Fréttablaðið - 03.01.2005, Qupperneq 42
Níunda Heklugosið hófst þennan
dag 1597. Það stóð í að minnsta
kosti hálft ár. Margar samtíma-
heimildir eru til um þetta gos en
ítarlegasta lýsingin er í bréfi
Odds Einarssonar Skálholtsbisk-
ups til séra Böðvars Jónssonar.
„Þessi ógnarlega eldsuppkoma
í Heklu og önnur þau býsn, sem
þar með fylgja, sem eru brestir og
dynkir, álíka sem heyra má þá
reiðarþrumur berjast mest í lopti.
Bar þetta fyrst til á mánudags-
kvöldið eptir áttadag um
kvöldrökkurstíma, kom fyrst jarð-
skjálfti, svo menn urðu varir við
nokkra kippi bæði hér og annars
staðar, og þar fylgdi með ógurlegt
myrkur, að sögnum þeirra, er úti
voru, því þeir þóttust ei sjá niður
fyrir fætur sér, en þó var áður
klár heiðríkja og stjörnuljós. Í
sama vetfangi gaus upp úr Heklu
suðaustanverðri eldur og eisa með
sandi og ösku og tilsýndar héðan
sem hún væri öll í einum loga, allt
eins og heitasti tígulofn.“
Tjón varð lítið í þessu gosi
enda hófst það á heppilegasta
tíma, um hávetur. Öskufall var
fremur lítið og barst til ýmissa
átta, mest til suðausturs, yfir
Mýrdal. Ekkert er vitað um
hraunrennsli enda hraunin úr
þessu gosi trúlega horfin undir
yngri hraun. (heimildir sóttar á
vef Orkustofnunar, os.is. Textinn
úr bréfi Odds Einarssonar er úr
bók dr. Sigurðar Þórarinssonar,
Heklueldar.) ■
ELDGOS Í HEKLU
Níunda Heklugosið
Akureyringurinn Svavar Frið-
rik Hjaltalín settist í helgan
stein á nýliðinni Þorláksmessu.
Þá hafði hann starfað á sama
vinnustaðnum í 56 ár en vinnu-
veitandinn var Útgerðarfélag
Akureyringa, sem nú er í eigu
Brims.
Svavar, sem varð sjötugur í
vetur, byrjaði að vinna hjá ÚA
14 ára gamall og þegar hann
hætti þar á Þorláksmessu gaf
Brim honum listaverkið
„Traustir hlekkir“ eftir Hall-
grím Ingólfsson á Akureyri.
Verkið samanstendur af þremur
hlekkjum úr fótreipiskeðju af
Kaldbaki EA og fjörugrjóti af
lóð Brims á Akureyri en á gull-
plötu á listaverkinu er letrað:
Svavar Hjaltalín - Með þökk
fyrir 56 ára gæfuríkt samstarf.
Með fylgdi karfa hlaðin góð-
gæti.
Svavar vann undir stjórn
allra þeirra sem stýrt hafa ÚA
og síðar Brimi: Guðmundi Guð-
mundssyni, Andrési Péturssyni,
Gísla Konráðssyni, Vilhelm Þor-
steinssyni, Gunnari Ragnars,
Guðbrandi Sigurðssyni, Gunn-
ari Larsen og Guðmundi Krist-
jánssyni. Ber hann mikið lof á
stjórnendur félagsins í gegnum
tíðina og telur að velgengni þess
megi þakka dug þeirra og fram-
sýni sem og þeirri gæfu að
félagið hafi alltaf haft yfir að
ráða góðu starfsfólki. - kk
18 3. janúar 2005 MÁNUDAGUR
J.R.R. TOLKIEN
fæddist þennan dag 1892.
Á sama vinnustað í 56 ár
SVAVAR FRIÐRIK HJALTALÍN: HÆTTI STÖRFUM Á ÞORLÁKSMESSU
“Ekki leita ráða hjá álfum. Þeir segja
bæði já og nei.“
Skyldu þeir vera álfar í Farmsóknarflokknum?
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Matthías Johannessen
er 74 ára í dag.
Kristín Á. Ólafsdóttir
kennari er 55 ára.
Guðmundur Ármann
Sigurjónsson listmálari
er sextugur.
Sölvi H. Blöndal í Quarashi er 29 ára.
JARÐARFARIR
13.30 Kristín Halldórsdóttir, frá
Þrasastöðum í Stíflu, síðast til
heimilis á Ásvegi 15, Akureyri,
verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju.
14.00 Ásdís Þórðardóttir, Brúarlandi,
Fellabæ, verður jarðsungin frá
Egilsstaðakirkju.
Þennan dag 1959 var Alaska
fullgilt sem 49. riki Bandaríkj-
anna. Evrópumenn uppgötvuðu
Alaska 1741. Það var rússneskur
leiðangur undir stjórn Danans
Vitusar Bering sem það gerði.
Frumbyggjar landsins hrundu
niður úr pestum eftir að rúss-
neskir veiðimenn tóku að gera
sér tíðförult til Alaska. 1784 var
fyrsta rússneska landnámið
stofnað á Kodiak-eyju. Snemma
á 19. öld tóku Rússar að taka
sér bólfestu á Kyrrahafsströnd
Ameríku og komust syðst ná-
lægt því sem nú er Bodega-flói í
Kaliforníu. Eftir 1820 dró úr um-
svifum Rússa í Nýja heiminum
og að því kom að Rússar seldu
Bandaríkjamönnum Alaska fyrir
7,2 milljónir dala árið 1867. Ut-
anríkisráðherrann sem gerði
kaupsamninginn varð fyrir að-
kasti heima fyrir, bæði í þinginu
og blöðunum, og kaupin voru
kölluð axarskaft hans og forset-
ans og landið kallað „Hvíta-
bjarnagarður forsetans“. Engu
að síður voru kaupin staðfest í
þinginu og tæpri öld síðar gekk
Alaska í ríkjabandalagið. Þegar
fram liðu stundir varð öllum
ljóst að Bandaríkjamenn höfðu
gert kjarakaup, því fylkið er eitt
náttúruauðugasta svæði álfunn-
ar.
3. JANÚAR 1959
Hæsta fjall Alaska, McKinley-tindur.
Alaska varð 49. ríki Bandaríkjanna
þennan dag.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1431 Heilög Jóhanna af Örk látin
í hendur biskupnum af
Beauvais.
1521 Marteinn Lúter bannfærður
af kaþólsku kirkjunni.
1833 Bretar ná yfirráðum á
Falklandseyjum.
1887 Fimm skip frá Skagaströnd
farast í ofsaveðri. 24 menn
farast.
1888 Kona kýs í fyrsta sinn í
sveitarstjórnarkosningum,
Kristín Bjarnadóttir í
Reykjavík.
1925 Mussolini leysir upp ítalska
þingið og tekur sér alræð-
isvald.
1962 Páfinn bannfærir Fidel
Castro.
1990 Íslandsbanki stofnaður
með samruna Alþýðubank-
ans, Iðnaðarbankans, Út-
vegsbankans og Verslunar-
bankans.
Alaska verður eitt Bandaríkjanna
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Guðlaug Einarsdóttir
Máshólum 10, áður Laugarnesvegi 104,
Verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 6. janúar
klukkan 13.00. Fyrir hönd aðstandenda,
Guðbjörg Guðmundsdóttir, Ólafur Pétursson, Þórfríður Guð-
mundsdóttir, Gísli Kr. Jónsson, Guðlaug Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Anna María Friðbergsson
Máshólum 10, áður Laugarnesvegi 104,
lést 19. desember. Jarðarförin fer fram í Dómkirkjunni þriðjudag-
inn 4. janúar klukkan 13.00.
Alice Gestsdóttir, Björn Jónsson, Agnes Gestsdóttir, Karen Gestsdóttir,
Rafn Vigfússon, Vilborg Gestsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson,
Kristrún Gestsdóttir, Ingi B. Jónasson, Ómar F. Dabney, Ingveldur
Gísladóttir, María Vala Friðbergs, barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
tengdadóttir, amma og systir,
Ragnhildur Guðjónsdóttir
lést á heimili sínu Skipastíg 11 laugardaginn 1. janúar.
Sævar Þórarinsson og fjölskylda.
SÍÐASTI VINNUDAGURINN Svavar hóf störf hjá ÚA 1948, ári eftir að fyrsti togari félagsins, Kaldbakur EA, kom til Akureyrar.
42-43 (18-19) Tímamót 2.1.2005 19:46 Page 2