Tíminn - 05.11.1974, Side 20
Timinner
peningar
Aug^skr
I Hiwatwmi
fyrirgóéan mai
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
-
\
✓
Rdðherrafundur EFTA f Helsinki:
Lýsir yffir stuðningi við Islendinga
Hvatt til, að samningur Islendinga við EBE gangi í gildi
O0-Reykjavik. Ráöherrafundur
EFTA-landanna var haldinn i
Helsinki dagana 31. okt. og 1. nóv.
Aöalmálin, sem þar voru rædd,
voru starfsemi samtakanna, og
staöa þeirra gagnvart Efnahags-
bandalaginu, efnahagsmál og
alþjóöaviöskipti, veröhækkanir
og aöstoð viö þróunarlöndin. i
umræöum um austur-
vesturviöskipti geröi finnski
fulltrúinn sérstaka grein fyrir
samningum og viðskiptum Finna
viö Comeconlöndin.
Ólafur Jóhannesson viöskipta-
ráðherra sat fundinn fyrir ís
lands hönd, og sagði hann á
blaöamannafundi i gær að eitt
mál hefði verið rætt á fundinum,
sem varðar Islendinga sérstak-
lega. Þegar rætt var um fram-
kvæmd fríverzlunarsamningsins
við Efnahagsbandalagið kom upp
það spursmál, að samningur Is-
lendinga um fiskafurðir hefur enn
ekki gengið i gildi, vegna þess að
samningar hafa ekki tekizt við
Vestur-Þjóðverja i landhelgis-
málinu.
— Ég lagði sérstaka áherzlu á
þetta atriði, sagði ráðherrann, og
benti á, að okkur væri neitað um
þessi frlðindi, sem okkur er þó
ætlað að njóta. Þetta atriði fékk
byr I umræðunum og Kleppe,
norski fjármálaráðherrann tók
málið upp og varð það til þess að
samþykkt var ályktun um að ráð-
herrafundur EFTA lýsti áhyggj-
um slnum yfir þvi að samningur-
inn hefði ekki komið til fram-
kvæmda. Sýnir þessi ályktun
mjög jákvæða afstöðu EFTA með
okkar málstað.
Kleppe sagði, að Norðmenn
mundu bera málið upp i sam-
eiginlegri nefnd, sem hvert og eitt
aöildarrikja EFTA hefur til
viðræðna við Efnahagsbanda-
lagið og munu Norðmenn ræða
málið I nefndinni i desember n.k.
Hvatti hann önnur aðildarríki til
að gera slikt hið sama. Það er at-
hyglisvert hve góðan hljómgrunn
þessi ályktun fékk á fundinum,
sérstaklega ef tillit er tekið til
þess, að fram að þessu hafa
ráðherrar EFTA-landanna ekki
viljað hafa nein afskipti af þessu
máli.
— Þótt þessi ályktun ráði ekki
neinum úrslitum i málinu, sagði
viðskiptaráðherra, er okkur
mikill styrkur að fá þessa yfir-
lýsingu fram, að mínum dómi.
Talsvert var rætt um Portúgal
á ráðherrafundinum og stjórnar
skiptin þar. Ræddu menn með
hvaða hætti EFTA-löndin gætu
veitt Protúgölum fjárhagslega
aöstoð. Tvö aðildarrikjanna,
Sviþjóð og Noregur hafa þegar
tekið upp viðræður við Portúgala.
Ráðherrafundurinn tók mjög já-
kvæða afstöðu til þessa máls og
samþykkt var að vinna áfram að
málinu.
Eftir að Bretar og Danir gengu
úr EFTA og i Efnahagsbanda-
lagið hafa mál samtakanna verið
i nokkurri óvissu.
Á ráðherrafundinum var tals-
vert rætt um framtiðarverkefni
EFTA og hvort ekki ætti að stefna
aö nánara sambandi milli þeirra,
þannig að þessi smáriki gætu
komið meira fram sem einn aðili
gagnvart öðrum rikjum og sam-
tökum, og var framkvæmda-
stjóra falið að rannsaka þau mál
nánar og leggja fram tillögur á
næsta ráðherrafundi, sem
haldinn verður 22. mai n.k.
Sérstaklega var rætt um oliu-
samstarf EFTA-landanna. Lýst
var yfir, að við tslendingar gæt-
um ekki tekið þátt i þvi, og sama
gerðu Norðmenn.
Rannsóknarlög-
reglan snör
í snúningum
Gsal-Rvik. — Aðfaranótt
mánudags var 70 þúsundum kr.
stolið af manni I ibúö í Breiðholts-
hverfi. Rúmlega klukkutima eftir
aö iögreglunni barst tilkynningin
um þjófnaðinn, var hún búin aö
hafa upp á sökudólginum og
koma peningunum til rétts eig-
anda.
Aðdragandi þjófnaðarins var
sá, að fólk sat að drykkju i
umræddri ibúð á sunnudags-
kvöldið. Einn 'gestanna hafði
fengið sér of mikið neðaniþvi, og
dó ölvunardauða og meðan sá
maður var i þvi ástandi, þá stal
annar veski hans, sem i var um 70
þúsund kr. i reiðufé.
HUFVU05TADSBLADET
Lugn
Eftaiíiiiiistrariia vill iðoKimlnigar,
stöclii IsJands fiske *vensk kyrka
> Hp'
Rfgn
i syd,
kylan -
pá vdg
I tiliin riiililmli
líniiuhniniri
nrh sjiiinitli■
ihr I llrl "i
Aöalfrétt eins blaöanna f Helsinki sýnir aö þaö vakti talsverða athygli,
aö ráöherrafundur EFTA, semhaldinn var þar, skyldi gera ályktun um
aö styöja málstaö tslendinga.til aö fá þaö fram, aö samningurinn um
tollaivilnanir á fiski viö Efnahagsbandalagiö gengi I gildi, en Vestur-
Þjóöverjar standa gegn þvi, vegna þess aö ekkihefur tekizt aö ná
samkomulagi viö þá ilandhelgismálinu.
HORNA
A MILLI
Reuter-Washington. t dag
ganga Bandarikjamenn aö
kjörboröinu. t kosningunum i
dag veröa m.a. kjörnir allir
þingmenn fulltrúadeildar
Bandarikjaþings, þriöjungur
þi'ngmanna öldunga-
deildarinnar, rikisstjórar i 34
rikjum Bandarikjanna.
Talsmenn repúblikana lýstu
þvi yfir i gær, að sigur
demókrata i kosningunum
Bergstaðastræti,
Hagamelur,
Grenimelur,
Kleppsvegur,
Efstasund innri
hluti
Ennfremur
sendlar
fyrir hádegi
yrði ekki eins stór og þeir
hefðu óttazt i fyrstu. Einn af
sérfræðingum repúblikana
sagði I viðtali við Reuter-
fréttastofuna að veikindi
Richards Nixons, fyrrum for-
seta, hefði að undanförnu bætt
stöðu flokksins eftir fylgis-
hrunið I sambandi við Water-
gate-hneykslið.
Mary Louise Smith, for-
maður landsnefndar
repúblikana, sagði i fyrradag:
— Ég sé, að taflið er viða að
snúazt við, og ég held, að
niðurstaðan verði mun hag-
stæðari en ýmsir hafa spáð.
Robert Strauss, formaður
landsnefndar demókrata,
sagði á hinn bóginn, að
flokkurinn ynni fimm — jafn-
vel sex — sæti i öldunga-
deildinni og 27-32 sæti i
fulltrúadeildinni (435 þing-
menn eiga sæti I deildinni).
Einn af sérfræðingum
demókrata kvað þróunina oft
á siðustu stundu snúast þeim I
hag, er þegar sætu á þingi. Sé
svo, hagnast repbúlikanir á
þvi, vegna þess að flestir
frambjóðendur þeirra, sem I
vök eiga að verjast fyrir fram-
bjóðendum demókrata, hafa
setið á þingi.
Sumir þeirra hafa verið
þingmenn um árabil, t.d.
Milton Young, öldunga-
deildarmaður frá Norður-
Dakota sem setið hefur i
öldungadeildinni allt frá árinu
1945. Keppinaut hans að þessu
sinni, William Guy, fyrrum
rikisstjora, var spáð öruggum
sigri fyrir fáeinum vikum
(50% gegn 40%) — nú hefur
dregið saman með þeim Guy
og Young (46% gegn 44%)
Símar 1-23-23 og
26-500
Fréttaskýrendur telja, að
heimsókn Gerald Fords for-
seta til nokkurra rikja að
undanförnu hafi haft einhver
áhrif, einkum þar sem úrslit
eru talin óviss.
1 gær var demókrötum spáð
sigri I kosningunum og talið,
að þeir hefðu að þeim loknum
tryggan meirihluta I báðum
deildum Bandarikjaþings.
Sömuleiðis er álitið, að þing-
heimur verði mun frjáls-
lyndari en áður — breyting,
sem gæti komið sér illa fyrir
Ford forseta, sem er fremur
Ihaldssamur.
★
Reuter-Róm. Kurt Waldheim,
aöalritari Sameinuöu
þjóöanna kom i gær til Róm til
aö vera viöstaddur setningu
Matvælaráöstefnu S.Þ. i dag.
Á flugvellinum sagði Wald-
heim við fréttamenn, að aðal-
markmið ráðstefnunnar væri
að finna réttláta lausn á
fæöuskorti þeim, er steðjaði
að æ stærri landsvæðum
heims.
Waldheim kvað tvær leiðir
til lausnar koma helzt til
greina I þessu sambandi.
Annars vegar að auka ræktað
land I þróunarlöndunum og
hins vegar að koma á fót
álþjóðlegri stofnun — eins
konar matvælabanka — sem
gæti miðlað fæðu til þeirra
landa, sem i mestum erfiðleik-
um ættu hverju sinni.
★
Reuter-Santiago. Yfirvöld i
Chile hafa handtekið systur
SaLvador Allendes, fyrrum
forseta.
Henni er gefið að sökk að
hafa tejið þátt i starfsemi
vinstrisinnaðra öfgahópa, að
sögn háttsetts embættismanns
I Chile.
Frekari upplýsingar fengust
ekki.
★
Reuter-Long Beach. Læknar
Richard Nixons, fyrrum
Bandarikjaforseta, sögöu aö
Nixon heföi haft fótavist i
fyrsta sinn i gær frá þvi hann
var skorinn upp viö blóötappa
I fæti á fimmtudag i fyrri viku.
Óstaðfestar fréttir hermdu
þó, að liðan Nixons væri enn
slæm, þótt hann væri heldur á
batavegi.
straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg-
um mynztrum og litum.
Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj-
um sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og
lífgið upp á litina í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
Sambandshúsið Rvík sími28200