Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Tíminn - 26.11.1974, Blaðsíða 16

Tíminn - 26.11.1974, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Þriðjudagur 26. nóvember 1974. Ármann fórnar- lamb ÍR-inga ÍR-ingar halda sigurgöngu sinni áfram í 1. deildar keppninni í körfu knattleik IR-ingar halda áfram sigurgöngu sinni i 1. deildar keppninni I körfuknattleik. — A sunnudaginn uröu Armenningar fórnarlömb þeirra i æsispennandi leik i iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi. Framlengja þurfti leikinn, þvi aö jafntvar (74?74) eftir venjulegan leiktima. Þegar framlengingunni var aö Ijúka, höföu Armenningar yfir (82:80), og allt leit út fyrir aö þeir bæru sigur úr býtum. En lr- ingar voru ekki af baki dottnir. Þeir náöu knettinum og jöfnuöu (82:82), eftir aö Armann haföi misnotaö tvö vítaskot — og þegar aöeins sek. var tii leiksioka, skaut Kristinn Jörundsson góöu skoti, sem hafnaöi i körfunni um leiö og leiktimanum iauk. Þar með voru IR-ingar búnir aö tryggja sér sigur i leiknum, og um leið höfðu þeir rutt erfiðum keppinaut úr vegi i keppninni um tslandsmeistaratitilinn. Agnar Friðriksson átti mestan heiður af sigri tR-liðsins. Hann var óstöðv- andi i leiknum — skoraöi 33 stig. Þaö er ekki að sökum að spyrja: þegar Agnar finnur fjölina sina, getur ekkert stöðvað hann. Kristinn skoraði 17 stig fyrir tR, en Jón Sigurðsson var stiga- hæstur hjá Ármanni, með 29 stig. ARMENNINGAR sigruðu stú- denta (70:66) i spennandi leik á laugardaginn, og NJARÐVIK- INGAR áttu ekki i erfiðleikum með HSK — unnu stórt, 85:69. Auka- leikur ARMANNS- og Valsstúlkurnar þurfa aö ieika aukaúrslitaleik i Reykjavikurmótinu i handknatt- leik. Liðin uröu jöfn aö stigum, hlutu 8 stig. Valsstúlkurnar sigruöu Reykjavikur- og tsiands- meistara Fram 12:10 á föstudags- kvöldiö, þá vann Ármann KR 8:5 og Vikingur vann ÍR 12:1. Lokastöan i Reykjavikurmótinu varð þessi: Valur 5 4 0 1 52:31 8 Ármann 5 4 0 1 43:27 8 Fram 5 3 0 2 50:31 6 Vikingur 5 3 0 2 39:33 6 KR 5 2 0 3 32:38 4 1R 5 0 0 5 18:74 0 Bjarni tekin úr um- ferð... BJARNI Jónsson var tekin úr umferö I sinum fyrsta leik meö Þrótti i 2. deildar keppninni i handknattleik. Þrátt fyrir þaö áttu Þróttarar ekki I vandræöum meö nýliöa Stjörnunnar — sigruöu meö tiu marka mun, 29:19.' Fjórir leikir voru leiknir i 2. deild karla um helgina, og urðu úrslit þeirra þessi: Þróttur — Stjarnan 29:19 KR —Fylkir 29:11 Þór — Breiöablik 21:12 KA — Breiöablik 29:21 Bandaríkjamaður kom í veg fyrir að KR kæmist í úrslit — í alþjóðlegu körfuknattleiksmóti í Dublin BANDARtKJAMAÐUR, sem leikur meö skozka meistaraliöinu BOROUDHMUIR i körfuknatt- leik, kom i veg fyrir aö KR-ingar kæmust I úrsiit i alþjóölega körfu- knattleiksmótinu, sem fór fram i Dublin i irlandi um helgina. Hann var potturinn og pannan i leik Boroudhmuir, sem sigraði KR 97:92 i mjög skemmtilegum og vel leiknuin ieik. fþróttasiöan haföi samband viö Hilmar Victorsson eftir leikinn, og sagöi hann, aö KR-Iiöiö heföi leikið þarna einn sinn bezta leik. — Ef Bandarikjamaöurinn heföi ekki leikið meö skozka meistaraliðinu, þá heföum viö unniö sigur. — Það sýnir bezt hvað leikurinn var góður, að liöin skoruðu bæði um 100 stig í honum. Boroudh- muir flaggaði með 8 skozka landsliðsmenn — það segir mikið. Til gamans má geta þess, að Skotland sigraði tsland meö um 20 stiga mun fyrir stuttu i Edin- borg. A þessu sést, að skozka meistaraliðið er mjög sterkt. Skotarnir höfðu yfir (51:38) I hálf- leik. t siðari háfleik tókst KR-ing- um að minnka muninn niður i 5 stig, en leiknum lauk með sigri Boroudhmuir, 97:92. Hilmar sagði, að hraðaupp- hlaupin hefðu heppnazl; mjög vel NVLIÐARNIR á Seltjarnarnesi, Grótta, náöu óvæntu jafntefligegn Reykjavikurmeisturum Fram (19:19) I 1. deildarkeppninni i handknattleik. Fram-liöiö var búiö aö ná 6 marka forskoti i siðari háifleik (18:12), þegar allt skall I baklás hjá liðinu, og Fram- arar skoruöu ekki nema eitt mark siöustu 18 min. leiksins, sem fór fram f iþróttahúsinu i Hafnarfiröi á sunnudagskvöldið. Gróttu- menn, meö KR-ingana Björn Pétursson, Atla Þór Héöinsson og landsliösmanninn Árna Indriöason, náöu aö jafna (19:19) á slöustu min. leiksins — þaö var Atli Þór, sem skoraöi jöfnunar- markiö. Framliðið náði aldrei að sýna góðan handknattleik gegn Gróttu, og eini ljósi punktur liðsins var SIGURBERGUR.......kominn I sitt gamla góöa landsiiösform. hjá KR-liðinu, og átti Þröstur Guðmundsson stórgóðan leik — skoraði 34 stig. Kolbeinn Pálsson skoraði 19 stig, en Kristinn Stefánsson var með 9 stig. Boroudhmuir lék siðan til úr- slita I keppninni gegn enska meistaraliðinu Wilson Panters, og sigruðu Skotarnir með sjö stiga mun, og þar með I mótinu. KR-liðið lék sinn fyrsta leik á laugardaginn gegn St. Vincents, liðinu, sem bar sigur úr býtum i mótinu i Dublin sl. ár. St. Vincents náði forustu i leiknum og hafði yfir i hálfleik (30:28) en KR-ingar tóku svo leikinn i sinar hendur og sigruðu 74:64 Stigahæstu menn i leiknum voru: Þröstur 23, Birgir Guðbjörnsson 11, Bjarni Jóhannsson 13, Hilmar Sigurbergur Sigsteinsson, sem er greinilega kominn I sitt gamla góða landsliðsform. Hann skoraði þrjú gullfalleg mörk úr hornum, og þar að auki var hann eins og klettur i vörninni, enda einn okkar bezti varnarleikmaður. Með þessu áframhaldi verður þess ekki langt að biða, að Sigur- bergur klæðist landsliðspeysunni aftur. Björn Pétursson átti góðan leik hjá Gróttu, ásamt Alta Þór, sem var mjög ógnandi, og linumann- inum snjalla, Arna Indriðasyni. Mörkin i leiknum skoruðu: GRÓTTA: Björn 9 (4) viti), Árni 3, Alti 2, Magnús 2, Halldór, Sigurður og Axel eitt hver. FRAM: Björgvin 5, Sigurbergu 3, Pálmi 3, Guðmundur 2, Arnar 2, Kjartan 2. Pétur og Stefán eitt hvor. Dómarar leiksins voru þeir Björn Kristjánsson og Óli Ólsen — sannkallaðir „heimadómarar”. Victorsson og Kolbeinn Pálsson með 9 stig hvor Siöan léku KR-ingar annan leik á laugardaginn, mættu þá Corint- hinas frá írlandi, en i þvi voru 7 landsliðsmenn, sem léku með Ir- landi gegn íslandi i laugardals- höllinni fyrir stuttu. KR-ingar náðu sér aldrei á strik i leiknum, sem lauk með sigri Iranna (74:61), eftirað staðanhafði verið 45:37 i hálfleik. Stigahæstu menn voru: Kolbeinn 23, Þröstur 12 og Bjarni 13. Hilmar var mjög ánægður með keppnina i Dublin, sem hann sagði, að hefði verið mjög góð æfing fyrir KR-liðið, sem heldur til Austurrikis frá London á mið- vikudaginn, og leikur þar gegn U.B.S.C. frá Vinarborg á fimmtu- daginn. — SOS. Þaö var óskiljanlegt undir lokin, hvernig óli gat dæmt löglegt mark af Arnari — þegar 50 sek. voru til leiksloka. óli dæmdi linu á Arnar, sem kom ekki nálægt linunni, þegar hann skoraði. Þá dæmdu dómararnir 3 mörk af Pálma i leiknum — dæmdu á hann skref. —R-SOS— STAÐAN Staöan er nú þessi I 1. deildar keppninni i handknattleik: Haukar 2 2 0 0 39: 34 4 FH 2 2 0 0 38:36 4 Fram 2 1 1 0 35:31 3 Ármann 2 1 0 1 37:36 2 Víkingur 2 1 0 1 37:36 2 Grótta 2 0 1 1 35:38 1 Valur 2 0 0 2 35:39 0 ÍR 2 0 0 2 38:44 0 Nýliðarnir stálu stigi frá Fram... Grótta gerði jafntefli við Fram 19:19 Simonsen markhæstur í „Bundesligunni"... Keppnin í v-þýzku knattspyrnunni er mjög spennandi KEPPNIN i þýzku „Bundeslig- unni” er ekki siöur spennandi en keppnin I ensku fyrstu deildinni. Þaö eru ekki nema sex stig, sem skilja fyrsta og tólfta liö, og ennþá eru eftir 20 umferöir, svo aö allt getur gerzt. Kickers Offen- bach er ennþá I efsta sæti, þótt þaö næöi aöeins jafntefli á heima- velli á móti Duisburg, 3-3. Mörkin fyrir Offenbach skoruöu Janzon og Kostedde (2), og Duisburg-liö- iö, sem var nærri falliö á siöasta keppnistimabili, en nú á mcöal efstu liöa i Bundesligunni. Urslitin i 14. umferð urðu annars sem hér segir: Hamborg—Braunschweig 0-0 Bayern—RW Essen 2-2 Wuppertaler—Mönchengladb. 1-5 Dusseldorf—Bochum 0-1 Schalke—Bremen 2-0 Offenbach—Duisburg 3-3 Köl n —Frankfurt 0-0 Hertha—Kaiserslautern 2-1 Stuttgart—Tennis Borussia 2-1 Toppliðin Hamborg og Braun- schweig gerðu eins og sjá má jafntefli, 0-0 i Hamborg, og virðist svo sem lið HSV sé ekki eins sterkt nú og i byrjun keppnis- timabilsins. RW Essen komst i 2-0 á móti Bayern, en Gerd Muller skoraði tvivegis i seinni hálfleik til aö bjarga jafnteflinu i höfn fyrir Bayern. Mönchengladbach sigraði auöveldlega neðsta liðið, Wuppertaler, á útivelli. Mörk Gladbach skoruðu Heynckes (2), Simonsen, Kulik og Jensen. Sigur Bochum I Dusseldorf kemur á óvart. Balte skoraði eina mark leiksins úr vitaspyrnu. Fischer og Lutkebohmert skoruðu mörk Schalke á móti Werder Bremen, og Ludwig Muller og Kurt Muller skoruðu mörk Herthu BSC, óg Pirrung minnkaði muninn fyrir Kaiserslautern. Hér er svo listi yfir markhæstu menn: Simonsen (Mönchengladbach) 10 mörk Geye (Dusseldorf) og Sandberg) (Kaiserslautern) 9 mörk Muller (Köln) og Fischer (Schalke) 8 mörk. Staðan: Offenbach 14 34-22 20 st. Braunschweig 14 27-14 19 st. Hertha BSC 14 24-14 19 st. Hamborg 14 22-13 18 st. Duisburg 14 30-25 18 st. Mönchengladbach 14 33-21 17 st. Schelke 14 21-12 17 st. Frankfurt 14 38-20 16 st. Bochum 14 24-21 16 st. Dusseldorf 14 22-22 15 st. Köln 14 29-25 14 st. Bayern Munchen 14 25-32 14 st. Kaiserslautern 14 23-26 12 st. RW Essen 14 17-27 12 st. Stuttgart 13 19-27 8 st. Bremen 13 10-31 6 st. Tennis Borussia 14 19-38 5 st. Wuppertaler 14 11-35 4 st. ó.O.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.