Tíminn - 05.12.1974, Page 3
Fimmtudagur 5. desember 1974.
TÍMINN
3
Alberto Veutura hljdmsveitarstjdri, Gunnar Guðmundsson tram-
kvæmdastjóri Sinfóniuhljómsveitarinnar og Sigrfður E. Magnúsdóttir
einsöngvari. Tímamynd: Gunnar.
Myndskreytt útgáfa
íslendinga sögu
ÚT er komin hjá Menningar
sjóði myndskreytt útgáfa ts-
lendinga sögu Sturlu Þórðar-
sonar. tslendinga saga er sem
menn vita hluti Stuiunga , en
þetta er i fyrsta sinn, sem hún
kemur út sérstök. Bókin er
ÍSLENDINGA
SAGA ÞORÐARSONAR
prýdd um fimmtiu myndum
eftir þau Þorbjörgu Höskulds-
dóttur og Eirik Smith, en út-
gáfu annaðist Finnbogi
landsbókavörður Guðmunds-
son.
Sturla Þóröarson hefur haft
mikiö myndskyn eins og ráöa
má af frásögn hans, sagði
Finnbogi, þegar hin nýja út-
gáfa tslendinga sögu var
kynnt fréttamönnum.
Vart þarf aö kynna ís-
lendingum Sturlu Þórðarson,
bróðurson Snorra Sturlu-
sonar, og sá er gekk honum
næstur af sagnariturum mesta
gullaldarskeiös i sögu ís-
lenzkra bókmennta.
Er liklegt talið að Sturla hafi
samið Islendinga sögu á efstu
árum sinum. Hún hefst um
1180 og nær til 1264, er Þórður
Framhald á 14. siðu.
Gagnmerkt rit um
Skeiðarárhlaup og
Grímsvatnagos
— eftir Sigurð jarðfræðing Þórarinsson
ÚT er komin hjá Menningar
sjóði bók eftir Sigurð
jarðfræðing Þórarinsson, sem
nefnist Vötnin strið — saga
Skeiðarárhlaupa og Grims-
vatnagosa. I þessu verki dreg-
ur Sigurður saman I einn stað
geysimikinn fróðleik, sögu-
legan sem jarðvisindalegan,
um Grimsvötn, Grænalón og
hlaup á Skeiðarársandi. Efni
er niður skipað i rétta tima-
röð, þannig að lesendur fá hið
gleggsta yfirlit yfir gos og
hlaup á þessum slóðum, allt
frá þvi að sögur hefjast og
fram til 1972. Að bókarlokum
er að finna annál Grimsvatna-
gosa og Skeiðarárhlaupa sem
og ýmsar visindalegar
ályktanir um viðfangsefnið.
Mikill fjöldi ljósmynda, korta
og annarra skýringamynda
prýðir bókina og i henni eru
átta litmyndasfður.
Á þessu ári eru 40 ár liöin
siöan ég fór að fást við
rannsóknir á þessu sviði.sagði
Sigurður, þegar bókin var
kynnt fréttamönnum. Ég hygg
að hér sé saman komið i einn
stað allt, sem vitað er um
Skeiðarárhlaup og Grims-
vatnagos og þannig á að vera
um hnútana búiö, aö þeir sem
vildu kynna sér þessi mál
þurfi ekki annað að leita.
Fyrsta Grimsvatnahlaupiö,
sem sögur fara af, kom 1332.
Annars er oft á tíðum erfitt aö
átta sig á þvi hvaðan þau hlaup
hafa komið, sem minnzt er á i
fornum heimildum, þvi að
Framhald á 14. siöu.
Söguritun Alþýðubandalagsins
Sú ákvöröun hefur nú bersýnilega verið tekin hjá Alþýðubanda-
laginu að kenna Framsóknarflokknum eingöngu um það, að ekki
tókst að endurreisa vinstri stjórnina með þátttöku Alþýðuflokksins.
1 stjórnmálaályktun, sem samþykkt var á nýloknum landsfundi
Alþýðubandalagsins, segir á þessa leiö:
„Eftir kosningar s.s. suinar voru teknar upp viðræður fulltrúa
fjögurra flokka um möguleikann á myndun nýrrar vinstri stjórnar.
Alþýöubandalagið leit svo á, að mikilvægt væri, að af slikri
stjórnarmyndun gæti orðið. Það sem úrslitum réði um þaö aö hætt
var við þessa tilraun I miöjum kliðum, var afstaða forustumanna
Frainsóknarflokksins. i viðræðum kom það glögglega i ljós, að I
herbúðum Framsóknarmanna hafði kosningasigur Sjálfstæöis-
flokksins haft ógæfusamleg áhrif. Hægri öflin virtust nú alls
ráöandi innan flokksins, og af ráönum hug létu forustumenn
Framsóknarflokksins viðræöurnar um vinstri stjórn stranda, jafn-
skjótt og færi gafst. Eins og brátt kom i Ijós, voru þeir þá þegar
staðráðnir i að leita á önnur mið, enda ekki liöinn iangur timi er þeir
gerðu samninga um aðild að ihaldsstjórn, undir forustu formanns
Sjáifstæðisflokksins. Leiðtogum Framsóknarflokksins var það slikt
kcppikefli að þeir féllust umsvifalaust á algea stefnubreytingu i
ýmsum meginmálum, enda taka þeir nú fullan þátt I að gera að
engu fjölmargt sem vinstri stjórnin hafði iagt grundvöll að”.
Þannig mun Alþýðubandalagið ætla sér að segja þessa sögu á
komandi misserum og árum. Þessa sögu á vafalaust eftir að
margsegja af Þjóðviljanum og áróðursmönnum bandalagsins.
Frósögn Ragnars Arnalds
Svo vel vill til, að til er önnur frásögn, sem tvimælalaust er miklu
öruggari heimild en iandlsfundur Alþýðubandalagsins. Sú frásögn
er skráð af manni, sem tók þátt i sjálfum samningaviðræðunum.
Iiann skrásetti hana strax að viðræðunum ioknum, meðan þær voru
honum I fersku minni, og áöur en nokkur flokksleg ályktun hafði
verið tekin um, hvernig ætti að túlka þær. Þessi maður var Ragnar
Arnalds, nýlega endurkjörinn formaður Alþýöubandalagsins. Þjóð-
viljinn birti viö hann langt viðtal strax aö viöræöunum loknum, eöa
14. ágúst siðast liðinn. Fyrirsögn viðtalsins náði yfir alla forsiðu
Þjóðviljans og hljóðaði á þessa leið:
„Ragnar Arnalds I viðtali við Þjóðviljann
Alþýðufiokkinn skorti viljann til samstarfs” Lokaniðurstaða
Ragnars i viðtalinu er svo þessi:
„Hitt stendur upp úr og er aöalatriöið, að forustumenn Alþýöu-
flokksins skorti bersýnilega vilja til samstarfs”.
Hér er þvi hiklaust haldiö fram af formanni Alþýðubandalagsins,
að viðræðurnar hafi strandað á viljaskorti Alþýðuflokksins til sam-
starfs. í umræddri stjórnmálaályktun Alþýöubandalagsins er hins
vegar hvergi minnzt á Alþýöuflokkinn I þessu sambandi, eða
afstöðu hans. Sá kafli viðræðnanna er alveg þurrkaður út. Nú er
einhliða reynt að halda þvi fram, að Framsóknarflokkurinn sé
sökudóigurinn. Þaðer ekki óeðlilegt, þótt piltarnir úr Alþýðubanda-
laginu, sem stóðu að stúdentafundinuin 1. desember, vilji umskrifa
þjóðarsöguna. Þeir vilja bersýnilega ekki veröa ósnjallari sögu-
ritarar en lærimeistararnir, sem sömdu umrædda stjórnmála-
ályktun Alþýðubandalagsins.
Þ.Þ.
Norskir sjómenn
krefjast aukins
eftirlits með
erlendum togurum
Sigríður E.
Magnús-
dóttir með
Sinfóníunni
SINFÓNIUHLJÓMSVEIT ts-
lands efnir til aukatónleika i
Háskólabiói iaugardaginn 7.
desember kl. 15. Askriftar-
skirteini gilda ekki að þessum
tónleikum. Stjórnandi veröur
italski hljómsveitarstjórinn
Alberto Ventura frá óperunni I
Róm og einsöngvari Sigriður E.
Magnúsdóttir. A þessum tón-
leikum verða fluttir forleikir og
atriði úr óperum eftir Rossini,
Gluck, Mozart, Verdi, Gounod,
Bizet og Saint-Saéns.
Sigriður E. Magnúsdóttir og
Alberto Ventura munu einnig
koma fram á tónleikum á Akur-
eyri á sunnudaginn kl. 17:15. Þar
mun Sigrlður syngja einsöng og
Ventura annast undirleik.
Sigriður E. Magnúsdóttir er
fædd i Reykjavik og hlaut þar
sina fyrstu tónlistarmenntun.
Framhaldsnám stundaöi hún
siðan við Tónlistarháskólann i
Vin, meðal annars hjá Erik
Werba, og lauk kennaraprófi
þaðan 1968. Siðan hefur hún lagt
stund á nám i ljóða — og óperu-
söng við sama skóla og á Italiu.
Hún er nú heima i jólaleyfi.
Sigriður hefur tekið þátt i söng-
keppnum i Evrópu (Belgiu, Finn-
landi, Austurriki), og hlaut hún 1.
verðlaun fyrir ljóðasögn i Belgiu
og viðurkenningu á alþjóðlegri
söngkeppni i Vinarborg. Hún
hefur komið fram á tónleikum I
Evrópu, sem einsöngvari meö kór
og hljómsveit og einnig á sjálf-
stæöum tónleikum.
Alberto Ventura er fæddur á
ítaliu 1930. Hann nam lögfræöi við
Háskólann i Flórens, en lagði
jafnframt stund á tónlistarnám
undir handleiðslu Eriberto Scar-
lini og Vita Frazzi. Hann hefur
verið undirleikari margra frægra
listamanna, meðal annars
Nathan Milstein, Gaspar
Cassado og Franco Corelli. Leik-
húsferil sinn hóf hann sem
aðstoðarhljómsveitarstjóri hjá
Maggio Musicale Florentino á
árunum 1953-1959, en árið 1959
réðst hann að Scala-óperúnni i
Milanó. Um árabil var hann aðal-
hljómsveitarstjóri rikisleik-
hússins i Basel i Sviss, og hann
hefur stjórnað við leikhús i
Berlin, Moskvu og I Chicago auk
fjölmargra leikhúsa á ttaliu.
Ljósin d Akureyjum:
Gátan
óleyst
Gsal-Rvik. i fyrradag fóru
nokkrir menn út i Akureyjar og
athuguðu nákvæmlega, hvort þeir
fyndu eitthvað, sem bent gæti tii
að menn hefðu þar veriö nýlega
ogkveikteld, en eins og frá var
greint i Timanum i gær, sáu menn
beggja vegna Gilsfjarðar ljós af
eldi og reyk, sem virtist koma
utan frá Akureyjum.
Frekari leit er ekki áformuð að
sinni, en mönnum er enn hulin
ráðgáta hvað þarna hafi verið á
ferðinni.
Á iandsfundi norska Fiski-
mannasambandsins var
samþykkt ályktun þess efnis I
gær, að beina þvi til stjórnvalda,
að landhelgiseffirlit með strönd-
um Noregs yrði styrkt til muna.
Aður hafa fiskimcnn I Norður-
Noregi krafizt hins sama, og var
sú krafa árettuð af sambandinu
að marggefnu tilefni. Fiski-
mennirnir segja, að sifellt aukizt
fjöldi erlendra togara, sem veiða
á fiskveiðimörkunum og að gæzla
með þessum skipum sé hvergi
nærri nóg.
Krefjast fiskimennirnir þess, aö
flugvélar verði látnar fylgjast
með veiðum erlendu togaranna,
og fleiri varðskip verði tekin i
notkun og þau fylgist stöðugt meö
toguruuum, en ekki sé látið nægja
að þau skjótist út á mjðin annað
slagið eins og nú er.
Þessar kröfur sjómannanna
benda til þess, að erlendir togarar
séu full djarftækir til aflans rétt
við og jafnvel innan orsku fisk-
veiðimarkanna.
Forvitnileg bókmennta-
kynning í Norræna húsinu
Á SiÐARI bókmenntakynningu
Norræna hússins laugardaginn 7.
desember kl. 16:00 kynna sænski
og finnski sendikennarinn nýjar
athyglisverðar bækur á bóka-
markaði sinna heimalanda. Rit-
höfundurinn, prófessor Lars
Huldén, formaður finnsk-sænska
rithöfundasambandsins, verður
gestur á þessari kynningu.
Lars Huldén er prófessor við
norrænudeild Helsingfors-
háskóla. Hann hefur samið átta
ljóöabækur, og sú nýjasta,
Lásning för vandrarer, er einmitt
að koma út þessa dagana, og enn-
fremur hefur hann skrifað leikrit,
nánast i kabarettstll. Auk þess
hefur hann birt margt visindalegs
eðlis, s.s. doktorsritgerð um
sagnbeyginguna i österbotten-
sænsku, greinar um örnefni og
staðarnöfn, og hann er mikill
Bellmans-fræðingur. Prófessor
Huldén er staddur hér á vegum
Norræna hússins og Háskóla
Islands þar sem hann flytur
einmitt fyrirlestur um Bellman,
fimmtudaginn 5. desember kl.
17:00.
A bókmenntakynningunni á
laugardag mun Lars Huldén ræða
þær finnsksænskar bókmenntir,
sem eru efst á baugi nú, einkum
kvæði, og ásamt finnska sendi-
kennaranum mun hann einnig
ræöa nokkuð um þær tvær bækur,
sem tilnefndar hafa verið til bók-
menntaverðlauna Noröurlanda-
ráös. Auk þess gefur finnski
sendikennarinn nokkurt yfirlit
yfir þann finnska bókakost, sem
til er I Bókasafni Norr. hússins.
Ingrid Westin, sænski sendi-
kennarinn, kynnir ýmsar
athyglisverðar, nýjar sænskar
bækur, og fjallar ennfremur
nokkuð um höfunda þeirra
sænsku bóka, sem til greina koma
við úthlutun bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs, Sven
Delblanc og Göran Palm.
Þessi bókmenntakynning er
öllum opin.