Tíminn - 05.11.1974, Side 15

Tíminn - 05.11.1974, Side 15
ÞriOjudagur 5. nóvember 1974. TÍMINN 15 Baráttan á toppnum harðnar ★ Liverpool mátti þakka fyrir aðeins 0:1 tap á Portman Road ★ AAanchester City átti aldrei möguleika gegn Everton ★ Ólafur Noregskonungur var heiðursgestur hjá Q.P.R. ★ Sammels skoraði sitt 50. deildarmark Enn harönar baráttan á toppi 1. deildar i Englandi. Tvö efstu liðin töpuöu nú um helgina, Liverpool i Ipswich 0-1, og Manchester City i Liverpool á móti Everton 0-2. Leikur Liverpool og Ipswich var mjög hraður og skemmtiiegur. Staðan var 0-0 i háifleik, og getur Liverpool þakkað það hinum snjalla markverði sinum, lands- liðsmarkverðinum Ray Cle- mence. Hann varði tvisvar i fyrri hálfleik skot, sem fáir aðrir markmenn hefðu getað varið. 1 seinni hálfleik hélt Ipswich áfram að sækja að marki Liverpool, en litlu munaði samt að Kevin Keeg- an skoraði fyrir Liverpool á 60. minútu, er hann komst einn inn fyrir vörn Ipswich, en á óskiljan- legan hátt tókst honum að klúðra tækifærinu. Það var ekki fyrr en á 83. minútu að Ipswich skoraði. Þá lék Lambert upp kantinn og gaf góðan bolta fyrir á hinn unga Tal- bot. Honum tókst að koma knett- inum undir Clemence, sem kom hlaupandi út á móti, og boltinn rúllaði rólega yfir marklinuna. Manchester City átti aldrei möguleika á móti léttleikandi Everton-liðinu, — City átti i vök að verjast allan leikinn. Það var fyrirliði Everton, Dave Clements, sem átti stórleik og stjórnaði liði sinu röggsamlega. Hann gaf bolt- ann fyrir á Connelly snemma i fyrri hálfleik, og Connelly tókst að skora úr erfiðir aðstöðu. 1 seinni hálfleik bætti Jones við öðru marki fyrir Everton, en með réttu hefði sigur Everton átt að vera miklu stærri. Hinir 43.000 áhorfendur á Goddison Park voru samt ánægðir með slna menn. Úrslitin um helgina urðu annars þannig: 1. deildl. deild. Arsenal—Wolves 0-0 Birmingham—Chelsea 2-0 Everton—ManchesterC. 2-0 Ipswich—Liverpool 1-0 Leeds—Derby 0-1 Leicester—Burnley 1-0 Newcastle—Luton 1-0 Q.P.R.—Coventry 2-0 Sheffield Utd.-Carlisle 2-1 Stoke—Tottenham 2-2 West Ham—Middlesborough 3-0 2. deild. Bla ckpool—Sheffield Wed. 3-1 Bolton—Nottingham 2-0 BristolR,—Southampton 0-1 Cardiff—Sunderland 2-0 Fulham—Aston Villa 3-1 Manchester Utd.—Oxford 4-0 Notts—Hull 5-0 Oldham—Millwall 1-1 Portsmouth—BristolC. 0-1 W.B;A.—Norwich 1-1 York—Orient 0-1 Leeds „átti” leikinn á móti Derby, en tapaði samt. Boulton I marki Derby varði hvað eftir annað á ótrúlegasta hátt, og þótt Lorimer og Clarke ættu báðir mjög góðan leik fyrir Leeds, tókst þeim ekki að koma knettinum framhjá honum. Francis Lee skoraði mark Derby á 80. minútu, en það var fjórða skotið, sem leikmenn Derby áttu á mark Leeds I leiknum. Skot Lee var af 15 metra færi, algjörlega óverj- andi fyrir Harvey. Leikur þessi var nokkuð harður, og voru fimm menn bókaðir, þeir Rioch, Powell og Davies frá Derby og Yorath og Cooper frá Leeds. Trevor Brooking átti mjög góð- an leik fyrir West Ham á móti Middlesborough, og sýndi hann þar, að hann verður svo sannar- lega með I liði Kon Revies i fram- tlðinni. Keith Robson skoraði fyrsta mark West Ham eftir fyrirsendingu frá Gould. Þetta var eftir hálftima leik. I seinni hálfleik skapaðist oft hætta við bæði mörkin og það var ekki fyrr en á 84. minútu, að West Ham bætti við öðru marki, er fyrirliði „Boro”, Boam, sendi knöttinn i sitt eigið net. Þremur minútum siðar innsiglaði Paddon sigur West Ham, er hann skoraði beint úr frisparki af 35 metra færi. John Duncan er þegar farinn að endurgreiða þau 150.000 pund, sem Tottenham borgaði fyrir hann. 1 sinum öðrum leik með Tottenham skoraði hann bæði mörkin sem liðið gerði, en það var á Victoria Ground i Stoke. Liði Stoke tókst einnig að skora tvisvar, og þar voru þeir Salmons og Greenhoff að verki. öll komu þessi mörk i fyrri hálfleik, en i seinni hálfleik áttu bæði liðin góð tækifæri til að gera út um leikinn, t.d. var varið á linu frá Chivers, og Farmer i marki Stoke varði meistaralega skot frá Duncan. Don Givens hefur heldur betur verið á skotskónum undanfarna daga. Um siðustu helgi skoraði hann annað mark Q.P.R. á móti Coventry, sem ekki hafði tapað i siðustu sjö leikjum. Hitt mark Q.P.R. skoraði Stan Bowles, og sýndi hann það, að hann á ekki siður heima I landsliði Don Revi- es en þeir Gerry Francis og Dave Thomas. Mark Givens var hans sjötta mark á viku. Hann skoraði tvö mörk á móti Wolves og þrjú á móti Rússum fyrir irska landslið- ið. Sigur Q.P.R. á móti Coventry var fyllilega verðskuldaður, og hefði vel getað orðið stærri. Þess má geta til gamans, að Óiafur Noregskonungur var heiðursgest- ur á þessum leik. Arsenal-liðið átti svo sannar- lega ekki að láta Úlfana sleppa heim með annað stigið, en þeir geta kennt um klaufaskap sinum, að svo fór. Þrisvar i leiknum átti Arsenal skot I stengur, auk allra dauðafæranna, sem buðust. Rétt fyrir leikslok munaði, svo minnstu að Ulfarnir stælu sigrin- um. Hibbitt gaf vel fyrir á Richards, sem skaut góðu skoti, en Rimmer varði meistaralega. Maður leiksins var hinn ungi Li- am Rrady hjá Arsenal, en hann gerði vörn Úlfanna oft gramt i geði. Birmingham án Trevor Francis, vann góðan sigur i leik gegn Chelsea á St. Andrews i Birmingham. Þar var maður leiksins Howard Kendalij en hann lagði annað markið, sem Bob Hatton skoraði úr i fyrri hálfleik, en skoraði siðan hitt i seinni hálf- leik. Chelsea átti sin færi lika, en þeir komu knettinum ekki fram- hjá Latchford, sem var mjög góður, i marki Birmingham. Lið Birmingham á nú við mikil meiðsli að striða. Auk Francis eru nú einir 5 leikmenn á sjúkra- lista hjá þeim. Loksins kom að þvi, að Jolin' Sammels skoraði sitt 50. deildar- mark, en eftir þvi hafði hann beð- ið i 14 mánuði. Og hvilikt mark, loksins þegar það kom. Sammels fékk knöttinn á miðju og lék áfram, en skaut siðan 35 metra frá marki, og Stevenson I marki Burnley hreyfði sig ekki einu sinni. Mark þetta kom eftir 50 minútur, en þær minútur, sem eftir voru, pressaði lið Burnley stift, og var óheppið að jafna ekki a.m.k. Newcastle og Luton áttu léleg- an leik á St. James Park i New- caslte. Ahorfendurnir voru farnir að trúa þvi, að Luton tækist að stela öðru stiginu, þegar John Tudor tókst á 80. minútu að koma knettinum i mark Luton. Ekki var mikið um góð færi i þessum leik, helzt það, að i fyrri hálfleik átti McDonald skot i slá. Staða Luton á botninum fer nú að verða nokk- uð alvarleg, og er ekki ótrúlegt, að þeir hreyfi sig ekki þaðan i vet- ur. Liðið er greinilega ekki i sama gæðaflokki og hin 1. deildar liðin. Sheffield Utd. getur þakkað Tony Field sigurinn yfir Carlisle. Hann skoraði bæði mörk Sheffield i fyrri hálfleik, með tveggja minútna millibili. Mcllmoyle skoraði mark fyrir Carlisle seinna i leiknum en það breytti engu um það, að bæði stigin voru kyrr i Sheffield. t annarri deildinni hefur Manchester Utd. nú náð 5 stiga forystu. Næst er Norwich, og 3 stigum þar fyrir neðan Sunder- land og Aston Villa, sem bæði töp- uðu nú um helgina. Manchester Utd. lék á laugardaginn heima á móti Oxford, og i hálfleik leit út fyrir stórsigur Man. Utd. þvi þeir höfðu skorað 4 mörk á móti engu. En i seinni hálfleik voru ekki skoruð mörk, svo lokatölurnar urðu 4-0. Pearson skoraði „hat- trick”, og Macari bætti svo fjórða markinu við. Lið Man. Utd. hefur nú spilað sex leiki i röð, án þess að fá á sig mark. Fulham skoraði mark þegar á 2. minútu á móti Aston Villa, og var Lacey þar að verki. Þetta braut lið Villa alveg niður, og Busby og Lloyd skoruðu tvö mörk i viðbót fyrir Fulham áður en Little skoraði fyrir Aston Villa. Sunderland tapaði aftur nú i Cardiff, en Finnieston og Ander- son skoruðu fyrir Cardiff. WBA og Norwich gerðu jafntefli 1-1. mark WBA gerði Shaw, en McDougall jafnaði fyrir Norwich. Ó.O. 1. DEILD Staðan i 1. deild er nú þannig. Liverpool 15 i 10 1 ‘ 1 22-9 21 Ipswich 16 9 2 5 20-10 20 Everton 16 5 : 10 1 22-17 20 Manch.City 16 8 4 4 19-16 20 Stoke 15 6 6 3 25-20 18 . Middlesbro 15 7 4 4 22-19 18 Derby 16 6 6 4 24-21 18 Sheff.Utd. 16 7 4 5 24-17 18 Newcastle 15 6 5 4 20-20 17 West Ham 16 6 4 6 28-25 16 Birmingham 16 7 2 7 24-23 16 Burnley 16 7 2 7 24-25 16 Wolves 16 4 7 5 16-17 15 Leicester 14 5 4 5 18-18 14 Coventry 15 4 6 5 20-26 14 Q.P.R. 15 4 5 6 15-17 13 Carlisle 16 5 3 8 14-16 13 Chelsea 15 3 6 6 16-25 13 Leeds 15 4 3 8 16-17 11 Tottenham 15 4 3 8 19-23 11 Arsenal 15 3 4 8 15-20 10 Luton 16 1 7 8 13-23 9 2. DEILD Staðan i 2. deild: Manc.Utd. 16 12 3 1 29-7 27 Norwich 15 8 6 1 22-10 22 Sunderland 15 7 5 3 23-11 19 Aston Villa 15 7 5 3 25-12 19 W.B.A. 15 5 6 4 18-12 16 Bristol City 14 5 6 3 12-9 16 Blackpool 16 5 6 5 17-26 16 Hull 16 5 6 5 19-30 16 Fulham 15 5 5 5 19-12 15 Bolton 14 6 3 5 16-13 15 York 16 5 5 6 21-20 15 Notts Co. 16 4 7 5 19-20 15 Nott. For. 16 6 3 7 18-23 15 Oxford 15 6 3 6 15-24 15 BristolRov. 15 5 4 6 13-18 14 Orient 15 4 6 5 12-18 14 Oldham 14 5 3 6 15-17 13 Southampton 15 4 4 7 19-23 12 Millvall 16 4 4 8 16-23 12 Portsmouth 16 2 7 7 12-22 11 Cardiff 15 4 2 9 15-25 10 Sheff.Wed. 16 2 5 9 13-25 9 Blóðtaka fyrir -Birmingham...- Tervor Francic gekkst undir skurðaðgerð og verður hann frá keppni í 3 mánuði EINS OG kunnugt er meiddist Trevor Francis illa I leik á móti Shef- field Utd. fyrir rúmri viku. Þá varð að bera hann af leikveili vegna mciðsla i fæti og meiðslin voru þaö alvarleg, að hann þurfti aö gang- ast undir skruðaðgerð i s.l. viku. Þetta verður til þess, að Francis verður frá knattspyrnu i a.m.k. þrjá mánuði, og er það mikil blóötaka fyrir Birminghamliðið, en velgengni þess undanfarnar vikur hefur aö mestu leyti byggzt á Francis. Hann hefur verið aðaldriffjöður liðsins og I deildarleikjunum hefur hann skoraö 10 mörk. STJÓRNIN LÉT ---------UNDAN-------------------1 — leikmönnum Chelsea CHELSEA hefur nú ráðið til sin nýjan framkvæmdastjóra, og sá, sem að lokum varð fyrir valinu, var aðstoöarframkvæmdastjóri Dave Sextons, Ron Stuart. Þeir hafa viða leitaö fyrir sér að nýjum manni, en annað hvort voru þeir sem buðust ekki nógu góðir, eða þeir, sem Chelsea vildi fá.voru ekki á lausum kili. En leikmenn Chelsea voru á einu máli um það, að Ron Stuart væri sá bezti, sem hægt væri að fá I starfið, og að lokum lét stjórn liðsins undan tilmælum leikmanna og réði Ron Stuart. — Ó.O. STAN BOWLES............sýndi það gegn Coventry, að hann á heima I enska landsliðinu. Hér á myndinni sést hann leika á Dennis Mortimer I ieiknum á laugardaginn.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.