Fréttablaðið - 03.01.2005, Page 14

Fréttablaðið - 03.01.2005, Page 14
14 UMHVERFISMÁL Starfsemin er fyrir nokkru komin á fullt hjá endur- vinnslufyrirtækinu Hringrás við Sundahöfn í Reykjavík, en þar varð stórbruni 22. nóvember síð- astliðinn þannig að flytja varð um sex hundruð íbúa í nágrenninu neyðarflutningum út af hættu- svæði brunans. Einar Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri Hringrásar, segir gífurlegt verk hafa beðið við hreinsun og uppbyggingu, en að því starfi hafi komið bæði núver- andi og fyrrverandi starfsmenn fyrirtækisins. „Þó að illa hafi horft um tíma er búið að lyfta hér grettistaki. Þegar svona áfall dyn- ur á kemur í ljós hve sterkt bak- landið er,“ segir hann og kveðst þakklátur fyrir góðan stuðning sem fyrirtækinu hafi verið sýndur. Ekki liggur fyrir hversu mikið tjón varð í brunanum en Einar seg- ir fyrirtækið vel tryggt. „Í svona tjóni er maður aldrei altryggður. Það verður óhapp og svo verður bara að vinna sig út úr því.“ Einar hefur unnið hörðum höndum að fyrirbyggjandi aðgerðum til að koma í veg fyrir að sagan endur- taki sig. „Það verða settir hér upp eldveggir og verið að reisa nýjar skemmur. Svo verður bara farið eftir ítrustu kröfum í forvörnum sem og öðru,“ segir hann og bætir við að vinnulagi hafi verið breytt í þá veru að mun meiri áhersla sé lögð á að vinnsla fari fram jafnóð- um og birgðir losaðar út af vinnsluvæðinu. Þá segir hann ekki hafa verið þrýst á um að starfsemi fyrirtækisins verði flutt. „Enda erum við að taka mjög ábyrgt á málum,“ segir Einar og bendir á að fyrirtækið sinni endurvinnslu og hafi í umræðum á Alþingi verið nefnt þjóðþrifafyrirtæki. -óká Áfallið leiðir í ljós hve sterkt baklandið er EFTIRMÁL? BRUNINN Í HRINGRÁS VIÐ SUNDAHÖFN 3. janúar 2005 MÁNUDAGUR Lítur björtum augum fram á veginn Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi er nýkominn úr nokkurra mánaða leyfi frá störfum. Hann hlakkar til að hitta skjólstæðinga sína á ný, bæði í Ráðhúsinu og á læknisstofunni. FÓLK Hljótt hefur verið að undan- förnu um Ólaf F. Magnússon, borgarfulltrúa Frjálslynda flokks- ins, en fyrir nokkru tók hann sér frí frá stjórnmálunum og læknis- störfunum. Hann mætir hins veg- ar tvíefldur til leiks á nýju ári enda eru horfurnar bjartar. „Mjög svo, vegna þess að nýjasta skoð- anakönnun sem gerð var um fylgi flokkanna í borginni sýnir að við erum ekki lengur minnsta stjórn- málaaflið heldur Framsóknar- flokkurinn. Það eru mér mjög kærkomin tíðindi,“ segir Ólafur en neitar því þó hlæjandi að hjólin hafi farið að snúast hjá flokknum eftir að hann fór í leyfi. „Ég met þetta nú svo að þetta sé vegna góðra starfa F-listans á kjörtíma- bilinu.“ Sú breyting hefur verið gerð á stjórnkerfi borgarinnar að þeir flokkar sem eru í borgarstjórn geta nú skipað áheyrnarfulltrúa í föstum nefndum borgarinnar og telur Ólafur að það muni auka vægi F-listans verulega, auk þess sem nú verði hægt að virkja mun fleiri til starfa. „Borgarstjórnar- flokkur F-listans mun hefja störf á þessu ári sem tíu manna hópur og þegar við komum fram fyrir næstu kosningar verðum við öfl- ug liðsheild sem er vel inni í öllum málum.“ Hálft annað ár er til kosninga og býst Ólafur síður við að sam- einaður Reykjavíkurlisti verði í kjöri. „Ég stórefast um það og ég tel það gott fyrir stöðu borgar- mála að R-listinn hætti að ganga út á það að halda framsóknar- mönnum í lykilstöðu í borgarkerf- inu. Ég hugsa að verði staðan önn- ur en í síðustu kosningum séu sóknarfæri fyrir okkur frjáls- lynda þar sem búast má við að margir sem hugsi hlýtt til okkar treysti sér frekar til að greiða okkur atkvæði því þeir óttast síð- ur að atkvæðið falli dautt niður. Þetta var notað gegn okkur síð- ast.“ Ólafi líst ágætlega á nýja borg- arstjórann, Steinunni Valdísi Ósk- arsdóttur, enda hafa þau setið lengi saman í borgarstjórn. Hins vegar kveðst hann sakna Þórólfs Árnasonar. „Hann var ekki at- vinnustjórnmálamaður og því var það áberandi hjá honum að hann hlustaði meira á rödd andstæð- inga sinna en atvinnustjórnmála- mönnum er tamt.“ Þótt Ólafur hafi í nógu að snú- ast í borgarmálunum má ekki gleyma því að hann er læknir að aðalstarfi og hann hlakkar til að hitta skjólstæðinga sína á nýjan leik. „Það er alltaf erfitt fyrir heimilislækni að taka sér frí því tengsl læknisins við skjólstæð- inga sína eru mjög sterk. Það sýn- ir sig að fólk hérlendis eins og annars staðar vill hafa sinn heim- ilislækni. Á sama hátt og ég met það mikils finnst mér vont að vera ekki í kallfæri við fólkið mitt eins og hefur verið nú í vetur,“ segir Ólafur og bætir því við að án stuðnings skjólstæðinga sinna úr heimilislæknastarfinu hefði hinn óvænti árangur F-listans tæpast orðið að veruleika. sveinng@frettabladid.is Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • 562 8501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is BIC Atlantis penni Verð 90 kr/stk PILOT SUPER GRIP Verð 75 kt/stk Ljósritunarpappír 397 kr/pakkningin Skilblöð númeruð, lituð, stafróf eða eftir mánuðum. Gatapokar 100 stk í pakka 486 kr/pk STABILO BOSS Verð 78 kr/stk Borð leggja ndi borð mott ur TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 339 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2005 Geisladiskar þar sem gæðin skara framúr í 10-25-50 og 100 stk einingum VANN MILLJÓNIR Í PÓKER Á INTERNETINU RÚNAR RÚNARSSON FLUGSTJÓRI DATT Í LUKKUPOTTINN FYRIR JÓL: – hefur þú séð DV í dag? 7 TILBRIGÐI VIÐ EINLIÐALEIK Ástralski fjöllistamaðurinn Fróði kapteinn sýnir listir sínar í Oz-sirkusnum. Liðamót Fróða eru ekki eins og hjá flestu fólki og því getur hann íklæðst spöðunum á þennan hátt. BRUNINN HJÁ HRINGRÁS Framkvæmdastjóri Hringrásar við Sunda- höfn í Reykjavík vildi koma á framfæri ára- mótakveðjum til allra sem stutt hefðu fyrir- tækið með ráðum og dáð í kjölfar brunans í nóvember. „Ekki síst til þeirra fjölmörgu sem sendu okkur heillaskeyti,“ sagði hann og hvatti gamla viðskiptavini sem nýja til að færa fyrirtækinu hráefni til endur- vinnslu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M M YN D /A P ÓLAFUR F. MAGNÚSSON „Heiðarlegur og duglegur stjórnmálamaður,“ segir Ólafur um Steinunni Valdísi Óskars- dóttur en kveðst samt sakna Þórólfs Árnasonar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N 14-15 24 klst. 2.1.2005 20:27 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.