Tíminn - 05.11.1974, Blaðsíða 3

Tíminn - 05.11.1974, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 5. nóvember 1974. TÍMINN 3 i Vísnasöngvararnir Trille — ásamt dótturinni Sille — og Cornelis Vreeswijk. TimamyndG.E. TRILLE OG CORNELIS KOAAIN — þau eru einhverjir kunnustu vísnasöngvarar á Norðurlöndum HHJ—Rvik. — Þeim fjölgar æ hérlendis, sem yndi hafa af vísna- söng, eins og sjá má af þvi aö miðar á tvenna tónleika vlsna- söngvaranna Cornelis Vreeswijk og Trille seldust upp á fáeinum minútum i gærmorgun. Þau Cornelis og Trilleem hingað komin frá Færeyjum, þar sem þau hafa haldið tónleika. Flestir munu þekkja hinn sænsk-hol- lenska Cornelis af lögum hans, sem hafa nokkuð verið leikin i út- varp. Trille, sem er dönsk, mun hins vegar ekki vera jafn kunn hérlendis, þótt hver maður þekki hana i heimalandi hennar. Cornelis hefur alls sungið inn á átján LP-plötur. Oftast hefur hann sjálfur samið bæði lög og ljóð, en auk þess hefur hann sung- iö Bellman, Taube og Forssell. — Það er alltaf verið að spyrja mig að þvi, hvort ég sé hættur að semja sjálfur, sagði hann á fundi með blaðamönnum i gær — en þvi fer fjarri. — Ég er ekki enn búinn að ákveða hvað ég syng á tónleikun- um hér, en ég get þó lofað þvi, að sendiherranum mun ekki geðjast að þvi öllu, sagði Cornelis og hló við, en I Sviþjóð er hann kunnur fyrir ádeilu á borgaralega lifs- háttu, sem oft er svo hvassyrt að undan hefur sviðið. — Ég er gagnrýninn i söng minum sagði Cornelis ennfremur en vil samt ekki láta draga mig i flokkspólitiskan dilk — ég eftirlæt áheyrendum að túlka lag og ljóð eins og þá lystir. AAaður týnist af brezkum togara Gsal-Reykjavik.-I fyrri nótt fór maður fyrir borð af brezka togaranum, Crystal Palace, þar sem hann var staddur um 150 sjómilur suð-austur af Stokks- nesi. Þrátt fyrir mikla leit, bar hún engan árangur. Eiturlyf í Gsal-Reykjavik — Um helgina fundust eiturlyf I fórum eins skip- verja á Brúarfossi. Voru það um 15 grömm af marijuana og aö sögn Asgeirs Friðjónssonar hjá fikniefnadeiid lögregiunnar, var ekki hægt aö sjá, að eiturlyfin hefðu verið keypt til dreifingar eða hagnaðar viðkomandi skip- verja. Farið var með hasshundinn um borð i skipið, þegar það kom til Reykjavikur núna um helgina og fundust eiturlyfin fyrst og fremst vegna ábendinga annarra skip- verja og vegna óróleika i kringum einn ákveðinn skipsklefa, að sögn Ásgeirs. Sagði hann, að þessu máli yrði sennilega lokið með sektaálagn- ingu. Þá gat Cornelis þess, að þau Trille hefðu skoðað Árnastofnun og séö þar mikið magn segul- banda með þjóðlegri islenzkri tónlist. — Þarna er mikið efni, sem islenzkir visnasöngvarar gætu unnið úr, sagði hann og mig furöar á þvi, að ekkert af þessu hafi verið gefið út. — Við Cornelis höfum sungið allmikið saman sagði Trille og ég held að mér sé óhætt að segja, að sá boðskapur, sem við viljum koma á framfæri sé I stórum dráttum áþekkur. Danskir visna- söngvarar iðka mjög pólitiska ádeilu og þannig má t.d. nefna að viða sér I visunum stað þess stjórnmálaástands, sem nú rikir I Danmörku. — Ég mun þó einnig syngja hér vlsur, þar sem kveður við annan tón, þvi að á tónleikunum á sunnudaginn ætla ég að syngja visur við ljóð eftir Jens August Schade. Eins og fyrr segir seldust allir miðar á tvenna tónleika þeirra Trille og Cornelis upp á fáeinum minútum i gærmorgun. Þess vegna verður efnt til aukatón- leika á föstudagskvöld, og miðar verða seldir i kaffistofu Norræna hússins á miðvikudagsmorgun kl. niu. Þá verða og seldir þeir miðar sem kunna að verða afgangs á tónleika með Cornelis, sem Is- lenzk-sænska félagið efnir til á sunnudag. í dag og á sunnudag efnir Dansk-Islenzka félagið og Félag dönskukennara til tónleika með Trille og miðar á þá verða seldir við innganginn. Á miðvikudag fara þau bæði norður til Akureyrar, ef veður leyfir og halda tónleika þar. Þeir tónleikar verða að tilhlutan Böðvars Guðmundssonar kenn- ara, en hann er sem kunnugt er einn þeirra fáu listamanna Is- lenzkra, sem lagt hafa stund á visnasöng. Þá er ákveðið að þau komi fram I Vöku á laugardagskvöld. Hins vegar mun útvarpið ekki hafa sýnt áhuga á að taka upp tónleika þeirra, og má það undar- legtkallast, ef rétter. Væri og full ástæða til þess að sjónvarpið léti taka tónleikana upp á band, þannig að fleiri fengju að sjá og heyra þessa listamenn en þeir fáu, sem komast á tónleikana sjálfa. i tilefni af skrifum Þjóðviljans að undanförnu um slit viðræðn- anna um vinstri stjórn, þykir rétt að birta hér niðurlagsorö greinar eftir Ingvar Glslason alþingismann, sem birtist I Timanum 8. september siðast liðinn: ,,Ég geng þess ekki dulinn, að mörgum góöum framsóknarmanni eru það sár vonbrigöi, að ekki gat oröið framhald á vinstra sam- starfi undir forystu Ólafs Jóhannessonar. Ekki situr á mér að gera lltið úr slikum vonbrigðum. Þau eru mér skiljanleg, og þingmönn- um Framsóknarflokksins yfirleitt. Hitt er jafnvist, að skilyröi til áframhaldandi vinstra samstarfs voru ekki fyrir hendi. Eins og ég hef áðui; greint frá, strönduðu viðræður um vinstri stjórn á vilja- leysi Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokks. Alþýðubandalagið neit- aði að lita raunsæjum augum á stjórnmálaaðstæður, eins og þær blasa nú við. Sjálfur Lúðvik Jósefsson, sem þó er minnst kreddu- bundinn þeirra Alþýðubandalagsforingja, og yfirleitt kunnur að þvi að vera i öruggu jarðsambandi, sýndi vinstri viðræðum ódulda fyrirlitningu. Engum getum skal að þvi leitt, hvernig á þvi stóð, að Alþýðubandalagið lék þann leik, sem raun bar vitni. En það skal verða klárt, að framsóknarmenn láta ekki hafa sig I að eltast við pólitiskar kenjar. Það var nauösynlegt að mynda starfhæfa rikis- stjórn, og úr þvi að Alþýðubandalagið valdi þann kost að „draga sig út úr pólitik”, þá varð að leita annarra ráða til stjórnarmyndunar og flokkasamstarfs á Alþingi. Myndun núverandi rlkisstjórnar var þingræðisleg nauðsyn. An hennar hefði veriö stefnt út I pólitiskt öngþveiti, sem er i andstöðu við almennan vilja fólksins I landinu og andstætt lýðræði og þingræði, og þó fyrst og fremst andstætt grund- vallarhagsmunum islenzkrar þjóðarog þjóðarbús. Þess skulu menn minnast, að með myndun rikisstjórnarinnar er fundin iausn á alvarlegri stjórnarkreppu og sköpuð skilyrði til stöðugra stjórnar- fars en þjóðin hefur mátt búa viö að undanförnu. Mikilvægi núver- andi rikisstjórnar verður bezt skilið i þvi ljósi. Dóm um þessa rikis- stjórn ætti enginn að kveða upp fyrirfram. Hana ber aö dæma eftir verkum og árangri þeirra. Sá dómur biður sins tima.” Lúðvík og verðlagseftirlitið Deilur virðast magnast innan Alþýðubandalagsins eftir þvi sem nær dregur landsfundi þess. Þannig virðist Lúðvik Jósefsson ekki eiga upp á pallborðið hjá þeim, sem ráða Þjóöviljanum. Þjóðviljinn birtir nú greinar dag eftir dag, þar sem þvl er haldið fram, að verð- lagseftirlitið hafi verið gagnslaust eða gangslitið á undanförnum árum, þviaölitiðsem ekkert hafi verið gert af þess hálfu til þess að fylgjast með verðlaginu. Verkefni verðlagseftirlitsins hafi raun- verulega verið fólgið i þvi að ákveða hámarksálagningu, sem kaupmenn hafi svo ekkert farið eftir, þar sem allt eftirlit skorti. Þessum ádeilum Þjóðviljans er að sjálfsögðu aðallega beint gegn Lúðvik Jósefssyni, sem hefur verið viðskiptaráðherra undanfarin þrjú ár. — Þ.Þ. LYKILLINN BEIÐ ÞJOFANNA í SKRIFBORÐSSKÚFFUNNI — tæpum 620 þúsundum stolið úr peningaskdp um helgina Gsal-Reykjavik — Stórþjófnaður var framinn um helgina. Brotizt var inn I nokkur fyrirtæki við Klettagarða I Reykjavik og I einu fyrirtækinu var komizt inn i pen- ingaskáp og 617.300 krónum stol- ið. Brotizt var inn i nokkur fyrir- tæki við Klettagarða aðfaranótt sunnudags, en það var þó ekki fyrr en I gærmorgun, að upp komst að farið hafði verið i peningaskápinn. Höfðu þjófarnir notað til þess lykilinn að skápn- um, en hann hafði verið geymdur I skrifborðsskúffu i sama her- bergi. Þjófarnir höfðu farið inn á lagerinn, en þaðan er innangengt i skrifstofur. Höfðu þjófarnir rót- að i skúffum á skrifstofunni og fundið lykil að peningaskáp, og siðan opnað hann og stolið þaðan Frh. á bls. 6 Háhyrningarnir forð- uðust Sigurvonina AA-Höfn, SJ-Reykjavik. Sigurvon frá Stykkishólmi lagði upp irá Höfn I Hornafirði fyrir helgina á háhyrningsveiðar, en sjómenn- irnir og hvalfangarinn um borð urðu ekki varir. Þeir lögðu fáein sildarnet til að laöa háhyrninga að, en ekkert dugði. Þetta var dálitið kynlegt, þvi að menn i öðrum bátum, sem voru á sömu slóðum á sildveiðum, sáu töluvert af háhyrningum. Svo virtist, sem hvalirnir vissu hvað þeir um borð I Sigurvon höfðu i hyggju og forðuðust þvi skipið. Sigurvon hefur legið i höfn eystra siðan á laugardag og stóð ekki til aö hún færi út i gær, mánudag. Fimm bátar eru nú á sild frá Höfn og er afli sæmilegur, um 50- 110 tunnur i róðri. Tveir bátar voru komnir inn fyrri hluta mánudags, annar með um 50 en hinn með um 100 tunnur. Háhyrningsbúriö sett um borð I Sigurvon á Höfn nú fyrir helgina, áður en lagt var af staö i veiðiferöina. Ljósmyndari Jens Mikaelsson. Tíu brunaútköll um helgina Gsal-Rvik. Frá þvi á föstudags- kvöld og til mánudagsmorguns var slökkviliðið I Reykjavík kvatt út tiu sinnum vegna bruna. t öll- um þessum útköllum var litið tjón vegna elds. Vilhjálmur Sigurbjörnsson. Vilhjálmur Sigurbjörns- son tekur sæti á Alþingi Vilhjálmur Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri Egilsstöð- um, fyrsti varaþingmaður Framsóknarflokksins i Austur- landskjördæmi tók I gær sæti á al- þingi i stað Tómasar Arnasonar, sem dvelur erlendis i opinberum erindagjörðum. 1 gær tók fyrsti varamaður Sjálfstæðisflokksins i Austur- landskjördæmi sæti á þingi i stað Sverris Hermannssonar, sem er erlendis. Kenjar Alþýðubandalagsins

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.