Fréttablaðið - 03.01.2005, Blaðsíða 2
2 3. janúar 2005 MÁNUDAGUR
Neyðaraðstoð í Taílandi:
Íslendingar aðstoða Svía heim
HJÁLPARSTARF Boeing 757-vél frá
Flugleiðumi lagði af stað til
Taílands í gær með á annan tug
lækna og hjúkrunarfræðinga inn-
an borðs sem munu koma til hjálp-
ar Svíum sem á að flytja af
hamfarasvæðinu.
Hinn 30. desember bauð Hall-
dór Ásgrímsson Göran Persson,
forsætisráðherra Svía, aðstoð Ís-
lendinga vegna náttúruhamfar-
anna í Asíu. Sænsk stjórnvöld
þáðu aðstoðina á nýársdag og í
kjölfarið var sett saman teymi
hjálparstarfsmanna sem hélt utan
í gær. Með í för eru tólf hjúkrun-
arfræðingar, sex læknar, tveir
menn frá Slysavarnafélaginu
Landsbjörg og tveir frá slökkvi-
liðinu.
Vélin mun hafa stutta viðdvöl
í Taílandi á meðan hjálpargögn
eru flutt frá borði og sjúklingar
um borð. Íslenska hjúkrunar-
fólkið og læknarnir munu annast
sjúklingana á leið til Svíþjóðar,
en verða ekki eftir í Taílandi.
Vélin mun lenda í Svíþjóð hinn 4.
janúar en ekki liggur fyrir hvort
gert er ráð fyrir fleiri ferðum af
þessu tagi. ■
MEULABOH, AP Hjálparsveitir munu
brátt hætta að leita að eftirlifend-
um á hamfarasvæðunum við Ind-
landshaf, en litlar líkur eru á að
fleiri finnist á lífi. Nú er talið að
um 150 þúsund manns hafi farist í
hörmungunum sem dundu yfir á
annan í jólum. Á indónesísku eyj-
unni Súmötru hefur enginn fund-
ist á lífi í þrjá daga, en talið er að
allt að því hundrað þúsund manns
hafi farist þar. Fólk sem saknar
ástvina sinna hefur þó ekki gefið
upp alla von og leitar að þeim log-
andi ljósi.
Hjálparsveitir hafa einbeitt
sér að því að koma neyðargögn-
um til eyjarskeggja á Súmötru,
þar sem áhrif jarðskjálftans sem
olli flóðbylgjunni voru mest.
Bandarískar þyrlur sveima yfir
eyjunni og koma vatni, kexi og
núðlum til íbúa, sem eru flestir á
vergangi. Stjórnvöld í Indónesíu
og Taílandi hafa gripið til þess
ráðs að nota fíla til að hreinsa
rústirnar sem flóðbylgjan skildi
eftir sig.
Neyðargögn eru loks farin að
skila sér til fórnarlamba skjálft-
ans allt um Indlandshaf. Að sögn
hjálparsveita er fólk orðið ör-
væntingarfullt eftir aðstoð og er
keppst við að koma neyðargögn-
um til þeirra sem urðu verst úti
áður en það er um seinan. Sums
staðar fetar fólk framhjá líkum
fólks á níðurníddum heimilum
þeirra til að verða sér úti um
helstu eldhúsáhöld. Á Andaman-
og Nicobar-eyjum í Indlandi
kvarta innfæddir yfir að hafa enn
ekki fengið nein neyðargögn en
herskip kom að eyjaklasanum í
gær með gögn og veitti vonar-
glætu.
Sums staðar er fólk farið að
líta til framtíðar. Starfsmaður
barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna segir að flóttamenn vilji
koma börnum sínum aftur í skóla
sem fyrst og munu samtökin
starfrækja um 600 skóla fyrir um
120 þúsund börn á Súmötru.
Heilbrigðisyfirvöld hafa
áhyggjur af farsóttum þegar á
líður en enn sem komið er hefur
ekki bólað á þeim. Það er þó for-
gangsverkefni að koma hreinu
vatni til fórnarlamba flóðanna. ■
Gabbpóstur í Bretlandi:
Sagði ætt-
ingja látna
LONDON, AP Breska lögreglan hand-
tók í gær fertugan mann fyrir að
senda aðstandendum fólks sem er
saknað á flóðasvæðunum í Asíu
falsaðar upplýsingar um að ást-
vinir þeirra væru látnir. Maður-
inn sendi tölvupóst í nafni bresku
ríkisstjórnarinnar til þeirra sem
lögðu fram fyrirspurnir um ætt-
ingja sína og vini á vefsíðu Sky-
fréttastofunnar.
Breska ríkisstjórnin segist líta
málið alvarlegum augum og full-
vissar aðstandendur þeirra sem
er saknað að hún myndi aldrei til-
kynna lát ættingja þeirra eða vina
með tölvupósti. ■
Flóðin í Srí Lanka:
Tólf þúsund
börn látin
SRÍ LANKA, AP Starfsmenn barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna segja
að sorgmæddir foreldrar safnist við
strendur Srí Lanka á morgnana í
von um að finna börn sín sem flóð-
bylgjan hreif með sér fyrir viku og
skolaði út á haf. Sumir lifa í voninni
um að finna börn sín enn á lífi.
Af þeim 30 þúsund sem hafa lát-
ist í hamförunum á Srí Lanka eru
tólf þúsund börn. Foreldrar flakka
um flóttamannabúðir í von um að
finna börn sín og hafa oft litlar vís-
bendingar um hvort þau séu á lífi
eða ekki. Víða eru börn grafin í
fjöldagröfum án vitneskju foreldra
þeirra. ■
HLÚÐ AÐ FERÐAMÖNNUM
Forsætisráðherra Taílands spjallar við
erlenda ferðamenn á Phuket-eyju.
Óánægja í Taílandi:
Ferðamenn
fái hjálpina
LONDON Þær raddir gerast hávær-
ari á Taílandi að erlendir ferða-
menn fái betri aðhlynningu en
innfæddir í kjölfar flóðbylgjunnar
sem reið yfir landið. Þetta kemur
fram í breska tímaritinu Guardian.
Surin Cootham slasaðist þegar
flóðbylgjan gekk á land og hefur
ekki getað gengið í kjölfarið. Hann
segist enga læknisaðstoð hafa
fengið og býr í tjaldbúðum ásamt
börnum sínum. Hann segir stjórn-
völd gera það að forgangsverkefni
að koma ríkum ferðamönnum til
hjálpar frekar en innfæddum. ■
Söfnunarsíminn er 907 2020
Með því að hringja í söfnunarsímann leggur þú fram 1.000 kr. til hjálparstarfsins
í Asíu. Einnig er hægt að leggja fram fé með kreditkorti á www.redcross.is,
eða millifærslu á bankareikning 1151-26-000012, kt. 530269-2649.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
kostar birtingu auglýsingarinnar
„Ég sprengdi slatta.“
Guðmundur Gunnarsson er formaður Rafiðnaðar-
sambands Íslands. Impregilo hefur sótt um at-
vinnuleyfi fyrir 150 Kínverja og hefur sambandið
lagst gegn komu þeirra.
SPURNING DAGSINS
Guðmundur, sprengdirðu marga
kínverja um áramótin?
BROTTFÖRIN UNDIRBÚIN
Hjálparsveit skáta í Kópavogi undirbýr
brottförina til Taílands. Tveir starfsmenn
Landsbjargar eru með í för.
FRÁ SÚMÖTRU
Súmatra varð verst úti og þurfti að þola bæði jarðskjálftann og flóðbylgjuna. Talið er að allt að hundrað þúsund manns hafi farist þar.
Fleiri finnast varla
Rúmri viku eftir að flóðbylgjan gekk á land við Indlandshaf eru 150 þúsund
látnir og þúsunda enn saknað. Ólíklegt er að fleiri muni finnast á lífi og hjálp-
arsveitir hætta senn að leita. Neyðargögn eru farin að berast á flesta staði.
Fyrrverandi formaður
Sjálfsbjargar:
Ekki metin að
verðleikum
ÍÞRÓTTIR „Ég tel engan vafa leika á
því að Kristín Rós Hákonardóttir
hefur verið besta íþróttamann-
eskja landsins síðastliðin ár,“ seg-
ir Arnór Pétursson, fyrrverandi
formaður Sjálfsbjargar. sem er
afar ósáttur við kjör á íþrótta-
manni ársins.
Eins og fram hefur komið í
fjölmiðlum hlaut Eiður Smári
Guðjohnsen nafnbótina en Kristín
Rós hafnaði í fjórða sæti.
„Kristín Rós hefur unnið allt
sem hægt er að vinna og er eini Ís-
lendingurinn sem hefur komið
heim með gull af Ólympíuleik-
um,“ segir Arnór. „Ég skil því
ekki hvers vegna gengið er fram-
hjá henni ár eftir ár. Hennar mikli
árangur er ekki metinn að verð-
leikum.“
Arnór segist í framhaldi af vali
á íþróttamanni ársins velta því
fyrir sér hvað fatlaðir íþrótta-
menn þurfi að afreka til þess að
vera kjörnir íþróttamenn ársins. ■
Seltjarnarnes og OR:
Ljósleiðarar
í öll hús
LJÓSLEIÐARI Seltjarnarnesbær og
Orkuveita Reykjavíkur hafa
undirritað samning þar sem gert
er ráð fyrir að ljósleiðaratenging
frá OR verði í öllum húsum á Sel-
tjarnarnesi um mitt ár 2006.
„Með aðild bæjarins að mál-
inu teljum við okkur vera að
stuðla að auknum lífsgæðum íbú-
anna,“ segir Jónmundur Guð-
marsson, bæjarstjóri á
Seltjarnarnesi. „Reynsla frá
Norðurlöndum sýnir að ljósleið-
aratenging er að skila þriggja til
fimm prósenta hærra fasteigna-
verði.“
- at
Tónlistarskólakennarar og hljómlistarmenn skrifa undir kjarasamning:
Kerfisbreytingar verði skoðaðar
KJARASAMNINGAR Félög tónlistar-
skólakennara og íslenskra hljóm-
listarmanna hafa skrifað undir
kjarasamning. Samningurinn
verður borinn undir atkvæði fé-
lagsmanna og Launanefndar
sveitarfélaganna nú í janúar en
samningar tókust að kvöldi
fimmtudagsins 30. desember.
Samningurinn felur í sér
ákveðnar launabreytingar auk
þess sem gert er ráð fyrir að
hugsanlegar kerfisbreytingar
verði skoðaðar á samningstíman-
um. Samningurinn gildir til loka
september árið 2006.
„Það eru ákveðin líkindi með
samningi leikskólakennara og
þessum samningi,“ segir Birgir
Björn Sigurjónsson, formaður
samninganefndar sveitarfélaga.
„Þetta er styttri samningur en
flestir aðrir auk þess sem launin
eru í svipuðum farvegi og samn-
ingur leikskólakennara gerir ráð
fyrir.“
Sigrún Grendal, formaður
Félags tónlistarskólakennara,
segist telja saminginn nokkuð
góðan kost fyrir félagsmenn sína.
„Við gerðum stuttan samning en
honum fylgja bókanir um að unn-
ið verði að hlutum sem taka lengri
tíma,“ segir Sigrún. „Við vonumst
því til að á samningstímanum
náum við að vinna vel í haginn
fyrir næstu samningalotu.“
- ht
TÓNLISTARNEMENDUR
Félög tónlistarskólakennara og hljómlistarmanna hafa skrifað undir kjarasamning til tæpra
tveggja ára. Greidd verða atkvæði um samninginn í þessum mánuði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
02-03 2.1.2005 21.14 Page 2