Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Tíminn - 26.11.1974, Side 9

Tíminn - 26.11.1974, Side 9
Þriöjudagur 26. nóvember 1974. TÍMINN 9 tJtgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ititstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm). Jón Helgason. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur f Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrif- stofur i Aðaistræti 7, simi 26500 — afgreiðslusími 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð I lausasölu kr. 35.00. Askriftargjald kr. 600.00 á mánuði. Blaðaprent h.f. Játning Ragnars Það er bersýnilegt af ræðu þeirri, sem hinn endurkjörni formaður Alþýðubandalagsins, Ragnar Arnalds, hélt við setningu landsfundar þess, að bandalagið á erfitt með að marka sér stöðu á sviði stjórnmálanna, þar sem það vill hvorki teljast sósialdemókratiskur eða kommúnistiskur flokkur. Ragnar Arnalds vildi helzt halda þvi fram, að bandalagið væri eins konar milliflokkur milli sósialdemókrata og kommúnista og reyni að ná fylgi beggja. Slikar tilraunir hafa verið reyndar víðar og borið frem- ur litinn árangur. Þannig er Sósialiski þjóðar- flokkurinn i Danmörku i augljósri hnignun, og fá- ir spá sósialiska kosningabandalaginu i Noregi verulegri framtið. Linurnar milli sósialdemó- krata og kommúnista eru að skerpast að nýju og möguleikarnir til að sameina þessa aðila i einn flokk virðast þvi fara minnkandi. Flokkar, sem reyna að standa þarna á milli, verða þvi nauðugir eða viljugir að halla sér til annarrar hvorrar hliðarinnar. Það er ljóst af ræðu Ragnars Arnalds til hvorr- ar hliðarinnar hann vill hálla sér. Ragnar sagði orðrétt: „Stundum heyrum við, að Alþýðubandalagið sé á hraðri leið til hægri. En slikt er hinn mesti mis- skilningur. Það er einmitt þetta sem þarf að ger- ast, að Alþýðubandalagið dragi til sin verulegt fylgi frá Alþýðuflokknum og öðrum flokkum hægra megin við það, án þess að Alþýðubanda- lagið þokist til hægri. Engin rök verða færð fyrir þvi, að Alþýðubandalagið hafi færzt til hægri. Alþýðubandalagið hélt t.d. fastar á herstöðvar- málinu i seinustu vinstri stjórn en það gerði i vinstri stjórninni árið 1956 með fulltingi Sósial- istaflokksins”. Hér játar formaður Alþýðubandalagsins ótvi- rætt, að millistöðunni, sem Alþýðubandalagið hefur valið sér milli sósialdemókrata og komm- únista, sé fyrst og fremst ætlað að ná fylgi frá hægri, án þess að bandalagið sjálft færist nokkuð til hægri. Þetta er m.ö.o. nákvæmlega sama vinnuaðferðin og þegar Einar Olgeirsson og Brynjólfur Bjarnason breyttu nafni Kommúnistaflokks íslands fyrst i Sameiningar- flokk alþýðu-Sósialistaflokkinn og siðar i Alþýðu- bandalagið. Þeir Einar og Brynjólfur voru ekki neitt að breyta stefnunni, þótt þeir breyttu nafn- inu. Nafninu var aðeins breytt til að ná meira fylgi frá hægri, án þess að breyta stefnunni. Formaður Alþýðubandalagsins játar hrein- skilnislega i framangreindum umræðum sinum, a§ þetta sé vinnuaðferð Alþýðubandalagsins enn i dag. Það eigi að ná fylgi frá hægri, en stefnan eigi að vera óbreytt, og raunar sé hún nú enn lengra til vinstri en stefna Sósialistaflokksins var 1956 ífndir forustu þeirra Brynjólfs og Einars. Frekara þarf ekki vitnanna við um það, að for- ustumenn Alþýðubandalagsins telja flokk sinn miklu fremur kommúnistiskan en sósialdemó- kratiskan, þótt reynt sé að ná sósialdemókrötum til fylgis við hann. Þessa játningu hefur formaður Alþýðubandalagsins orðið að gera, þvi að ekki er hægt að vera bæði kommúnistiskur og sósi- aldemókratiskur i senn, og millistaða er raun- verulega ekki til milli þessara tveggja stefna. Hann játar þvi hreinskilnislega, að hægra bros Alþýðubandalagsins sé aðeins pólitisk vinnuað- ferð, en stefnan sé óbreytt og sé raunar enn rót tækari en i tið Einars Olgeirssonar og Brynjólfs Bjarnasonar. Vissulega er þetta athyglisverð játning. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Allsherjarþingið viður kennir Palestínumenn Telur þá eiga fullan rétt til sjálfstæðis UNDANFARNAR vikur hefur mikil athygli beinzt að allsherjarþingi Sameinuöu þjóðanna sökum þeirrar um- ræöu um Palestinumálið, sem þar hefur farið fram. t'tilefni af þvi þykir rétt að rekja i stuttu máli afskipti Sameinuðu þjóð- anna af þessum málum frá upphafi: t aprflmánuði 1947 barst Sameinuðu þjóðunum ósk um það frá Bretum, að þær tækju málefni Palestinu til sérstakr- ar meðferðar, þar sem Bretar væru ákveðnir i að láta af stjórn þar, en skæruliðasam- tök Gyðinga höfðu gert þeim óvært I landinu. Sameinuðu þjóðirnar tóku málið strax til meðferðar og varð niðurstað- an sú, að allsherjarþingið samþykkti i nóvember 1947 til- lögu þess efnis, að Palestinu yrði skipt i tvö riki, Gyðinga- riki og Arabariki, en Jerúsa- lem skyldi sett undir alþjóð- lega stjórn. I framhaldi af þessu héldu Bretar frá Pales- tinu i maimánuði 1948 og lýstu Gyðingar þá yfir stofnun tsra- elsrikis. Styrjöld hófst þá milli ísraelsmanna og Araba og veitti tsraelsmönnum öllu bet- ur, nema i viðureign við Jordaniumenn. Sameinuðu þjóðirnar reyndu að miðla málum og tókst að koma á vopnahléssamningum i mai 1949. Samkvæmt þeim fékk tsraelsríki nokkru meira land en þvi hafði upphaflega verið ætlað samkvæmt tillögum S.Þ. Jordanía lagði hinn svo- kallaða vesturbakka Jordanár undir yfirráð sin og Egyptar Gazasvæðið. Jerúsalem var skipt milli tsrael og Jordaníu, en var þó að vissu leyti undir sameiginlegri stjórn. Gæzlu- sveitum frá Sameinuðu þjóðunum var falið að fylgjast með þvi, að vopnahlé væri haldið, en þær voru eingöngu staðsettar i Arabalöndunum, þar sem tsraelsmenn neituðu þeim um landvist. Meöan á styrjöldinni stóð, haföi meginþorri Araba verið hrakinn eða flúið frá þeim landsvæðum, sem féllu undir Israel. Sameinuðu þjóðirnar ákváðu að beita sér fyrir sér- stakri aðstoð við þá og tóku flestir þeirra sér þvi bólfestu i flóttamannabúðum i ná- grannalöndunum. Jafnframt var samþykkt ár eftir ár á allsherjarþinginu, að flótta- mennirnir ættu rétt á að hverfa aftur til fyrri heim- kynna eða að fá skaðabætur. Þessu hefur tsrael alltaf hafn- að. Flóttamennirnir héldu hiris vegar áfram að lifa i von- inni um heimkomu vegna þessara ályktana allsherjar- þingsins. ÞETTA ástand hélzt nokk- urn veginn óbreytt til 1967. Þá visuðu Egyptar gæzlumönn- um S.Þ. frá landamærunum. tsraelsmenn gripu þá tækifæri til að hefja leifturstrið gegn Arabalöndum og varð vel ágengt. Þeir tóku Gazasvæðið og Sinaiskagann af Egyptum, vesturbakkann af Jordaniu og Golanhæðir af Sýrlendingum. Þá lögðu þeir Jerúsalem alveg undir yfirráð sin. Vopnahlé komst á fyrir milligöngu Sam- einuðu þjóðanna og var málið til meðferðar I öryggisráðinu allt sumarið 1967. I nóvember 1967 náðist samkomulag i öryggisráðinu um hina marg- nefndu 242 — ályktun. I tillög- unum er lögð megináherzla á tvö höfuðatriði: 1. tsrael kveðji herlið sitt heim frá svæðum, sem voru hertekin i styrjöldinni 1967. 2. Viðurkennt verði sjálf- Arafat talar á aiisherjarþinginu stæði allra rikja i viðkomandi heimshluta og friðhelgi landa- mæra þeirra. Til viðbótar þessu leggur til- lagan svo áherzlu á, að siglingar verði frjálsar um allar helztu siglingaleiðir á þessu svæði, og er þá vitan- lega átt við Súezskurð, og að stefnt verði að réttlátri lausn á málum flóttamanna. Alyktun-242 hefur siðan ver- ið grundvöllur allra friðarum- ræðna um þessi mál. Hún er ekki sizt merkileg fyrir þá sök, að i henni felst, að Arabarikin eru tilbúin til að viðurkenna sjálfstæði og landamæri tsra- els, ef tsrael lætur herteknu svæðin af hendi. AF HALFU Palestinu- Araba gætti strax mikillar óánægju yfir ályktun 242 vegna þess, að hún segir ekki neitt til um hvernig eigi að leysa mál þeirra. Þvi má segja, að hún hafi óbeint orðið til að hleypa nýju lifi i sjálf- stæðisbaráttu þeirra, sem hafði verið mjög veik áður. Sjálfstæðishreyfing þeirra hóf þvi baráttu fyrir þvi, að mál þeirra yrði tekið til sérstakrar meöferðar og má segja, að hún hafi komið þvi fram nú i haust I þremur áföngum. Fyrsti áfanginn var sá, að fá Palestinumálið tekið upp sem sérstakan dagskrárlið á alls- herjarþinginu. Annar áfang- inn var sá, að fá ráðstefnu æðstu manna Arabarikjanna i Rabat til að fallast á að Frels- issamtök Palestinu-Araba skyldu vera samningsaðilinn um framtíð vesturbakkans, en ekki Jordaniustjórn. Þriðji áfanginn er svo ályktun sú, sem allsherjarþingið sam- þykkti með yfirgnæfandi meirihluta siðastl. föstudag. Aðalatriði hennar eru þessi: Réttur Palestinu-Araba til sjálfsákvörðunar og sjálf- stæðis er viðurkenndur. Þetta hefur ekki áður verið sam- þykkt jafn afdráttarlaust, heldur aðeins talað um laga- legan rétt Palestínu-Araba (legitimate rights), sem er óljóst orðalag undir þessum kringumstæðum. Réttur Palestinu-Araba til að hverfa aftur til fyrri heim- kynna er enn á ný viðurkennd- ur. Þetta hefur verið sam- þykkt á flestum eða öllum þingum S.Þ. siðan 1948, en fáir lita þó á þetta sem raunhæfa ályktun lengur, þvi að tsrael muni aldrei fallast á þetta. Hins vegar mun þykja rétt að halda þessu til streitu, unz friðarsamningar hafa náðst. Deilan um Palestinu verður ekki leyst, nema Palestinu- Arabar séu einn aðalaðilinn að samkomulagi um lausnina og réttur þeirra til frelsis viður- kenndur. Fleiri atriði eru nefnd i ályktuninni en þessi skipta mestu máli. Að ýmsu leyti mun ályktunin ganga skemmra en róttækustu Arabarikin vildu. Orðalag hennar er miðað við það, að sem flest riki gætu sætt sig við hana. Ýms riki vildu að visað væri til 242-ályktunarinnar, svo að vafalaust væri, að ekki væri verið að ganga neitt á rétt tsraels. Nokkur riki sátu hjá af þessum ástæðum eða greiddu atkvæði á móti. Meiri- hlutinn taldi þessa hins vegar ekki þörf, þar sem ályktunin 242 stæði eftir sem áður i fullu gildi, og skoða bæri tillöguna sem viðbót við hana, en ekki sem neina breytingu. Alyktun 242hefur verið réttilega gagn- rýnd vegna þess, að hún væri ekki nógu ljós hvað snerti málefni Palestinu-Araba. Mörg riki, sem greiddu at- kvæði með tillögunni, áréttuðu sérstaklega, að hún beindist ekki að neinu leyti gegn Israel og afstaða þeirra til sjálf- stæöis tsraels væri þvi óbreytt. Athygli vakti, að Búlgaria, sem er talið mesta fylgiriki Sovétrikjanna, tók undir þetta. Með þessari ályktun alls- herjarþingsins, hefur sú stefna fengið alþjóölegan stuöning, að nýtt Palestinuriki eigi að risa á vesturbakkan- um, þvi að raunverulega fjall- ar tillagan um þetta, þótt það séekki nefnt berum orðum. Af hálfú lsraelsmanna er þessu tekiö illa, eins og er, en vafa- laust munu þeir gera sér það ljóst innan tiðar, að ekki verð- ur hægt að ná samkomulagi á öðrum grundvelli. Þess vegna getur farið svo, að þessi álykt- un allsherjarþingsins eigi eftir aö teljast stórt skref i friðar- átt, þvi að hún gerir tsraels- mönnum það ljóst, hvert sé al- menningsálitið i heiminum i þessum efnum og að sú stefna, sem þeir fylgja nú, leiði til einangrunar og andstöðu, og sé þvi allt annað en sigurvæn- leg. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.