á kvöldvöku. Hóp-
urinn hittist fyrir framan hið
stóra tjald mótsstjórnar. Sumir
settust niður, aðrir stóðu, og enn
aðrir gengu um.
Fyrst tók Sigurður á Kviskerj
um til máls, þá Inga Bjarnadóttir
frá Selfossi. Páll Guðbjörnsson
frá björgunarsveitinni Brák,
Borgarnesi, flutti harmsögu úr
Langavatnsdal og Olafur Gunn-
laugsson frá björgunarsveitinni
Sigurvon frá Sandgerði, stjórnaði
fjöldasöng ásamt þremur for-
söngvurum. Virtust allir hafa af
þessu hina beztu skemmtan og
lauk þessum ágæta degi með lág-
væru gitarspili, — unz svefninn
klippti á lagið og kann ég þá
sögu ekki lengri.
Samæfingu slitiö
Klukkan tiu á sunnudagsmorg-
un var samæfingunni formlega
slitiö. Páll Björnsson á Fagur-
hólsmýri flutti fyrst nokkur orð,
en siöan tók Gunnar Friðriksson
til máls. Sagði hann m.a. að ferð-
in myndi verða sér ógleymanleg,
og ekki hægt að lýsa henni með
fáum orðum.
Sagði Gunnar, að samæfingar
væru það þýðingarmiklar i starf-
semi félagsins, að þær mættu alls
ekki falla niður, og vænti hann
þess, að hópurinn, sem i öræfa-
sveit kom, myndi mæta aftur á
næstu samæfingu.
Svo mælti Gunnar:
— Mér er það ánægjuefni,
hversu hér hefur verið fjölmennt.
Ég þakka ykkur öllum fyrir kom-
una, — góða heimferð.
Og þar með var samæfingin úti.
WriPjfsiiV'f-A
Þrir af forystumönnum SVFÍ t.f.v. Hannes Hafstein framkvæmdastjóri, Gunnar Friðriksson, forseti
stjórnar og Hálfdán Henrýsson, nýskipaður erindreki félagsins. Myndin er tekin við Fjallsárlónið.
Menn konur, og börn, gengu til
sinna verka og undir bjuggu
heimferð. Tjöldin féllu eitt og eitt.
En hópurinn yfirgaf ekki
öræfasveit næstu klukkustundir.
Þar i sveit er margt að sjá og
skoða fyrir ókunnungan, og
margir áttu erfitt með að slita
augun frá þessari miklu fegurð,
sem þar rikir, — þessum miklu
andstæðum: kjarrvöxnum hlið-
um, beljandi jökulám og hrika-
legum jöklum.
Þá fá orð ekki sagt, það sem i
huganum býr. —Gsal—
Vörubifreið til sölu
Mercedes Benz 1413, árgerð 1969, með túr-
binu og ballans-stöngum.
Upplýsingar i sima 94-2147.
Timinn er
• peningar
| Aiiglýsid'
: i Tímanum
Sólun
SÖLUM HJÓLBARÐA A FÓLKSBlLA,
JEPPA- OG VORUBlLA MEÐ
DJÚPUM SLITMIKLUM MUNSTRUM.
Ábyrgð tekin <3 sólningunni.
Kaupum notaða sólningarhæfa nylon-hjólbarða.
önnumst allar .viðgerðir hjólbarða með
fuilkomnum tækjum.
GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN.
BARÐINN HF.
ARMULA7 V3050I &84844